17.10.1977
Sameinað þing: 4. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í B-deild Alþingistíðinda. (33)
Umræður utan dagskrár
Lúðvík Jósepsson:
Herra forseti. Í morgun óskuðum við formenn þingflokka Alþb. og Alþfl. eftir því, að hæstv. ríkisstj. gerði hér á Alþ. grein fyrir stöðu samninga varðandi það verkfall sem nú stendur yfir hjá opinberum starfsmönnum. Eins og allir vita, hefur þetta verkfall nú staðið í rúma viku og er þegar faríð að hafa allvíðtæk áhrif í þjóðfélaginu. Alþ. hefur hins vegar ekki fengið neina skýrslu frá ríkisstj. um stöðu málsins á þann hátt sem við teljum að eðlilegt hefði verið að gefa hér. Það hafa að vísu komið frá hálfu ríkisstj. fram nokkur sjónarmið sem hún hafði sett fram í samningaviðræðunum, en úr því að verkfall var skollið á og ný staða var komin upp í málinu, þá hefur ekki komið fram af hálfu ríkisstj. neitt um það, hvað hún hugsaði sér frekar fyrir í málinu.
Það er ekki um það að villast, að það er brýn þörf á því að reynt sé að leysa þessa deilu sem upp er komin, og auðvitað hvílir á ríkisstj. alveg sérstök skylda að hafa áhrif á það að leysa deiluna, þar sem hún er beinlínis annar samningsaðilinn. Það er því skoðun mín, að eins og nú er komið beri ríkisstj, skylda til að hafa forgöngu um það að viðræður verði teknar upp á nýjan leik og á þeim grundvelli sem einhver von er til að hægt verði að leysa málin.
Mér sýnist að af hálfu ríkisstj. hafi ekki verið vel haldið á þessum málum. Frá því var skýrt, að fulltrúar ríkisstj, hefðu á lokastigi viðræðnanna tilkynnt að tilboð þeirra, sem þeir þá lögðu fram, væri lokatilboð. Ég held að það séu allir menn sammála um það; að vinnubrögð af því tagi, sem þarna áttu sér stað, hefðu aldrei getað gerst t.d. í samningaviðræðum atvinnurekenda hér almennt og Alþýðusambandsins. Þar sem aðilar, sem eru kunnugir slíkum vinnubrögðum, fara með málið, gera þeir sér ljóst að eftir nokkurt samningaþóf segir ekki annar aðilinn: Nú gengur þú að þessu eða allt er búið. — Þannig tala menn ekki við samningaborð í jafnerfiðum samningum og launasamningar yfirleitt eru. Ég álít að í þessum efnum hafi ríkisstj. orðið á mikil skyssa, sem beinlínis hafi leitt til þess að viðræður féllu niður, en hefðu átt að halda áfram og menn hefðu átt að halda áfram að leita að samkomulagsgrundvelli. Það er allt annað mál, hvort ríkisstj. hafi fundist á þessu stigi að nóg væri komið, en tilkynning af þessu tagi hlaut vitanlega að leiða til þess að samningar færu í strand, enda varð sú raunin á.
Ég vil einnig segja það, að mér sýnist að það, sem frá ríkisstj. hefur komið varðandi annað mjög mikilvægt atriði í þessu máli, en það er hvað við skuli taka varðandi launakjör opinberra starfsmanna ef breytingar verða á samningstímabilinu gerðar á vísitölugrundvelli eða grundvelli samninganna á annan hátt breytt með opinberum aðgerðum af hálfu ríkisvaldsins, — þá sýnist mér að það, sem frá ríkisstj. hefur komið varðandi þetta, sé algerlega óeðlilegt og ófullnægjandi. Ég tel að það sé sanngjarnt og eðlilegt, að verði til þess gripið af ríkisvaldsins hálfu að breyta grundvelli samninga sem gerðir hafa verið til tveggja ára, þá eigi þeir, sem þá samninga hafa, að fá nákvæmlega sams konar rétt og aðrir launþegar í landinu hafa við slík skilyrði, þá eigi þeir að hafa fullkominn samningsrétt, en ekki takmarkaðan. Ég álít að það sé engin von til þess að nein launþegasamtök geti gert launasamninga til tveggja ára á verðsveiflutímum eins og hjá okkur hafa verið án þess að hafa eitthvert öryggi um það, að verði grundvelli kippt undan samningum af hálfu opinberra aðila, þá verði að taka málið upp á ný.
Ég vil líka segja það í sambandi við það, sem kom fram hjá hæstv. forsrh., að ég tel að hann og efalaust fleiri séu að rugla saman óskyldum atriðum, þar sem talað er um almennan endurskoðunarrétt á samningstímabili og öryggisákvæði í þá átt sem ég hef hér talað um, þ.e.a.s. hvernig með skuli fara ef ríkisvaldið sjálft breyti grundvelli kjarasamninga. Það er, held ég, engin deila um það við opinbera starfsmenn nú að sá samningur, sem við þá verði gerður, eigi að standa í tvö ár. Menn eru því bundnir af þeim samningi allt það tímabil, enda séu auðvitað virtar grundvallarforsendur samninganna, eins og t.d. verðbótaákvæði. Það er um þetta atriði sem endurskoðunarrétturinn fjallaði á sínum tíma. Menn voru þá ásáttir um að ekki væri ástæða til þess að heimta endurskoðun á samningstímabilinu með tilliti til launahreyfingar sem kynni að verða hjá einhverjum öðrum eftir samningagerð þeirra, heldur öryggisákvæði varðandi verðbótareglur, að ef þeim yrði svipt í burtu, þá fengju menn sem sagt fullan samningsrétt til þess að taka á málinu á nýjan leik.
Það var ekki ætlun mín að fara að ræða hér almennt um inntak þessara samninga sem hafa verið í burðarliðnum nú um skeið. Ég legg engan dóm á hvernig launastiginn er í einstökum greinum eða önnur ákvæði sem þar hefur verið fjallað um, umfram það sem ég hef hér sagt. Það stendur og það er mín skoðun, að það hafi verið mjög óheppilegt við þessar viðræður af hálfu ríkisstj. að taka fram, að till. hennar væru lokatillögur, og það hafi haft sín áhrif á það að reka allt í strand. Ég tel líka að afstaða ríkisstj. varðandi öryggisákvæði, sem eðlilega hlýtur að fylgja svona samningum, sé óeðlileg. Um önnur atriði samninganna ætla ég ekki að ræða.
En ég vil að lokum leggja á það áherslu, að það, sem er höfuðatriði málsins eins og nú er komið, er að mjög víðtækt verkfall stendur yfir og er farið að segja mjög alvarlega til sín í þjóðfélaginu. Af þeim ástæðum verður ríkisstj. að hafa frumkvæði í málinu, beita sér fyrir því, að viðræður fari fram, og brjóta þar odd af oflæti sínu. Ég álít einnig að hún eigi að taka til endurskoðunar afstöðu sína varðandi þessi öryggisákvæði í samkomulaginu, af því að ég held að þar hafi hún haldið á óeðlilegan hátt á málinu. Ég held að þessi mál standi ekki þannig, að það sé að hefjast eitthvert nýtt kjarakapphlaup í landinu. Mér sýnist að það, sem þegar hefur fram komið varðandi till. til lausnar á þessari deilu, bendi mjög til þess, að það, sem þar hefur verið talað um, sé nokkuð í samræmi við það, sem þegar hefur gerst og vitað er um í þjóðfélaginu, og að menn eigi því ekki að gera allt of mikið úr einhverjum slíkum fullyrðingum, en snúa sér hins vegar með meiri alvöru að því að reyna að leysa málin. Ég fagna því, að það virðist vera komin nokkur hreyfing á viðræður, og vona, að hæstv. ríkisstj. láti ekki á sér standa að reyna að finna lausn á þessu viðkvæma vandamáli.