27.04.1978
Sameinað þing: 73. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4069 í B-deild Alþingistíðinda. (3321)

Almennar stjórnmálaumræður

Sighvatur Björgvinsson:

Gott kvöld, góðir hlustendur. Þegar umr. þessum er útvarpað er aðeins rösk víka eftir af starfstíma Alþ., síðasta þings á kjörtímabilinu. Rétt er því að athuga hvernig til hefur tekist.

Hinn 29. ágúst árið 1974 gaf ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar út stefnuyfirlýsingu sína. Þar sagði hún hvað hún ætlaði að gera. En hvað skyldi hún hafa gert?

Í stefnuyfirlýsingunni lofaði ríkisstj. að láta gera sérstaka athugun á stöðu lífeyrissjóða og lífeyrisþega í landinu með umbætur fyrir augum. Það var aldrei gert.

Í stefnuyfirlýsingunni lofaði ríkisstj. að beita sér fyrir aðgerðum til jöfnunar á húsnæðiskostnaði og til þess að auka aðstoð við öflun húsnæðis. Það hefur ekki heldur verið gert.

Í stefnuyfirlýsingunni lofaði ríkisstj. því, að ríkisútgjöldum yrðu sett ákveðin takmörk miðað við þjóðartekjur. Það var ekki gert.

Því var líka lofað, að gætt skyldi ítrasta sparnaðar í ríkisrekstrinum. Fjárlög hafa hækkað á kjörtímabilinu um meira en 360%, og á dögunum var upplýst á Alþ. að þrjár tilteknar ríkisstofnanir hefðu á árinu 1976 eytt 158 millj. kr. í bilakostnað einvörðungu, en það samsvarar hartnær 300 millj. kr. á núverandi verðlagi.

Í skattamálum lofaði ríkisstj, endurskoðun, þar sem tekjuskattur yrði afnuminn af almennum launatekjum. Við afgreiðslu fjárl. fyrir árið 1978 voru skattleysismörk lækkuð, þannig að skattbyrðin jókst um meira en 2000 millj. kr. frá fyrra ári. Nýjar skattálögur, sem núv. ríkisstj. hefur lögleitt á kjörtímabilinu, nema á árinu 1978 tæpum 17 milljörðum kr.

Þá lofaði ríkisstj. því einnig, að virðisaukaskattur yrði tekinn upp í stað söluskatts. Það hefur ekki verið gert.

Hún lofaði, að staðgreiðslukerfi skatta yrði komið á eins fljótt og framast væri kostur. Það hefur ekki gerst enn.

Í lánamálum lofaði ríkisstj. því að endurskoða skipulag og starfsemi fjárfestingarsjóða lánastofnana. Það hefur ekki verið gert. Hún lofað að draga úr erlendum lántökum. Á síðasta ári jukust erlendar skuldir þjóðarinnar um tæplega 20 milljarða.

Ríkisstj. lofaði því að koma á jafnvægi í ríkisfjármálum. Síðast þegar til fréttist skuldaði ríkissjóður Seðlabankanum rétt innan við 23 milljarða og á s. l. ári námu meðalskuldir ríkissjóðs við bankann 41% af öllu innstæðufé bankans og seðlaveltu, eða um 15% af heildarráðstöfunarfé bankakerfisins í landinu.

Á þeim takmarkaða tíma, sem ég hef hér til umráða, gefst mér ekki tækifæri til þess að rekja þessa sorgarsögu öllu lengra. Þó vil ég drepa á eitt mál enn.

Norður við Kröflu stendur minnisvarði um núv. orkuráðh. sem kosta mun þjóðina ekki minna en 17 000 millj. kr. á verðlagi í apríl 1978, en það er talsvert meira fé en segir í fjárl. að sé samanlagður tekjuskattur allra einstaklinga og allra félaga á Íslandi á yfirstandandi ári. Til þess að reisa þennan minnisvarða hefur þjóðin tekið erlend lán sem um s. l. áramót námu jafnvirði 160 þús. kr. á hverja meðalfjölskyldu í landinu. Greiðslubyrðin vegna þeirra einna mun nema a. m. k. 1500 millj. kr. á ári næstu ár. Engar upplýsingar er að hafa um rekstrarkostnað virkjunarinnar, enda framleiðir hún hartnær enga raforku. Og svo eru menn að undrast hvers vegna lífskjör hér á Íslandi séu ekki betri en þau eru þegar fé þjóðarinnar er kastað á glæ með þessum hætti.

Góðir hlustendur. Okkur Alþfl.-mönnum hefur lengi verið ljóst, að við þvílíkar aðstæður í efnahagsmálum sem við er að etja á Íslandi er ein af mikilvægustu forsendum þess, að árangur náist sú, að efnt sé til víðtæks samráðs og samstarfs með þjóðinni um lausn. Þetta var skoðun okkar fyrir kosningarnar 1974. Reynslan hefur staðfest hversu rétt hún var og er. Einmitt þess vegna er það rauði þráðurinn í efnahagsúræðum þeim, sem flokksstjórn Alþfl. hefur nýlega samþykkt, að gerður verði kjarasamningur milli ríkisvalds og verkalýðshreyfingar, nokkurs konar gagnkvæmur friðar- og samstarfssamningur sem tryggi m. a. framkvæmd láglaunastefnu Alþýðusambandsins, en veiti jafnframt ríkisstj. svigrúm og nauðsynlegan bakstuðning til þess að stjórna landinu með árangri.

Fyrir um það bil tveimur áratugum var svipað ástatt í efnahags- og stjórnmálum á Íslandi og nú. Tvær ríkisstj. höfðu gefist upp með skömmu millibili. Leiðtogum stóru flokkanna höfðu fallist hendur frammi fyrir vandanum. Fráfarandi forsrh. skýrði þjóðinni svo frá, að hún stæði á barmi hengiflugs og engin samstaða væri um úrræði. Við þessar aðstæður sýndi Alþfl. hvað í honum bjó. Hann axlaði ábyrgðina einn og tókst á aðeins einu ári að finna leiðina út úr vandanum og leggja grundvöllinn að mesta framfaraskeiði í sögu þjóðarinnar.

Ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar gafst upp vorið 1974 eftir að hafa brugðist trausti verkalýðshreyfingarinnar, lent í andstöðu við stjórn Alþýðusambands Íslands og komið þjóðarbúinu á vonarvöl. Allir vita að ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar hefur í rauninni einnig gefist upp, þótt hún tóri enn að nafninu til.

Við þessar aðstæður hefur Alþfl. einn flokka lagt fram ákveðnar efnahagstíll. Í þeim eru ekki fólgin nein kraftaverkameðul, því að slík meðul eru ekki til. Till. okkar mótast af raunsæi, yfirvegun og ákveðnum vilja til þess að ná árangri. Stjórnmálabrautin hefur aldrei reynst okkur Alþfl.-mönnum auðveld yfirferðar. Að engum flokki hefur jafnoft og jafnhart verið sótt og að Alþfl. Okkar vegferð hefur verið stöðug barátta. En hún hefur líka kennt okkur ýmislegt. Hún hefur kennt okkur seiglu, festu og þrautseigju. Hún hefur kennt okkur umburðarlyndi og sáttfýsi. Ég er þeirrar skoðunar, að nú þarfnist íslenska þjóðin forustu sem hefur slíka kosti til að bera. Ég hef þá trú, að í komandi kosningum muni koma mjög áþreifanlega í ljós, að Ísland þarfnast Alþfl. Alþfl, hefur nú byr og er alls óhræddur við að sigla. Alþfl.-menn hafa aldrei óttast ábyrgðina. — Góða nótt.