27.04.1978
Sameinað þing: 73. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4091 í B-deild Alþingistíðinda. (3327)

Almennar stjórnmálaumræður

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Alþfl. hefur um skeið haldið uppi mjög harðri gagnrýni á íslenskt þjóðfélag eins og það er nú orðið. Flokkurinn hefur ráðist á spillingu í valdastéttum, lokað flokkakerfi, sérréttindi og hvers konar misrétti. Hann hefur gagnrýnt hugarfar gróahyggju, skattsvik og eigingirni, sem farið hefur sívaxandi.

Ein meginorsök þessarar óheillaþróunar er verðbólgan sem nú er langhættulegasta vandamál sem þjóðin hefur við að glíma. Ríkisstj. Sjálfstfl. og Framsfl. hefur sýnt undanfarin 4 ár að hún ræður ekki við þann vanda. En nú verður ekki lengur flotið á haldlitlum bráðabirgðaráðstöfunum. Alþingiskosningarnar hljóta að snúast um þetta umfram allt annað.

Alþfl. hefur fyrir nokkru birt till. sínar um aðgerðir í verðbólgumálum næsta kjörtímabil. Till. eru dregnar saman í stutt mál í 10 þáttum og mun ég nú fara fljótlega yfir þær og verð að stytta enn verulega.

Í fyrsta þætti er fjallað um heildarumsvif þjóðfélagsins og fjárfestingu. Það verður að stöðva óarðbæra verðbólgufjárfestingu og setja sterka heildarstjórn yfir lánasjóðakerfið. Allir atvinnuvegir verða að sitja við sama borð.

Í öðrum þætti efnahagsstefnu Alþfl er lagt til að komið verði á stéttarfriði með því að gera svokallaðan kjarasáttmála milli launþegasamtakanna og ríkisvaldsins til að tryggja raunhæfa kaupmáttaraukningu, launajöfnuð og atvinnulýðræði. Á þessu sviði hefur ríkisstj. sérstaklega brugðist með því að hella hvað eftir annað olíu í eld átaka í stað þess að slökkva hann.

Í þriðja þætti er fjallað um verðjöfnunarsjóði sjávarútvegsins. Hlutverk þeirra er að leggja til hliðar í feitu árunum til hinna mögru, svo einfalt er það í raun og veru. En ríkisstj. gerir þveröfugt. Hún hefur greitt úr sjóðunum í góðæri svo að enginn forði er til hinna verri.

Í fjórða þætti er fjallað um fjárhags- og framleiðslumál landbúnaðarins sem allir viðurkenna nú að eru erfið, en þar verður að koma til meginbreyting bæði fyrir þjóðarheildina og bændur sjálfa.

Í fimmta þætti er sagt að lánskjör verði að taka mið af verðbólgustigi til að hindra auðsöfnun stórskuldara, sem við öll þekkjum allt of vel, án þess þó að íþyngja heilbrigðum rekstri og húsbyggjendum.

Í sjötta þætti efnahagsstefnu Alþfl. er fjallað um skattamál allítarlega. Tekjuskattur má ekki halda áfram að vera almennur launaskattur og það verður að skattleggja verðbólgugróða. Fyrirtæki verða að bera eðlilegar byrðar, sem þau gera auðvitað ekki í dag. Hætta verður að færa einkaneyslu á reikning fyrirtækja í stórum stíl og stórauka verður baráttu gegn skattsvikum. Jafnvel Seðlabankinn ávítar nú ríkisstj. fyrir að kynda undir verðbólgu með óstjórn í fjármálum ríkisins.

Í sjöunda þætti er sagt að endurskoða beri frá grunni almannatrygginga- og sjúkratryggingakerfið sem er að stofni 30–50 ára gamalt. Tryggingakerfið, þetta gamla baráttumál jafnaðarmanna, verður að gegna upphaflegum tilgangi sínum við nýjar og gerbreyttar aðstæður. Að auki þurfum við lífeyrissjóð allra landsmanna með verðtryggðum lífeyri.

Í áttunda þætti er fjallað um húsnæðismálin, sem hafa miklu meiri áhrif á lausn verðbólguvandans en flesta grunar. Það verður að tryggja betri lánskjör, meiri lán til eldri íbúða og a. m. k. þriðjungur nýrra íbúða á hverju ári verður að vera félagslegt átak, svo að nokkuð sé nefnt.

Í níunda þætti eru hemlar á erlendar lántökur sem aðeins mega vera fyrir erlendum kostnaði arðsamra fyrirtækja, en ekki til eyðslu eins og verið hefur.

Í tíunda og síðasta þætti efnahagsstefnu Alþfl. er sagt að strax og þjóðin hafi náð valdi á verðbólgunni eigi að taka upp nýja og verðmeiri mynt til að endurnýja virðingu fyrir gjaldmiðlinum og auka ráðdeild og sparnað. Seðlabankinn er búinn að láta teikna nýju myntina og segir að við getum fengið hana 1980.

Þegar þessir 10 þættir í fullri lengd sinni í stefnu Alþfl. í verðbólgumálum eru fléttaðir saman mynda þeir heilsteypta og ábyrga efnahagsstefnu sem er óhjákvæmileg, þó að hún muni vafalaust krefjast þolinmæði og fórna af öllum landsmönnum.

Ríkisstj. ræður ekki við verbólguna. Þess vegna segir heilbrigð skynsemi að skipta verði um ríkisstj. Okkur langar öll til að hefja nýtt efnahagslíf, þvo af okkur verðbólguna og allan þann sora sem henni fylgir. Okkur langar til að snúa við blaði og taka upp nýja, sterka mynt sem við getum borið virðingu fyrir, en hlæjum ekki að eins og litlu krónunni okkar, nú sem flýtur á vatni. En við fáum ekki nýja mynt nema fylgt verði í efnahagsmálum sem næst stefnu eins og Alþfl. leggur nú til. Þetta þýðir í reynd, að við fáum ekki nýja mynt 1980 nema kjósendur felli ríkisstj. í kosningunum í vor. Markmiðið á því að vera ný stjórn, ný stefna og nýr og stærri Alþfl. á Alþingi. — Góða nótt.