07.11.1977
Efri deild: 12. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í B-deild Alþingistíðinda. (335)
24. mál, eftirlaun aldraðra félaga í stéttarfélögum
Frsm. (Oddur Ólafsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér um ræðir, er um breyt. á l. um eftirlaun aldraðra í stéttarfélögum. Þetta er árangur af umr. sem fóru fram í sambandi við síðustu kjarasamninga ASÍ og er um breytingu á makalífeyri. Sú gr., sem um er að ræða, hljóðar svo: „Umsjónarnefnd samkvæmt 12. gr. er heimilt að úrskurða sambúðarfólki makalífeyri eins og um hjúskap hafi verið að ræða, enda hafi sambúð staðið um árabil. Skilyrði fyrir greiðslu slíks makalífeyris er að hluthafandi sjóðsstjórn fallist á úrskurð umsjónarnefndar fyrir sitt leyti.“ Síðan er breyt. á bráðabirgðaákvæði laganna.
Heilbr: og trn. hefur athugað frv. og leggur einróma til að það verði samþykkt. — Halldór Ásgrímsson var fjarverandi afgreiðslu málsins.