28.04.1978
Efri deild: 90. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4131 í B-deild Alþingistíðinda. (3367)
62. mál, grunnskólar
Frsm. meiri hl. (Jón Árm. Héðinsson) :
Herra forseti. Þetta frv. til l. um breyt. á l. nr. 63/1974, um grunnskóla, er flutt í Nd. og eru flm. fjórir, þar af þrír — Ólafur G. Einarsson, Gils Guðmundsson og Jón Skaftason — þm. Reykn. Það er ágreiningur um þetta frv. En frv. er stutt og í 1. gr. segir:
„Heimilt er ráðh. að stofna sérstakt fræðsluumdæmi í sveitarfélagi með 10 þús. íbúum eða fleiri, ef sveitarstjórn óskar þess og fjárveiting er fyrir hendi. Í slíkum tilvikum fer sveitarstjórn með hlutverk landshlutasamtaka samkv. lögum þessum.“
Í grg, segir, að frv. þetta sé flutt samkv. beiðni bæjarstjórnar Hafnarfjarðar. Það hefur áður séð dagsins ljós hér á Alþ., en náði ekki fram að ganga, og enn er ágreiningur um málið. Við erum fjórir nm. í menntmn., sem mælum með frv. í nál. á. þskj. 712. Tveir nm., Axel Jónsson og Steingrímur Hermannsson, skila séráliti. Einn um., Jón Helgason, gat því miður ekki verið viðstaddur er afgreiðsla fór fram.