07.11.1977
Efri deild: 12. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 463 í B-deild Alþingistíðinda. (340)

59. mál, eignarráð yfir landinu

Utanrrh. (Einar Ágústsson) ; Herra forseti. Ég hef ekki löngun til þess að halda hér uppi löngu máli um það frv., sem hér er til umr., og alls ekki stofna heldur til neinna deilna við hv. 1. fim. Honum er innilega velkomið mín vegna að hafa sínar skoðanir á því, hvernig eignarrétti á landi eigi að koma fyrir, að ég tel ekki orðum að því eyðandi. En vegna þess að hv. þm. lét þess getið, að ég mundi ekki hafa lesið frv. þeirra Alþfl.manna þegar ég tók til máls hér síðast um svipað efni, þá vil ég mótmæla því, að ég hafi ekki lesið það, enda tæplega hægt hjá því að komast, því að þetta er flutt í þriðja eða fjórða sinn og mætti vera mikið tómlæti — tómlæti sem ég vil ekki játa að ég hafi verið sekur um — ef ég hefði ekki lesið þetta frv.

Þessi ummæli hans munu byggjast á því, að ég gat þess ekki í ræðu minni þá, að í 3. gr. er gert ráð fyrir að bændum, meðan þeir svo kjósa, skuli frjálst að eiga jarðir til eigin búrekstrar. Mér var kunnugt um þessa grein. En þar sem ég rak einnig augun í að í aths. um þessa gr. segir, að það sé skoðun flm. að bændum sé í raun hagkvæmara að hafa búlönd sín í t.d. erfðafestu fremur en eign, þá áleit ég að það væri stefnumark flm. að ríkið ætti allar bújarðir, og það er það sem ég er mótfallinn. Ég er ekki þeirrar skoðunar, að það hafi gefist vel, þar sem reynt hefur verið, að ríkið eigi allar jarðir, og það hefur mér líka virst koma fram í máli annarra þm. margra sem um þessi mál hafa fjallað nú.

Ég vil sem sagt ítreka þá skoðun mína, að það sé ekki æskilegasta markmið með lagasetningu um eignarráð yfir landi, sem á þó vissulega fullan rétt á sér að sé skipað með ákveðnari lögum en nú er gert og þá einkum kannske það sem lýtur að landi þar sem yfirráðin eru dregin í efa og óviss eins og sakir standa. Og það var það sem ég sagði, ef ég man rétt, á sínum tíma úr þessum ræðustól síðast þegar þessi mál voru til umr.

Mér er ekki heldur alveg ljóst og mér fannst það ekki koma alveg fram í þeirri ágætu framsöguræðu, sem hér var verið að enda við að flytja, hvernig á að haga því þegar bóndi vill hætta búskap. Á þá að kaupa jörðina? Og hvernig eiga nýir bændur að eignast jarðir? Er það ekki útilokað eftir þessu lagafrv.? Ég sé ekki hvernig því eigi að koma fyrir, því að ég sé ekki þau ákvæði sem um það fjalla. Það segir í aths. um 3. gr„ að hver verði að afsala sér eignarráðum á bújörð sem hann býr ekki á. Má þá afsala þeim til næsta bónda? Eða á ríkið þá að gerast eignaraðili og nýju bændurnir verða erfðafestubændur?

Ég held að þetta mál þurfi athugunar við, og síst skal ég draga úr því að það fái þá athugun hér á Alþ. En ég er ekki sannfærður um að hér sé sú eina rétta leið nefnd á frv. Og af því að HABITAT-ráðstefnuna bar hér á góma, þá get ég ekki heldur séð og hef ekki séð frá henni till. um hvernig þessu atriði eigi að vera fyrir komið. Það eru talin upp í grg. hv. þm. atriði sem samþykkt voru á þessari ráðstefnu, og þar segir að eignarréttarformi liðins tíma beri að breyta til samræmis við síbreytilegar þarfir þjóðfélagsins svo að það sé hagstætt þjóðfélagsheildinni. Það geta vafalaust allir verið sammála um þetta. rn spurningin er bara hvernig á að gera það. Og hvaða breyttir þjóðfélagshættir eru það sem kalla á að allt land verði ríkiseign? Um það segir ekkert á þessari ráðstefnu, um það segir ekkert í því frv., sem hér er til umr., og um það heyrði ég ekki hv. 1. flm. segja nokkurn skapaðan hlut.