28.04.1978
Neðri deild: 87. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4162 í B-deild Alþingistíðinda. (3415)
92. mál, fuglaveiðar og fuglafriðun
Lúðvík Jósepsson:
Herra forseti. Það mun vera 92. mál, sem hér er til umr., en flm. þess er Jónas Árnason. Hann hefur fjarvistarleyfi nú og er ekki mættur. Mér þykir því eðlilegt að fara fram á það, að þessari umr. verði frestað nú, enda sé ég ekki neina þörf á því að ljúka henni á þessum fundi. Mér þykir eðlilegt að flm. fái tækifæri til að vera hér við afgreiðslu málsins við 2. umr. Ég fer því fram á að málið verði tekið af dagskrá og 2. umr. ekki lokið á þessum fundi.