28.04.1978
Neðri deild: 87. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4207 í B-deild Alþingistíðinda. (3426)
282. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Guðmundur H. Garðarsson:
Virðulegi forseti. Það er við hæfi að þm. tjái sig eitthvað um jafnviðamikið mál og hér er til umr. Ég vil þó segja það strax í byrjun, að það er ekki rétt þegar stjórnarandstæðingar eru að deila á hæstv. fjmrh. fyrir það, að hér sé siðbúið mál á ferðinni. Við minnumst þess, að þetta sama mál var lagt fyrir síðasta þing og fékk þar töluverðar umræður og var síðan sent til umsagnar fjölda aðila, þannig að hv. alþm. máttu búast við því, að þetta frv. yrði lagt fram á yfirstandandi þingi með þeim hætti sem gert hefur verið.
Það er að sjálfsögðu svo með þetta mál, að menn eru aldrei á eitt sáttir um öll ákvæði skattalaga, og er svo með mig. En ég vil þó segja það, að í meginatriðum finnst mér þetta frv, til l. um tekjuskatt og eignarskatt stefna í rétta átt, og er því þakkarvert að hæstv. fjmrh. hefur staðið við þau fyrirheit að leggja fram frv. til l. um tekjuskatt og eignarskatt sem felur í sér jafnveigamiklar breytingar til hins betra og mörg ákvæði frv. bera með sér. Þá finnst mér einnig ástæða til þess að þakka hv. formanni fjh.- og viðskn. sem hefur leitt þetta mál áfram með mikilli sæmd, bæði innan n. og hér í d., og væri betur að fleiri þm. og mætir tækju bann sér til fyrirmyndar um vinnubrögð.
En ástæðan fyrir því, að ég stend hér upp, er sem sagt sú, að þótt ég sé stuðningsmaður frv. í heild og fylgjandi þeirri meginstefnu sem birtist í frv., þá eru örfá atriði sem ég vildi gera hér að umtalsefni og jafnframt leyfa mér að koma fram með ákveðnar brtt. sem eru að vísu nokkuð síðbúnar.
Þar er fyrst til að taka það sem segir í frv. um söluhagnað af íbúðarhúsnæði, 16. gr. Í 2. málsl. 1. mgr. segir, með leyfi forseta:
„Ákvæði þessarar greinar gilda aðeins um sölu íbúðarhúsnæðis, sem eru í eigu manna og aðeins að því marki sem heildarrúmmál íbúðarhúsnæðis seljanda fer ekki fram úr 750 m2 á söludegi ef um einstakling er að ræða, en 1500 m3 ef hjón, sbr. 63. gr., eiga í hlut.“
Í brtt. frá meiri hl. fjh.- og viðskn., 3. tölul., segir við 16. gr.: „Í stað „750 m3 og 1:500m3“ í 1. og 5. mgr. gr. komi: 600 m3 og 1200 m3.“ Mér er það óskiljanlegt, hvers vegna verið er að þrengja þau mörk sem gert er ráð fyrir í upprunalega frv., og ég er þess vegna 2. móti þessum tölul. í brtt, meiri hl. fjh.- og viðskn. og mun því greiða atkv. gegn þessum tölul. og legg áherslu á það, að greinin í sínu upprunalega formi verði samþykkt, þó ég verði að segja það, að mér finnst hún ekki að öllu leyti góð og langt frá því að vera nægjanleg.
En það er annað atriði í þessari 16. gr. sem hv. þm. hafa e. t. v. ekki tekið eftir, og kannske er það svo, að þeir meti það þannig að það skipti engu máli. En 3. málsl. 1. mgr. 16. gr. segir:
„Stærðarmörk þau, sem gilda fyrir hjón, gilda einnig um sölu eftirlifandi maka á íbúðarhúsnæði sem var í eigu hjónanna, enda fari salan fram innan þriggja ára frá andláti þess skammlífara.“
Mér finnst mjög óeðlilegt að setja þessi tímamörk inn í frv., vegna þess m. a. að ástæður geta verið mjög margbreytilegar við fráfall maka, þannig að kringumstæður leyfi það ekki, að sú breyting verði á högum sem hér er gert ráð fyrir, þ. e. að maki skuli selja sína eign innan þriggja ára ef hann vill njóta þeirra ákvæða sem greinin gerir ráð fyrir samkv. 2. málslið. Mér finnst að það eigi að vera frjálst, það eigi ekki að ýta á eða knýja á um það, að maki skuli selja íbúð sem er innan þeirra marka sem hjónum er leyft, sem er samkv. frv. 1500 m3. En það getur vel verið, eins og ég sagði áðan, að sumum finnist þetta aukaatriði. Það er kannske vegna þess, að fæstir, sem hér eru á hv. þingi, hafa lifað það að standa frammi fyrir þessu. En það er nú svo, að mikill fjöldi manns býr nú við þetta, að búa í húsnæði sem þessi mörk ná til, og það hendir okkur flest örugglega fyrr eða síðar að standa frammi fyrir sama vandamáli. Ég er þess vegna með brtt., skriflega brtt., sem er seint fram komin, varðandi þetta atriði, sem ég verð að biðja hæstv. forseta að leita afbrigða um í sambandi við afgreiðslu, en brtt. er svo hljóðandi:
„Við 16. gr. 3. málsl. 1. mgr. orðist svo: Stærðarmörk þau, sem sem gilda fyrir hjón, gilda einnig um sölu eftirlifandi maka á íbúðarhúsnæði sem var í eigu hjónanna.“
Það er sem sagt numið á brott þar sem gert er ráð fyrir því, að sala skuli fara fram innan þriggja ára frá andláti þess skammlífara.
Um 59. gr., sem lýtur að ákvörðun launa við eigin atvinnurekstur, vil ég segja það, að á þessari grein hefur að vísu orðið veigamikil breyting frá því frv. sem var lagt fram á síðasta þingi. Það er mun ákveðnara varðandi það, með hvaða hætti skattstjórar skuli ákveða tekjur, og þar er gert ráð fyrir ákveðnum viðmiðunarreglum, þar sem á að gæta aðstöðu viðkomandi aðila, aldurs hans, heilsu, starfstíma, umfangs starfsins o. s. frv., og er þetta allt ágætt og góðra gjalda vert. En ég verð að segja það, eins og hv. þm. Ólafur Óskarsson sagði hér fyrr í sinni ræðu, að heldur finnst mér það ógeðfellt, að áætlunarákvæði í þessum efnum skuli eiga að vera í skattalögunum. Ég leyfi mér að minna á það, að á sínum tíma var það ákvæði í gömlu útsvarslögunum, að unnt væri að leggja á eftir efnum og ástæðum, og ef ég man rétt, þá var það eitt af aðalstefnuskráratriðum fyrstu viðreisnarstjórnar að nema þetta brott úr útsvarslögunum, að hægt væri að leggja á menn útsvar eftir efnum og ástæðum. Það var strax stórt spor í áttina þegar þetta var numið úr útsvarslögunum. Hér er þetta ákvæði að vissu leyti afturgengið, en þó í annarri mynd.
Þó ég sé ekki gamall að árum, þá minnist ég þess, hvernig þetta ákvæði í gömlu útsvarslögunum var notað af óprúttnum stjórnmálamönnum á sínum tíma til þess að reyna að klekkja á sjálfstæðum atvinnurekendum í ákveðnum byggðarlögum, og skal ég ekki tilgreina þau nánar hér, en hæstv. fjmrh. veit örugglega við hvaða byggðarlag ég á, það er ekki langt hér frá. Þá voru þessar nefndir svo til einhliða í höndum rauðliða og þeir notuðu þessi ákvæði óspart til þess að reyna að klekkja á sjálfstæðum atvinnurekendum í því byggðarlagi sem ég er nú að vitna til. Auk þess kom það fyrir og voru þess dæmi, að þetta — að leggja á eftir efnum og ástæðum — væri notað gegn einstaklingum af hálfu þeirra manna, sem sátu í þessum n., til þess m. a. að gera þessu fólki erfiðara um vík. Þess vegna var það réttlætismál á sínum tíma og sjálfsagt að nema það úr útsvarslögunum. Ég hef ekki trú á þessari leið.
Þeir, sem eru aðalhöfundar þessa skattalagafrv., hafa gert sér grein fyrir því eins og við allir, að það er auðvitað nauðsynlegt að gera einhverjar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að menn geti vikið sér undan því að greiða skatta og skyldur, en að því hafa því miður verið allt of mikil brögð og auðvitað nauðsynlegt að sporna við því með einhverjum hætti. Í mínum huga var um tvær meginleiðir að ræða í þeim efnum. Það var í fyrsta lagi um þá leið að ræða að herða allt skatteftirlit, setja strangari viðurlög og koma á öflugra eftirliti um það að menn teldu fram. Það eru dæmi þess frá nágrannaríkjum okkar, ég nefni t. d. Bandaríkin, að ef það kemur í ljós að einhverjir, hvort sem það eru fyrirtæki eða einstaklingar, virðast lifa um efni fram eða alla vega hafa meira umleikis en skattaframtöl gefa tilefni til, þá er þar í landi skattalögregla sem getur gengið inn í viðkomandi fyrirtæki og framkvæmt mjög stranga skattrannsókn, jafnvel eins og um sakarannsókn væri að ræða, án þess að sakir væru beint sannaðar, en ef líkur væru til að þar væri um skattsvik að ræða. Hið sama gildir um einstaklinga. Í því ríki hefur sú leið verið valin að nota frekar stranga skattalögreglu, sem hefur mjög mikið frelsi varðandi allt sitt rannsóknasvið, heldur en fara inn á þá leið sem hér er gert, sem er hin leiðin, þ. e. að fara áætlunar- og ákvæðisleiðina. (Gripið fram í.) Nei, við erum hérna greinilega í gamla tímanum, að vera á móti þessu. En við alla vega erum stefnunni trúir, þessari stefnu sem viðreisnin er kennd við og þótti allra stefna best og er það auðvitað og var.
Það er sem sagt greinilegt, að menn hafa ekki trú á því, að það að fara hina hertu skattaeftirlitsleið henti þótt það sé nú gert í öðrum ríkjum. En ég ætla ekki að fjölyrða frekar um það.
Ég hef ekki trú á þessari leið. Það er framkvæmd hennar sem ræður náttúrlega úrslitum um það, hvernig hún reynist, og ég verð að segja það, þó að ég treysti mörgum embættismönnum, að ég treysti ekki öllum embættismönnum og ég treysti því ekki, að einhverjir embættismenn kunni ekki í framtíðinni að falla fyrir freistingunni og reyna að misnota það vald sem þetta ákvæði leggur þeim í hendur. Ég mun því greiða atkv. gegn þessari grein. En því miður er ég ekki undir það búinn að vera með í minni brtt. leið sem lyti að því, að inn í skattafrv. kæmi ákvæði um strangara skatteftirlit og þá betri möguleika fyrir skattalögreglu að fjalla um það.
Þá er það varðandi 67. gr. sem sumir þm. hafa fjallað hér um í ítarlegu máli. Það er sú grein sem fjallar um skattstíga manna. Ég er satt að segja ekki alveg ánægður með þá skattprósentu sem gert er ráð fyrir í þessari grein, en í 2. mgr. segir, að af fyrstu 2 millj. kr. af tekjuskattsstofni skuli reiknast 18%, af næstu 2 millj. kr. af tekjuskattsstofni skuli reiknast 26%, en af tekjuskattsstofni yfir 4 millj. skuli reiknast 34%. Fljótt á lítið finnst mér ekki stefnt í rétta átt með þessum prósentutölum. Ég tel að þær prósentur, sem hefðu átt að vera hér, ættu að vera lægri, til þess að lág- og meðaltekjur færu enn betur út úr þessu frv. heldur en þær raunverulega gera. Ég viðurkenni það, að þessar prósentur eru í stórum dráttum til hóta fyrir bæði lágar tekjur og meðaltekjur, þannig að hér er um matsatriði að ræða. Ég hef talið, að það ætti að lækka þessar prósentur við álagningu enn frekar, og leyfi mér að gera till. til breytingar varðandi prósenturnar, þannig, við 67. gr., að í stað 18, 26 og 34% í 2. mgr. komi: 16%, 24% og 36%, þ. e. a. s. 18% lækki niður í 16%, 26% niður í 24%, en hins vegar hækki 39%, sem eru á háu tekjunum, upp í 36%.
Því er ekki að leyna, að þessi till. mín felur í sér ákveðinn tekjumissi fyrir ríkissjóð. En að sjálfsögðu yrðu fjvn. og hv. Alþ. að taka tillit til þess, ef þessi brtt. mín yrði samþykkt, við gerð fjárl. þegar þar að kemur. Æskilegast væri að í reynd yrðu áhrif þessara breytinga, ef brtt. mín yrði samþ., þau, að samdráttur yrði í ríkisumsvifum sem næmi þessum tekjumissi hjá ríkissjóði.
Nú kunna sumir að segja að þetta sé erfitt, jafnvel útilokað. En ég vil fullyrða að það sé framkvæmanlegt, og þá skulum við setja okkur dálítið í stöðu þeirra sem bera ábyrgð t. d. á atvinnurekstri úti í atvinnulífinu. Er nokkur munur á því að gera kröfur til hins opinbera um það, að þar eigi sér stað ákveðinn samdráttur sem nemi 2–4 milljörðum. Það er ekki meira en sem nemur 2–3% ef miðað er við útgjöld á fjárl. 1978. Það er minna en sá sparnaður nemur hjá atvinnurekstrinum, ef maður miðar við þær kröfur sem nú eru gerðar af hálfu stjórnvalda, banka og lánastofnana til þessara aðila í sambandi við hagræðingu í rekstri og þess háttar.
Það er alkunna og það þekkja allir, sem eitthvað koma nálægt atvinnurekstri, að þær kröfur, sem eru gerðar til atvinnurekstrar í dag á Íslandi um aukinn sparnað, nema miklu hærri prósentum raunverulega heldur en þessum 2–3% sem ég áætla að það hefði í för með sér ef till. mínar um lækkun skattprósentu samkv. 67. gr. væru samþykktar. Satt að segja finnst mér tími til kominn að hv. Alþ. hætti að móta skattheimtu sína út frá því sjónarmiði, að ríkið þurfi fyrst og fremst að fá sitt, óháð því og án tillits til þess, hvert er greiðsluþol skattgreiðenda, bæði fyrirtækja og einstaklinga. Í stað þess finnst mér tími til kominn og full ástæða til að hv. alþm. spyrji sjálfa sig: Hvað þolir gjaldstofninn? Hvað þola skattgreiðendur? Hvað þolir atvinnureksturinn? Og hvað þola einstaklingar?
Á þingi 1974–1975 flutti ég ræðu í sambandi við þáttill. þar sem ég gerði till. um að ríkisstj. kannaði hvort hægt væri að breyta fjárlagaári. Í þeirri ræðu minni gat ég þess, að heildarskattheimta hins opinbera, þ. e. a. s. ríkis og sveitarfélaga, væri komin í um það bil 42–45%. Ég geri ráð fyrir því, að hún sé komin yfir 50% núna, og með tekjutilfærslum gæti ég ímyndað mér að hún sé komin upp í ca. 60%. En með tekjutilfærslum er átt við það sem fer í gegnum tryggingakerfið, óháð því sem er í fjárl, og utan við fjárl. Í vestrænum ríkjum er það metið þannig, að þegar skattheimta og tekjutilfærsla hins opinbera er komin yfir 50% þá sé að skapast hættulegt ástand í viðkomandi þjóðfélögum, þá sé byrðin orðin of mikil á þeim stofnum sem standa raunverulega undir opinberu kjörunum, þ. e. a. s. atvinnulífinu. Ég vek máls á þessu atriði hér í tengslum við þetta atriði til þess að undirstrika þörfina á því að lækka skattprósentuna samkv. 67. gr.
Ég er ekki með brtt. við fleiri gr., en það hefði e. t. v. verið full ástæða til þess að fjalla hér um fleiri greinar á þessu stigi. En eins og fram hefur komið ætti að vera nægilegt svigrúm til þess að fjalla um það á þingi í haust eða næsta þingi komi fram einhverjir ákveðnir meinbugir í sambandi við ákveðnar greinar, sem fljótt á lítið koma ekki í ljós, en vitað er að kynnu að leynast í frv. Þá geri ég ráð fyrir að þing, sem þá situr, muni gera þær leiðréttingar og breytingar sem þörf krefur. Í því sambandi væri e. t. v. rétt að vekja athygli á því, að í frv. eru ákveðin ákvæði sem varða hlutafélög og skatt af arði sem án nokkurs vafa þarf að taka til gaumgæfilegrar athugunar. Það er í 31. gr., 1. tölul. og 8. og 9. tölul., og vil ég vekja athygli á því við þessa umr.
Ég vil, virðulegi forseti, leyfa mér að leggja hér fram skriflega till., eins og ég hef kynnt. Till. er seint fram komin og ég vil leyfa mér að biðja hæstv. forseta að leita afbrigða um tillöguna.