28.04.1978
Neðri deild: 87. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4215 í B-deild Alþingistíðinda. (3428)

282. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. meiri hl. (Ólafur G. Einarsson) :

Hæstv. forseti. Það eru örfá atriði sem mig langar til að koma inn á í tiletni af þeim ræðum sem hér hafa verið fluttar um þetta mál.

Það má segja að frv. hafi yfirleitt verið vel tekið af þeim hv. þm. sem hér hafa talað. Einstaka atriði eru þó að sjálfsögðu ágreiningsmál, en helst sýnist mér þó fundið að vinnubrögðum. Það er gert nokkuð mikið úr því, að of skammur tími hafi verið til stefnu. Jafnframt er talað um að ríkisstj. hafi ekkert gert í þessu máli í 4 ár. Um þetta vil ég aðeins segja það, að þegar á árinu 1972 skipaði hæstv. fjmrh. ýmsar vinnunefndir til þess að vinna að endurskoðun skattalaga, og má segja að það hafi verið unnið að undirbúningi þessa máls alveg samfellt síðan snemma á árinu 1972. Ég get ekki heldur fallist á að það hafi verið mjög skammur tími til meðferðar þessa máls, þótt ekki sé langur tími síðan þetta frv. var lagt fyrir þingið. Eins og ég sagði í ræðu minni í dag er vinnan við þetta frv. hér í þinginu beint framhald af þeirri vinnu sem innt var af hendi á síðasta þingi vegna frv., sem þá var til meðferðar.

Í ræðu hv. þm. Lúðvíks Jósepssonar kom líka fram, að afgreiðslan væri ekki sem skyldi í fjh.- og viðskn., engar umsagnir lægju fyrir um þetta frv., og þá lagði þm. áherslu á að hér væri um allt annað frv. að ræða heldur en umsagnir komu um í fyrra. Það er vissulega rétt, að hér er um allt annað frv. að ræða heldur en var til meðferðar í þinginu í fyrra, en umsagnir komu um það eins og hefur greinilega komið fram, þá er þetta frv., sem nú er til meðferðar, samið með hliðsjón af þeim aths. sem fram komu, bæði innan þings og utan. Þess vegna var engin ástæða til að senda þetta frv. til umsagnar nú.

Þá er talað um að engin aðkallandi nauðsyn sé að samþykkja þetta frv. núna, það megi eins bíða til haustsins vegna gildistökuákvæðanna. Ég bendi á í því sambandi, að nú er snúið við af þeirri braut, sem ætíð hefur verið gengin í sambandi við breytingu skattalaga, að þau hafa ævinlega haft afturvirk áhrif. Nú á að breyta til, sem hefði átt að vera búið að gera fyrir lifandi löngu, því að breytingar á skattalögum eiga ekki að hafa afturvirk áhrif og svo verður ekki með þetta frv.

Hv. þm. Lúðvík Jósepsson ræddi allmikið um ákvæði frv. um söluhagnað og fyrningar. Hann taldi að fyrningarreglurnar hefðu verið rúmar og í mörgum tilfellum umfram þörf í gildandi lögum. Við höfum búið við þær í langan tíma. Það er að vísu ekki svo langur tími, því að núgildandi skattalög voru sett af vinstri stjórninni árið 1972 og mun hv. þm. Lúðvík Jósepsson hafa haft nokkur áhrif á þær fyrningarreglur sem nú eru í gildi og honum þykja nokkuð rúmar. Hann taldi að stefna hefði átt að lækkun fyrninga almennt. En einhvern veginn fannst mér að hann fyndi þó að því, að um minni fyrningar yrði að ræða hjá sumum aðilum, og nefndi þar sérstaklega þá sem eiga skip. Það er rétt hjá hv. þm., að það eru minni fyrningar, a. m. k. fyrstu árin eftir að skipakaup hafa átt sér stað. En það, sem verið er að gera í sambandi við fyrningarákvæðin í þessu frv., er fyrst og fremst að það er verið að gera fyrningarreglurnar rökréttari en þær eru í gildandi lögum. En það er rétt hjá hv. þm., að það hefur ekki verið hægt að gefa óyggjandi svör við því, hver áhrifin verða á skattlagningu einstakra fyrirtækja af þessum breyttu reglum, og á það verðum við að hætta, ef við viljum á annað borð gera reglurnar rökréttar. Og það er það sem við erum að gera.

Um söluhagnaðinn vil ég fara örfáum orðum til viðbótar og segja það, að skattlagning söluhagnaðar kemur varla til greina nema í þeim tilvikum sem eignir hækka í verði meira en nemur almennum verðbreytingum, ef fyrning hefur verið hraðari en slit eða úrelding segir til um. Í atvinnurekstri er alltaf hægt að nota skattskyldan söluhagnað til að fyrna nýjar eignir eða þá gamlar fyrnanlegar eignir. Sérregla um íbúðarhúsnæði leiðir til þess, að varla kemur til skattlagning á söluhagnaði íbúðarhúsnæðis í eigu einstaklinga.

Það er ekki reiknað með að tekjur ríkissjóðs breytist verulega með þessum breyttu reglum. Hér er fyrst og fremst um að ræða breytingar sem leiða ættu til eðlilegrar meðferðar á söluhagnaði. Það er komist hjá að skattleggja söluhagnað sem stafar af verðhækkunum eigna vegna verðbólgu, sem oft gerist samkv. gildandi lögum. Hins vegar er einnig komið í veg fyrir það, að hægt sé að selja eignir milli fyrirtækja, eins og nú er hægt, með verulegum skattfrjálsum söluhagnaði og draga þannig sömu eignina kannske oft frá tekjum í formi fyrninga. Við þessu er séð í þessu frv.

Hv. þm. ræddi hér nokkuð um sérsköttun hjóna og taldi ákvæði frv. vera til bóta, en hafði nokkrar áhyggjur af því, að koma mundi til hækkunar á sköttum þeirra hjóna þar sem konan vinnur fyrir einhverjum tekjum að ráði, eða yfir 1.5 millj. kr. Það er vissulega rétt, að það verður nokkur breyting á skattbyrðinni og á sumum heimilum hækka skattar við það að 50% reglan er afnumin. En ég held að allir hafi gert sér grein fyrir því, að þegar komist yrði út úr þessari reglu, sem mér skilst að allir séu sammála um að hafi verið kominn tími til að breyta, þá yrði um breytingu á skattbyrði að ræða. Ég held hins vegar að það sé gert of mikið úr þessu, og ég bendi sérstaklega á í því sambandi, að með skattstiganum eins og hann er í frv. þá lenda tekjur, sem eru innan við 2 millj., í 18% skattstiganum, en hámarkið í stiganum er svo 34%. Það má því segja að þær konur, sem hafa ekki yfir 2 millj. í tekjur, njóti svipaðra hlunninda og 50% reglan gefur, þannig að það er farið eins mildilega í þessa breytingu og unnt er og engin ástæða til að taka þetta í þrepum eins og hv. þm. nefndi.

Ég vil sérstaklega í þessu sambandi nefna ályktun sem Kvenréttindafélag Íslands hefur gert. Mér var að berast í dag erindi frá Kvenréttindafélaginu, en þar segir svo m. a. á einum stað, með leyfi hæstv. forseta:

„Samkv. þessu frv. er ljóst að dreifing tekjuöflunar innan fjölskyldu, þ. e. ef fleiri en einn afla teknanna, minnkar skattbyrði heimilanna verulega. Telur stjórn Kvenréttindafélags Ísland að í þessu felist hvatning til virkari þátttöku í atvinnulífi þjóðarinnar og jafnari ábyrgð innan fjölskyldu.“

Það er ástæða til að þetta komi hér fram. Hv. þm. Lúðvík Jósepsson flytur hér nokkrar brtt. sem ég skal nú ekki fara mörgum orðum um. Þessar till. eru snotrar á pappírnum og sjálfsagt líklegar til að auka kjörfylgi tillögumanns, a. m. k. sumar, við fljótan yfirlestur. En ég veit ekki hvort hv. þm. gerir sér grein fyrir hvað þessar till. þýða. Hann fann að því í ræðu sinni að hann fengi ekki nákvæm svör við ýmsum ákvæðum frv., hvernig þau kæmu við hina ýmsu aðila, og eins má ég þá finna að því við hv. þm., að hann skuli ekki kanna það betur, hvað þessi tillöguflutningur hans þýðir. Ég hef grun um að hann viti það ekki. En það vill svo til að ég veit það og ætla að upplýsa hann um það.

till. þm. að breyta skattstigunum, lækka neðsta þrepið úr 18% í 15%, er talin kosta 3 milljarða, sú till. að hækka barnabæturnar kostar 1.5 milljarða og sú till. að breyta persónufrádrættinum úr 250 þús. í 300 þús. kr. kostar 6 milljarða. Þarna eru komnir 10.5 milljarðar. Og þá er spurningin þessi, hvort það sé ekki betra að hætta þessu öllu saman og leggja tekjuskattinn endanlega niður.

En eina till. er hv. þm. með til hækkunar og þar átti nú heldur betur að ná sér niðri á breiðu bökunum, skilst mér, að hækka sem sagt efsta þrepið úr 34% í 36%, og upp úr því krafsi hafast hvorki meira né minna en 300 millj., það er ekkert annað, þannig að allur pakkinn hjá hv. þm. kostar samkv. þessu 10.2 milljarða. Það er ekki ónýtt að geta farið með þetta í nestið í kosningabaráttuna í vor, að hafa ætlað að gera landsmönnum þetta viðvik á síðustu dögum þingsins.

Að öðru leyti ætla ég ekki að ræða þessar till., mér sýnist þær engan veginn raunhæfar. Um till. hv. þm. Gylfa Þ. Gíslasonar get ég verið stuttorður. Mér sýnist sá munur þar á, að þm. hefur gert sér grein fyrir hvað þær kostuðu, 5.5 milljarða. Það væri vissulega gaman að taka þátt í því með hv. þm. að draga úr ríkisútgjöldunum. En við gerum það ekki þetta árið með því að samþykkja þessar till. þm., vegna þess að þær hafa engin áhrif á álagningu skatta á þessu ári.

Um till. hv. þm. Svövu Jakobsdóttur, sem hv. þm. Lúðvík Jósepsson mælti fyrir í dag, get ég verið fáorður. Mér sýnist sú till. byggjast á algerum misskilningi. Hún fjallar um það, að draga megi frá tekjum leigugjald fyrir íbúðarhúsnæði, þó aldrei hærri fjárhæð en 300 þús. kr. á ári fyrir einstakling. Þessi till. byggist á misskilningi, sýnist mér, vegna þess að þeir aðilar, sem ekki eiga húsnæði, skulda í flestum tilfellum lítið, þeir eru með fáa frádráttarliði á framtali og þeir mundu undantekningarlítið notfæra sér 10% frádráttarregluna sem þetta frv. gerir ráð fyrir. Sú regla kemur fyrst og fremst þessum aðilum til góða. Ef við tökum einstakling sem er í leiguíbúð og borgar 300 þús. kr. á ári fyrir hana, en hefur 4 millj. kr. í árstekjur, þá fær hann samkv. þessari reglu dregnar frá 400 þús. kr. sem hann ekki getur náð með núv. reglum.

59. gr. frv. hefur verið hér talsvert til umr. og um hana ætla ég ekki að fara mörgum orðum. Ég taldi mig gera nokkuð glögga grein fyrir viðhorfum meiri hl. n. til þess máls í ræðu minni í dag, og þess vegna er ekki ástæða til að ræða sérstaklega um hana. Mér finnst þó einhvern veginn gleymast að aðalreglan er í 7. gr., sem kveður á um að menn skuli sjálfir reikna sér tekjur, þannig að það þurfi ekki að koma til þess, að þeir fái aðstoð hjá skattstofunum til þess. Þeir eiga ekki að þurfa þess, þeir eiga að geta gert þetta sjálfir samkv. 7. gr. frv. En um þetta er grundvallarágreiningur. Þessi ágreiningur felst í því, hvort aðgreina eigi persónutekjur í framtali frá atvinnurekstrinum. Þessi ágreiningur felst í því, hvort menn fallist á þá till. eða ekki, að maður, sem atvinnurekstur stundar í eigin nafni eða sjálfstæða starfsemi, sitji við sama borð og eigandi félags af starfslaunum sínum frá félaginu. Málflutningur um það, að verið sé með þessu ákvæði að skattleggja tekjur sem aldrei hafi komið í hendur skattþegns, er ekkert annað en útúrsnúningur sem varla er svara verður. Hér er ekki um að ræða neinn refsiskatt á þá sem sjálfstæðan atvinnurekstur stunda, eins og kom fram í ræðu eins hv. þm. í dag. Hér er um það að ræða, að vinnandi menn í eigin atvinnurekstri greiði skatta eins og aðrir. Það er málið. Það er reynt að gera þessa grein tortryggilega með því að klífa sífellt á því, að menn verði hundeltir af skattyfirvöldum verði þessi regla lögfest. Ég verð nú að segja, að ef mikið er af mönnum með slíku hugarfari á skattstofnum, þá þurfa þeir ekki þessa reglu til þess að iðka sína iðju. Þeir hafa nóg tækifæri til þess að hundelta menn ef þeir endilega vilja. Ég held að þessi regla breyti þar ekki nokkrum sköpuðum hlut. Þvert á móti held ég að þessi regla einmitt sé það ítarlega orðuð, að skattyfirvöld komist ekki upp með það að vera að hundelta menn að þessu leyti. Annars held ég, að andmælendur þessarar greinar séu kannske í hjarta sínu ekki svo mjög ósammála þessu ákvæði. Ég held að þeir viðurkenni í raun að það vantar ákvæði í skattalögin sem heimila það að ætla tekjur mönnum sem greiða ekki neina skatta, en hafa sannanlega úr verulegum tekjum að spila. Þessir gagnrýnendur óttast hins vegar yfirgang skattyfirvalda, og þar held ég að of mikið sé gert úr. Núgildandi reglur gera mögulegt slíkt ranglæti, að það er ekki viðunandi lengur. Ég held að það sé vitað mál, að með þessum reglum er boðið upp á það, að menn fari að skipta fyrirtækjum sínum til þess að geta valsað með þetta eins og þeim sýnist og taka þetta í einkareksturinn. Nóg um þetta.

Það hefur einnig verið gert hér talsvert mál úr viðmiðunarreglunum. Við erum búnir að heyra þær lesnar unn tvisvar í dag, svo leiðinlegar sem þær eru. Þær eru að vísu ekki fullkomnar. Því fer víðs fjarri, að þessar viðmiðunarreglur ríkisskattstjóra séu fullkomnar. En þær sýna okkur þó það, að engin ástæða er fyrir menn í smáatvinnurekstri að óttast stórfellda skattlagningu ef farið verður eftir þessum reglum.

Meira var það ekki. hæstv. forseti, sem ég sé ástæðu til að ræða hér um.