07.11.1977
Efri deild: 12. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 471 í B-deild Alþingistíðinda. (344)
59. mál, eignarráð yfir landinu
Axel Jónsson:
Herra forseti. Ég vil strax nú við 1. umr. þessa máls láta í ljós skoðun mína á því. Ég er andvígur því eins og það er lagt hér fram. Ég tel að það gangi allt of langt. Ég viðurkenni að á ýmsan hátt væri hægt og er nauðsynlegt að gera tilraun til þess að setja skýrari ákvæði um nokkur atriði sem hér er ýmist drepið á eða vikið að. En jafnróttæka breytingu og hér er lögð til get ég ekki samþykkt og er sannfærður um að það yrði ekki til bóta að samþykkja þá tilhögun sem hér er lögð til, og þar tel ég að reynslan sé ólygnast. Ég held að það sé augljóst mál, að það hafi kannske hvað best og mest lyft upp íslenskum landbúnaði að bændurnir hafa átt jarðirnar sjálfir. Þegar það jókst æ meir að bændur yrðu sjálfseignarbændur, þá fór það heim og saman að framfarir í landbúnaði urðu meiri og meiri. Það var að mínu viti óheillaspor þegar jarðir áður fyrr komust í opinbera eigu, fyrst til klaustranna, kaþólsku kirkjunnar og síðan til konungsvaldsins þegar það yfirtók eigur klaustranna. Það sýndi sig þá að þetta var til mikils ófarnaðar miðað við þær jarðir sem setnar voru af sjálfseignarbændum. Það hefur verið kappsmál íslenskrar bændastéttar til þessa að vera eigendur jarða sinna, og ég á von á því, að þannig sé ástatt enn og muni verða nema hér breytist verulega um hugsunarhátt í okkar þjóðfélagi. Fyrst og fremst með tilliti til þessa er ég andvígur þessu frv., og væri e.t.v. alger óþarfi að ræða um einstök ákvæði hér, einstakar greinar, með tilliti til þess að málið í heild er mér ekki að skapi.
Það er gert ráð fyrir því í 4, gr, frv. að ríkinu sé skylt að kaupa bújarðir af bændum, ef þeir óska, og miðist kaupverðið við gildandi gangverð jarða til búrekstrar milli bænda hverju sinni. Það er þó svo best að jarðir verði þá á markaði milli bænda, en ekki einvörðungu til ríkisins þegar þar að kemur — og hvernig á þá að ákveða verðið? En varðandi byggingar, hús og ræktun á jörðunum, þá eiga þær sjálfsagt að sæta mati. Verða þá bændur skör lægra settir heldur en við þéttbýlisbúar sem getum selt hús okkar á hinum frjálsa markaði, en ekki samkv. mati.
Varðandi ákvæði 5. gr. um að meta skuli veiðiréttinn miðað við það sem fram hafi verið talið s.l. 20 ár, þá er ég mjög undrandi á að svo langur tími skuli vera tiltekinn, því að nú veit ég að hv. flm, eru áhugamenn um veiðiskap og þekkja mjög vel að á undangengnum árum hafa átt sér stað verulegar framfarir, veruleg fiskræktun í ám okkar og vötnum. Ef við tökum 20 ár, þá er áreiðanlega mjög víða hægt að benda á það, að vegna stóraukinnar fiskræktar hefur veiði s.l. 10 ár aukist mjög mikið umfram það sem var fyrir 10 árum, þannig að það er ekkert tillit tekið til þess hvað hefur verið ræktað upp í þessu efni á s.l. árum. Það er mjög mikið og lofsvert framtak sem þar hefur verið unnið.
Ég tel að það hafi verið mjög til bóta á sínum tíma þegar var bannað með lögum að selja veiðirétt undan bújörðum. Og ég tel að það hafi verið spor fram á við þegar opnuð var heimild til þess að jarðeigendur gætu innkallað veiðiréttinn til jarða sinna aftur, auðvitað eftir mati hverju sinni. Ég held að með ræktun í ám og vötnum sé þeim málum ekki verr fyrir komið í höndum bændanna, eigenda jarðanna, heldur en setja það undir ríkisforsjá. Ég hef ekki þá trú á að ríkisforsjá í þessu efni geti nokkurn tíma orðið til bóta. Það er rétt að þetta tíðkast annars staðar. Ef við tökum Noreg, þá er veiðirétturinn hjá ríkisvaldinu, hinu opinbera, þegar kemur upp fyrir ákveðna hæð á landinu. En ég hef þá trú að í þessu efni sé eigendum jarðanna, bændunum, best til þess trúandi að rækta árnar upp og að þannig geti það orðið að mestu notagildi fyrir þjóðina.
Hv. síðasti ræðumaður minnti á jarðalögin sem eru nýsamþykkt hér á Alþ. Það er auðvitað ekki komin nein viðhlítandi reynsla á þau þann skamma tíma sem þau hafa verið í gildi, en það var a.m.k. meiningin með setningu þeirra laga að taka á vissum vandamálum sem hér hefur verið drepið á. Og ég held að það væri a.m.k. þess virði að láta reyna á ákvæði þeirra laga áður en við rjúkum til og förum að breyta í mjög róttækari átt umfram það sem var gert. Það var eflaust viss nauðsyn að setja hindrun á að seldar væru lóðir úr bújörðum undir sumarbústaði. Nú er það óheimilt nema með samþykki jarðanefndar. Ég held að það hafi verið algerlega nauðsynlegt, miðað við þá ásókn sem orðin er í slíkar lóðir, að gera tilraun til þess að koma þarna á einhverri yfirstjórn. Það er vissulega hægt að taka undir það, að það er nauðsyn á að þéttbýlisbúar geti fengið aðstöðu til þess að koma sér upp sumarbústöðum. En ég hef ekki nokkra trú á því að það leysi fremur þennan vanda, þó að sú leið verði farin að ríkið fái eignarrétt á æ fleiri jörðum og þó að það sé meira að segja ákvæði um það, að því sé skylt að sjá þéttbýlisfólki fyrir leigulóðum undir sumarbústaði. Ríkið á þegar í dag þó nokkuð af jarðeignum og það væri kannske þess virði að gera tilraun með að það færi að huga að þessum þætti vandamálsins með því að athuga hvort heppilegt væri og ákjósanlegt að skipuleggja einhverjar ríkisjarðirnar með þetta í huga.
Sveitarstjórnirnar, sveitarfélögin á hverjum stað hafa náttúrlega mestra hagsmuna að gæta í þessu efni. Og það væri miklu eðlilegra að hugleiða þann möguleika, að þeim væri gert frekar kleift að stuðla að ákveðinni þróun í þessu efni heldur en er í dag Ég hefði fremur trú á því, að það gæti orðið jákvætt, heldur en ríkið væri að ráðskast með það, ef svo mætti segja, með áreiðanlega misjöfnu hugarfari og misjöfnum árangri. Ég skal taka undir það, að það væri æskilegt að geta af ríkisins hálfu veitt meiri fyrirgreiðslu og aðstoð til þess fólks sem vill í dag festa kaup á bújörð í sveit og hefja búskap. Vissulega væri það gott og mikil nauðsyn, að hægt væri að gera meira til þess að létta undir með því fólki.
Herra forseti. Ég læt þessu spjalli lokið. Ég hef lýst skoðun minni. Ég er andvígur þessu frv. og er raunar undrandi á að þessi draugur skuli vera vakinn upp ár eftir ár nú, þegar komið er langt á 8. tug þessarar aldar, Þetta er gamalt stefnumál Alþfl., en ég hefði haldið að hann væri horfinn frá þessu, alveg eins og hann virðist vera horfinn frá því að landið skuli allt vera eitt kjördæmi. Það var árum saman eitt aðalbaráttumál Alþfl. Það er ekki minnst á það þegar rætt er um þau mál nú vegna fram kominna till. á Alþ. eða utan dagskrár. Þá er ekki minnst á þetta stóra áaugamál Alþfl, fyrr á tímum: að gera landið allt að einu kjördæmi. Sá draugur virðist alveg hafa verið kveðinn niður, og ég var að vonast til að þessi draugur hefði einnig verið kveðinn niður.