29.04.1978
Efri deild: 92. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4227 í B-deild Alþingistíðinda. (3441)
282. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen) :
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir til umr., hefur nú um nokkurt skeið verið til umr. á hv. Alþ. og í nótt sem leið afgreiddi hv. Nd. frv. til Ed.
Frv. til l. um tekjuskatt og eignarskatt var flutt á síðasta þingi og fékk þá allítarlegar umr. á hv. Alþ. svo og víðar. Það frv, var sent til umsagnar fjölmargra aðila, og til nefnda þingsins bárust fjölmargar aths. og till. um breytingar. Á s. l. sumri var unnið og fram eftir vetri að endurskoðun frv. Gjarnan hefði ég viljað sjá frv. fyrr á borðum hv. þm., en þar sem það er þeim vel kunnugt frá síðasta þingi. þá vonast ég til að þetta frv. geti náð fram að ganga og orðið lögfest áður en þinglausnir verða.
Fjh.- og viðskn. beggja d. hafa unnið saman að skoðun þessa frv. eftir að það var lagt fram í hv. Nd., þannig að ég ætla að þeim þm., sem þá n. skipa í hv. Ed., sé orðið þetta mál mjög kunnugt og því megi vonast til þess, að n. geti á þeim tíma, sem enn er til þingloka, yfirfarið og skoðað frv. enn betur og lokið afgreiðslu þess til deildarinnar aftur og það síðan orðið lögfest.
Meginbreytingin í því frv., sem hér er til umr., er að lögð er til gerbreyting á reglum um skattlagningu hjóna. Í stað helmingaskiptareglu fyrra frv. er lögð til takmörkuð sérsköttun hjóna. Hvort hjóna um sig telur fram og er skattlagt af launatekjum sínum og atvinnurekstrartekjum. Eignatekjur beggja eru skattlagðar með tekjum þess hjóna er hærri hefur launatekjurnar. Hvort hjóna um sig hefur sama skattstiga og persónuafslátt og einstaklingur. Sá hluti persónuafsláttar, sem öðru hjóna nýtist ekki, færist yfir til hins. Barnabætur skiptast til helminga milli hjóna. Til eignarskatts eru eignir hjóna lagðar saman og helmingur heildareigna síðan skattlagður hjá hvoru um sig eftir sama eignarskattsstiga og gildir um einstaklinga.
Þá er lagt til að launatekjur barna verði sérskattaðar hjá þeim með lágu föstu skatthlutfalli, en börnin njóti ekki persónuafsláttar. Í fyrra frv. var gert ráð fyrir algerri samsköttun foreldra og barna.
Horfið er frá afsláttarkerfl fyrra frv., en tekið upp frádráttarkerfi svipað ákvæðum gildandi laga. Frádráttarliðum er þó fækkað nokkuð og gjaldendum gefið val um að nota fastan frádrátt, sem er ákveðið hlutfall af launatekjum, í stað þess að tíunda og njóta frádráttar vegna lífeyrisiðgjalda stéttarfélagsiðgjalda, vaxtagjalda og sérstakra gjafa til menningarmála.
Gert er ráð fyrir, að barnabætur verði hærri með börnum undir skólaskyldualdri en öðrum börnum og barnabætur til einstæðra f,oreldra verði hærri en til annarra.
Ýmsum öðrum atriðum er breytt, svo sem reglunum um söluhagnað fyrnanlegra lausafjármuna, reglunum um söluhagnað íbúðarhúsnæðis, reglunum um frádráttarbærni meðlaga, reglunum um skattlagningu utanríkisþjónustumanna og reglunum um tekjuuppgjör af útleigðu húsnæði.
Þetta var um höfuðbreytingarnar á skattlagningu einstaklinga.
Meginbreytingar varðandi skattlagningu atvinnurekstrar eru að reglum um fyrningar og söluhagnað er gerbreytt. Í stað ákvæða fyrra frv. um fyrningu lausafjár af bókfærðu verði og fyrningu fasteigna af upphaflegu kostnaðarverði eru ákvæði um að fyrning skuli reiknuð af endurmetnu stofnverði fyrnanlegra eigna. Stofnverðið er framreiknað með verðbreytingarstuðli sem miðast við breytingu á vísitölu byggingarkostnaðar milli ára, og árleg fyrning er reiknuð af hinu framreiknaða stofnverði. Fengnar fyrningar eru endurmetnar á sama hátt, þannig að fengin fyrning hvers árs er margfölduð með verðbreytingarstuðli fyrningarársins. Fyrningarhlutföll eru lækkuð frá því sem nú er. Kveðið er á um 10% niðurlagsverð mannvirkja og lausafjár. Þá er í frv. ákvæði um takmark fyrninga þeirra aðila sem hafa fjármagnað fyrnanlegar eignir með lánsfé. Eru þau þess efnis, að af hluta skulda, sem telja verður að hafi verið til fjármögnunar fyrnanlegra eigna, er reiknuð hækkun eftir sama stuðli og beitt er á eignirnar og það síðan til frádráttar þegar gert er upp.
Söluhagnaður allra eigna annarra en íbúðarhúsnæðis innan vissra stærðarmarka í eigu manna, eins og kemur fram, er samkv. frv. skattskyldur án tillits til eignarhaldstíma. Hins vegar er ákvæðinu um útreikning hans breytt frá fyrra frv. að því er lausafé varðar. Þannig er upphaflegt kaup- eða kostnaðarverð endurmetið miðað við byggingarvísitölu, og söluhagnaður telst munur söluverðs og þannig endurmetins stofnverðs að tekin tilliti til endurmetinna fyrninga, ef um er að ræða sölu á fyrnanlegum eignum.
Heimiluð er útgáfa jöfnunarhlutabréfa miðað við raunverulegt verðmæti hreinnar eignar hlutafélagsins í árslok 1978, og er útgáfa jöfnunarbréfa vegna eignabreytinga eftir það bundin almennri verðhækkun.
Ákvæðin um frádráttarbærni þeirrar fjárhæðar, sem samvinnufélög greiða félagsmönnum sínum eða færa þeim til séreigna í stofnsjóði, eru breytt frá fyrra frv. og eru nú líkari ákvæðum gildandi laga um þetta efni.
Vaxtatekjur af innistæðum í inniendum bönkum eru gerðar skattfrjálsar að vissum skilyrðum fullnægðum, en voru ávallt skattskyldar samkv. fyrra frv.
Heimiluð er 5% niðurfærsla útistandandi viðskiptaskulda.
Skilgreiningu á hugtakinu vörubirgðir er breytt þannig að heimild er til 30% niðurfærslu. 30% niðurfærsla nær til fleiri hluta en samkv. fyrra frv.
Ýmis önnur atriði hafa sætt breytingu, t. d. skilgreining á rekstrarkostnaðarhugtökum. Þar er breytt frá frv. þannig að orðið „nauðsynlegir“ er fellt út. Dráttarvextir af opinberum gjöldum verða frádráttarbærir. Ákvæði eru til þess að forðast tvísköttun við úthlutun arðs milli félaga o. fl.
Ég tel ekki ástæðu til að víkja að fleiri breytingum á frv.
Við meðferð málsins í Nd. voru gerðar á frv. nokkrar breytingar sem eru á þskj. 764, frá meiri hl. fjh.- og viðskn. Þær brtt. voru allar samþykktar eins og þær liggja fyrir á því þskj., og ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þær hér. Þá var einnig við 3. umr. samþ. brtt. við 16. gr. frv. þar sem þriggja ára frestur hjá ekkju eða ekkli í sambandi við söluhúsnæði var felldur niður.
Samhliða þessu frv. var flutt frv. til l. um staðgreiðslu opinberra gjalda. Það frv. hefur ekki áður verið lagt fram á Alþ. og er nýunnið. Hins vegar eru hugmyndir frv. öllum kunnar af nokkrum skýrslum sem gerðar hafa verið þar um og nú síðast 1975. En það er ljóst, að það frv. verður ekki afgreitt á þessu þingi. Til þess er ekki nægur tími, enda málið viðamikið og eins og ég sagði áðan nýtt fyrir augum þm. Það er gert ráð fyrir því, að sumartíminn verði notaður til þess að endurskoða það frv, og kynna það þeim aðilum sem við það eiga að búa, og jafnframt óskað umsagna þessara aðila um málið, þótt sveitarfélögin hafi t. d. oft tjáð sig meðmælt því, að staðgreiðsla yrði upp tekin. Við það yrði miðað, að frv. um staðgreiðslu yrði lagt aftur fram á næsta þingi og stefnt þá að afgreiðslu þess máls fyrir n. k. áramót.
Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að fjölyrða meir um frv. Ég vísa til ræðu minnar, sem ég áður hef flutt, og þess, sem fram hefur komið, og legg til að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.