29.04.1978
Efri deild: 92. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4247 í B-deild Alþingistíðinda. (3457)

301. mál, orlof húsmæðra

Frsm. (Axel Jónsson) :

Herra forseti. Félmn. hefur athugað þetta frv. Formaður n. gat þess þegar hann mælti fyrir því hér fyrr í d. að frv. er flutt að beiðni félmrh. Efni frv. er, eins og fram kemur í frv., að hækka framlög sveitarfélaganna vegna orlofs húsmæðra. Í dag greiða sveitarsjóðir 150 kr. fyrir hverja starfandi húsmóður úr sveitarfélaginu. Þetta hefur verið gert síðan breyting var gerð á þessum lögum í des. 1975. Áður greiddi ríkissjóður 100 kr., en sveitarsjóðir 50 á móti.

Hér er lagt til að sú breyting verði í fyrsta lagi gerð, að nú verði greitt vegna hvers íbúa sveitarfélagsins og 100 kr. fyrir hvern íbúa, og í öðru lagi, að þetta verði verðtryggt miðað við febrúarvísitölu ár hvert.

Við í félmn. leggjum til á þskj. 775 eina breytingu á frv., sem er á þá leið, að lög þessi öðlist gildi 1. jan. í stað þess að frv. gerði ráð fyrir því að lögin öðluðust þegar gildi. Meginorsökin fyrir þessari breytingu er sú, að félmn. er sammála um að óeðlilegt sé að samþykkja auknar greiðslubyrðar á sveitarfélögin á vormánuðum löngu eftir að þau hafa gengið frá sinni fjárhagsáætlun. Ég vil geta þess, að framkvæmdastjóri Sambands ísl. sveitarfélaga kom á fund n. þegar þetta var til athugunar hjá n., og hann upplýsti okkur um að nánast öll sveitarfélögin hér í Reykjavik og á Reykjanessvæðinu hefðu á sínum fjárhagsáætlunum miklu hærri upphæðir til þessara mála heldur en þeim ber skylda til lögum samkv., þannig að þau eru þegar komin talsvert langt í áttina við það sem þarna er lagt til. En það þykir eðlilegra að láta þetta ekki taka gildi fyrr en 1. jan. 1979 þar sem löngu er um liðið hvað afgreiðslu fjárhagsáætlunar snertir. En vitanlega hefur sveitarfélögunum verið í sjálfsvald sett og verður, hvort þau greiða hærra en það sem lögbundið er.

Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til, herra forseti, að fara um þetta fleiri orðum.