29.04.1978
Neðri deild: 89. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4264 í B-deild Alþingistíðinda. (3477)

240. mál, heilbrigðisþjónusta

Sverrir Bergmann:

Herra forseti. Það er ekki ætlun mín að flytja hér mikla gagnrýni á þetta frv. til l. um heilbrigðisþjónustu, og ég ætla mér ekki að gera neinar aths. við einstakar greinar þess.

Þetta frv. er samið af n. sem hæstv. heilbrrh. skipaði á árinu 1975. Í þessa n. hefur valist fólk ákaflega vel hæft til að fjalla um þessi mál, og ég dreg alls ekki í efa að það hafi fjallað um þessi mál af mikilli samviskusemi og trúmennsku. N. var falið að endurskoða lögin með tilliti til þeirrar reynslu sem af þeim er fengin og einkum var henni falið að taka til athugunar með hverju móti þau ákvæði laganna, sem enn hafa ekki tekið gildi, gætu tekið gildi sem fyrst. Ég dreg ekki í efa að þetta hefur verið gert af mikilli kostgæfni, og það frv., sem við sjáum hér, er árangurinn af því sem best verður eftir komist. Ég vil því segja sem svo, að ég býst við að þar hafi vel til tekist, og það er mín skoðun að bæði skipulagslega og stjórnunarlega sé hér mörkuð alveg rétt stefna í megindráttum og sá rammi, sem okkur birtist í þessu frv., sé góður, þótt auðvitað eigi enn eftir að reyna á það, hvort allt sé mögulegt í framkvæmdinni, bæði með tilliti til fjármuna og skipulags raunar líka, og þá jafnvel frekar innan afmarkaðra svæða heldur en í heild.

Ástæðan til þess, að ég kveð mér hljóðs, er kannske fyrst og fremst sú, að ég sé að n. hefur jafnframt verið falið að kanna þær till. sem fram hafa komið á Alþ. um breytingar á lögum, en þessum till. hefur verið vísað til ríkisstj. Mig minnir að það hafi verið á árinu 1975, að ég flutti hér á hv. Alþ. ásamt hv. þm. Oddi Ólafssyni þáttill. sem fól í sér nokkra úttekt á heilbrigðisþjónustunni. Þetta varðaði sérstaklega skipulag á rekstri sjúkrahúsanna og skipulag á þeirri þjónustu sem sjúkrahúsin veita og einnig hvernig best yrði komið starfi sérfræðinga. Þetta tók raunar einnig til starfs heimilis- og héraðslækna og heilsugæslulækna eða hvaða nafn við viljum helst þar á velja.

Þegar ég lít yfir þetta frv. get ég ekki áttað mig á því a. m. k. að mikið hafi verið lítið eftir þessu. Nú er það auðvitað svo, að margt af því, sem við lögðum til að yrði kannað, er kannske erfitt að setja beinlínis í lög og yrði að ákveða með reglugerðum. En þó býst ég við, að ef á þetta hefði verið litið og ef á okkar till. hefði verið áhugi, þá hefði mátt koma inn nokkrum ákvæðum, sérstaklega í sambandi við kaflann um sjúkrahús. Ég sé enn frekari ástæðu til þess að minnast á þetta hér þar sem hv. frsm. heilbr.- og trn., hv. 9. landsk. þm., gerði talsvert að umræðu laun lækna. Það er nefnilega svo, að ef tillit hefði verið tekið til þeirra hugmynda sem við hv. þm. Oddur Ólafsson settum fram í okkar þáttill., þá hefði væntanlega verið hægt að fylgjast betur með tekjum lækna en menn halda að hægt sé að gera nú í dag. Og það virðist vera svo í okkar þjóðfélagi, að fyrir marga sé það ákaflega stórt atriði, og kom raunar greinilega fram hjá hv. frsm. heilbr.- og trn. sem því miður er nú ekki lengur hér á fundinum.

Ég er hiklaust þeirrar skoðunar, að það skipti ákaflega miklu máli að hér eigi sér stað virkileg breyting á heilbrigðiskerfinu og þá sérstaklega með tilliti til starfs sérfræðinga og með tilliti til starfsemi sjúkrahúsa. Ég er alveg viss um að þetta mætti gera miklu hagkvæmara, gera kerfið sjálft miklu afkastameira, ódýrara, stjórnunarlega miklu léttara, og ég dreg ekki í efa að þetta gæti skapað möguleika til þess að við gætum fylgst með svo sem vera ber og þá jafnframt að það verði léttara fyrir hæstv. heilbrrh. að standa undir því sem segir í 1. gr. frv.: „Ráðh. heilbrigðis- og tryggingamála sér um, að heilbrigðisþjónusta sé eins góð og þekking og reynsla leyfir.“ Það hefur margur tekið að sér að sjá um minna en það, og alveg sjálfsagt að allir leggi hæstv, ráðh. og reyndar þjóðinni allri svolítið lið til þess að koma málunum í það horf að þetta sé yfireitt mögulegt. Ég lýsi því vonbrigðum mínum yfir því, að ég skuli ekki sjá þess stað a. m. k. í frv. að till. okkar hafi verið athugaðar hið minnsta.

Að öðru leyti vildi ég aðeins víkja að því sem fram kom í ræðu hv. frsm. heilbr.- og trn., hv. 9. landsk. þm., en hún fjallaði nokkuð um læknanema sem sendir væru út á landsbyggðina. Hæstv. heilbrrh. hefur svarað þessu að allnokkru leyti, en það, sem hér er um að ræða, er auðvitað það að læknanemum er ætlað að kynnast starfsemi úti í héraði, Til þess fá þeir ákveðinn tíma á námsárum sínum í læknadeild. Þetta er raunverulega alveg hliðstætt því, að þeim er ætlað að starfa á einstökum deildum sjúkrahúsa, það er hluti af þeirra námi. Ég dreg ekki í efa að það er auðvitað ætlast til þess, að á þessum tíma séu þeir ekki einir í héraðinu. Þeir eru að læra þar hjá þeim sem fyrir sitja. Hins vegar er svo enn hjá okkur, þrátt fyrir það að nokkuð hafi dregið úr læknaskorti, að það eru einstök héruð, sem verða að leysa læknisvanda sinn um stundarsakir með því að hafa læknanemana til þess að gegna þjónustunni. Þeir gera að sjálfsögðu sitt besta, en þeir eru ekki fullfærir læknar af skiljanlegum áslæðum. En hér er einfaldlega um að ræða afleiðingar af ástandi sem flest virðist nú benda til að muni fara batnandi og að læknanemar geti farið út í hérað til þess að læra þar af þeim, sem fyrir sitja, og það sé þáttur í þeirra námi og mjög mikilvægur þáttur. Hins vegar hefur það auðvitað verið svo eftir að námi lýkur, að læknanemar fara út í héruð og gegna þar skyldustörfum. En það gefur auga leið, að eftir því sem heilsugæslustöðvar koma víðar úti um landið eru minni líkur til að óreyndir menn, þótt þeir hafi góða þekkingu og mikið starfsþrek og góðan vilja að sjálfsögðu, verði alveg einir. Mér finnst því ekki ástæða til þess að gera allt of mikið úr þessu atriði. Við vitum alveg hvernig á því stendur og það horfir flest til bóta í því efni.

Annað, sem hv. frsm. vék að, voru laun lækna og ég ætla ekki að gera þau hér að umtalsefni. En hv. frsm. lét sér þó þau orð um munn fara, að læknar hefðu margfalt hærri laun en fram kemur opinberlega. Því miður er hv. frsm. ekki staddur hér, en ég vona að þetta hafi ekki verið hugsað nákvæmlega svona, heldur hafi hún orðað þetta ógætilega, að læknar hefðu margfalt hærri laun en fram kemur opinberlega. Við vorum hér í gær að ræða um skattamál. Mér segir svo hugur um, þótt betra sé nú fyrir mig að taka ekki of sterkt til orða, að það hafi kannske margir nokkuð hærri laun en fram koma opinberlega. En það gildir ekki um lækna. Það er rétt, að þeir taka sín föstu laun og þeir taka laun fyrir sérstök störf eftir sérstakri gjaldskrá. En launin liggja fyrir. Þau koma fram opinberlega og þeir greiða af þeim sína skatta og skyldur. Þar skilur á milli þeirra og ýmissa annarra. Að öðru leyti ætta ég ekki að ræða það frekar.