29.04.1978
Neðri deild: 89. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4272 í B-deild Alþingistíðinda. (3480)

240. mál, heilbrigðisþjónusta

Gunnlaugur Finnsson:

Herra forseti. Ég vil nú einungis koma lítils háttar aths, á framfæri og láta að öðru leyti nægja það sem ég sagði áðan.

Það kom fram hjá hæstv. heilbrrh., að hann undraðist það að ég skyldi standa að eða vera með hugmyndir um það að kljúfa út úr Vestfjarðakjördæmi stjórnunarlega séð einstök sveitarfélög varðandi heilbrigðismálin. Ég vil leggja á það áherslu í þessu sambandi, að ég lít svo á að það sé ekki nokkur leið hjá okkur, hvort sem það er á sviði heilbrigðismála eða skólamála, að draga skýr, ákveðin mörk þar sem menn kæmust í eina tíð að niðurstöðu varðandi kjördæmin, — skýr mörk sem ekki skuli yfir stigið, hvort heldur er t. d. í skólamálum eða í heilbrigðismálum. Ég sé t. d. ekki hvað sameiginlegt er hjá fulltrúum Bæjarhrepps í Strandasýslu og þeim, sem eru í Bolungarvík eða Ísafirði, varðandi yfirstjórn í heilbrigðismálum. Þær hugmyndir, sem ég minntist á áðan, eru allt aðrar varðandi þetta atriði. Ég skil það, að n. hefur komist að þeirri niðurstöðu að fylgja kjördæmamörkunum, en ég tel hins vegar að það sé ekki nokkur vegur að komast fram hjá því að líta á landfræðilegar aðstæður og þéttbýliskjarna til að mynda ákveðin þjónustusvæði, jafnvel þótt í stjórnmálalegu tilliti í pólitískum málum standi sveitarstjórnirnar saman um sínar málaleitanir. En það er annað mál sem við ekki ræðum hér hvernig hægt er að samhæfa slíka hluti.

Mér finnst það vera óglöggt enn þá í sambandi við það sem kom fram hjá hæstv. ráðh., þar sem hann sagði að sveitarfélag yrði aldrei þvingað til kostnaðarþátttöku í heilsugæslustöð í öðru sveitarfélagi. Er það í raun og veru svo, að það sveitarfélag eitt, þar sem heilsugæslustöðin er reist, sé skuldbundið til að standa undir rekstrarkostnaði og sínum hluta af byggingarkostnaði? Er það svo, að við komumst hjá því að gera ráð fyrir að sérhvert sveitarfélag sé skuldbundið til þess að eiga aðild að öllu leyti að ákveðinni heilsugæslustöð, jafnvel þótt um það semdist, eins og ég drap á áðan, að það yrði nokkuð misjafnt vægi eftir því hver fjarlægðin er. Ég held að það verði ekki komist hjá því og þess vegna hljóti sveitarfélag einhvers staðar að eiga að gegna þessum skyldum. (Sjútvrh.: Þegar sveitarfélag ákveður að byggja heilsugæslustöð, þá verður að liggja fyrir hjá því framlag á móti ríkisframlagi, og þá liggur fyrir, ef það eru fleiri en eitt sveitarfélag, samningur við fleiri sveitarfélög.) Já, þetta er einmitt í samræmi við það sem ég drap á hér áðan, að það væri ósk sveitarfélaganna í Austur-Barðastrandarsýslu að eiga aðild að heilsugæslustöðinni í Búðardal, og ég hygg að um það hafi verið gerður samningur. Ég hygg t. d. að sveitarstjórn Flateyjarhrepps sé reiðubúin til slíkrar samningagerðar við Stykkishólmshrepp, en ekki við Hólmavíkurhrepp. En samkv. lögum er gert ráð fyrir að í framtíðinni yrði þessu breytt og Flateyjarhreppur eigi að sækja til Hólmavíkur. Það var á þessi atriði sem ég vildi benda og taldi að allar sveitarstjórnir ættu að eiga aðild einhvers staðar að heilsugæslustöð.

Í öðru lagi verð ég að segja það, að ég mælti hér fyrir brtt. hv. 3. þm. Reykv., Vilborgar Harðardóttur, og ráðh. fór svolítið hörðum orðum um 3. brtt. og þá ekki síst að ég skyldi hafa almennt séð tekið undir þessar brtt., eins og ég gerði án þess að fara ofan í einstaka þætti þess, enda er ég ekki flm. að þeim. En mér finnst ekkert óeðlilegt út af fyrir sig, það verð ég að segja, þó að till., sem þarna koma fram af hálfu þessa stéttarfélags, séu nánast orðréttar í takt við þá stefnu sem mörkuð er í frv. með 10. gr. Það hefði þá verið alveg eins eðlilegt að í 10. gr. væri mörkuð sú stefna, að það skuli samið við BHM í þessu tilviki með þeirri undantekningu sem nú gildir. En ég get alveg tekið undir það með hæstv. ráðh. að ég tel mjög óeðlilegt að mál hafi þróast svo sem þau hafa gert varðandi samninga um kaup og kjör. En hitt hygg ég að sé aðalatriðið, hvernig sem þetta er orðað, að það komi þarna til ákveðinn launaflokkur. Ég geri ekki ráð fyrir því og mér er raunar tjáð að þetta hafi verið athugað og slíku fylgi mjög litill aukinn kostnaður.

Ég hef satt að segja, eins og kom fram í ræðu hjá mér áðan, fjölmargt við þetta frv. að athuga. Mér hefur ekki unnist ráðrúm til þess að móta brtt., og sannleikurinn er sá, að þær mundu verða býsna margar og þar mundu að grundvallarhugmynd í sumum tilvikum vera á annan hátt en fram er sett í frv., þannig að til þess hefur ekki gefist tækifæri. Sú er ástæðan fyrir því, að ég hef ekki lagt inn á þá braut að flytja einstakar till., því að ég hef þá ekki vitað hvar staðar skyldi numið.