29.04.1978
Neðri deild: 89. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4277 í B-deild Alþingistíðinda. (3488)
280. mál, umferðarlög
Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):
Virðulegi forseti, Þetta frv. er einfalt að efni til. Það fjallar um hækkun vátryggingarfjárhæðar ökutækja og tilsvarandi hækkun á sjálfsábyrgð. Þessi breyting er talin eðlileg og nauðsynleg vegna verðlagsbreytinga, og þetta þarf, held ég, ekki skýringa við.
Í hv. Ed., sem frv. hefur gengið í gegnum, var gerð sú breyting á frv., að bætt var við 1. gr. þess heimild þess efnis, að dómsmrh. geti ákveðið hækkun vátryggingarfjárhæða að fengnu áliti tryggingaráðs í samræmi við verðlagsbreytingar, og er sjálfsagt hugsunin með þeirri breytingu sú að spara Alþingi tíma, þannig að það þurfi ekki alltaf að fara með það til Alþingis ef þarf að gera breytingar á þessu.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta einfalda frv., en legg til að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.