29.04.1978
Neðri deild: 90. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4288 í B-deild Alþingistíðinda. (3502)

300. mál, þjónustustofnanir

Flm. (Kristján Ármannsson) [frh.] :

Virðulegi forseti. Ég skal ekki tefja tímann lengi enn þá, enda vakir ekki nein ríkisstj.-hraðlest fyrir þessu frv. okkar, við getum tekið því rólega þess vegna. En ég var kominn að lokaorðum mínum. Ég var að leggja áherslu á það, að mér fyndist að í þessu frv. eða hugmyndum að því væri knúið á ýmsa jákvæða hluti og nefndi m. a. skipulagsmál í því sambandi og einkum hjá hinum smærri sveitarfélögum. Ég vil einnig vekja sérstaka athygli á því, að þær hugmyndir, sem koma fram í þessu frv., gera ekki ráð fyrir, eins og kom fram í grg. höfundar, samsöfnun opinberrar þjónustu t. d. fyrir hvern landsfjórðung eða þess háttar. Þó er það eigi að síður að á engan hátt útilokað að nokkur sveitarfélög og fjórðungssambönd komi upp þjónustustofnun þar sem það kann að eiga við.

Ég ætla sem sagt ekki að hafa fleiri orð um þetta frv. og ég ætla ekki við þessa umr. að gera neinar sérstakar aths. við frv. þetta, en ég efa ekki að margt þarf þar gaumgæfilegrar athugunar við. Mér dettur í hug nafnið á frv.: þjónustustofnun. Í mínum huga hefur þetta frekar flokkast undir stjórnsýslu eða kallast stjórnsýslustofnun eða eitthvað þess háttar. Þjónustustofnun er náttúrlega ákaflega víðtæk. En ég vil sem sagt aðeins ítreka það að lokum, að við flm. flytjum þetta frv. algerlega óbreytt frá bendi höfundar, en töldum rétt að það fengi að sjá dagsins ljós á þessu Alþ., þó að það fái ekki hér neitt hraða afgreiðslu. — Svo þakka ég fyrir.