29.04.1978
Efri deild: 93. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4292 í B-deild Alþingistíðinda. (3514)
306. mál, heyrnleysingjaskóli
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. — Ég fagna því, að þetta frv. er fram komið. Ég hafði af því heyrt, að það væri á leiðinni, að vísu fyrir allnokkru. Og víst er það, að seint er orðið að koma þessu fram nú, en alls ekki of seint, því að ég hygg að menn séu allir sammála um þetta og ég hlýt að lýsa yfir mikilli ánægju minni með þetta. Það er vitað að þetta mun kosta töluvert fé, það fer ekki á milli mála. En ég held að það sé óhætt að segja það, að hægt sé að taka undir það sem segir hér, að þeir fjármunir, sem til deildarinnar rynnu, mundu örugglega skila sér aftur í þjóðarbúið.
En ég vildi aðallega koma inn á það, að ég hygg að á fleiri sviðum þyrfti að huga hér að varðandi framhaldsnám og það þyrfti að lengja þann tíma, sem t. d. þroskaheftir hafa til náms, frá því sem nú er. Það er vitað að fyrir þessu er heimild í dag og sú heimild er nýtt að nokkru. En ég er ekki í neinum vafa um að það mundi einnig skila sér örugglega aftur ef við færum þá leið að nám þessa fólks yrði aukið og lengt og skyldunám þess fært a. m. k. upp um 2–3 ár hið minnsta og lögfest þannig, því að ekki mun af veita, og e. t. v. þyrfti enn frekar í því máli að gera.
Ég vildi aðeins koma þessu að, um leið og ég lýsi yfir fullum stuðningi mínum við þetta frv. Ég veit að það er borið fram af brýnni þörf, hef heyrt um hana lengi og vitað að hún var fyrir hendi, en minni á hitt í leiðinni, að þetta á aðeins að vera upphafið að því að þeir, sem á einhvern hátt eru öryrkjar eða eru þroskaheftir á einhvern máta, njóti þeirra fyllstu réttinda og möguleika til náms og þjálfunar og þroskunar sem þeir geta og þjóðfélagið getur veitt þeim á hverjum tíma.