29.04.1978
Efri deild: 94. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4293 í B-deild Alþingistíðinda. (3516)
Umræður utan dagskrár
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs hér um dagskrána í tilefni af því, að mál nr. 3, Stofnlánadeild landbúnaðarins, er komið hér á dagskrá. Við vorum að afgreiða þetta mál rétt fyrir hádegið og ég gat ekki betur skilið á okkar ágæta formanni en það lægi ekki fyrir að málið kæmi til umr. nú seinni partinn í dag. Eins og fram kemur á þskj., sem var verið að dreifa rétt áðan, ætla ég mér að skila sérnál. og gera grein fyrir afstöðu minni í n., en til þess vannst enginn tími því að annir á Alþ. eru svo miklar. Það þarf ekki að vera að tíunda það, að ég, sem sit í fjórum n. hér í Ed., hafði rétt svigrúm til að fá mér smámatarhressingu ef ég átti að fylgja eftir þeim fundarboðum og dagskrá er hér var boðað. Þetta kemur mér því alveg á óvart. Að vísu skiptir það kannske ekki miklu máli þegar allir aðrir sameinast um að leggja þetta gjald á, og skal ég ekki hafa þetta mál mitt lengra, heldur mun ræða um það ef leyft verður að taka málið á dagskrána. Ég vildi aðeins vekja athygli á þessu, að þetta mun hafa gengið fljótar fyrir sig en upplýst var í n., án þess að ég sé að sakast beinlínis við formann okkar.