29.04.1978
Efri deild: 94. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4294 í B-deild Alþingistíðinda. (3525)

267. mál, lögsagnarumdæmi Hafnarfjarðarkaupstaðar

Frsm. (Axel Jónsson) :

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er til breytinga á lögum um lögsagnarumdæmi Hafnarfjarðarkaupstaðar. Þar er um að ræða breytingu á mörkum Garðabæjar og Hafnarfjarðar og til þess að kveða þar skýrar á um og er algert samkomulagsmál milli sveitarstjórna Hafnarfjarðar og Garðabæjar.

Hv. félmn. hefur athugað frv., eins og fram kemur í nál. á þskj. 808, og mælir með samþykkt þess óbreytts. Fjarverandi afgreiðslu málsins var Steingrímur Hermannsson.