29.04.1978
Efri deild: 94. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4294 í B-deild Alþingistíðinda. (3528)
255. mál, söluskattur
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Á þskj. 490 er frv. til l. um breyt. á l. um söluskatt, sbr. lög um skattkerfisbreytingu. Ákvæðum söluskattslaga um viðurlög var síðast breytt með lögum nr. 10 frá 1974, um skattkerfisbreytingu. Voru þá ákveðin 2% viðurlög af þeirri upphæð, sem vangreidd var, fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga, þó ekki hærri en 10%, og 1.5% til viðbótar af vangreiddri upphæð fyrir hvern byrjaðan mánuð talið frá og með 16. degi næsta mánaðar eftir eindaga. Dráttarvextir innlánsstofnana voru 1.5% af vangreiddri upphæð fyrir hvern byrjaðan mánuð þegar ofangreind ákvæði voru lögfest. Nú eru vextir þessir 3% og eru því vanskil á söluskatti orðin langódýrasti máti söluskattsskylds aðila til þess að verða sér úti um rekstrarfé.
Samkv. ákvæðum laga nr. 10/1960, um söluskatt, skyldu, 10% viðurlög leggjast á strax að eindaga loknum, en með lögunum 1974 voru þessi viðurlög gerð léttari fyrstu dagana eftir eindaga, þannig að 2% bættust við á hverjum degi þar til 10% var náð. Að dómi flestra, er við innheimtu söluskatts starfa, var þetta nýmæli til bóta.
Sú breyting, sem almennt hefur orðið á vaxtakjörum í þjóðfélaginu, hefur gert núgildandi viðurlagaákvæði úrelt. Sú hefur ætíð verið stefnan að tryggja fljót og góð skil söluskatts, og fela þær breytingar, sem nú er lagt til að gerðar verði á viðurlagsákvæðum söluskattslaganna, aðeins í sér breytingar í hlutfalli við hækkun sem orðið hefur á vöxtum í landinu.
Ég leyfi mér, herra forseti, að leggja til að þessu frv. verði að lokinni umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn. En ég vil vekja athygli á því, að láðst hefur í Nd. að gera breytingu á 2. gr. frv., þar sem gert var ráð fyrir gildistöku laganna 25. apríl. Því þarf að sjálfsögðu að breyta.