02.05.1978
Sameinað þing: 73. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4308 í B-deild Alþingistíðinda. (3546)

54. mál, tónmenntafræðsla í grunnskóla

Frsm. (Ellert B. Schram):

Herra forseti. Eftir að ég hafði fyrir hönd hv. allshn. Sþ. gert grein fyrir nál., sem fram kemur á þskj. 394, þar sem n. kemst að þeirri niðurstöðu að mæla með samþykkt þessarar þáltill, með þeirri breytingu þó, að síðasta mgr. tillgr. falli niður, þá flutti hv. þm. Sigurlaug Bjarnadóttir brtt. þar sem gert er ráð fyrir því, að síðasta mgr. væri aftur tekin upp með þeirri viðbót, að inn í setninguna væru felld orðin: „svo fljótt sem unnt er.“ Ég óskaði þá eftir því, að umr. yrði frestað til þess að kanna viðhorf allshn. til þessarar brtt. Enda þótt ég hafi ekki náð í alla nm., þá er það álit okkar, sem höfum athugað þetta mál, sem er meiri hl. a. m. k. í n., að ekkert sé við það að athuga að samþykkja þessa brtt. N. er því hlynnt því, að hún verið samþ. og tillgr. verði þá samþ. í heild sinni með þeirri breytingu.