07.11.1977
Neðri deild: 12. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 482 í B-deild Alþingistíðinda. (356)
33. mál, umferðarlög
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Þegar frv. svipaðs efnis var hér til umr. á síðasta Alþ., var eins og fram kom hjá hv. frsm., um að ræða tvö efnisatriði sem ég tjáði mig andvígan. Þau hafa nú verið tekin út, þ.e.a.s. varðandi skyldu til notkunar öryggisbelta svo og ökuskóli. Afstaða mín til að lögleiða notkun öryggisbelta stafar af því, að um þetta málefni eru alveg skiptar skoðanir, ekki síst í hópi lækna. Þeir eru síður en svo á einu máli um það, að með því að leiða í lög notkun öryggisbelta mundi umferðarslysum fækka. Um þetta er ágreiningur, og ég hef ekki sannfærst um að lögleiðing á notkun öryggisbelta mundi ótvírætt draga úr umferðarslysum.
Varðandi hitt ákvæðið sem var í fyrra frv., um ökuskóla, þá var þar um að ræða að koma á fót ökuskóla sem einungis næði til Reykjavíkursvæðisins. Hann átti að vera staðsettur hér og hingað átti að flytja alla þá sem á annað borð ætluðu sér í þennan tiltekna ökuskóla, og það er að mínu viti fráleitt.
Á þessu tvennu byggðist andstaða mín gegn frv. eins og það var lagt hér fram á síðasta Alþ. Nú þegar þessu tvennu hefur verið kippt út úr frv., þá vil ég strax lýsa því yfir sem minni skoðun, að ég er samþykkur því eins og það liggur nú fyrir. Ég vil þó segja nokkur orð út af því sem kom fram hjá frsm. um ökuleyfissviptinguna. Ég er hv. þm. og frsm. sammála um að ökuleyfissvipting er kannske það sem hefur mest áhrif til hins betra. Og menn tala um ökuleyfissviptingu ævilangt. Ég held að þetta tal um ævilanga ökuleyfissviptingu geti valdið nokkrum misskilningi, því að ég a.m.k. þykist vita dæmi þess, að einstaklingur, sem sviptur hefur verið ökuleyfi, eins og kallað er, ævilangt, hann getur sótt um ökuleyfi að nýju og hefur fengið það, eftir því sem ég best veit, að t.d. þrem árum liðnum. Hér er því ekki um ökuleyfissviptingu ævilangt að ræða í þeirri merkingu sem almennt er um það talað. Ég er ekki með þessu að segja að það eigi bókstaflega, í orðsins fyllstu merkingu, að svipta menn ökuleyfi ævilangt, en ég tel að það þyrfti a.m.k. að breyta orðalagi í þessum efnum, þannig að menn vissu í raun og veru um hvað væri verið að tala, en að orðanna hljóðan gæfi ekki tilefni til allt annarrar niðurstöðu en í raun og veru er til ætlast.
Ég skal ekki hafa þessi orð fleiri. En ég taldi rétt vegna þeirrar andstöðu, sem ég sýndi frv. á síðasta Alþ., nú strax við 1. umr. að gera þessa grein fyrir viðhorfum mínum til málsins.