02.05.1978
Efri deild: 95. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4320 í B-deild Alþingistíðinda. (3569)

Umræður utan dagskrár

Forsrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. Ég held, að öll efnisatriði málsins séu fram komin, og lít raunar á ræðu síðasta hv. ræðumanns þannig, að hann sé að tala fyrir pallana fremur en okkur hv. þm. En það er líka góðra gjalda vert.

Sem svar við fsp. hv. þm. vil ég segja, að ég er sannfærður um að allir starfsmenn Orkustofnunar, bæði eldri sem yngri, — ég geri ekki þann greinarmun á þeim samkv. aldursröð sem síðasti hv. þm. gerði, — leggja auðvitað áherslu á að þannig sé haldið á fjármálum Orkustofnunar, að ekki komi ítrekað til þess vanda sem staðið er frammi fyrir nú. Ég er sannfærður um að allir starfsmenn Orkustofnunar eru sammála okkur öllum hv. þm. um að þetta skipti mestu máli, bæði fyrir starfsöryggi einstaklinganna, sem vinna við Orkustofnun, svo og fyrir framgang þeirra mikilvægu verkefna sem unnið er að innan veggja stofnunarinnar.

Ég hef ítrekað sagt frá því, að endurskoðunarnefnd er að störfum varðandi fjármál Orkustofnunar, og þær ráðstafanir, sem forráðamenn Orkustofnunar hafa gert varðandi starfsmenn stofnunarinnar að því er snertir uppsagnir eða ábendingar um önnur eða breytt starfskjör, eru ekki gerðar í samráði við ríkisstj. í heild sem slíka. Það er misskilningur hjá hv. ræðumanni. En hins vegar eru þetta ráðstafanir sem gerðar eru af forráðamönnum stofnunarinnar sjálfsagt í tengslum við þá endurskoðun, sem fram fer, til þess að geta haft frjálsari hendur um aðgerðir að endurskoðun lokinni.

Ég skal ekki segja það á þessu stigi, hvort eða að hve miklu leyti þær uppsagnir koma til með að ganga í gildi sem þarna er um að ræða. En að lokinni endurskoðun fullyrði ég að bæði starfsmenn og stjórnendur stofnunarinnar standa á öruggari grundvelli, og ég er sannfærður um að allir starfsmenn Orkustofnunar óska eftir því., að slíkur öruggur grundvöllur sé myndaður fyrir starfsemi þá er innan stofnunarinnar fer fram.