02.05.1978
Efri deild: 95. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4327 í B-deild Alþingistíðinda. (3575)

240. mál, heilbrigðisþjónusta

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af því sem hv. tveir alþm. segja, sem hér hafa talað á undan, varðandi breytingu í sambandi við Eskifjörð, að breyta í H 2. Ég fyrir mitt leyti er andvígur hvers konar breytingu í þessa átt, ekki af þeirri ástæðu að ég geti ekki vel unnt Eskifjarðarhéraði að fá þessa breytingu, fá annan lækni, heldur hitt, að á meðan við stöndum frammi fyrir því að geta ekki mannað þau læknishéruð, sem fyrir eru samkv. lögum, og stöndum í sífelldu stríði að fá menn út á landsbyggðina, þá finnst mér það ekki rétt stefna hjá Alþ. að fjölga þeim störfum. En það þarf ekki að þýða að engu megi breyta um langa framtíð.

Ég er mjög leiður yfir því, hvað illa gengur að fá lækna úti um land. Við höfum reynt að beita þessari helmild, sem hv. 7. landsk. þm. nefndi, eins oft og við getum, og það eru fjölmargar óskir um að læknir hafi móttöku víðar í læknishéraði sínu en hann hefur. Þar rekumst við oft á vegg, sérstaklega hjá mörgum hinna yngri lækna sem setja sig upp á móti því. Það eru mjög ólík sjónarmið þeirra eða hinna eldri, sem alltaf voru boðnir og búnir að fara til fólksins, hvar sem það var, sem þurfti á þeim að halda. En hitt er aftur mjög áberandi hjá flestum yngri læknum, að þeir telja að læknamóttökurnar eigi að vera fáar og það eigi flestir að koma þangað, en þeir ekki á viðkomandi heimill eða eiga löng ferðalög. Hér er um ákaflega erfið og viðkvæm mál að ræða. Við erum fyrst og fremst að leita samstarfs, bæði landlæknir og heilbrigðisstjórnin. Í mörgum neyðartilfellum höfum við farið þess á leit við ríkissjúkrahúsin stóru að fá menn þar af stærstu deildunum til þess að gegna, þó ekki væri nema um stuttan tíma. Það hefur verið nokkuð góður vilji hjá sumum þessara yfirlækna að reyna að leysa þessi mál og í mörgum tilfeilum hefur það tekist. En það eru líka æðimörg tilfeill þar sem það tekst ekki.

Ég bið hv. þm. og nm. að taka tillit til þess, að þetta er ekki andstaða mín við þessa ósk, heldur fyrst og fremst það, að meðan við getum ekki staðið okkur betur með það sem lögin leggja okkur á herðar, þá er ég andstæður því að fara að færa út kvíarnar.