02.05.1978
Efri deild: 95. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4328 í B-deild Alþingistíðinda. (3577)
240. mál, heilbrigðisþjónusta
Steingrímur Hermannsson:
Herra forseti. Aðeins ein eða tvær spurningar til hæstv. ráðh.
Í frv. kemur fram að Austur-Barðastrandarsýsla á að falla undir Hólmavíkurumdæmi. Er það að sjálfsögðu breyting frá því sem nú er, þar sem Geiradalshreppur, Reykhólahreppur og Gufudalshreppur falla undir Búðardal, en Flateyjarhreppur er undir Stykkishólmi. Ég get út af fyrir sig fagnað því, að við fáum að halda þessu innan kjördæmisins. Mér hefur alltaf verið það dálítill þyrnir í auga að færa þetta undir Vesturlandskjördæmi. Hins vegar höfum við orðið að viðurkenna vissar staðreyndir í samgöngum og því höfum við látið það nokkuð átölulaust.
Til þess að þetta geti staðist þarf stórlega að bæta samgöngur þarna á milli, einkum samgöngur yfir Tröllatunguheiði. Reyndar held ég að við getum allir verið sammála um það. Annars er leiðin til Hólmavíkur of löng. En sérstaklega hef ég nú áhyggjur út af Flateyjarhreppi, því að samgöngur milli Flateyjar og Hólmavíkur eru ansi slæmar, vægast sagt. Ég verð því að segja, að ég tel heldur vafasamt að flytja eyjarnar undir Hólmavíkurumdæmi, þótt það væri að öðru leyti ánægjulegt. Eðlilegt er að þær séu áfram undir Stykkishólmi. Ég vildi gjarnan fá að heyra frá hæstv. ráðh., hvaða hugmyndir hann hefur um þetta. Í frv. mun vera heimild til bráðabirgða þess efnis að a. m. k. Austur-Barðastrandasýsla falli áfram undir Búðardal. En ég vil spyrja hann að því, hvort hann telji að þetta geti þó fljótlega færst undir Hólmavík. Það tengist þá að sjálfsögðu þeim samgöngubótum sem þarna eru nauðsynlegar. Ég hef mínar efasemdir um þennan flutning, þótt ég sé ekki beinlínis að leggjast gegn honum.
Í öðru lagi vaknar sú spurning í sambandi við heilsugæslustöðina á Hólmavík, sem er H 1. hvort hana ætti ekki að stækka í H 2, þar sem svæði hennar hefur stækkað gífurlega, nær jafnframt yfir Bæjarhreppinn, sem ef ég man rétt fellur nú undir Hvammstangaumdæmi. Kæmi til greina þá að stækka þessa heilsugæslustöð og gera hana betur færa til þess að sinna svo víðáttumiklu umdæmi. Þessar spurningar vildi ég leyfa mér að leggja fyrir hæstv. ráðh.