02.05.1978
Efri deild: 95. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4341 í B-deild Alþingistíðinda. (3592)
187. mál, lögréttulög
Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Ég vil taka það fram, að ég get vel fallist á þær brtt. sem fram hafa verið bornar af hv. þm. Þorv. Garðari Kristjánssyni.
Ég vil leyfa mér að þakka allshn. fyrir jákvæða afgreiðslu á þessu frv. Þetta er mikill lagabálkur, og það er rétt, sem hér var tekið fram, að þetta frv., ef að lögum verður, felur í sér verulega og má segja gerbreytingu á dómaskipan. Þess vegna er það ekkert óeðlilegt, þó að það hafi tekið tíma að kanna þetta mál og athuga það. Ég tel að hv. Alþ. og þessi hv. d. hafi haft góðan tíma til að athuga málið. Jafnframt hafa allir hv. alþm. haft tækifæri til þess að kynna sér þetta mál vel, þar sem það hefur legið fyrir þremur þingum. En afgreiðslan hér er að vísu seint á ferð, og það verður að sjálfsögðu að ráðast hvort frv. nær afgreiðslu á þessu þingi eða ekki. Þegar um slíkt mál sem þetta er að ræða, þá skiptir það ekki sköpum hvort það nær samþykkt einu árinu fyrr eða seinna.
Það er svo rétt, eins og kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni, að auðvitað eru í svona frv. mörg álitamál það fer ekki hjá því — og við munum seint afgreiða það þannig að það yrðu ekki eftir sem áður ýmis álitamál. Og það getur vel verið að það verði seint afgreitt þannig að ekki komi í ljós eftir á að fenginni reynslu að það þurfi að breyta einhverju í þessum lögum. Ég held þess vegna að það verði seint beðið með afgreiðslu svo lengi að tryggt sé að það þurfi ekki neinu að breyta síðar eða það megi ekki betrumbæta það. Þá mundi seint verða mikið um endurbætur, ef þannig væri unnið að málum.
Ég held að hér sé stigið mjög stórt skref til réttrar áttar. Án þess að ég ætli nú að fara út í hugleiðingar þær sem hv. síðasti ræðumaður var með og margar geta átt rétt á sér, þá vil ég segja að auðvitað er það rétt, sem hann sagði, að þó að kenningin um þrígreiningu ríkisvaldsins sé ágæt út af fyrir sig, þá mega menn ekki vera svo teoríubundnir að halda að einn spekingur, sem uppi var fyrir tveimur öldum rúmlega eða svo, hafi getað orðað alveg ákveðnar formúlur sem eigi að gilda um eilífð fyrir leikreglur mannlífsins. Þær verður alltaf að laga dálítið í hendi. En hvað sem líður kenningunni um þrígreiningu ríkisvaldsins, þá held ég að það verði lengi, vona ég, á meðan þær hugarstefnur eru við lýði sem við metum mest, lögð megináhersla á það, að dómstólar séu sjálfstæðir, — það er eitt höfuðskilyrðið fyrir því, að við getum búið í því, sem við viljum kalla réttarríki, — og þeir séu skildir frá framkvæmdavaldinu og gerðir því svo óháðir sem kostur er. Það álít ég eitt höfuðatriðið. En ef við ætluðum að fara að skilgreina það nákvæmlega nú, hvort það væru ekki nema þrír þættir eða þrjár greinar ríkisvaldsins sem um er að ræða í reyndinni, þá er ég ekki viss um að allir yrðu á sama máli um það. En allir mundu, að ég ætla, telja að dómsvaldið ætti að vera einn af þeim þáttum sem eiga að vera sjálfstæðir.
Það er auðvitað svo, eins og hv. síðasti ræðumaður sagði, að það getur lengi verið álitamál um ýmis atriði, hvernig eigi að skipa þessum málum. Hann nefndi nafnið. Auðvitað getur verið álitamál, hvort á að kalla þetta lögréttu eða eitthvað annað. Ég hefði t. d. vel getað hugsað mér að taka upp hið gamla nafn lögþingsréttur og kalla lögþingsréttinn sunnan og vestan og lögþingsréttinn norðan og austan. Það var það skipulag sem hélst lengst. En þar fyrir var lögréttan þessu ekki óháð, vegna þess að lögmennirnir tveir nefndu menn í dóm úr hópi lögréttumanna. Það kerfi stóð miklu lengur en það kerfi, sem við búum við, hefur staðið. Þegar Hæstiréttur var settur á stofn voru ekki allir sammála um hvaða nafn hann ætti að hljóta. Sumir töldu orðið Hæstiréttur ákaflega óíslenskt og fjarri því sem hefði verið og vildu kalla hann fimmtardóm. Það er gamalt nafn. Ég er ekki viss um að það hefði orðið sérstaklega vinsælla. Þó veit maður það ekki.
Um önnur þau atriði, sem hv. þm. minntist á, er það að segja, að ég tel of langt mál að fara út í þau. Það er svo, að þær hugleiðingar má setja fram eins og margar aðrar í sambandi við þetta, en ég hygg að þegar menn hugleiða þetta betur og átta sig betur á þessu muni þeir komast að raun um að þarna sé yfirleitt reynt að þræða meðalhóf og nokkuð skynsamlegur meðalhófsvegur fundinn. En auðvitað verður aldrei fullyrt um það, fyrr en reynslan sker úr því, hvernig til tekst. Og því verður að breyta skipulaginu eftir því sem þarfirnar segja til um. Við skulum ekki hugsa okkur það, að við séum með þessum lögum frekar en öðrum, sem við erum að samþykkja, að setja upp eitthvert eilífðarskipulag.
Ég endurtek svo þakklæti mitt til n. fyrir mjög jákvæða afgreiðslu á málinu.