02.05.1978
Efri deild: 95. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4343 í B-deild Alþingistíðinda. (3598)

245. mál, verðlag, samkeppnishömlur og óréttmætir viðskiptahættir

Frsm. meiri hl. (Jón Helgason):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur haft frv. til l. um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti til athugunar Þegar þetta frv. var til umr. í hv. Nd. voru haldnir sameiginlegir fundir með fjh.- og viðskn. Nd., en síðan hefur fjh.- og viðskn. Ed. haldið þrjá fundi um málið og hefur fengið þá Gylfa Knudsen og Georg Ólafsson verðlagsstjóra á sinn fund.

Í 1. gr. frv. er markmið og gildissvið laganna skilgreint þannig, að þau hafi það markmið að vinna að hagkvæmri nýtingu framleiðsluþátta þjóðfélagsins og sanngjarnri skiptingu þjóðartekna með því að a) vinna gegn ósanngjörnu verði og viðskiptaháttum, b) vinna gegn óréttmætum viðskipta- og samkeppnisháttum svo og samkeppnishömlum sem hafa í för með sér skaðlegar afleiðingar fyrir neytendur, atvinnurekendur eða þjóðfélagið í heild.

Til þess að ná þessum tilgangi koma síðan í frv. margvísleg nýmæli, sem eiga að stuðla að því að gera okkur kleift að koma hér á því verðlagningarkerfi er hentar best við okkar aðstæður. Það á að reyna að fá fram þá kosti, sem frjáls samkeppni um verðmyndun kann að geta skapað, án þess að taka þá áhættu að afleiðingin verði gagnstæð, því að með öflugu eftirliti á að fylgjast með verðlagsþróuninni og grípa í taumana ef ástæða verður til. Það er því alger firra að halda því fram, að með þessu frv. sé stefnt að því að gefa kaupsýslumönnum og milliliðum tækifæri til að skammta sér laun. Það á að gefa þeim tækifæri til að sýna kosti frjálsrar samkeppni fyrir neytandann, en misnoti þeir það hefur verðlagsráð víðtækar heimildir til aðgerða.

Í upphafi 3. gr. núgildandi laga um verðlagsmál segir: „Verðlagsnefnd getur ákveðið hámarksverð á vöru og verðmæti, þ. á m. hámark álagningar, umboðslauna og annarrar þóknunar, er máli skiptir um verðlag í landinu.“ — Að öðru leyti virðist verðlagning eiga að vera frjáls eftir núgildandi lögum og engin ákvæði eru í þeim sem setja skilyrði fyrir frjálsri álagningu. En í þessu frv. segir hins vegar að verðlagning skuli vera frjáls þegar samkeppni er nægileg til þess að tryggja æskilega verðmyndun og sanngjarnt verðlag. Það eru því tvímælalaust sett strangari skilyrði en nú eru.

Auk þess er í frv. nýr kafli um samkeppnishömlur, þar sem m. a. er kveðið á um eftirlit með samningum og samþykktum um samkeppnishömlur. Samkv. því á að vera heimilt að banna að gefa út sameiginlegar verðskrár eða viðmiðunartaxta, sem ýmis samtök og hagsmunahópar hafa gert þar sem verðlagsákvæði hafa ekki gilt, og í reynd hefur þar orðið um lágmarksverð á viðkomandi þjónustu að ræða. Þarna getur því orðið um mikilvægt ákvæði að ræða.

Í V. kafla laganna eru að nokkru leyti endurskoðuð lög um óréttmæta verslunarhætti, sem fyrst og fremst áttu að koma í veg fyrir að kaupsýslumenn beittu óréttmætum viðskiptaháttum hver gegn öðrum. En með ákvæðum frv. um óréttmæta viðskiptahætti er reynt að gæta hagsmuna neytandans, enda hafa mörg ákvæði kaflans ekki verið hér í lögum fyrr. Gert er ráð fyrir að sérstök neytendamáladeild sjái um framkvæmd þessa kafla, en af hagkvæmnisástæðum er valin sú leið að hafa slíka deild innan verðlagsstofnunarinnar, þar sem þetta er nátengt verðlagsmálum.

Vegna þessara mörgu nýmæla frv. er augljóst, að miklar breytingar verða á starfi verðlagsskrifstofunnar og vel þarf að standa að því að koma þeim á þar sem aðeins 6 mánuðir eru þangað til lögin skulu öðlast gildi. En á miklu veltur að framkvæmd laganna takist vel, svo að þau nái tilgangi sínum.

Í verðlagsmálum eru mjög skiptar skoðanir um leiðir. Sumir telja best að vera lausir við öll opinber afskipti og aðrir að opinberir aðilar eigi að stjórna þar öllu. Þessi ólíku viðhorf komu að nokkru fram við afgreiðslu málsins í fjh,- og viðskn. En í þessu frv. er reynt að fara meðalveg, þ. e. að ná sem flestum af kostum hvorrar leiðar, en losna við gallana. Það á t. d. að reyna að hverfa frá þeirri reglu, að hátt innkaupsverð veiti rétt til mikillar álagningar, eins og núverandi verðlagsákvæði heimila. Í staðinn mun verðlagsstofnunin reyna að fá upplýsingar um raunverulega verðmyndun á innfluttum vörum. Þegar hefur verið hafinn undirbúningur að slíkri starfsemi. Það verða engar sjálfkrafa breytingar á verðlagsákvæðum frá núgildandi ástandi, enda þótt þetta frv. verði samþykkt, þar sem í bráðabirgðaákvæðunum segir að samþykktir um hámarksálagningu og fleira skuli halda gildi sínu þar til verðlagsráð hefur tekið afstöðu til þeirra. Þetta undirstrikar það því, að hér sé ekki um einhverja gerbyltingu að ræða.

Meiri hl. n. leggur til á þskj. 769 að frv. verði samþykkt eins og það kom frá hv. Nd., en þeir Ragnar Arnalds, Jón Árm. Héðinsson og Albert Guðmundsson skila séráliti.