02.05.1978
Efri deild: 95. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4353 í B-deild Alþingistíðinda. (3605)
307. mál, Myndlista- og handíðaskóli Íslands
Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Þetta frv. um Myndlista- og handíðaskóla Íslands er samið af mþn. eða öllu heldur af stjórnskipaðri nefnd, sem var skipuð 27. maí 1970. Hún hefur tekið sér góðan tíma til starfa. Það þótti rétt að kynna þetta frv. núna, þannig að þeim, sem hér eiga hlut að máli, hv. alþm. fyrst og fremst og svo öðrum, sem þetta mál varðar sérstaklega, gæfist kostur á að hafa málið fyrir framan sig í sumar og líta á það.
Ég sé ekki ástæðu til, eins og á stendur með þingtíma og frv. er eingöngu lagt fram til kynningar, að hafa. um það fleiri orð, en legg til að því verði vísað til hv. menntmn. að umr. lokinni.