08.11.1977
Sameinað þing: 14. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 509 í B-deild Alþingistíðinda. (362)
1. mál, fjárlög 1978
Geir Gunnarsson:
Herra forseti. Áður en ég kem að því að fara nokkrum orðum um frv. til fjárlaga fyrir árið 1978 vil ég ræða nokkuð afkomu ríkissjóðs á s.l. ári, en til þess hefur þm. ekki gefist tækifæri fyrr en nú.
Skýrsla um afkomu ríkissjóðs á árinu 1976 var lögð fram á Alþ. í mars s. I. og ríkisreikningurinn lá fyrir í maí. Því miður efndi hæstv. fjmrh. ekki gefin fyrirheit um að þm. fengju tækifæri til þess að ræða skýrsluna á Alþ., heldur greip hann til þess furðulega ráðs að fjalla um hana í fyrirspurnatíma þar sem þm. hafa enga aðstöðu til að ræða mál þetta, auk þess sem enginn gat átt von á því nema hæstv. ráðh. að um efni skýrslunnar yrði fjallað í þessum fyrirspurnartíma.
Í upphafsorðum skýrslunnar um afkomu ríkissjóðs 1976 segir að Alþ. sé með þeirri skýrslu í fyrsta sinn gerð grein fyrir bráðabirgðatölum um afkomu ríkissjóðs á liðnu ári. Þetta er að vísu ekki nákvæmlega rétt, því að í jan. 1976 gaf fjmrh. út sérstaka fréttatilkynningu um afkomu ríkissjóðs á árinu 1975. Í þeirri tilkynningu rn. var því slegið föstu, að halli ríkissjóðs á árinu 1975 hefði numið 5000 millj. kr. Í ljós kom síðar, þegar reikningar ríkissjóðs lágu fyrir, að hallinn hafði reyndar orðið ríflega 7500 millj. kr. Með skýrslunni um afkomu ríkissjóðs 1976 er Alþ. því ekki í fyrsta sinn gerð grein fyrir bráðabirgðatölum um afkomu ríkissjóðs. En það er skiljanlegt að fjmrh. vilji ekki láta fréttatilkynninguna frá því í jan. 1976 geymast á spjöldum sögunnar.
Útgáfu skýrslunnar frá í vor ber að þakka. Hún er þáttur í ráðstöfunum sem gerðar hafa verið til þess með nýjustu tölvutækni, að hæstv. fjmrh, geti betur fylgst með afkomu ríkissjóðs en raun varð á á ári stjórnunarslyssins mikla í ríkisbúskapnum, árið 1975. Sú reynsla, sem þá fékkst, gaf lánardrottnum ríkissjóðs vissulega ærna ástæðu til að krefjast þess að gerðar yrðu sérstakar ráðstafanir til þess að hæstv. fjmrh. fylgdist með hvað stöðu ríkissjóðs liði á hverjum tíma. En á árinu 1975 var með þeim endemum staðið að þessum málum, að yfirlýsingar um, hver yrði rekstrarafkoma ríkissjóðs á árinu, breyttust frá þeirri fullyrðingu í júlí, eftir setningu brbl. um vörugjald, að reksturinn yrði hallalaus, í áætlun í grg. fjárlagafrv. fyrir 1976 um 770 millj. kr, rekstrarhalla 1975, síðan taldi hæstv. fjmrh, í fjárlagaræðu 28. okt., að hallinn yrði 1270 millj. kr., við umr. um framlengingu laga um vörugjald í des. 1975 var áætlað að hallinn yrði 3000 millj. kr., og eins og ég áðan nefndi gaf fjmrh. í jan. 1976 út fréttatilkynningu þar sem því var haldið fram sem endanlegri niðurstöðu að rekstrarhallinn yrði 5000 millj, kr. Þegar ríkisreikningurinn var lagður fram vorið 1976 reyndist hallinn vera 50% meiri en greindi í fréttatilkynningu fjmrn. frá því í jan. á því ári. Rekstrarhallinn reyndist ríflega 7500 millj. kr., en það svarar til um 13 milljarða kr. á núgildandi verðlagi.
Við afleiðingarnar af þessum halla er enn verið að glíma við fjárlagagerð. Þess má t.d. geta, að áætlað er að á árunum 1975–1978, að báðum meðtöldum, nemi vaxtagreiðslur ríkissjóðs til Seðlabankans um 4600 millj, kr. miðað við verðlag hvers árs. Þessi mikli rekstrarhalli varð á því ári sem verðlag vöru og þjónustu var að meðaltali um 50.2% hærra en árið áður, en reynslan er þó sú að jafnaði, að mikil verðbólga færir ríkissjóði meiri tekjur en gjöld. Hæstv. fjmrh. tókst að snúa þessari reglu við.
Þessi mikli rekstrarhalli 1975 varð þrátt fyrir það að ríkisstj, legði á nýjan skatt, 12% vörugjald, með brbl. í júlí 1975. Hæstv. fjmrh. taldi þá að sú nýja skattheimta mundi tryggja hallalausan rekstur ríkissjóðs á því ári. Gjaldið átti að falla niður í lok ársins, og í fjárlagafrv. fyrir árið 1976 var gert ráð fyrir að ekki þyrfti að reikna með því að vörugjald yrði innheimt á því ári heldur yrði það fellt niður með öllu. Hins vegar var gert ráð fyrir því, að viðlagasjóðsgjald, 2% á söluskattsstofn, rynni eftirleiðis til ríkissjóðs og tekjur ríkissjóðs hækkuðu sem því næmi. En þegar smátt og smátt runnu upp fyrir raðamönnum ríkisfjármála raunverulegar afleiðingar af stjórnleysinu á málefnum ríkissjóðs á árinu 1973, hinn stórkostlegi hallarekstur og skuldasöfnun, var ákveðið að framlengja vörugjaldið, en hirða viðlagasjóðsgjaldið einnig í ríkissjóð þrátt fyrir það.
Miðað við stöðu ríkissjóðs, eins og hæstv. fjmrh. hélt að hún væri við afgreiðslu fjárlaga í des. 1975, og miðað við þjóðhagshorfur og áætluð ríkisútgjöld 1976 var það skoðun hæstv. ráðh., að vörugjald ætti að nema 10% til 1. sept. 1976 og síðan 6% til ársloka. Með þessari skattaukningu við afgreiðslu fjárlaga frá því, sem áættað hafði verið við framlagningu fjárlagafrv. fyrir árið 1976, átti áætluð heildarskattheimta, sem nú var ríflega 60 milljarðar, að skila 1.5 milljarði kr. í rekstrarafgang, og var þó jafnframt við afgreiðslu fjárlaga gert ráð fyrir nær 2000 millj. kr. lækkun skulda ríkissjóðs við Seðlabankann á árinu 1976. Það, sem þó átti eftir að gerast á árinu 1976, auk þess að veituskattar hækkuðu í samræmi við hækkun verðlags, var þetta:
1) Ytri aðstæður bötnuðu verulega t.d. jukust þjóðartekjur um 5.9% frá fyrra ári í stað 1%, sem miðað var við þegar fjárlög voru samþ.
2) Skattheimta ríkissjóðs var aukin um nær 2000 millj. kr, með sérstökum lögum sem sett voru í apríl. Í stað þess að innheimta 10% vörugjald til 1. sept, og 6% til áramóta var vörugjald ákveðið 18% frá setningu þessara nýju laga auk nýrrar skattheimtu til Vegasjóðs. Þessi nýja skattheimta var m.a. skýrð með því, að verja þyrfti 1000 millj, kr, til að auka framlag til landhelgisgæslu, fiskverndar og friðunaraðgerða. Í skýrslunni um afkomu ríkissjóðs 1976 kemur þó fram, að raunveruleg útgjöld til þessarar fiskverndar og friðunaraðgerða urðu 230 millj. kr. og útgjöld vegna landhelgisgæslu umfram eðlilegar launahækkanir urðu 452 millj. kr., eða samtals til þessara útgjalda 682 millj. Mismunurinn, 318 millj. kr., hefur því verið hirtur til einhverra annarra útgjalda ríkissjóðs en skattlagningin var réttlætt með.
3) Gengissig og vanáætlun um magn hátollavöru færðu ríkissjóði ríflega 2200 millj, kr. í tekjur umfram áætlun fjárlaga.
4) Skattvísitala ársins 1976 var ákveðin lægri en raunveruleg tekjuaukning 1975 gaf ástæðu til. Tekjuaukningin var 31.4%, en hækkun skattvísitölu einungis 28%. Þessi ákvörðun of lágrar skattvísitölu, sem var ekki í samræmi við breytingar á meðaltekjum, færði ríkissjóði um hálfan milljarð kr. umfram það sem ætlast var til við setningu fjárlaga. Þessi upphæð, sem ríkissjóður hirti, hefði dugað til þess að hækka tekjutryggingu almannatrygginga um 27% allt árið 1976, þ.e.a.s. viðbótina við almennar elli- og örorkubætur sem greiddar eru tekjulausum elli- og örorkulífeyrisþegum. En ráðamenn ríkissjóðs kusu reyndar frekar að nota þessar viðbótartekjur til að standa undir útþenslu í almennum rekstrarkostnaði.
5) Þrátt fyrir verulega bættar ytri aðstæður og stóraukna skattheimtu frá því, sem áætlað var við samþykkt fjárlaga, tókst ekki í stjórn ríkisfjármáta að tryggja þann 1504 millj, kr, tekjuafgang sem fjárlög gerðu ráð fyrir, heldur nam hann um 800 millj, kr. Sú tala er þó fengin með því, að ekki eru í útgjöldum meðtaldar ógreiddar, en áfallnar útflutningsbætur að upphæð 430 millj. kr., og með því, að greiðslustaðan við lífeyristryggingar almannatrygginga versnaði um 413 millj, kr, á árinu, greiðslustaða við sjúkratryggingar um 137 millj., við atvinnuleysistryggingar um 243 millj. og við Lífeyrissjóð startsmanna ríkisins um 166 millj. Samtals nema þessar ógreiddu fjárhæðir um áramót nær tvöfaldri þeirri upphæð sem talin er tekjuafgangur á árinu 1976.
6) Yfirdráttarskuldir ríkissjóðs við Seðlabankann voru ekki lækkaðar um nálega 2000 millj. kr., eins og upphafleg áætlun um skattheimtu í fjárlögum var miðuð við áður en hún var verulega aukin í apríl, heldur jukust skuldir ríkissjóðs við Seðlabankann um 1500 millj, Þar skakkaði nær 3500 millj. kr, þrátt fyrir stóraukna skattheimtu.
Ég hef hér stiklað á nokkrum atriðum, og ljóst er, þegar bornar eru saman áætlanir og niðurstöður, að verr hefur til tekist en að var stefnt enda þótt ytri aðstæður hafi orðið verulega hagstæðari en gert var ráð fyrir við setningu fjárlaga og skattstofnar hafi þar að auki verið auknir. Þótt verð innfluttrar vöru hækkaði aðeins um 5% í erlendri mynt nam hækkun framfærslukostnaðar á árinu 32%, og á stöðugt aukin skattheimta ríkisins sinn þátt í þeirri þróun. Breytingar á innflutningsverði eru ekki skýring á þeirri miklu verðbólgu, enda segir í skýrslu Þjóðhagsstofnunar 7. 12. s.l. um framvindu 1976, með leyfi hæstv. forseta: „Í ár á verðhækkun innflutnings að eiga fremur lítinn þátt í verðhækkunum.“ Þróun launamála er ekki heldur orsök verðbólgunnar. Hægri ríkisstj. hafa jafnan seilst til þess að telja það sem þær kalla óraunhæf launakjör og launabreytingar, þ.e.a.s. hækkun raungildislauna umfram bættan þjóðarhag, vera höfuðorsök verðbólgunnar. Ekki stafaði þessi mikla verðbólga samtímis litlum breytingum á innflutningsverði af því að launafólk hafi aukið hlut sinn á árinu 1976. Kaupmáttur launataxta alls verkafólks lækkaði um 4.5% á árinu 1976 samkv. opinberum skýrslum, en þjóðartekjur á mann jukust á sama tíma um 4.4%. Með enn meira vinnuframlagi en áður héldu ráðstöfunartekjur heimilanna ríflega kaupmætti frá fyrra ári, en þó aðeins sem svaraði þriðjungi þess sem þjóðartekjur á mann hækkuðu um á árinu. Það er því sama hvernig á málið er litið, stóraukin verðmætasköpun launafólks lenti að meginhluta í höndum annarra en þess sjálfs.
Útflutningsverð sjávarafurða hækkaði að meðaltali um 19% í dollurum á árinu 1976 og meðalverð alls útflutnings í heild hækkaði um 18% í erlendri mynt. Magn vöruútflutnings jókst um 15.7% og verðmæti útflutningsins jókst um 34%
Í erlendri mynt, en á sama tíma minnkaði kaupmáttur launataxta verkafólks og iðnaðarmanna um 4.5%. Það er einnig athyglisvert um árangur stjórnarstefnunnar, að á sama tíma og sjávarafurðir hækkuðu að meðaltali um 19% í verði í erlendri mynt og allur útflutningur um 18% var gengi íslensku krónunnar lækkað um rúmlega 13%. En áætla má að það eitt hafi valdið hækkun á verði innflutnings landsmanna í ísl. kr. um 8–9 þús. millj. kr, á s.l. ári. Ofan á þá upphæð bætist síðan tollar, vörugjald, álagning í heildsölu og smásölu og söluskattur síðan ofan á allt saman, þannig að í útsöluverði gæti þessi gengislækkun, sem framkvæmd hefur verið samtímis stórbættum viðskiptakjörum og auknu útflutningsmagni, þýtt nær 20 milljarða kr, í hækkuðu verðlagi. Svo þykjast þeir, sem þessu stjórna vera undrandi á því, að við búum við óðaverðbólgu.
Orsaka 32% verðbólgu á árinu 1976 er ekki að leita í því, að launafólk hafi fengið í sinn hlut vaxandi hluta afraksturs þjóðarbúsins. Kauptaxtar launafólks rýrnuðu á árinu 1976 að raungildi samtímis mjög verulega bættum ytri aðstæðum í þjóðarbúskapnum. Ráðstöfunartekjur heimilanna jukust einungis um þriðjung þeirrar aukningar sem varð á þjóðartekjum á mann. Breytingar á hagþróun á árinu 1976 frá því, sem við var miðað við gerð fjárlaga í árslok 1975, voru ekki með þeim hætti að verr ætti að takast til um ríkisreksturinn en stefnt var að með fjárlögum, eins og reyndin varð, heldur hefði þróunin átt að stuðla að hagstæðari afkomu en áætlað var.
Við afgreiðslu fjárlaga var gert ráð fyrir tæplega 7% hækkun útflutningsverðlags í erlendri mynt. Reyndin varð sú, að útflutningsverð hækkaði að meðaltali inn 18% í erlendum gjaldeyri á árinu 1976 og verðmætisaukning útflutnings í heild nam um 34% í erlendri mynt á s.l. ári, eins og ég áður sagði. Innflutningsverð hækkaði hins vegar ekki meira en gert var ráð fyrir eða um 5% í erlendri mynt. Magnaukning vöruútflutnings var við gerð fjárlaga áætluð 3–6%, en varð ríflega 15%. Í stað 10–13% heildarverðmætis aukningar útflutnings í erlendri mynt á árinu 1976, sem var lögð til grundvallar í fjárlögum,var verðmætisaukningin 34%. Ytri aðstæður urðu því mun hagstæðari en gert var ráð fyrir við gerð fjárlaga.
Hæstv. ríkisstj. hélt þó ekki betur á málum en svo, að þessi efnahagsbati vegna bættra ytri aðstæðna nýttist ekki til þess að auka kaupmátt tímakaups verkafólks, minnka skattheimtu ríkisins eða grynna á skuldum við Seðlabankann. Kaupmáttur tímakaups minnkaði um 4.5% samtímis aukningu þjóðartekna á mann um 4.4%. Skattheimtan var enn aukin með sérstökum lögum í apríl. En útkoma ríkissjóðs úr öllu saman var ekki beysnari en svo, að þrátt fyrir bættar ytri aðstæður og aukna skattheimtu varð afkoma ríkissjóðs lakari en gert var ráð fyrir í fjárlögum, þar sem miðað hafði verið við lakari ytri aðstæður og minni skattheimtu og skuldin við Seðlabankann jókst um 1500 millj. kr. í stað þess að lækka um 2000 millj., eins og átti að takast samkv. uppsetningu fjárlaga sem eins og ég áðan sagði voru miðuð við verri ytri aðstæður og minni skattheimtu.
Þróunin í meðferð ríkisfjármála á næsta ári eftir stjórnunarslysið mikla 1975 sem olli 7.5 milljarða kr. rekstrarhalla, varð þannig sú, að þrátt fyrir þessar bættu ytri aðstæður var þenslan í ríkisútgjöldum svo mikil og byrðarnar svo afdrifaríkar af óstjórninni 1975, að það var ekki langt liðið á árið 1976 þegar lánardrottnar ríkissjóðs gerðu hæstv. fjmrh. ljóst að hann yrði enn að hækka skattana. Sá hinn sami sem hafði lagt til með sérstöku frv. á Alþ. í árslok 1973 að lækka skattheimtu ríkissjóðs um upphæð sem svarar til 16.7 milljarða kr. í dag, sá hinn sami og skilaði rekstrarhalla hjá ríkissjóði 1975 sem nemur 13 milljörðum kr. á núgildandi verðlagi þrátt fyrir stóraukna skattheimtu varð nú, þegar ytri aðstæður í þjóðarbúskapnum höfðu stórbatnað frá því sem gert var ráð fyrir við afgreiðslu fjárlaga, að auka enn álögurnar með samþykkt sérstaks efnahagsmálafrv. fjórum mánuðum eftir að fjárlög ársins 1976 höfðu verið samþ. Þrátt fyrir að þjóðartekjur ykjust um nálega 5.4% árið 1976, þrátt fyrir að viðskiptakjör bötnuðu um 13%, þrátt fyrir verulega lækkun gengis ísl. kr. og auknar veituskattstekjur af þeim sökum og þrátt fyrir að skattvísitala væri vanreiknuð og ríkissjóður hefði nú hálfan milljarð kr. af skattþegnum með þeim hætti, gripu stjórnarflokkarnir þannig til enn frekari skattheimtu til að mæta útþenslunni í rekstrarútgjöldum ríkisins. Framlög til verklegra framkvæmda höfðu á hinn bóginn verið skorin niður bæði árið 1975 og 1976. Hlutur rekstrarútgjalda hefur vaxið að sama skapi, enda er raunin sú, að þrátt fyrir samdrátt fjárveitinga til verklegra framkvæmda á fjárlögum hafa ríkisútgjöld sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu verið hærri hvert einasta s.l. þriggja ára en á nokkru ári sem getið er um í skýrslu um afkomu ríkissjóðs sem lögð var fram s.l. vor. Þetta hlutfall hefur verið hærra á hverju ári 1974, 1975 og 1976 en á nokkru áranna 1968–7973, að báðum meðtöldum. Sama er að segja um skatttekjur ríkisins sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu. Ef tekin eru árin 1968 –1970 eru skatttekjur ríkissjóðs hæstar 1976, urðu á því ári 27.9%, þótt olíugjald og sjúkratryggingagjald séu ekki reiknuð með, eða jafnvel hærri en árið 1975, sem var hið hæsta áður. Þetta gerist samhliða niðurskurði fjárveitinga til verklegra framkvæmda og er vægast sagt ömurleg frammistaða þegar haft er í huga að það er eitt af yfirlýstum meginmarkmiðum þess flokks, sem fer með stjórn ríkisfjármála, að minnka hlutfall ríkisútgjalda af þjóðarframleiðslu. Uppgefnar tölur hin allra síðustu ár eru þó naumast með öllu sambærilegar við fyrri ár og ættu að vera enn hærri ef tekið er tillit til þess, að nokkur hluti útgjalda hefur verið færður til sveitarfélaga, um 400 millj. kr. 1976, fjölskyldubætur eða barnabætur eru ekki lengur reiknaðar með í útgjöldum, heldur koma til lækkunar á tekjuskatti, 1.5 milljarður kr. á fjárlögum 1976 og hluti af útgjöldum Tryggingastofnunar ríkisins er nú greiddur með sérstöku sjúkratryggingagjaldi, sem ekki er talið með á fjárlögum fyrr en nú, en nam 1200 millj. kr. 1976, og olíugjaldið er ekki meðtalið heldur. En þrátt fyrir að þetta vantar í tölurnar eru skatttekjur ríkisins sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu, eins og þær eru tilgreindar í töflu 6 í skýrslunni, hærri 1976 en á nokkru áranna 1968–1975, að báðum meðtöldum.
Þegar þessi niðurstaða öll um ríkisreksturinn 1976 er metin: 1) stórbættar ytri aðstæður; 2) mjög aukin skattheimta við afgreiðslu fjárlaga og sérstakar viðbótarskatthækkanir á fjárlagaárinu; 3) lækkun framlaga til verklegra framkvæmda; 4) stóraukin rekstrarútgjöld; 5) nær helmingi minni rekstrarafgangur en áætlað var í fjárlögum og ógreiddir rekstrarliðir langt umfram þann afgang; 6) hækkun skulda við Seðlabankann um 1500 millj. kr, í stað 2000 millj. kr. lækkunar, — þá er naumast að undra að málgögn stjórnarflokkanna kjósi að nefna þessa niðurstöðu einungis í samanburði við útkomuna 1975. Það er hyggilegt. Í samanburði við árið 1975 er næstum sama hvernig á málum hefur verið haldið. Það gæti naumast orðið jafnslæmt. Og vissulega er hér munur á frá því að rekstrarhalli var 7500 millj. kr. á þáverandi verðlagi.
Þegar málgögn stjórnarflokkanna og hæstv fjmrh. keppast við að henda á stjórnunarslysið mikla 1975 til samanburðar við afkomuna ári síðar og að skuldasöfnunin við Seðlabankann í góðærinu 1976 hafi verið miklu minni en 1975, þá minnir þetta óneitanlega á strákinn sem kom til móður sinnar og sagði: „Hvort vildir þú heldur að ég yrði fyrir bíl eða rifi buxurnar mínar?“ Að vísu var um skuldasöfnun að ræða 1976, en ekki skuldalækkun eins og gert var ráð fyrir í fjárlögum. Að vísu náðu endar ekki saman nema með þeirri skuldasöfnun og nýrri skattheimtu umfram áætlun fjárlaga, þrátt fyrir stórum betri ytri aðstæður en lagðar voru til grundvallar við afgreiðslu fjárlaga. En vitundin um frammistöðuna 1975: 7500 millj, kr. rekstrarhallann og skuldasöfnunina miklu þá, vitundin um stórslysið mikla 1975 veldur því, að það þykir vel sloppið að hæstv. fjmrh. skuli þó ekki hafa valdið meiri spjöllum á stöðu ríkissjóðs á árinu 1976 en raun varð á.
Og nú hefur verið lagt fyrir Alþ. fjórða fjárlagafrv. hæstv. ríkisstj. Hæstv. fjmrh., sem boðaði einu missiri áður en hann tók við ráðherrastörfum að auðvelt væri að lækka útgjöld ríkissjóðs um upphæð sem svarar í dag til nálega 16.7 milljarða kr., tókst að tvöfalda upphæð fjárlaga á tveim árum, nær þrefalda hana á þrem árum og tekst nú með framlagningu þessa fjárlagafrv. ríflega að fjórfalda heildarupphæð fjárlaga á fjórum árum. Hætt er þó við að ekki séu öll kurl komin til grafar enn. Svo margt er enn óráðið um afgreiðslu fjárlaga og óljóst um meðferð frv., að í rauninni er til lítils að ræða það í heild nú við þessa umr. Ljóst er að miðað við tekjuhlið fjárlagafrv. og þá þætti, sem hljóta að eiga eftir að bætast við gjaldamegin, ná endar ekki saman. Stefna ríkisstj. í málefnum ríkissjóðs á næsta ári liggur því í rauninni ekki fyrir enn.
Það hefur einkennt fjárlagaafgreiðslu hæstv. ríkisstj. að sífellt er byggt á aukinni skattheimtu, nýjum og nýjum tekjustofnum. Hæstv. núv. ríkisstj. hefur ekki dugað þeir tekjustofnar sem fyrrv. ríkisstj. byggði tekjuöflun ríkissjóðs á, heldur hefur sífellt verið seilst lengra og lengra eftir tekjum, dýpra og dýpra í vasa almennings, ekki einungis við afgreiðslu fjárlaga, heldur með sérstökum efnahagsráðstöfunum eftir að fjárlög hafa verið afgreidd og jafnt í góðæri sem við erfiðari aðstæður.
Fyrsta verk hæstv. ríkisstj. var hækkun söluskatts um 2 stig, og síðan hefur hver aðgerðin rekið aðra: viðlagagjald sem samsvarar 2 söluskattsstigum hirt í ríkissjóð, 18% vörugjald lagt á, að ógleymdum gengislækkunum og stöðugu gengissigi, jafnvel þótt verð útflutningsvöru hafi farið hækkandi. Þær lækkanir, sem á móti hafa komið vegna lækkunar tolla og breytinga á tekjuskattslögum, hafa engan veginn vegið á mótt þeim breytingum sem gerðar hafa verið til tekjuaukningar fyrir ríkissjóð, enda bera fjárlög undanfarandi þriggja ára og fjárlagafrv, nú því gleggst vitni.
Það er t.d. eftirtektarvert, að ríkistekjurnar árið 1976 eru hærra hlutfall af þjóðarframleiðslu en nokkurt annað ár s.l. 10 ára a.m.k., svo sem sjá má í Hagtölum mánaðarins, maíhefti 1977, og jókst þó þjóðarframleiðslan á því ári. Ef miðað er við hækkun framfærslukostnaðar í landinu frá því að núv. ríkisstj. tók við völdum, þá var vísitalan 226 stig 1. nóv. 1973 þegar fjárlög fyrir árið 1974 voru til afgreiðslu. Áætla má að 1. nóv. n.k. verði sambærileg vísitala 840 stig eða 3.7 sinnum hærri, og þykir flestum nóg um. Það fjárlagafrv., sem hér er til umr., er þó ekki aðeins 3.7 sinnum hærra en fjárlög sem samþ. voru haustið 1973, heldur 4.5 sinnum hærra, og er þetta þó aðeins frv. Hæstv. fjmrh. hefur lýst því yfir að launaliðir fjárlagafrv. þurfi að hækka um 7.7 milljarða kr. Þó að ekki sé á þessu stigi reiknað með öðrum fyrirsjáanlegum hækkunum, þá yrðu fjárlögin 132.5 milljarðar og væru þá 4.5 sinnum hærri en þau fjárlög sem samþ. voru í des. 1973, en framfærsluvísitala 3.7 sinnum hærri. Hverju munar þetta í krónum? Ef tekjuhlið fjárlaga tæki sömu breytingum og orðið hefur á almennu verðlagi í landinu á sama tíma næmu niðurstöðutölur fjárlaga fyrir árið 1978 108.5 milljörðum kr. í stað 132.5 milljarða sem hæstv. fjmrh. hefur boðað. Það munar 24 milljörðum kr. hjá þeim ráðh., sem taldi haustið 1973 auðvelt að lækka fjárlögin um upphæð sem í dag svarar til 16.7 milljarða kr. Í stað þess að lækka fjárlögin um 16.7 milljarða hækkar hæstv. ráðh. þau umfram almenna verðlagshækkun um 24 milljarða. Mismunurinn á fyrirheitum og efndum er ríflega 40 milljarðar kr. Samkv. fyrirheitunum ættu fjárlögin að nema 108.5 milljörðum mínus 16.7 milljarðar eða 81.8 milljarðar, en verða a. m. k. 132.5 milljarðar eftir boðskap hæstv. ráðh. Það munar um 62%.
Nú væri ekki yfir því að kvarta ef þessi aukna skattheimta væri notuð til þess að auka í jafnríkum mæli samfélagslega þjónustu og framkvæmdir. En staðreyndin er sú, að þessir þættir fjárlaga hafa dregist saman í hlutfalli vað almenn rekstrarútgjöld. í frv. er enn gert ráð fyrir samdrætti opinberra framkvæmda um 5%, þó að efnt sé til mikillar nýrrar skattheimtu á bifreiðaeigendur til að framkvæmdir í vegamálum verði nokkuð auknar frá því lágmarki sem þær hafa verið í síðan núv. stjórnarflokkar tóku við völdum. Jafnhliða þessari nýju skattheimtu með hækkun bensíngjalds hirðir ríkissjóður í sinn hlut með söluskatti ofan á hækkunina um 360 millj. kr. á næsta ári. Þessi hækkun á samkv. hugmyndum stjórnarflokkanna ekki að hafa áhrif á greiðslu vísitölubóta á laun. Hér er um að ræða 0.5 vísitölustig sem ekki kæmu fram sem launahækkun. Ef miðað er við félagsmenn Alþýðusambands Íslands mundi sú ráðstöfun færa atvinnurekendum um 750 millj, kr. sparnað í launagreiðslum á næsta ári og ríkinu ríflega 200 millj. kr. í sparnaði á launaútgjöldum til starfsmanna ríkisins og ríkisstofnana, auk þeirra 360 millj. kr. sem ríkissjóður mundi hirða í aukinn söluskatt.
Þrátt fyrir þá aukningu, sem ráðgerð er á vegaframkvæmdum á næsta ári með hækkun bensínverðs um a.m.k. 18 kr. á lítra, að meðtalinni sjálfkrafa hækkun á söluskatti, má reikna með að framkvæmdir verði að raungildi minni en á hverju áranna fyrir sig: 1971, 1972, 1973 og 1974. Ef miðað er við að vísitala vegagerðar verði 30% hærri á framkvæmdatíma á næsta ári en í ágúst í ár verða sambærilegar tölur um vegagerð á verðlagi ársins 1976 þessar frá 1970: 1970 1982 millj. kr., 1971 3770 millj., 1972 4128 millj., 1973 4689 millj., 1974 3761 millj., 1975 2742 millj., 1976 2515 millj., 1977 2208 millj. og 1978 3113 millj. Þrátt fyrir mjög mikla hækkun bensíngjalds og þungaskatts skortir þó verulega á að á næsta ári verði unnið að vegagerð fyrir hliðstæða upphæð, og gert var árin 1971–1974, að báðum meðtöldum. Framkvæmdaféð var á þessum fjórum árum að meðaltali 4087 millj, kr. á verðlagi ársins 1976, en verður á sama verðlagi á næsta ári 3113 millj. En samhliða þessari aukningu tekna Vegasjóðs hyggjast stjórnarflokkarnir nota tækifærið og hirða í ríkissjóð um 360 millj. kr. með auknum söluskatti á bensín. Jafnframt á að spara ríkinu 200 millj. kr. í launagreiðslur og viðsemjendum Alþýðusambands Íslands um 750 millj. kr. með skerðingu vísitölubóta á laun.
Vaxtagjöld af ýmsum lánum ríkissjóðs í A-hluta fjárlagafrv. aukast um 1040 millj. kr. og nema 3311.2 millj, kr., en námu 411.8 millj, kr. á fjárlögum 1974 eða hafa ríflega áttfaldast í tíð núv. ríkisstj. Vaxtakostnaður í A- og B-hluta nemur 11976 millj. kr., hækkar á næsta ári um ríflega 3600 millj.
Það þarf ekki að hafa mörg orð um þróunina, útþenslu rekstrarliða í samanburði við framlög til verklegra framkvæmda. Eins og ég áðan sagði námu vextir af ýmsum lánum ríkissjóðs 411.8 millj. kr. á fjárlögum 1974. Þá voru veittar 444 millj. kr. til almennra hafnarframkvæmda sveitarfélaga og auk þess 169 millj. kr. vegna sérstakra framkvæmda í Grindavík og Höfn í Hornafirði. Þó að aðeins sé miðað við hinar almennu framkvæmdir sveitarfélaga, þá nam framlag ríkissjóðs nokkru hærri upphæð en útgjöld vegna vaxtagreiðslna ríkissjóðs á því sama ári. Á fjárlagafrv. nú eru 1170 millj. kr. veittar til almennra hafnarframkvæmda sveitarfélaga, en vaxtagreiðslur í A-hluta eru áætlaðar 3312.4 millj. kr. Þetta segir nokkra sögu um hvað hefur verið að gerast hin síðustu ár. Byggingarkostnaður er 3.2 sinnum hærri en við afgreiðslu fjárl. 1974, fjárveiting til almennra hafnarframkvæmda sveitarfélaga 2.6 sinnum hærri, en vaxtagjöld 8 sinnum hærri.
Það, sem jákvætt má telja í fjárlagafrv. nú, varðar einungis uppsetningu og fskj. Sjúkratryggingagjald er nú talið með tekjum ríkissjóðs, eins og frá upphafi hefði átt að gera. Sérstök yfirlit eru aukin og er það til bóta, sérstaklega yfirlit nr. 12, þar sem sýndur er samanburður á fjárveitingum samkv. ríkisreikningi 1976, fjárl. 1977 og frv. til fjárl. fyrir árið 1978 eftir rn. og stofnunum í A-hluta. Ég tel að hliðstæðar upplýsingar þyrfti að veita um heildarútgjöld eftir útgjaldaþáttum, þ.e. breyta yfirliti 1, 2 og 3 í hliðstæða mynd og yfirlit 12. Einnig þyrftu í yfirliti 8 að koma fram hliðstæðar upplýsingar um verklegar framkvæmdir og fjáröflun til þeirra á gildandi fjárl. og veittar eru um fjárlagafrv. sem lagt er fram.
Án efa á fjárlagafrv. eftir að taka verulegum breytingum í meðferð Alþ. þar sem útgjöld eru sýnilega vantalin. Í sambandi við nýgerða kjarasamninga BSRB og ríkisins hafa málgögn stjórnarflokkanna óspart haldið því á lofti að útgjaldaauki vegna þeirra nemi 7.7 milljörðum kr. og vegna þessara nýju samninga verði að hækka útgjaldatölu fjárlagafrv. um þá upphæð. Morgunblaði segir t.d. hinn 26. okt., s.l., með leyfi hæstv forseta:
„Fjmrh. sagði að útgjaldaauki ríkissjóðs á næsta ári af völdum þessara kjarasamninga mundi nema um 7.7 milljörðum kr., miðað við það fjárlagafrv. sem nú liggur fyrir Alþ. Matthías Á. Mathiesen sagði að tryggja yrði fjármagn til þess að standa undir þessum auknu útgjöldum við afgreiðslu fjárl. í des.“
Og ritstjóri Tímans, hv. 4. þm. Reykv., Þórarinn Þórarinsson, hefur ekki viljað láta sinn hlut eftir liggja að sýna fólki fram á að auka þurfi útgjöld ríkissjóðs um 7.7 milljarða kr. vegna nýrra kjarasamninga við opinbera starfsmenn. Hv. þm. sagði í leiðara Tímans hinn 27. okt. s.l., með leyfi hæstv. forseta:
„Samkv. hinum nýju samningum hækka útgjöld ríkisins um 7.7 milljarða kr. umfram það sem er áætlað í hinu nýja fjárlagafrv., og er þó búið að gera þar ráð fyrir verulegri launahækkun.“
Það fer ekki á milli mála hverjum stjórnarflokkarnir vilja kenna um þá hækkun, sem verður á fjárlagafrv. í meðförum Alþ. Ég er ekki svo kunnugur hinum nýju kjarasamningum Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og ríkisins, að mér sé ljóst hver útgjaldaauki er af þeim miðað við fjárlagafrv., og niðurstaða um launakjör félagsmanna í Bandalagi háskólamanna liggur ekki fyrir. En hitt veit ég, að í fjárlagafrv. er ekki gert ráð fyrir þeim hluta launakostnaðar á árinu 1978, sem leiðir sjálfkrafa af hækkun verðlags nú í haust, en áætlað hefur verið, að sú verðlagshækkun valdi 9.6% hækkun launa 1. des. n.k. Þessum launabreytingum, sem fyrirsjáanlegar voru, hefur verið sleppt í fjárlagafrv. að öðru leyti en því, að verðlagsbætur 1. sept: voru ofáætlaðar um 1.07%. Sú breyting á launalið, sem var fyrirsjáanleg hvað sem leið nýjum kjarasamningum, en vantar þó í fjárlagafrv., nemur 2500–2700 millj. kr., ef tekið er tillit til ofáætlunar vísitölubóta í sept. Hliðstæð hækkun á lífeyristryggingum almannatrygginga gæti numið 1400–1450 millj. kr. og á sjúkratryggingum 825850 millj. og er eingöngu vegna venjulegra verðlagsbóta í samræmi við hækkun verðlags í haust. En fjárhæðinni er visvítandi sleppt í fjárlagafrv. til þess að þessi hækkun útgjaldahliðar fjárl. verði bendluð við nýgerða kjarasamninga. Að sjálfsögðu hefur þessi útgjaldaauki þó jafnframt áhrif á tekjuhlið til hækkunar. En þeir félagar, hæstv. fjmrh. og ritstjóri Tímans, gæta þess vandlega að nefna einhverja brúttótölu sem þegar betur er að gáð inniheldur nær 5 milljarða útgjöld sem eingöngu eiga rætur að rekja til hækkunar verðlags nú á haustmánuðum. Sá hluti útgjaldaupphæðarinnar hefði að sjálfsögðu átt að vera í fjárlagafrv. En síðan leggja þeir félagar áherslu á að afla þurfi tekna til þess að standa undir þessari hækkun útgjalda, 7.7 milljörðum kr., án þess að nefna hve mikið á rætur að rekja til venjulegra verðlagsbóta á laun eða hve mikið af launaupphæðinni kemur til baka í ríkissjóð vegna skattkerfisins.
Verulegur hluti launþega greiðir aftur til ríkisins 40% af því, sem við launin bætist, eftir að ákveðnu tekjumarki er náð. Og nú er í fjárlagafrv. beinlínis gert ráð fyrir því að færa þessi mörk niður í raun með því að láta skattvísitölu ekki fylgja breytingum á tekjum. Þessi tekjuauki ríkisins kemur þó að vísu að litlu leyti fram á næsta ári. Það er einnig staðfest í svari sem ég fékk við fsp. á Alþ. s.l. vor, að vísitölufjölskyldan greiðir 18.9% af útgjöldum sínum í aðflutningsgjöld, vörugjald og söluskatt, svo að skattkerfið sér sjálfkrafa um að ná til baka í ótrúlega ríkum mæli þeim hækkunum sem verða á útgjaldahlið fjárl. vegna aukinna launagreiðslna. Þarna eru í ýmsum tilvikum komin tæplega 60% aftur í ríkissjóð, svo gegndarlaus er skattheimtan. Og samkv. svarinu við fsp. minni í vor fara svo þar að auki til viðbótar 12.4% af útgjöld.um vísitölufjölskyldunnar í verslunarálagningu og allt að 11% fara í sveitarsjóð. Tilgangur þeirra fóstbræðra, hæstv. fjmrh. og ritstjóra Tímans, er auðsær og áróðurinn býsna gegnsær. 4.5–4.8 milljarða kr. upphæð beinlínis vantar í fjárlagafrv. vegna þess að látið var hjá líða að gera ráð fyrir óhjákvæmilegri og venjulegri hækkun launaliðar vegna verðlagshækkana nú í haust. Síðan er hrópað hátt um það, að þessi upphæð, auk raunverulegrar grunnkaupshækkunar komi til hækkunar á útgjöldum ríkissjóðs umfram áætlun fjárlagafrv. einungis vegna nýrra kjarasamninga við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og sleppt að minnast á sjálfkrafa breytingu á tekjuhliðinni.
Ýmislegt mætti nefna sem auðljóslega þarf að hækka í fjárlagafrv. Í hafnaáætlun, sem nýlega hefur verið lögð fram, eru áætlaðar framkvæmdir á árinu 1978 taldar kosta 1476 millj. kr. á verðlagi um síðustu áramót. Samkv. upplýsingum Hafnamálaskrifstofunnar er gert ráð fyrir 90% kostnaðarauka við þessar framkvæmdir vegna verðlagsbreytinga frá því, sem áætlunin er miðuð við. Hluti ríkissjóðs í framkvæmdum með kostnaðartölu fyrir 1978 nemur um 1550 millj. kr., skuldir við hafnarsjóði vegna framkvæmda í ár umfram ónotaðar fjárveitingar nema um 140 millj. kr. Fjárveitingin þarf samkv. þessu að nema 1690 millj., en í fjárlagafrv. er einungis gert ráð fyrir 1170 millj. kr. fjárveitingum. Ef eitthvað á að vera að marka þá hafnaáætlun, sem hæstv. samgrh. hefur nýlega lagt fram, og samræmi á að vera milli hennar og fjárveitinga á fjárl. vantar hér um 520 millj. kr. Fjárveitingin þarf að hækka um 44% til þess að vera í samræmi við áætlaðar framkvæmdir 1978 í þeirri hafnaáætlun fyrir árið 1977–1980 sem nýlega hefur verið lögð fram á Alþingi.
Þótt fjárlög hækki að þessu sinni um hærri krónutölu en nokkru sinni hefur áður gerst, vantar þó framlög til framkvæmda sem verður að sinna. Ég vil hér sérstaklega nefna eitt verkefni sem ég sakna alveg sérstaklega. Í þessu fjárlagafrv., sem hæstv. menntmrh. stendur að ásamt hæstv. fjmrh. og öðrum hæstv. ráðh., er ekki gert ráð fyrir að bætt verði að neinu leyti úr húsnæðisskorti Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Svo er að sjá sem þeir, sem standa að gerð fjárlagafrv., láti sér til hugar koma að ekki verði varið einni einustu krónu á a.m.k. 130 milljarða kr. fjárl. til úrbóta í húsnæðismálum fjölbrautaskólanna sem flestir telja hinn eðlilega vaxtarbrodd í menntamálum, þar sem segja má að með starfsemi þeirra sé í fyrsta sinn verið að meta verklegt nám til jafns við bóklegt og samtvinna þróun beggja þessara þátta í einni og sömu menntastofnun. Í þeim efnum hefur Fjölbrautaskólinn á Suðurnesjum verið í fararbroddi, þar sem hann hefur auk bóklegs náms tekið að sér verkefni Iðnskóla Suðurnesja og aukið það og þróað. Kennsla var hafin á tveim nýjum iðnbrautum í haust og undirbúningi var lokið að því að bóklegt nám flugliða geti hafist eftir næstu áramót. Nemendur í þessum skóla, sem starfað hefur í rúmt ár, eru nær 500, og gert er ráð fyrir að þeim fjölgi um 120–150 á næsta ári, ef ríkisvaldið sinnir því hlutverki sínu að tryggja skólanum húsnæði. Í eigin húsnæði skólans eru 7 kennslustofur, en 16 stofur verður að leigja á 4 stöðum í tveim sveitarfélögum, og þarf ekki að eyða að því orðum, hverju óhagræði þetta ástand í húsnæðismálum veldur í rekstri skólans. Alvarlegast er þó, að engin aðstaða er til að mæta fyrirsjáanlegri fjölgun nemenda. Keyrir um þverbak ef þau verða viðbrögð stjórnvalda við þessum vanda að gera ekki neitt, eins og lagt er til með því fjárlagafrv. sem hér liggur fyrir. Tillaga forráðamanna skólans er að byggð verði ein hæð ofan á núverandi skólahúsnæði, og er óhætt að fullyrða að óvíða er við byggingu skóla kostur á hagkvæmari lausn á miklum vanda.
Það hlýtur að vekja sérstaka furðu, að á sama tíma og hæstv. fjmrh. og hæstv. menntmrh. hafa ekki fengist til þess að setja eina einustu krónu til úrlausnar á húsnæðisvandræðum Fjölbrautaskólans á Suðurnesjum í það fjárlagafrv. sem þeir voru að sjóða saman í sumar, þá létu þeir kalla saman fjvn. til að fá hana til að samþykkja að ráðstafað yrði úr ríkissjóði um 640 millj. kr, til kaupa og lagfæringar á hússkrifli sem viðkomandi eiganda gekk illa að losna við. Þetta húsnæði átti síðan að nota fyrir menntmrn. þótt engin heimild fyrirfyndist á fjárl. þessa árs til að eyða fé eða efna til skulda til að verða menntmrn. úti um húsnæði, enda hafði aldrei verið á húsnæðismál rn. minnst á Alþ. og er þó á æðimargt drepið í umr. hér. Vegna andstöðu minni hl. fjvn, og upplýsinga um málið í dagblöðum var frá því horfið í sumar að láta verða af kaupunum á hússkriflinu á Laugavegi 166, en afstaða þessara hæstv. ráðh. Sjálfstfl. og Framsfl, er áréttuð í fjárlagafrv. Samtímis því, að þeir leggja til í fjárlagafrv. að engu fé verði varið til að leysa Fjölbrautaskólann á Suðurnesjum úr þeim þrengingum sem hann býr við í húsnæðismálum, þá leggja þeir til að eigandi Víðishússins verði leystur úr þeim þrengingum sem hann er í vegna vandræða við að losna við hússkriflið.
Ég vil nú koma með tvær áskoranir á hæstv. fjmrh.: Í fyrsta lagi að í fjárl. fyrir næsta ár verði gert ráð fyrir fjármagni til að fullgera byggingu hæðar ofan á núverandi húsnæði Fjölbrautaskólans á Suðurnesjum. Og í öðru lagi verðandi húsnæði sem hann hefur til þessa sýnt meiri áhuga, að hann láti hverjum og einum alþm. í té þau gögn sem fjvn. fékk til skoðunar í sumar þegar fyrir n. var lagt að taka afstöðu til kaupa ríkisins á Laugavegi 166. Þessi plögg eru: 1) Skýrsla framkvæmdadeildar Innkaupastofnunar ríkisins, dags. 15, febr. 1977, um lauslega athugun á 4. og 5. hæð. 2) Minnisatriði frá fulltrúum menntmrn., fjmrn. og fjárlaga- og hagsýslustofnun til menntmrh. og fjmrn., dags. 10. maí 1977, um kaupverð húseignarinnar Laugavegur 166. 3) Skýrsla Ásgeirs Markússonar, dags. 15. júní 1977, um lauslega athugun á húsinu öllu í janúar 1977. 4) Minnisatriði Gísla Blöndals og Skúla Guðmundssonar, dags. 17. ágúst 1977, um byggingarkostnað fyrir almennt skrifstofuhúsnæði. 5) Bréf fjárlaga- og hagsýslustofnunar til fjvn., dags. 2. 9. 1977: Samanburður á kostnaðarmati vegna athugunar á húseigninni Laugavegur 166.
Ég vænti þess, að hæstv. ráðh. telji eðlilegt að nú, þegar þetta umdeilda mál er lagt fyrir Alþ. til ákvörðunar við afgreiðslu fjári., þá hafi allir hv. alþm. í höndum þau sömu gögn og voru lögð fyrir fjvn. í sumar þegar ætlunin var að ganga frá málinu. Ég vænti þess, að hæstv. ráðh. veiti mér svar við þessari beiðni minni nú á þessum fundi. Með því að veita mér jákvætt svar við þessari beiðni sparar hæstv. fjmrh. mér að afla atfylgis þm. til að óska formlega samkv. ákvæðum þingskapa eftir skýrslu um þetta mál þar sem þessi fyrrgreindu gögn yrðu birt.
Ég hef oft áður við fjárlagaumr. á undanförnum árum farið nokkrum orðum um áætluð framlög úr ríkissjóði annars vegar til uppbóta á útfluttar landbúnaðarafurðir og hins vegar til niðurgreiðslna á vöruverði. Ekki fellur öllum jafnvel að ríkissjóður afi fjár til að stýra neyslunni svo að meira sé keypt af tilteknum landbúnaðarvörum en ella. Hitt er ljóst, að niðurgreiðslurnar koma þó þeim að mestu gagni sem vegna lágra tekna greiða minna en almennt gerist í ríkissjóð, en eyða hlutfallslega meiru af fé sínu en hinir tekjuhærri til kaupa á þessum niðurgreiddu vörum sem eru daglega á borðum fólks, Lækkun verðlags þessara mikilvægu vara hefur jafnframt áhrif á verðlagsþróunina í landinu. Sú ráðstöfun ríkisvaldsins að verja verulegu fé til niðurgreiðslna á brýnum neysluvörum getur því einkum á miklum verðbólgutímum verið eðlileg leið ásamt öðrum heildarráðstöfunum sem gerðar yrðu til að hamla á mótt keðjuverkunum verðlagshækkana. Þær eru ekki of margar, ráðstafanirnar sem gerðar eru til að hafa bein áhrif til lækkunar verðlags í landinu. Flestar ganga í þveröfuga átt með keðjuverkandi áhrifum: hækkun óbeinna skatta, hækkun vaxta, gengislækkanir og gengissig. Reynslan undanfarið hefur rækilega sýnt fram á keðjuverkun verðhækkana. Lækkun verðlags brýnustu neysluvara, borin uppi af aukinni beinni skattheimtu skattlausra fyrirtækja og þeirra einstaklinga sem best mega sin, hefði hliðstæð áhrif til hömlunar á verðbólguna. Það er á hinn bóginn ógæfuleg þróun, að af því fé, sem samtals er varið úr ríkissjóði til uppbóta á útfluttar landbúnaðarafurðir og til niðurgreiðslna á vöruverði innanlands, fer sífellt stærri hluti til þess að greiða niður íslenskar landbúnaðarvörur í því skyni að ríkustu þjóðir heims fáist til þess að láta þær ofan í sig.
Ef skoðuð er þróunin síðan á fjári. fyrir árið 1975 og fram til fjárl. fyrir árið 1978 kemur í ljós, að frá því í nóv. 1974, þegar verið var að afgreiða fjárlög fyrir árið 1975, hefur framfærsluvísitalan hækkað um 145.6%, framlag til niðurgreiðslna á vöruverði innanlands um 73.8%, en framlag ríkissjóðs til útflutningsbóta hefur hækkað um 313.8%, þ.e.a.s. hefur ríflega fjórfaldast. Hér er vitahringurinn á hraðasta snúningi. Minnkun niðurgreiðslna á verði innanlands dregur úr sölu, meira fé þarf til að greiða útflutningsbætur, hækkun óbeinna skatta til að standa undir þessum auknu útflutningshótum skrúfar síðan upp verðbólguna.
Það er eðlilegt, að spurt sé: Hve lengi er unnt að viðhalda þeirri reglu, að skylt sé að greiða úr ríkissjóði í uppbætur á útfluttar landbúnaðarafurðir 10% af heildarverðmæti allrar landbúnaðarframleiðslu, einnig reiknað af verðmæti framleiðslu svo sem kartaflna sem aldrei eru fluttar út úr landinu? Hversu lengi er unnt að viðhalda þessari reglu eftir að framleiðsla einstakra greina er komin út fyrir öll skynsamleg takmörk miðað við afurðasölu á innanlandsmarkaði? Er ekki nær að nota hluta fjármagnsins til að auðvelda tekjulágu fólki í landinu að kaupa þessar vörur? Væri ekki eðlilegra að greiðsluskylda á útflutningsbótum væri miðuð við ákveðið hlutfall af verðmæti hverrar framleiðslugreinar fyrir sig, og kæmi þá til greina að það mark væri hærra en 10%.
Hér er stefnt í algert óefni þegar svo er komið að greiðslur úr ríkissjóði með útfluttum landbúnaðarafurðum, sem seljast ekki í nægum mæli innanlands, hafa ríflega fjórfaldast á þremur árum. Sá háttur, sem nú er á hafður, viðheldur stjórnleysi í framleiðslu, stýrir ekki af neinni skynsemi þróun í landbúnaði. Þegar náð er þeim mörkum, sem uppbætur úr ríkissjóði á útfluttar landbúnaðarafurðir duga til, og bændur eiga sjálfir að taka á sig mismun á verðlagi útflutnings og innanlandsmarkaðar, hljóta kjör þeirra að verða óviðunandi og sú þróun bitnar harðast á þeim sem við lökust kjör búa. Hér er því engan veginn um reikningslega hagsmuni ríkissjóðs eina að ræða. Vissulega hefur tekist að auka mjög framleiðslu á hvern vinnandi mann í landbúnaði. En gífurlegur fjárfestingarkostnaður með síauknum vaxtagreiðslum verður meiri byrði en bændur eða aðrir þjóðfélagsþegnar geti axlað, ef þróun landbúnaðar verður áfram án nokkurrar skynsamlegrar stýringar. En hér ríkir sú stefna stjórnarflokkanna sem allsráðandi hefur verið, sú eina stefna sem þeir virðast hafa: að stjórna ekki.
Ytri aðstæður hafa batnað mjög s.l. ár og það sem af er þessu ári, og spáð er 4% aukningu þjóðartekna á næsta ári. Þjóðartekjur á mann verða á þessu ári líklega um 3% hærri en árið 1973, og samkv, þjóðarhagsforsendum, sem lagðar eru til grundvallar við gerð fjárlagafrv., er gert ráð fyrir að þjóðartekjur á mann aukist um 3% árið 1978. Þrátt fyrir þessa þróun er það ætlun stjórnvalda með afgreiðslu fjárl. að raska ákveðnum þáttum í grundvelli þeirra kjara sem launafólk býr nú við. Annars vegar er hér um að ræða hækkun bensínverðs á þeim grundvelli að sú hækkun komi ekki fram í verðbótum á laun, eins og í kjarasamningum er miðað við. Það gæti munað hjá félagsmönnum Alþýðusambands Íslands 750 millj. kr. á næsta ári aðeins vegna hækkunar bensínsins. Hins vegar er ætlunin að skattvísitala, sem gildir við álagningu á næsta ári, fylgi ekki að þessu sinni breytingu á meðaltekjum undanfarandi árs, eins og gilt hefur nú síðustu árin, heldur hækki til jafns við breytingar á framfærsluvísitölunni. Gera má ráð fyrir að hækkun meðaltekna á árinu 1977 verði 38–39%, en hækkun framfærsluvísitölu um 31%. Hér munar því talsverðu. Munurinn á því að nota breytingar á framfærsluvísitölu til viðmiðunar í stað breytinga á meðallaunum gæti þýtt 1750–2000 millj. kr. auknar skatttekjur hjá ríkissjóði á næsta ári. Og einnig hefur þessi ákvörðun um skattvísitölu áhrif til hækkunar á útsvör. Hæstv. ríkisstj. velur breytingar á meðallaun til viðmiðunar þegar þau hækka minna en framfærsluvísitalan. T.d. hækkuðu meðallaun um 30% 1975, en framfærsluvísitalan um 49%. Þá var miðað við hækkun meðallauna. Hins vegar kýs hæstv. ríkisstj. nú að miða breytingar á skattvísitölu við breytingar á framfærsluvísitölu þar eð dæmið hefur snúist við.
En það eru ekki ýkjamörg ár síðan fulltrúar Sjálfstfl. virtust ekki í vafa um að það væri þeirra stefna að breyting á skattvísitölu skyldi jafnan vera í réttu hlutfalli við breytingu á meðallaunum. Hinn 7, mars 1974 sagði hæstv. núv. félmrh., Gunnar Thoroddsen, í umr. á Alþ. um frv. til l. um skattkerfisbreytingu, með leyfi hæstv. forseta:
„Ég vil nefna annað atriði, sem er mjög hæpið í þessu frv. Það er um skattvísitöluna. Þar er gert ráð fyrir að halda áfram því fyrirkomulagi, sem ég veit að hefur verið þyrnir í augum verkalýðssamtakanna, að skattvísitalan sé ákveðin á hverju ári í fjárl., sem leiði til þess að ríkisstj., fjmrh., metur það eftir aðstæðum hverju sinni, hve mikið sé rétt að taka í tekjuskatt. Í frv. okkar sjálfstæðismanna var farin allt önnur leið. Í 6. gr. þess frv. var ákveðið að skattvísitala skyldi ákveðin af kauplagsnefnd ár hvert í samræmi við breytingar á almennum launatekjum, og er það sú trygging sem launþegasamtökin óska eftir að fá.“
Það er víst ekki ástæða til þess að spyrja um það núna, hvers launþegasamtökin óska að fá eða hvað kynni að vera þeim þyrnir í augum. Nú er beitt útsjónarsemi að velja þá leið sem hverju sinni er launþegum óhagstæðari: breytingar á framfærsluvísitölu þegar það er launafólki óhagstæðara og breytingar á launatekjum þegar það er launafólki óhagstæðara.
Hæstv. núv. félmrh, var ekki hinn eini þeirra Sjálfstfl: manna um þá skoðun, að skattvísitölu skyldi breyta í samræmi við breytingar á almennum launatekjum. Hæstv. núv. fjmrh., sem nú boðar kjaraskerðingu með breyttri tilhögun á ákvörðun skattvísitölu, sagði hinn 17. des. 1973 í framsöguræðu á Alþ. fyrir því fræga skattafrv. þar sem hann boðaði lækkun ríkisútgjalda um 17.6 milljarða kr. á núgildandi verðlagi, með leyfi hæstv. forseta:
„Að lokum er með frv. þessu lagt til að skattvísitala verði ákveðin af kauplagsnefnd í samræmi við breytingar á almennum launatekjum.“ Og síðar í sömu ræðu: „Í 6. gr. frv. er gert ráð fyrir að allir þeir frádráttarliðir, sem gert er ráð fyrir í þessu frv., hækki samkv. skattvísitölu sem ákvörðuð verði í samræmi við breytingar á almennum launatekjum.“
Þessar ráðagerðir hæstv. núv. fjmrh. eru nú teknar að breytast varðandi skattvísitöluna ekki síður en þær sem beindust að lækkun ríkisútgjalda.
Það hefur æðioft verið sagt að fjárlagaafgreiðsla spegli stefnu viðkomandi ríkisstj. Það á að sjálfsögðu við nú ekki síður en áður. En eins og á mörgum öðrum sviðum er hér erfitt að greina í sundur orsök og afleiðingu. Stjórnarstefnan markar fjárlagaafgreiðsluna. Hægri flokkar eins og þeir, sem nú fara með völd, leggja áherslu á að draga úr samfélagslegum framkvæmdum og gefa gróðahvöt einkaframtaksins sem frjálsastar hendur. Ef samkeppni er á vinnumarkaðinum skulu dregnar saman opinberar framkvæmdir, en athafnir einkaaðila, sem í ríkum mæli eru markaðar af áformum um verðbólgugróða, sitja í fyrirrúmi. Fjárlagaafgreiðslan og það, hvernig tekst að halda á málum í samræmi við sett fjárlög, setur svo mark á efnahagsþróunina.
Hvað sem líður sundurgreiningu orsaka og afleiðinga er niðurstaðan sú ettir þriggja ára stjórn Sjálfstfl. og Framsfl., að fjárlög fyrir næsta ár verða líklega um 4–5 sinnum hærri en fjárlög fyrir 4 árum. Í tíð núv. hæstv. ríkisstj. hafa fjárlög hækkað meir en nokkru sinni hefur áður þekkst. Það segir nokkra sögu um stjórn efnahagsmála á þessu tímabili, og verður þá sérstaklega að hafa í huga að verðlag innfluttrar vöru hækkaði á hverju þessara ára aðeins um 5– 7%. Það er eðlilegt að þess sjáist merki í efnahagsmálum þegar ytri aðstæður eru mjög óhagstæðar, þegar jafnvel fer saman lækkun afurðaverðs og mikil hækkun innflutningsverðlags. En ríkisstj., sem hefur ekki ráðið við neitt í góðæri, getur ekki stýrt í logni, hefur enga afsökun. Ytri aðstæður hafa verið með eindæmum hagstæðar í fyrra og í ár, þ.e.a.s. ríflega tvo þriðju hluta af stjórnartímabili hæstv. ríkisstj. tiltölulega lítil verðhækkun innfluttrar vöru, en hærra afurðaverð útfluttrar vöru og meiri verðmætasköpun framleiðslustéttanna en nokkru sinni fyrr. Verðbólga hefur þó áreiðanlega aldrei verið meiri öðru sinni í hlutfalli við verðhækkun á innfluttum vörum.
Oft er vitnað í verðbólguna 1974. Meðalhækkun framfærsluvísitölu á árinu 1974 nam 43%, en hækkun verðlags innflutnings nam 35% í erlendri mynt. Meðalhækkun framfærsluvísitölu árið 1975 var 49%, 1976 32% og í ár álíka mikið, en hækkun verðlags innflutnings í erlendri mynt nam árin 1975, 1976 og 1917 einungis 5–7%. Þarf ekki orðum að eyða að því að aldrei hefur verið verr staðið að því að halda innlendu verðlagi í skefjum í hlutfalli við verðlag útflutnings heldur en í tíð núv, ríkisstj., sem þó hefur stuðst við atfylgi 42 þm. af 60 og ætti að hafa afl til átaka.
En þó að nauðsynlegt sé að almenningur dragi sínar ályktanir af þessum ferli hæstv. ríkisstj. í efnahagsmálum, þá er það svo, að meiru en að þræta um liðna tíð skiptir það, hversu tekst á komandi tíð. Nú er spurt, þegar hæstv, ríkisstj. nær engum árangri í verðlagsmálum þrátt fyrir hinar hagkvæmu ytri aðstæður: Hver verður þróunin ef eitthvað kynni að harðna á dalnum að nýju?
Ráðstafanir stjórnvalda hafa verið einslakar aðgerðir bundnar við afmarkaða þætti vandans, — ráðstafanir sem sérfræðingar geta eflaust rökstutt sem eðlilegar á sínu afmarkaða sviði, ef það svið væri einangrað og án afgerandi afleiðinga á aðra mikilvæga þætti málsins, þar sem skaðinn af ráðstöfuninni er e.t.v. margfaldur á við það sem vinnst um takmarkaðan tíma á hinu afmarkaða sviði. Þetta á við um vaxtahækkanir og gengisbreytingar. Glíma við verðbólgu er glíma við að komast út úr vítahring, eða frekar eins og umbrot manns í sandbleytu þar sem hver hreyfing, sem ekki er hnitmiðuð og rétt færir hann dýpra í kaf. Það kann að vera að hækkun vaxta á verðbólgutímum, þegar gildi peninga rýrnar örar en vextir hafa fengið borið uppi, sé ekki óskynsamleg ályktun í sjálfu sér, hugsuð ein sér. En afleiðingin verður meiri verðbólga og enn rýrnun þeirra fjármuna sem ætlunin var að tryggja með hærri vöxtum, og svo koll af kolli. Lækkun gengis gjaldmiðilsins kann að líta vel út sem hugmynd þegar höfð er í huga hækkun innlends kostnaðar langt umfram hækkun afurðaverðs á erlendum mörkuðum. En afleiðingin er enn meiri verðbólga og enn styttri biðtími eftir næstu gengislækkun. Þessar ráðstafanir, þótt býsna eðlilegar geti talist ef takmarkaður hluti vandans er skoðaður út af fyrir sig, auka á heildarvandann, en leysa hann ekki.
Þegar læknislyf er notað er kannað hvað mest og spurt um það, hvort það hafi hættulegar hliðarverkanir. Minna er spurt um þetta í sambandi við efnahagsráðstafanir. Til þess að gera sér grein fyrir vandanum ætti að draga saman lýsingu á sjúkdómseinkennunum, ef þau gæfu bendingar um aðgerðir sem gætu orðið hluti af heildarráðstöfunum til úrbóta. Þær ráðstafanir þyrftu án efa að vera víðtækar og í samhengi, en felast ekki í einangruðum aðgerðum til tímabundinna úrræða á afmörkuðum sviðum án tillits til hliðarverkana á aðra mikilvæga þætti, eins og verið hefur.
1) Á tímum óðaverðbólgu er sparnaður ekki mögulegur í þjóðfélaginu nema með fjárfestingu, eða a.m.k. er fjárfestingin of eftirsóknarverð leið. Fjárfesting þarf ekki að geta staðið undir eðlilegum rekstri, verðbólgugróðinn fæst án þess. Dæmi er um að húsnæði standi ónotað tímum saman, en eigandinn hljóti sitt verðbólgugull þrátt fyrir það.
2) Þegar svo er um möguleikana á varðveislu raungildis fjármuna á óðaverðbólgutímum eins og raun ber vitni leitar kaupmáttaraukningin, sem verkalýðsfélögin tryggja félögum sínum, þegar út í aukin vörukaup og auknar gjaldeyriskröfur vegna hvers konar neysluvara. Ríkisstj. eins og sú, sem nú situr, grípa þegar til þeirra aðgerða að slá niður kaupmáttaraukninguna með ráðstöfunum sem að jafnaði eru í því fólgnar að hækka enn verðlag. Væri grundvöllur til sparnaðar með eðlilegum hætti í þjóðfélaginu og hann gerður eftirsóknarverður mundi verkalýðsstéttunum reynast auðveldara að vernda kaupmáttaraukninguna.
3) Ríkissjóður greiðir nær helming vaxtakostnaðar gjaldenda án tillits til þess til hvers lánin eru tekin eða hvernig högum skuldarans er háttað.
4) Skattkerfi ríkisins byggist í æ ríkara mæli á þeim hluta tekna borgaranna sem er eytt samstundis og þeirra er aflað. Ríkinu er því illkleift að gera ráðstafanir til að hemja eyðsluna.
5) Bankakerfið fjármagnar verslunina í ríkum mæli í því skyni að borgararnir geti eytt peningum áður en þeirra er aflað, þannig að krafa um gjaldeyri kemur fram áður en kaupandinn hefur með vinnu sinni skapað verðmæti á móti.
6) Þeir, sem fá óverðtryggt fjármagn að láni frá opinberum aðilum til fjárfestingar, geta selt fjárfestinguna með gróða. Hagkvæmni lánsins fylgir ekki fjárfestingunni til nýs eiganda og verðlagið skrúfast upp.
7) Grundvöllur nýrrar fjárfestingar er oft ekki sá, að hún sé hagkvæm eða nauðsynleg í sjálfri sér, heldur ræður von um verðbólgugróða svo og ákvæði skattalaga um afskriftir, þ.e.a.s. það sem ræður er val milli skattgreiðslu til ríkisins eða nýrrar fjárfestingar fjárfestingarinnar vegna. Er hér oft um að ræða afskrift fjárfestingar sem kostuð hefur verið með óverðtryggðum lánum og síðan fást aftur óverðtryggð lán til að græða á hinni nýju fjárfestingu sem ráðist er í til að geta afskrifað áfram.
8) Fjárfestingar í íbúðarhúsnæði, sem taldar eru til sparnaðar á hagskýrslum, ná vart því máli þegar rýrnun verðgildis peninga hvetur til allt of mikils íburðar og jafnvel eru byggðar þúsundir íbúða þar sem nánast engin er fjölgun mannfólksins.
9) Eignarhald einstaklinga á landi, sem hefur orðið dýrmætt fyrir annarra tilverknað, er hin öruggasta ávísun á gróða. Útgjöld vegna þess gróða dreifast síðan út í verðlagskerfið.
Svona mætti sjálfsagt lengi áfram telja, og oft gæti það orðið svo, að skilgreining þess, sem athugavert er, kalli sjálfkrafa á viðbrögðin. En víst er að eigi að sinna lausn verðbólguvandans af alvörn, og það hefur hæstv. núv. ríkisstj. aldrei gert, þá þarf að taka á ýmsu. Og telji einhver þjóðfélagsþegn það mikilsvert og eftirsóknarvert fyrir bann sjálfan að takist að draga verulega úr óðaverðbólgunni og færa verðlagsþróunina til eðlilegs horfs, þá er það hans að gera sér grein fyrir því, hvað er á sig leggjandi til að öðlast það sem honum er svo mikilvægt og eftirsóknarvert.