02.05.1978
Neðri deild: 91. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4373 í B-deild Alþingistíðinda. (3625)
15. mál, skipulagslög
Frsm. (Gunnlaugur Finnsson):
Hæstv. forseti. Um þetta mál er mjög lítið að segja. Félmn. leggur til að það verði samþ. eins og það kom frá Ed. Þetta frv. er eins og það var afgreitt hér frá n. í fyrra með viðbótartill. sem kom frá félmn. Ed. og er á þskj. 371. Þar er tekið fram að kveða skuli á um að hið skipulagða svæði geri fötluðu og öldruðu fólki auðvelt að komast leiðar sinnar.
Ég hef ekki um þetta fleiri orð. N. leggur til að frv. verði samþ. eins og það kom frá Ed.