08.11.1977
Sameinað þing: 14. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 527 í B-deild Alþingistíðinda. (363)

1. mál, fjárlög 1978

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Hæstv. fjmrh. leggur nú í fjórða sinn fram fjárlagafrv. sitt hér á hinu háa Alþ. Síðasta fjárlagafrv., sem lagt var fram áður en núv. hæstv. ríkisstj. tók við völdum, hljóðaði upp á 27 milljarða kr. Þá fluttu málsvarar Sjálfstfl. till. um verulega lækkun á því fjárlagafrv. eins og fram hefur komið við umr. Núna, 4 árum síðar, flytur hæstv. fjmrh. í nafni ríkisstj. fjárlagafrv. sem hljóðar upp á 125 milljarða kr. Hér er um að ræða hið minnsta hækkun um 100 milljarða á 4 árum. Aðeins frá árinu í fyrra hækkar fjárlagafrv. um 40 milljarða kr. eða ca. 48% milli ára, ef miðað er við niðurstöðutölu fjárlagafrv. þess sem lagt var fram hér á Alþ. í fyrra. Þetta sýnir best í hverjar ógöngur komið er. Hæstv. ríkisstj. hefur aldrei náð neinum tökum á meginviðfangsefnum sínum.

Í samanlögðum skráðum heimildum um íslenskt mannlíf í 100 ár hefur aldrei neinn ljótur púki verið fitaður jafnmikið og ört og verðbólgupúkinn í peningshúsum félagsbús þeirra Geirs Hallgrímssonar og Ólafs Jóhannessonar. Aldrei í sögu lýðveldisins Íslands hefur jafnmargmennum þingmeirihluta tekist að verðfella íslenskan gjaldmiðil jafnmikið á jafnskömmum tíma og núv. þingmeirihluta hefur tekist. Enda þótt stjórn og stjórnarandstöðu greini á um margt er ég sannfærður um að báðir þessir aðilar eiga nú þá eindrægnu ósk, að guð gefi að íslenska þjóðin þurfi aldrei aftur að lifa þvílíkt öngþveitis- og upplausnarástand í efnahags- og fjármálum, þvílíkan Surtarloga af verðbólgu eins og þann sem bálað hefur í landinu á því kjörtímabili sem nú er senn á enda runnið.

Ég hygg raunar að varla megi á milli sjá, hvorir fegnari séu að loks fer nú að hilla undir lok kjörtímabilsins, þm. stjórnarinnar eða við stjórnarandstæðingar. Raunar er ástandið á stjórnarheimilinu orðið þannig, að ætla má að ráðh. Framsfl. vildu allra helst að menn héldu að þeir væru hlaupnir úr vistinni og flúnir úr landi, því að þeir virðast gera sér sérstakt far um að koma helst ekki fram fyrir alþjóð í nafni ríkisstj. og þá allra sízt þegar ræða á opinberlega stefnumótun hennar eins og við umr. um stefnuræðu forsrh. nú á dögunum. Tilgangurinn með slíku er auðvitað augljós, því að í þessari framkomu er fólgið mat Framsóknarforingjanna á stöðu hæstv. ríkisstj. og sú niðurstaða þeirra, að best sé fyrir þá og þeirra flokk að láta sem minnst á sér kræla í stjórnarsamstarfinu til þess að losna, eftir því sem unnt er, undan ábyrgðinni. Eða halda menn að foringjar Framsfl. væru svona hlédrægir og hógværir ef þeir héldu að ríkisstj, hefði staðið sig vel og þeim væri akkur í því að tengjast sem mest gerðum hennar?

Framsfl. er ekki aðeins pólitískur veðurhani á Íslandi, heldur einnig ótrúlega nákvæm vog til mælinga á veðurlagi í íslenskri pólitík, og það barómet, sem Framsfl. er, stendur nú á fárviðri fyrir samstjórn Sjálfstfl. og Framsfl., — stórviðri sem hleypt hefur slíkum fítonskrafti í hina pólitísku veðurhana flokksins að þeir hafa hoppað ofan af húsmæninum og hlaupið í felur. Og ég vek athygli á því, að nú nokkrum dögum eftir að hv. formaður Sjálfstfl., hæstv. forsrh , ræddi stefnu ríkisstj. í opinberum umr. án þátttöku ráðh. Framsfl., — að nú nokkrum dögum síðar, þegar hæstv. fjmrh. úr sama flokki stendur hér á Alþ. til þess að flytja mál sitt um fjármál ríkissjóðs, þá hefur enn, að því er ég best veit, enginn Framsóknarráðh. beðið um orðið og enginn Framsóknarráðh. er einu sinni hér viðstaddur. Hæstv. fjmrh. verður því einn í ríkisstj. að standa í þessari orrahríð, eins og hæstv. forsrh. mátti einn undir það gangast í útvarpsumr. nú á dögunum. Kannske á það eftir að koma í ljós, að einhver ráðh. Framsfl. tali hér í umr. á eftir þó að ekki séu þeir búnir að biðja um orðið enn. En ég verð að segja eins og er, að ef svo yrði, þá kæmi mér það allnokkuð á óvart.

Þegar núv. hæstv. ríkisstj. tók við stjórnartaumunum lýsti hún því sem höfuðviðfangsefni sínu að koma á jafnvægi í efnahagsmálum. Fyrsta, stærsta og mikilvægasta verkefni ríkisstj. var að vinna bug á verðbólgunni. Hún lýsti því yfir sem markmiði að koma verðbólguvexti niður í 15% á tveimur árum. Í þessu meginviðfangsefni hefur hæstv. ríkisstj, herfilega misstigið sig. Henni tókst ekki að lækka vöxt verðbólgunnar frá því meti sem hæstv. síðasta ríkisstj. hafði slegið, þvert á mótt. Þegar núv. hæstv. ríkisstj. fór að reyna sig fór verðbólgan ekki niður, heldur upp og komst upp í yfir 50% á einu ári. Slíkt hefur aldrei áður gerst í sögu þessa lands, jafnvel ekki á stríðstímum þegar allar aðflutningsleiðir voru lokaðar til landsins, vöruskortur í hámarki og vöruverð steig upp úr öllu valdi. Á s.l. 4 árum hefur því í þessum málum ríkt meira en stríðsástand hér á Íslandi, það er líkt og hrein landplága hafi gengið þér yfir. Þannig hefur hæstv. ríkisstj. gersamlega mistekist meginviðfangsefni sitt, og fjárlagafrv. þetta er einmitt órækur vottur þar um: eitt hundrað þúsund millj. kr. hækkun á aðeins 4 árum. Að meðaltali á hverju ári hefur hæstv. ríkisstj. sem sé bætt við útgjöld fjárl. 25 þús. millj. kr. upphæð, sem nemur hartnær heildarfjárlögum íslenska ríkisins eins og þau voru síðasta árið áður en núv. ríkisstj tók við.

Vissulega verður sú viðbára notuð, að við gerð fjárl. hafi hækkun útgjalda á fjárl. og tekna aðeins orðið sjálfkrafa sem afleiðing af verðhruni peninga sem orðið hafi í þjóðfélaginu. Því verður sjálfsagt haldið fram, að fjárlagaafgreiðslan í þessu sambandi sé aðeins afleiðing, en ekki orsök, hækkunin milli ára sé aðeins óviðráðanlegt andsvar við utanaðkomandi áhrifum frá verðbólguvextinum sem orðið hafi. Vissulega er það satt og rétt, að hin mikla hækkun fjári. hefur ekki reynst aukning í raunverulegum verðmætum. Opinberar framkvæmdir, félagsleg þjónusta, framsókn í menningarmálum o.s.frv. — þessi atriði fjárl. hafa ekki aukist, þótt fjárlagatölurnar hafi meira en fjórfaldast. En það er engu að síður rangt að halda fram því fram, að fjárlög hverju sinni ráðist aðeins af einskærum utanaðkomandi og óviðráðanlegum aðstæðum. Það er ekki frekar hægt að halda því fram, að fjárl. og upphæðir í fjárlagatillögum ríkisstj. séu afleiðing aðstæðna, en t.d. að fullyrða að höfuðið sé afleiðing af hálsinum. Hér er að sjálfsögðu um að ræða hluta af einni heild.

Fjárl. eru einn af meiri háttar þáttum í stefnumótun ríkisstj, á hverjum tíma í efnahagsmálum. Þau eru ekki óhjákvæmileg afleiðing óviðráðanlegs verðbólguástands í þjóðfélaginu, heldur öllu heldur geta þau verið einn af meiri háttar aflvökum slíks ástands, eitt af eldfimustu brennsluefnum sjálfs verðbólgubálsins. Í fjári. og lánsfjáráætlun er t.d, mótuð stefna ríkisvaldsins í opinberum framkvæmdum. Halda menn að það hafi engin áhrif á þróun verðbólgu í landinu þegar fjármunamyndun sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu vex á 4 árum árum úr 24.4% í 32.9% og stór hluti þessarar fjármunamyndunar er til kominn við söfnun gjaldeyrisskulda erlendis? Halda menn að það hafi engin áhrif á vöxt verðbólgunnar og almenn lífskjör í landinu þegar 10 þús. millj. kr. er kastað í óþarfar framkvæmdir norður við Kröflu sem engan arð munu færa þjóðinni í fyrirsjáanlegri framtíð, heldur þvert á móti, af því að vextir og afborganir af lánum, sem tekin voru vegna þessarar heimskulegu og ábyrgðarlausu framkvæmdar, geta numið sem svarar tekjum ríkissjóðs af 1–2 söluskattsstigum, en það samsvarar því, að þessi framkvæmd sé fjárhagslegt áfall fyrir þjóðina er nemi í raunverulegum verðmætum um eða yfir hálfum þeim búsifjum sem þjóðin varð fyrir vegna náttúruhamfaranna í Vestmannaeyjum, og það þó að ekkert komi fyrir mannvirkin, vélarnar og tækin við Kröflu? Ef eitthvað kemur fyrir í þeim efnum, þá bætist að sjálfsögðu það tjón við þetta.

Í fjárlagafrv. er þannig t.d. gert ráð fyrir að afla á næsta ári alls 1151 millj. í erlendu lánsfé til þess eins að greiða afborganir og vexti af öðrum lánum vegna Kröfluvirkjunar. Jafnvel vextina er ekki hægt að greiða nema með nýjum erlendum lántökum. Halda menn að þetta hafi engin áhrif til hvatningar á vöxt verðbólgunnar í landinu? Og hvað hefði verið hægt að gera við þessar 10 þús, millj. kr, annað en fjárfesta í jafnheimskulegri og arðlausri framkvæmd og hér um ræðir? Þetta fjármagn hefði hartnær nægt til þess, t.d. að nefna, að fella niður tekjuskatt af öllum einstaklingum á Íslandi á næsta ári. Þetta fjármagn hefði t.d. farið langleiðina til þess að kosta gerð vegar með varanlegu slittagi hringinn í kringum landið. Fjölmargan slíkan samanburð er hægt að gera, sem sýnir fram á hvað svona vitfirrt stjórnleysi kostar íslensku þjóðina. Þessar stefnuákvarðanir eru markaðar í fjárlagafrv. hæstv. ríkisstj. og í till. hennar um öflun erlends lánsfjár. Fjárlagafrv. eru þannig alls ekki afleiðing utanaðkomandi ástands, heldur einn af aflvökvum þeirra óskapa sem dunið hafa yfir Íslendinga með verðbólgu sem hefur náð allt að 50% vexti á einu ári.

Þetta leiðir hugann að öðru þessu skyldu. Ég nefndi það áðan, að fjárfesting sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu er komin hér á Íslandi talsvert langt yfir 30%, á sama tíma og hún er í nálægum löndum 20–24%. Hér eiga ákveðnar opinberar framkvæmdir hlut að máli og þá fyrst og fremst framkvæmdir eins og þær, sem ég nefndi áðan um að fjár sé aflað með erlendri lánsfjáröflun. Það hefur lengi verið tíska hér á Alþ. meðal alþm. að telja að allar framkvæmdir hljóti að vera af hinu góða: ein Borgarfjarðarbrú hljóti að vera góð, tvær slíkar framkvæmdir á sama ári hljóti að vera tvöfalt betri, þrjár slíkar framkvæmdir á sama ári hljóti að vera þrisvar sinnum betri o.s.frv., o.s.frv. Það er eins og margir alþm, haldi að það sé til einhver gullnáma sem þeir geti grafið bendur sínar í og sótt sér fulla vasa fjár til þess að kosta framkvæmdir af þessu tagi. En allir vita að enginn getur til lengdar framkvæmt meira en hann hefur efni á, nema þess sjáist einhvers staðar merki. Og merki þessarar stjórnlausu og hömlulausu framkvæmdaáforma sjást einmitt á Íslandi í dag hvert sem lítið er, Það er alveg sama hvort heldur við litum á fjármál ríkisins, skuldasafnanir ríkisins við útlönd, sem nema nú um 40% af niðurstöðutölum þessa fjárlagafrv.

Það er ekki aðeins á þessum sviðum sem áhrifanna gætir, heldur einnig á samskipti einstaklinganna í þessu samfélagi. Þegar samningar eru gerðir milli aðila vinumarkaðarins skortir þar ekki að hver silkihúfan af annarri í opinberri þjónustu, ráðunautar hæstv. ríkisstj. í æðstu stöðum, bankastjórar ríkisbanka og Seðlabanka og aðrir slíkir ryðjist fram á ritvöllinn til þess að reyna að sannfæra íslensku þjóðina að hún hafi ekki með nokkru móti efni á að greiða verkafólki við framleiðslustörf 100 þús. kr. lágmarkslaun á mánuði. En hvar eru þessir menn þegar ríkisvaldið stendur í opinberum framkvæmdum? Hvað skrifa þessir menn þegar það upplýsist, — það þarf ekki einu sinni að taka fram að það upplýsist, heldur er það á allra vitorði, — að þeir, sem starfa við opinberar framkvæmdir, eins og t.d. í virkjunarmálum, beri úr býtum laun sem eru um fimm eða sexföld á við það sem þessir herramenn eru að telja okkur trú um að við höfum ekki efni á að borga fyrir vinnu í okkar undirstöðuatvinnuvegum? Þá heyrist ekki mikið í efnahagsráðunautum hæstv. ríkisstj., bankastjórum ríkisbankanna eða Seðlabankans. Og hvaða áhrif heldur fólk að þetta hafi á viðhorf launþega? Hvaða launþegi halda menn að trúi því, að íslenska þjóðin hafi ekki efni á því að greiða verkamanni eða verkakonu í fiskiðnaði 100 þús. kr. lágmarkslaun á mánuði, þegar menn horfa upp á að hvarvetna þar sem ríkið stendur í verklegum framkvæmdum eru greidd laun sem eru fimm- eða sexföld á við þetta?

Það virðist vera að ef hið opinbera, hvort sem það er ríkisvaldið beint eða einhver af ríkisstofnununum, kemur nálægt einhverjum framkvæmdum hér á þessu landi, þá sé öllum hömlum sleppt, engin aðgát sýnd, ekkert skipulag haft á einu eða neinu, heldur veður þar allt á súðum. Þetta er opinbert leyndarmál sem allir vita. Öllum er þetta ljóst. Við þekkjum öll, hvert og eitt, fjölmargar sannar sögur af því, hvernig menn hafa hegðað sér sem stjórna opinberum framkvæmdum í þessu landi. Vel má vera að það sé notað sem afsökun, að það sé ekki ríkissjóður sjálfur eða ríkisstofnanir, sem greiði þessum aðilum laun beint, heldur taki þeir laun sín í gegnum milliliði sem taki að sér að vinna ákveðin verk fyrir ríkið. En hvað skyldu þessir milliliðir þá bera úr býtum fyrir að standa í framkvæmdum fyrir ríkið og ríkisstofnanir, fyrst þeir geta greitt starfsmönnum sínum svona há laun? Svo mikið ber á milli almennra launþega á hinum frjálsa vinnumarkaði, eins og ég vil leyfa mér að kalla það, og þeirra, sem sinna ýmsum opinberum framkvæmdum, að það er óhætt að fullyrða að þessir tveir hópar eigi ekkert sameiginlegt. Og það eru dæmi þess, fleiri en eitt og fleiri en tvö, að starfsmenn, sem hafa unnið við opinberar framkvæmdir á vegum ríkisins og hafa um lengri eða skemmri tíma neyðst til þess að hverfa að öðrum störfum, hafa hreinlega neitað, nema þeim mun harðar hafi kreppt að, að vinna fyrir þau laun sem samið er um í hinum almennu launasamningum, vegna þess að þeir hafa ekki þekkt slík kjör vinnandi við þau störf sem ríkisvaldið gengst fyrir að veita þeim.

Hér er engin aðgát sýnd, engin gætni, þvert á móti kostað kapps um að fara hraðar, vinna frekar, borga meira, hraða framkvæmdum hvað sem það kostar. Og það er ekki hikað við að brjóta óskráðar reglur í samskiptum verksala og verkkaupa í þessu sambandi, svo sem eins og það, þegar ein af þeim nefndum, sem á að stjórna opinberum framkvæmdum ríkisins, hin margfræga Kröflunefnd, leyfir sér að semja við verktaka þar norður frá um allt að tvöfalt hærra vetrarálag á unnin störf heldur en tíðkast nokkurs staðar í þessu landi, og það aðeins til þess að geta hraðað vinnunni þar norður frá meira en þessir verktakar treystu sér til að gera með eðlilegu móti. Hvar stöndum við nú með virkjun upp á 10 þús. millj. kr. sem ekki einni klst. getur skilað af sér til raforkunotenda?

Á þessu stjórnleysi í framkvæmdamálum hins opinbera ber hæstv. ríkisstj, höfuðábyrgð. Með þessu hefur hún skapað spennu í þjóðfélaginu, öfund og illdeilur milli starfshópa og mjög alvarlegt kjaramisrétti. Afleiðingin er að sjálfsögðu tortryggni og vantrú almennings. Hvernig er hægt að trúa því, að ekki sé unnt að greiða mannsæmandi laun fyrir starf við undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar, þegar ekki er óalgengt að sexföld sú upphæð sé greidd í þóknun fyrir störf við framkvæmdir á vegum ríkisins? Þessi skortur á gætni, aðgát og stjórnsemi kemur víða fram, jafnt í smáu sem stóru, jafnt í fjárlagaafgreiðslu sem við almennan rekstur ríkisins og ríkisstofnana. Ég get nefnt hér aðeins eitt lítið dæmi. Dæmið, sem ég nefndi áðan, var stórt. Dæmið, sem ég ætla að nefna núna, er smátt.

Fjvn., sem ég á sæti í, reynir að vinna sín störf vel. Hún vann m.a. að því á s.l. sumri að fara yfir lista um óheimilaðar stöður á vegum ríkisins og ríkisstofnana og skera úr um hverja stöðu fyrir sig. Í þeim störfum, eins og flestum heim störfum sem fjvn, vinnur, skiptust nm. ekki í stjórnarsinna annars vegar og stjórnarandstæðinga hins vegar, heldur reyndu þeir að vinna þessi verk af trúmennsku og af kostgæfni. Nú á dögunum, þegar fjvn, fékk til sín forráðamenn ýmissa opinberra stofnana, bar það við að ein slík stofnun, sem hefur talsverð mannaforráð, reyndist hafa bætt á nokkrum mánuðum þremur óheimiluðum stöðum við eina og hálfa óheimilaða stöðu sem hún hafði ráðið í á síðasta ári og fjvn. tekið til meðferðar og óskað eftir að ráðning yrði endurskoðuð í. Við spurðum forráðamann þessarar stofnunar, sem heyrir undir hæstv. menntmrn. hvernig það væri, hvort hann hefði ekki fengið niðurstöður undirnefndar fjvn. frá því í sumar og afgreiðslu hennar á hinni einu og hálfu óheimiluðu stöðu sem ráðið hafði verið í. Forstöðumaðurinn kom af fjöllum. Hann tjáði fjvn. að hann hefði ekkert slíkt fengið, rn, hans, menntmrn., hefði svikist um að senda honum afrit af bréfinu sem undirnefnd fjvn. sendi út af þessari stofnun til menntmrn. fyrir mörgum mánuðum.

Þetta er virðingin sem borin er í stjórnarstofnunum landsins fyrir aðgát, aðsjálni og gætni. Fjvn. stendur í því í sumar að beiðni hæstv, fjmrh. að gera aths. og fjalla um óheimilaðar ráðningar ríkisstofnana. En eitt stærsta og voldugasta rn. í stjórnarráðinu, menntmrn., gerir ekki einu sinni svo mikið með þessi störf að það framsendi viðkomandi stofnun niðurstöður undirnefndarinnar, með þeim afleiðingum, að stofnunin ekki aðeins tekur ábendingar undirnefndar fjvn. ekki alvarlega, heldur bætir þremur nýjum óheimiluðum stöðum ofan á þá eina og hálfa sem fyrir voru.

Þetta, herra forseti, kalla ég stjórnleysi. Þetta tel ég að hæstv. ráðh. beri alfarið ábyrgð á. Og ég skora á hæstv. ráðh., ef hann vill láta taka mark á beiðnum sínum til fjvn., að taka í taugina með fjvn.-mönnum og sjá til þess að stjórnarráðið og rn. a.m.k. vanvirði ekki fjvn. á þann hátt að láta eins og þau hafi ekki fengið bréf sem fjvn, hefur ritað þessum rn. Auðvitað fer ekki vel ef stjórnsemin er almennt ekki betri en þetta.

Nú kemur mér ekki til hugar að halda að hæstv. ráðh., hæstv. fjmrh. og hæstv. menntmrh., vilji hafa þetta svona. Ég veit að sá er stundum háttur stjórnmálamanna að láta í veðri vaka að andstæðingar þeirra upp til hópa sitji visvítandi svikráðum við þjóðina og vilji láta illt af sér leiða. Auðvitað er þetta mesta fjarstæða. Allir viljum við alþm. og ráðh. hag þjóðarinnar sem bestan. Við erum einfaldlega ekki sammála um hvernig að því skuli staðið. Núv. hæstv. ríkisstj. hefur viljað margt vel og vill enn. Hún vildi ná tökum á verðbólgunni, en hún bara gat það ekki. Hún vildi geta komið á jafnvægi í efnahagsmálum, en henni tókst það ekki. Hæstv. ráðh., sem eru upp til hópa góðviljaðir menn. ætluðu sér að gera bæði mikið og gott. En öll góðu áformin hafa runnið út í sandinn. Það hefur ávallt vantað herslumuninn til þess að gera viljann að veruleika. Þegar til hefur átt að taka hafa öll góðu fyrirheitin, allur hinn góði vilji alltaf kafnað í einhverju óskiljanlegu klúðri. Hæstv. ríkisstj. er eins og sú manngerð, eftirlæti allra skopteiknara, sem í hjartans einfeldni er ávallt á hjólum á heimilinu til þjónustu reiðubúin, en kemur aldrei neinu öðru í verk en að lemja sig á puttana. Hversu oft hefur t.d. ekki hæstv. fjmrh. lofað nýskipan skattamála? Það loforð hefur eiginlega verið fastur liður í fjárlagaræðu hans á hverju hausti þau fjögur ár sem hann hefur gegnt embætti fjmrh. Hann, hæstv. ráðh., hefur jafnvel boðað í smáatriðum — gerði það í fjárlagaræðu sinni í fyrra — hvernig þessi nýskipan ætti að vera. En hver er raunin á? Það hefur ekkert gerst, Það lenti allt í klúðri. Hinn góðviljaði og vikaliðugi fjmrh. hefur aldrei getað „rekið naglann í vegginn“. Hann hefur aldrei hitt nema bara á puttana.

Fjölmörg önnur dæmi má nefna. Hæstv. fjmrh. hefur jafnvel ekki getað afturkallað eigin gerðir. 16. júlí árið 1975 gaf forseti Íslands að tilhlutan hæstv. fjmrh. út brbl. um sérstakt tímabundið 12% vörugjald. Þetta vörugjald átti að innheimta til ársloka 1975 til þess, eins og sagði í brbl., að jafna sérstakan tímabundinn greiðsluhalla ríkissjóðs. Hæstv. fjmrh. lagði fram frv. til staðfestingar þessum brbl. á haustþingi 1975 og flutti við það tækifæri ræðu sem ég held að ég fari rétt með að var aðeins fjórar málsgr. Mér er ekki kunnugt um að nokkurn tíma hafi nokkur íslenskur fjmrh. rökstutt nýjan skatt með færri orðum en hæstv. fjmrh, gerði þá. Ef farið væri út í reikning mætti áætla að hvert orð í ræðu hans þá hafi kostað íslenska skattborgara ekki minna en 100 millj, kr. En í þessari ræðu sinni, sem var svona dýr, dýrari ræða en nokkur íslenskur fjmrh. hefur áður flutt, var hæstv. ráðh. raunar ekki að boða nýjan skatt, eins og hefði mátt virðast, heldur var hann þvert á móti að boða það, að skatturinn sem settur hafði verið á með brbl., yrði felldur niður um áramótin 1975–1976. Ég efast ekki um að þegar hæstv. fjmrh. bar Alþ. þessi boð, þá var honum alvara. Hann meinti það sem hann sagði. En hver er raunin á? Árið 1976 var skattur þessi hækkaður úr 12% í 18%. Þannig hefur hann verið innheimtur á þessu ári. Og í fjárlagafrv., sem nú liggur fyrir hv. Alþ., er gert ráð fyrir að á næsta ári muni þessi skattur skila 7000 millj, kr. í ríkissjóð, og ég vek athygli á því, að nú er ekki lengur talað um sérstakt tímabundið vörugjald. eins og það hét fyrst. Nú er búið að fella orðið „tímabundið“ niður, enda er það víst eins gott.

Þannig rekur sig hvert á annars horn hjá hæstv. ríkisstj. Hún hefur ekki á öllum starfsferli sínum getað mótað sér ákveðna heildarstefnu hvorki í skattamálum né í öðrum málum. Hún hefur lofað því að setja á fót nýtt skattkerfi. Það hefur hún ekki getað efnt. Hún hefur lofað því að fella niður nýjan skatt sem var settur með brbl. Það hefur hæstv. ríkisstj. ekki heldur getað efnt. Þannig hefur hún tínt sínar fjáraflanir upp úr tíu pokum. Öll hennar ferð hefur verið án fyrirheits.

Við þm. Alþfl. höfum flutt till. hér á hinu háa Alþ. um mörkun ákveðinnar stefnu í skattamálum. Í þeim till. höfum við tekið mið af þeim staðreyndum um tekjuskatt og tekjuskattsálagningu sem sérhverjum skattborgara er kunnugt um. Tekjuskatturinn er óréttlátur. Hann mismunar fólki gróflega, þýður upp á fjölmargar leiðir til löglegra undanbragða, verkar gagnvart öðrum, sem gjöldin verða að þola, sem fjötur á vinnuvilja, enda er um að ræða hreinan launamannaskatt. Hvers eðlis þessi tekjuskattur er kemur best fram í því að í sjónvarpsviðtali nýlega lýsti ríkisskattstjóri því yfir einhvern veginn ú þá leið, að tekjuskatturinn, eins og hann væri, væri þess eðlis að hver og einn skattborgari beitti undanbrögðum við þeim skatti eins og hann hefði vit til. Það er því ekkert launungamál, að þessi skattur, tekjuskattur, eins og hann hefur verið tíðkaður, er skattur sem allir gera sér ljóst hvaða annmarka hefur. Þegar litið er til þess, hve tekjuskatturinn er lítill þáttur í tekjuöflun hins opinbera, sést enn betur hversu litlu máli þessi óréttláti skattur er farinn að skipta í tekjuöflun hins opinbera. Í fjárlagafrv. nú er tekjuskatturinn aðeins áætlaður 12% af heildartekjum ríkissjóðs. Beinir skattar í heild 17.9% á móti 80.8%, sem óbeinir skattar eru taldir skila af tekjum ríkissjóðs. Og þessi þróun hefur orðið jöfn og þétt. Árið 1972 námu beinir skattar 26.96% af heildartekjum ríkissjóðs, árið 1973 26.19%, 1974 19.11%, 1975 15.78%, 1976 16.39%, 1977, eftir þá lækkun sem gerð var í samningum við verkalýðsfélögin, rúmlega 11% af heildarskatttekjum ríkissjóðs og nú í fjárlagafrv. röskum 18%.

Hér er um að ræða skatt sem skilar í ríkissjóð í tekjur aðeins tæplega tvöfalt meiru heldur en t.d. hið sérstaka og tímabundna vörugjald.

Þegar svo er komið að skattur, sem er jafnóréttlátur og tekjuskatturinn hefur verið, skiptir jafnlitlu máli í heildartekjuöflun ríkissjóðs og raun ber vitni og allar tilraunir til þess að betrumbæta þennan skatt hafa farið út um þúfur, er eðlilegt að menn komist að sömu niðurstöðu og þm. Alþfl. hafa gert, að réttast sé að fella þetta skattform að mestu leyti niður úr tekjuöflun ríkissjóðs nema sem sérstakan hátekjuskatt. Þetta höfum við þm. Alþfl. lagt til nú um nokkurt árabil hér á hinu háa Alþ., flutt um þetta þáltill. a.m.k. tvívegis, ef ekki þrívegis. Sú stefna, sem Alþfl. hefur í sambandi við endurskoðun á tekjuöflunarleiðum ríkissjóðs hefur legið fyrir. Hæstv. fjmrh. hefur í umr, um þessi mál tekið talsvert jákvætt í ýmsa þætti þessa máls. Hann hefur ávallt sagt að það væri alveg að koma að því, að ríkisstj. legði fram frv. um breytingar á þessum málum og væri því sjálfsagt að bíða með þessar hugmyndir okkar til þeirrar afgreiðslu. En sú afgreiðsla hefur ekki enn séð dagsins ljós og sú afgreiðsla verður ekki í tíð þessarar hæstv. ríkisstj. Hún hefur að vísu boðað að hún muni flytja frv. um málið, boðað það eina ferðina enn. En það frv. kemur svo seint fram, ef það kemur, að það verður ekki hennar að efna loforðin, heldur annarrar ríkisstj. sem tekur við völdum að loknum næstu kosningum.

Í augum núv. hæstv. ríkisstj. er enginn annar tilgangur með skattheimtu hins opinbera en að sjálfsögðu sá að afla ríkissjóði tekna með einhverjum hætti.

Það er ekki hennar stefna að reyna að gera skattkerfið einfalt, þvert á móti. Hún hefur verið að bæta við nýjum skattaálögum í valdatíð sinni, þannig að skattkerfið er núna flóknara en það var þegar hún tók við völdum. Hún er ekki að reyna að sníða skattkerfi svo það sé líklegt til að bera árangur. Dæmi um það eru skattlagningar hæstv. ríkisstj. á umferðina. Nú er boðað að hækka eigi bensíngjald um 15 kr. á næsta ári til að afla tekna fyrir Vegasjóð. Þá mun svo vera komið eftir bestu heimildum sem ég hef, að bensín verði orðið dýrara á Íslandi en í flestum nálægum löndum. Á sama tíma er líka skattar á innflutningi á bílum meiri hér en í flestum öðrum ríkjum. Það er sem sé skattlagt eins og unnt er, bæði innflutningur ökutækja og brennsluefni sem þessi sömu ökutæki nota.

Við þm.. Alþfl. höfum komið með till. um það nú tvö þing, að þessi mál, skattlagning á umferðina, yrðu tekin til sérstakrar skoðunar. Við höfum varpað fram þeirri hugmynd, hvort ekki væri rétt að breyta þessari tekjuöflun á þann veg að lækka mjög verulega innflutningsgjöld á bifreiðum þannig að bifreiðaeigendur gætu endurnýjað bifreiðar sínar með eðlilegum hætti, en til þess skortir nú mikið á, og að það skuli ekki vera hægt kostar bæði einstaklinginn og þjóðarbúið mikið fé. Á móti höfum við hins vegar komið með þá hugmynd, að tekna af umferðinni verði aflað með því að hafa bensínið tiltölulega dýrt, — sem sé hafa bifreiðarnar ódýrari, en bensínið dýrt. Hæstv. ríkisstj, hefur tekið upp helminginn af þessum tillögum. Hún hefur tekið upp þá hugmynd að hafa bensínið dýrt, en hún hefur viljað hafa bílana dýra líka. Niðurstaðan er sú, að bifreiðaeigendur á Íslandi geta hvorugt látið eftir sér, hvorki að endurnýja bifreiðar sínar með eðlilegum hætti né heldur að nota bifreiðar sínar með þeim hætti sem þeir kjósa. Þetta tel ég vera ranga stefnu. Ég tel frekar að það eigi að endurskoða svona skattlagningu með tilliti til þess að reyna að ná sem bestum og eðlilegustum árangri með því t.d. að ýta undir eðlilega endurnýjun bifreiðaflotans, en aftur á móti taka tekjurnar með því að hafa bensín talsvert dýrt. Auðvitað er hægt að snúa þessu við, hafa bensínið ódýrt, bifreiðarnar dýrar. En ég vek athygli á því, að í flestum löndum a.m.k. þar sem ég hef haft spurnir af þessu, þá er á annan hvorn veginn farið að, annaðhvort þannig, að bifreiðar eru tiltölulega ódýrar, bensín dýrt — eða öfugt. Og bifreiðaverksmiðjurnar t.d. í Bandaríkjunum móta sína verðlagsstefnu einmitt með sambærilegum hætti með það fyrir augum að reyna að fá sem mestar tekjur út úr sölu á bifreiðum og varahlutum án þess þó að hafa óeðlileg áhrif á bifreiðaeign almennings. T.d. í orkukreppunni, þegar bifreiðaframleiðsla dróst mjög saman hjá bifreiðaverksmiðjunum í Bandaríkjunum, breyttu þær verðpólitík sinni þannig, að þær lækkuðu nýjar bifreiðar talsvert mikið í verði, en tóku aftur það tap inn með því að hækka verð á varahlutum til bifreiða. Þannig ýttu þær undir bifreiðakaup og bifreiðasölur, en töpuðu ekki á því fé þar eð varahlutirnir voru hækkaðir í verði. Slík stefna er að sjálfsögðu skynsamleg. Slíka stefnu aðhyllist hæstv. ríkisstj, ekki í málefnum skattlagningar á umferðina.

Þá er það ekki heldur stefna hæstv. ríkisstj. að auka jafnréttið í skattamálum. Tökum sem dæmi hvernig hæstv. ríkisstj. hefur leikið sér fram og til baka með ákvörðun um skattvísitölu á undanförnum fjórum árum. Á s.l. þremur árum hefur framfærsluvísitala hækkað allnokkru meira en meðallaun. Þá voru skattleysismörk miðuð við áætlaða meðaltalshækkun launa, þannig að ef samverkandi áhrif skattlagningar og hækkunar framfærslukostnaðar eru skoðuð reyndist kaupmáttur rauntekna sífellt fara minnkandi. Nú er hins vegar snúið við blaðinu. Nú er áætlað að meðallaunahækkun á næsta ári verði nokkuð umfram hækkun framfærsluvísitölu. Þá eru skattleysismörkin ákveðin til samræmis við áætlun um hækkun framfærsluvísitölu, þannig að ávallt eru skattleysismörkin svo ákveðin að ríkissjóður hafi hag af viðmiðuninni, en skattborgararnir óhag. Þetta nefnir hæstv, ríkisstj. í grg, með fjárlagafrv. „að beita sköttum þannig að einkaneyslu verði í hóf stillt“. Í raun og veru er hér um að ræða hækkað skattahlutfall, hækkaða skattprósentu.

Við þm. Alþfl. teljum að tekjuöflunarmál ríkissjóðs verði að stokka upp á nýtt. Við teljum að m.a. verði að taka til sérstakrar athugunar hversu markaðar tekjur til ákveðinna verkefna hafa farið vaxandi. Nú eru slíkar tekjur 14.5% af heildartekjum fjárlagafrv., en voru í fyrra um 12%. Þá teljum við einnig að endurskoða þurfi ýmsar lagasetningar, sem eru ákvarðandi um upphæðir í fjárlagafrv. og fjárl. Til dæmis að nefna nær það ekki nokkurri átt, að ekki aðeins séu framlög og styrkir til landbúnaðar bundnir í sérstökum lögum, heldur jafnvel fastákveðið í þeim lögum að þau framlög skuli verðtryggð frá ári til árs þannig, að ekkert ráðrúm er til þess að takmarka slík framlög og styrki, jafnvel þótt offramleiðsla á ákveðnum sviðum landbúnaðarframleiðslu sé nú orðin þannig að um eða yfir 30% af þeirri framleiðslu þurfi að flytja út og greiða þurfi 2.9 milljarða kr, með útfluttum landbúnaðarafurðum, sem er hvorki meira né minna en 64.6% hækkun frá fjárl. yfirstandandi árs. Þessu kerfi verður að sjálfsögðu að breyta. Þetta kerfi er engum til góðs, ekki neytendum og enn síður bændum.

Herra forseti. Ég hef nú rætt nokkuð um tekjuhlið fjárlaga og þ. á m. um nauðsyn þess að endurskoða tekjuöflunaraðferðir ríkissjóðs í þá veru að gera hana réttlátari, einfaldari og árangursríkari, því auðvitað þarf ríkissjóður á tekjum að halda til þess að sinna viðamiklum verkefnum. Ég hef einnig rætt um hvernig áform hæstv. ríkisstj. í þeim efnum hafa ávallt farið út um þúfur sökum skorts á þreki og festu. Enn einu sinni gefur hæstv. ríkisstj. nú fyrirheit um þessi efni, að þessu sinni um staðgreiðslukerfi skatta. Að vísu ætlar hún sér ekki að efna það loforð sjálf, ekki til fullnustu, heldur gefur það á kostnað annarrar ríkisstj., þeirrar sem væntanlega á að taka við af þessari eftir kosningar. Ég vil leggja áherslu á það, að enda þótt staðgreiðslukerfi skatta sé veruleg breyting frá því kerfi sem nú er ríkjandi, þá vil ég vara við því að í því felist einhver allsherjarlausn á skattamálum. Okkur hættir til þess, Íslendingum, að vilja gjarnan trúa á einhver töframeðöl sem á einni svipstundu geti leyst allan vanda, nokkurs konar kraftaverkalækningu. Við erum að leita að einhverjum efnahagslegum lífsteini, einhverjum Bramalífselexír sem í einni svipstundu mundi ráða bót á öllum vandamálum, og það er hald margra að staðgreiðslukerfi skatta sé þess konar Bramalífselexír í skattamálum, aðeins þurfi að veifa því eins og einhverjum töfrasprota og þá sé allt leyst. Ég vil vara mjög mikið við slíkum hugsunarhætti. Staðgreiðslukerfið er í rauninni ekki annað en annað form á innheimtu sams konar skatts og nú er innheimtur eftir á. Breyting á innheimtuaðferðum einum saman lagar í sjálfu sér harla lítið, ef ekkert annað fylgir í kjölfarið. Hún ein ræður enga bót á því misrétti sem tekjuskatturinn skapar nú. Ef engar aðrar breytingar eru gerðar viðgangast tekjuskattssvik jafnt eftir sem áður, jafnvel ekki síður. Þá eru líkur á því að staðgreiðslukerfið sé dýrara og fyrir einstaka hópa þegnanna óþægilegri innheimtuaðferð en nú er. Við eigum því að gefa gætur að hvert við förum í þessum efnum því jafnvel getur hér að baki búið aðferð til þess að auka skattheimtu án þess að menn veiti því athygli. Svo dæmi sé nefnt, þá er það að sjálfsögðu stóraukin skattheimta miðað við verðmæti, ef tekjuskatti, sem nemur 40% af fyrra árs tekjum og er innheimtur í ár verður breytt yfir í staðgreiðslukerfi, sem innheimtir 40% tekjuskatt jafnóðum og teknanna er aflað, Slík breyting, þó prósentuhlutfallið sé óbreytt, felur að sjálfsögðu í sér talsverða skattþyngingu, a.m.k. ef verðbólga eða verðhrun peninga verður svipað og verið hefur.

Um útgjaldaáform fjárlaga hef ég einnig farið nokkrum orðum, sér í lagi varðandi opinberar framkvæmdir. Í raun réttri er þó lítið hægt um þann þátt fjárlagafrv, að segja á þessu stigi málsins. Á undanförnum árum hefur sú breyting orðið varðandi framkvæmdir hins opinbera, að sífellt er í meira mæli brugðið á það ráð að fjármagna þær með töku erlends lánsfjár utan fjárlagafrv. Í frv. er nú að vísu gert ráð fyrir rúmlega 10 þús. millj. kr, lántöku í erlendum gjaldeyri, en þar er þó vart hálfsögð sagan, því vitað er að þar er ekki séð fyrir ýmsum framkvæmdum sem fyrirhugaðar eru, t.d. framkvæmdum í orkumálum. Hvað t.d. um lagningu byggðalínu til Vestfjarða sem hæstv. iðnrh. hefur lofað? Í fjárlagafrv. er ekki séð fyrir fé til þeirra hluta. Og hvað um frekari rannsóknir og framkvæmdir við gufuöflun í Kröflu eða aðrar aðgerðir til þess að reyna að hafa einhver not af þeim miklu fjármunum sem þar liggja bundnir engum til gagns? Allt þetta og margt fleira á eftir að koma fram í lánsfjáráætlun sem enn hefur ekki séð dagsins ljós, en þó hefði þurft að leggja fram jafnhliða fjárlagafrv. Þá eru enn óframkomnar till. um mikil útgjöld svo sem varðandi hafnarmannvirki og hafnarframkvæmdir svo nokkuð sé nefnt. Þá er ástæða til að minna á það, sem hefur verið minnt á hér áður, að ekki er gert ráð fyrir í frv. að verja svo mikið sem einni krónu til stofnframkvæmda við fjölbrautaskóla, um almannatryggingar eru fyrirsjáanlegt að þær þurfa að hækka meira en í frv. stendur, og hið almenna húsnæðislánakerfi er hrunið í rúst.

Það er táknrænt fyrir þá ríkisstj, hægri aflanna, sem nú situr að völdum á Íslandi, hvernig að þessum málaflokkum er búið, alveg eins og það er táknrænt fyrir þann búskap, sem hún rekur á þjóðarheimilinu, það sem stendur í heimildagr. frv, efst á bls. 135. Þar stendur fyrst að fjmrh. sé heimilt að gefa út fyrir hönd ríkissjóðs til sölu innanlands ríkisskuldabréf eða spariskírteini að fjárhæð allt að 2000 millj kr. Í næsta lið á ettir segir að fjmrh, sé jafnframt heimilt að gefa út ný ríkisskuldabréf eða spariskírteini, eftir því sem á þarf að halda í stað þeirra sem upphaflega verða út gefin skv. liðnum sem ég las upp áðan, að viðbættri áfallinni verðlagsuppbót. Þetta þýðir ekki annað en það, að hæstv, ríkisstj. er að boða, að hún ætli að sækja sér fé með ríkisskuldabréfasölu til almennings á Íslandi að fjárhæð allt að 2000 millj. kr., og lýsir því jafnframt yfir, að þegar að því komi að greiða þurfi þetta lán muni hún gefa út ný skuldabréf, ekki aðeins með þessari upphæð, heldur einnig að viðbættri áfallinni verðlagsuppbót. Þetta er svipað og ef Jón Jónsson kæmi til bankastjóra — við skulum segja í Landsbankanum — og bæði hann að kaupa af sér 1 millj. kr. víxil til 3–4 ára og legði jafnframt inn hjá honum víxil að upphæð 1 millj. kr. + áfallnir vextir á þessum árum og tilkynnti bankastjóranum að þegar að því kæmi að greiða fyrri víxilinn, þá ætli hann að óska eftir því að bankastjórinn keypti seinni víxilinn með viðhættum vöxtum á lánstímanum. Þannig er hæstv, ríkisstj. farin að stjórna búi sínu. Í einum heimildalið óskar hún eftir heimild Alþ. til að selja innanlands ríkisskuldabréf að upphæð 2000 millj. kr, og í næsta lið á eftir óskar hún heimildar Alþ. til þess, að þegar þar að komi að þessi skuldabréf verði greidd, þá heimilist henni að gefa út ný skuldabréf að upphæð sömu 2000 millj, kr. að viðbættri áfallinni verðlagsuppbót á lánstímanum.

Herra forseti. Hæstv, núv, ríkisstj. er að renna sitt skeið á enda. Von bráðar heyrir hún sögunni til. og er vonandi að þess verði mjög langt að bíða að slík stjórn komist aftur til valda. Það er mikill misskilningur að halda, að það séum aðeins við stjórnarandstæðingar sem eigum þessa von, enda held ég að enginn hyggi það. Þetta álit kemur einnig fram hjá sjálfum dyggustu stuðningsmönnum stjórnarflokkanna. Það lýsir sér m.a. í því, sem ég vék að í upphafi ræðu minnar, að foringjar Framsfl. vilja helst ekki koma opinberlega fram í nafni ríkisstj. og ekki láta orða sig við hana, störf hennar og stefnu meira en brýnustu nauðsyn ber til. Það lýsir sér einnig í skrifum ýmissa forustumanna Sjálfstfl. þessa dagana, t.d. í skrifum frambjóðenda þeirra í væntanlegu prófkjöri flokksins í Reykjavík, þar sem þeir segja beinlínis. að afglöp ríkisstj., sem þeir draga ekki fjöður yfir, séu samstarfinu við Framsfl. að kenna, og fara ekki neitt í launkofa með þá ósk að því samstarfi verði senn lokið.

Eins og ég áðan sagði vill enginn stjórnmálamaður, enginn stjórnmálaflokkur, engin ríkisstj. vinna þjóð sinni ógagn. Allir viljum við vel. Hins vegar hendir það stundum, eins og það henti postulann, að það góða sem menn vilja, það gjöra þeir ekki, en það illa, sem þeir ekki vilja, það gjöra þeir. Þetta hefur hent núv. hæstv. ríkisstj. í ríkari mæli en flestar aðrar ríkisstj. á Íslandi, og ein af orsökunum er sú, að hana hefur brostið dug, samheldni og samstöðu til að koma sínum góðu áformum fram og standa gegn hinu illa. Engri ríkisstj. verður með rökum kennt um þótt illa ári hjá þjóðinni, veiði bregðist eða verðfall verði á útflutningsafurðum okkar á erlendum mörkuðum, frekar en unnt er að þakka ríkisstj. góðæri, metafla og hátt útflutningsverðlag. Ríkisstj. verða ekki dæmdar góðar eða slæmar á slíkum forsendum. Það er liðin tíð að þjóðir fórni stjórnendum sínum þótt uppskera bresti. Góðar eða slæmar eru ríkisstj. dæmdar eftir því, hvernig þær halda á málum við þær kringumstæður sem óviðráðanlegar aðstæður bjóða heim, hvernig ríkisstj, býr í haginn fyrir þjóðina í góðærum hvernig hún ver landið áföllum í harðærum. Eftir þessum verkum ber að dæma ríkisstj, góðar eða slæmar.

Ég skal fúslega viðurkenna, að núv. hæstv. ríkisstj. tók við erfiðu búi. Mér dettur ekki heldur í hug að neita því, að bæði í hópi ráðh. og annarra stuðningsmanna ríkisstj, eru mætir og reyndir menn, sem ættu að geta nýst þjóð sinni sem góðir stjórnendur. En það gerðist einfaldlega ekki í núv. ríkisstj. Í stað þess að verja þjóðina áföllum, treysta samheldni landsmanna og takast á við efnahagsvandann með festu og einbeitni forklúðraði hæstv. ríkisstj., stundum með alveg óskiljanlegum hætti, flestu því sem hún ætlaði sér gott að gera. Mikilvægasta verkefni ríkisstj, var að vinna landsstjórninni aftur það traust þegnanna sem fyrrv. ríkisstj, hafði glatað. Jafnvel erfiðustu efnahagsleg vandamál er hægt að leysa ef landsmenn bera í brjósti, sjálfrátt eða ósjálfrátt, traust til þeirrar ríkisstj. sem að völdum situr, hver svo sem afstaða þeirra til hennar er að öðru leyti, ef þeir vita að stjórnin vill og stjórnin getur. En einmitt þarna hefur núv. ríkisstj. hrapallega brugðist. Þrátt fyrir það að engin ríkisstj, með meiri þingstyrk hafi setið að völdum á Íslandi s.l. aldarfjórðung reyndist hún ekki sterk að sama skapi, heldur risi á brauðfótum.

Fólk hefur aldrei getað treyst þessari ríkisstj., og nú er svo komið að enginn gerir það, hvorki atvinnurekendur, launþegar né heldur stuðningsmenn stjórnarflokkanna sjálfra. Ekkert er erfiðara fyrir stjórnendur en að stjórna þegar almenningsálitið ber ekki traust til þeirra og reiknar með því að öll stjórnunin hljóti að fara út um þúfur. Aðeins sá hugsunarháttur, aðeins sá andi hjá almenningi er stormur í fangið fyrir hverja ríkisstj. Þjóðin er nú gegnsýrð vantrausti á þessa hæstv. ríkisstj. og verðbólguhugsunarhætti sem störf þessarar ríkisstj. hafa öðrum fremur skapað. Núv. ríkisstj. hefur ýtt undir þann hugsunarhátt og skarað að honum eld. Þar hefur hún fyrst og fremst brugðist. Sú er hennar stærsta sök. Þess vegna er hún vond ríkisstj. En það er ekki sama og að þeir ráðh., sem þessa ríkisstj. skipa, hljóti að vera vondir menn og illviljaðir, síður en svo. Þessir ágætu menn geta reynst vel við aðrar aðstæður, en sem smíðisgripur er þessi ríkisstj, stórlega gölluð, raunverulega algjörlega óhæf. Í leikriti um Pétur Gaut segir frá hnappasmiðnum sem hirti upp af götu sinni misheppnaða smíðisgripi til þess að bræða þá upp í deiglu sinni í þeim tilgangi að reyna að steypa úr þeim attur hluti sem hægt væri að nota. Núv. ríkisstj, bíða þau örlög að lenda í deiglu hnappasmiðsins. Að sjálfsögðu má e.t.v. nota efnið úr henni aftur og steypa úr því nýja gripi sem jafnvel gætu orðið kjörgripir, ef málmblandan væri rétt saman brædd og ekki kæmu brestir við steypinguna. En þá verður hnappasmiðurinn líka að hafa aðra málmblöndu í deiglu sinni en þá, sem núv, ríkisstj. var steypt úr, og vanda betur verk sitt en þegar Ólafur Jóhannesson myndaði ríkisstj. fyrir Geir Hallgrímsson og spengdi hana saman úr brotum sinnar eigin ríkisstj. og sundurþykkum þingmannahópi Sjálfstfl.