02.05.1978
Neðri deild: 91. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4374 í B-deild Alþingistíðinda. (3631)
Umræður utan dagskrár
Sighvatur Björgvinsson:
Virðulegi forseti. Ég ætla að beina ákveðnum fsp. til hæstv. forsrh. Ég held að hann hafi lokið að svara fsp. utan dagskrár í Ed., ef hæstv. forseti vildi gera svo vel og athuga, hvort hann hefði aðstöðu til þess að ganga í þingsalinn (Forseti: Eins og hv. þm. sér hefur nú hæstv. forsrh. gengið í salinn og sé ég ekkert því til fyrirstöðu, að hv. þm. haldi áfram ræðu sinni.) Virðulegi forseti. Ég þakka upplýsingarnar. Mér er ljóst að hæstv. forsrh. hefur miklu meira en nóg að gera þessa dagana, þó að ekki sé hann notaður sem eins konar skálkaskjól fyrir hæstv. iðnrh.
Virðulegi forseti. Þann 7. nóv. árið 1977 lögðu 10 þm. fram beiðni um skýrslu frá iðnrh. um virkjun Kröflu. Í þessari beiðni studdumst við við ákvæði 31. gr. þingskapa Alþingis, þar sem segir að fæst níu þm. geti óskað skýrslu ráðh. um opinbert málefni. Skuli beiðnin prentuð og útbýtt meðal þm. á fundi. Skýrslan skuli síðan prentuð og einnig útbýtt meðal þm. á fundi og ef óskað er skuli taka skýrsluna til umr. Við, þessir 10 þm., sem lögðum beiðni um skýrslu frá iðnrh. um virkjun Kröflu fram á Alþ. 7. nóv. árið 1977, óskuðum þess, að skýrslan yrði tekin til umr. á Alþ. áður en afgreiðsla fjárl. og lánsfjáráætlunar fyrir árið 1978 lyki, en það var, eins og þm. muna, skömmu fyrir jól.
Mjög skömmu eftir að þessi beiðni var fram lögð var hafist handa um gerð skýrslunnar. Júlíusi Sólnes prófessor var falið verkið. Mér er kunnugt að hann lauk því að mestu í desembermánuði árið 1977. Mér var m. a. tjáð rétt áður en Alþ. fór í jólaleyfi fyrir jólin 1977, að líklegt væri, nær öruggt að ég fengi skýrsluna til aflestrar í jólafríi þm. Af því varð hins vegar ekki. Nokkuð var fjallað um skýrsluna í janúarmánuði og þá m. a. Leitað umsagnar hjá Orkustofnun. Ekki síðar en um mánaðamótin jan.-febr. var samningu skýrslunnar lokið. Hún var send til hæstv. iðnrh., sem síðan fjallaði um skýrsluna og sat á henni, eins og sagt er, vikum og mánuðum saman án þess að leggja hana fram hér á hinu háa Alþ. eins og honum ber þingleg skylda til. Það var fyrst mánudaginn 24. f. m. sem skrifstofu Alþingis voru send 70 eintök, klippt og skorin, af skýrslu iðnrh. um Kröflu, eitt eintak á hvern þm. og varaþm. og ekkert aukreitis, — ekkert eintak fyrir blöðin, ekkert fyrir útvarp eða sjónvarp, ekkert fyrir þær stofnanir og þá sérfræðinga, sem skýrslan fjallaði um. Mér var tjáð að síðan væri ætlað að taka skýrsluna til umr. daginn eftir, þriðjudaginn 25. f. m.
Ég gerði þegar í stað aths. við forseta Sþ. um hvernig væri að málinu staðið.
Í fyrsta lagi benti ég hæstv. forseta Sþ. á það, að skýrslu þessari hefði verið dreift á borð þm. eins og gagni sem sent væri frá óviðkomandi aðila, en skýrslunni hefði ekki verið dreift sem þskj. og henni ekki gefið þskj.-númer eins og tvímælalaust ætti að gera.
Í annan stað beindi ég þeim tilmælum til hæstv. forseta Sþ., að skýrslunni yrði dreift formlega strax á næsta fundi, þ. e. a. s. þriðjudaginn 25. f.m.
Í þriðja lagi vakti ég athygli hæstv. forseta á því, að það væri almenn regla, að þskj. væru ekki tekin til umr. samdægurs og þeim væri útbýtt nema með afbrigðum.
Í fjórða lagi benti ég hæstv. forseta Sþ. á það, að þetta mál væri þannig vaxið, að það væri í hæsta máta óeðlilegt, að umr. um það yrðu hafnar með afbrigðum sama dag og skýrslunni var dreift, þannig að hvorki þm. né þeim, sem skýrslan fjallaði um, gæfist tími til þess að athuga hvað í henni stæði.
Forseti Sþ. reyndist sama sinnis í þessu máli og ég. Hann útbýtti skýrslunni formlega úr forsetastól þriðjudaginn 25. f. m., gaf henni þá þskj.-númer. Þá óskaði hæstv. iðnrh. m. a. eftir því að fá að mæla fyrir skýrslunni með nokkrum orðum sama dag og henni var útbýtt, þar eð hann hyggðist halda til útlanda daginn eftir, miðvikudaginn 26. f. m., og umr. að lokinni framsöguræðu hans yrði síðan frestað þar til síðar. Forseta mun ekki hafa þótt þetta rétt málsmeðferð, enda varð ekki af.
Nú í morgun hringdi ég vestan af Ísafirði til hæstv. forseta Sþ. til þess að spyrja hann, hvort líklegt væri að skýrslan um Kröfluvirkjun yrði tekin til umr. áfundi Alþ. í dag að viðstöddum iðnrh. Forseti Sþ. tjáði mér þá, að hann hefði orðið þess áskynja, að hæstv. iðnrh. hefði ekki í huga að koma heim frá útlöndum fyrr en að þinghaldi loknu. Forseti sagði mér einnig, að sér hefði ekki verið kunnugt um þessa fyrirætlun hæstv. iðnrh. fyrr, m. a. ekki þegar hæstv. iðnrh. óskaði eftir því við forseta Sþ. að fá að mæla fyrir skýrslunni þriðjudaginn í síðustu viku og umr. yrði síðan frestað. Af þessu virðist ljóst vera:
Hæstv. iðnrh. hefur af ráðnum hug dregið vikum saman að afhenda Alþ. skýrslu, sem alþm. kröfðust að fá og samin hafði verið, þar til örfáir dagar lifðu eftir af starfstíma þings, að skýrslunni var dreift til þm.
Í öðru lagi er einnig ljóst, að þegar skýrslan var afhent, var hún afhent í eins fáum eintökum og framast var kostur, þannig að t. d. blöðum, ríkisfjölmiðlum og þeim sérfræðingum og sérfræðistofnunum sem um var fjallað í skýrslunni, gafst ekki kostur þess að sjá hana eða fjalla um hana.
Í þriðja lagi var tilraun gerð til þess að útbýta skýrslunni, ekki sem þskj. þannig að hún yrði opinbert plagg og prentuð í þingtíðindum, heldur var skýrslunni dreift meðal þm. í fyrstunni án þess að tilkynnt yrði um útbýtingu hennar úr forsetastól og henni fengið þskj.-númer.
Í fjórða lagi: þegar bent var á þetta, að ekki væri hér í samræmi við þingvenjur að staðið, þá gerði hæstv. iðnrh. tilraun til þess, að hann fengi að mæla fyrir skýrslunni með afbrigðum, síðan yrði umr. frestað. En ráðh. hafði þá þegar afráðið að hverfa af landi brott daginn eftir og koma ekki til baka til landsins fyrr en þingi yrði lokið. Um þetta var hvorki kunnugt forseta Sþ., sem beiðnin var borin upp við, né mér né ég ætla nokkrum öðrum þm.
Nú er hæstv. ráðh. farinn. Forseti Sþ. hefur tjáð mér að hann hafi orðið þess áskynja, að hæstv. iðnrh. hafi ekki í huga að koma aftur til þings, a. m. k. ekki fyrr en þá eftir næstu kosningar. Það er sem sé alger ógerningur, að hann geti flutt Alþ. skýrslu sína um Kröflumálið, eins og þingsköp þó mæla fyrir um að gert skuli. Ef skýrslan er tekin til umr. þrátt fyrir það, eins og unnt er, er sá, sem er ábyrgur fyrir henni gagnvart Alþ., fjarstaddur eins og landflóttamaður.
Virðulegi forseti. Þetta er reginhneyksli. Hæstv. iðnrh. ber ábyrgð á umdeildustu framkvæmd Íslandssögunnar, einhverju mesta fjárhags- og stjórnunarhneyksli sem um getur. Og þegar alþm. beita stjórnarskrárbundnum réttindum sínum til þess að krefja ráðh. um skýrslu um gerðir sínar, eins og þingsköp heimila, þá dregur ráðh. eins lengi og hann framast getur að sinna þeirri beiðni og flýr svo land þegar hann á að standa fyrir máli sínu á Alþ. Við slíka framkvæmd verður ekki unað. Þm. er ætlað af hæstv. ríkisstj., þar með talið þm. stjórnarandstöðunnar, að sitja hér á næturfundum dag eftir dag til þess að afgreiða mál sem ríkisstj. þykir nauðsynlegt að koma fram síðustu þingdagana. En einn af þeim æðstu mönnum, sem eiga að stjórna þessu landi, gerir sér lítið fyrir og fer til útlanda, forðast að standa Alþ. skil á gerðum sínum og tekur ekki þátt í þingstörfum með öðrum þm., eins og t. d. okkur stjórnarandstæðingum er meira að segja ætlað að gera.
Ég óska þess hér með, að hæstv. forsrh. geri þingheimi grein fyrir hverjar ástæður hæstv. iðnrh. hefur til að hverfa á braut nú og taka þá ákvörðun að snúa ekki aftur til þings fyrr en að þinghaldi loknu. Ég fer þess eindregið á leit við hæstv. forsrh., að hann beiti sér fyrir því sem yfirmaður hæstv. iðnrh. og annarra ráðh. ríkisstj., að hæstv. iðnrh. Gunnar Thoroddsen snúi tafarlaust aftur til að sinna þingskyldum sínum.