02.05.1978
Neðri deild: 92. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4391 í B-deild Alþingistíðinda. (3667)

285. mál, sáttastörf í vinnudeilum

Frsm. (Eðvarð Sigurðsson):

Hæstv. forseti. Frv. það, sem hér er til umr., til 1. um sáttastörf í vinnudeilum, gerir ráð fyrir breytingum á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80 frá 1938. Verði frv. þetta að lögum er gert ráð fyrir að III. kafli nefndra laga um sáttatilraunir í vinnudeilum falli niður úr lögunum um stéttarfélög og vinnudeilur og þessi lög komi í staðinn.

Aðalbreytingin, sem hér um ræðir á störfum sáttasemjara, er sú, að starf sáttasemjara verður samkv. þessu frv. gert að aðalstarfi og honum fengið starfslið. Gert er ráð fyrir að félmrh. skipi ríkissáttasemjara til fjögurra ára í senn. Þá er enn fremur felld niður úr núgildandi lögum um stéttarfélög og vinnudeilur skipting landsins í sáttaumdæmi, en landinu hefur verið skipt í fjögur sáttaumdæmi samkv. vinnulöggjöfinni. Hins vegar verður að segja að þessi umdæmisstörf hafa yfirleitt ekki verið mikið virk; má segja kannske að í einu eða tveimur umdæmum hafi þau einhvern tíma á þessum árum, sem liðin eru frá setningu vinnulöggjafarinnar 1938, verið verulega virk. Gert er aftur á móti ráð fyrir því í þessu frv., að ríkissáttasemjari geti kvatt menn sér til aðstoðar við lausn vinnudeilna eða til sjálfstæðrar lausnar í ákveðnum deilum. Gæti það að sjálfsögðu verið afmarkaðar deilur úti á landi og ekkert því til fyrirstöðu að slíkir aðstoðarsáttasemjarar væru þar búsettir.

Ed., en þar var frv. þetta lagt fram, gerði nokkrar breytingar á frv. eins og það var lagt fyrir. Hún gerði eina breytingu á 8. gr. frv., en þar sagði svo í frv.:

„Ef samningaumleitanir sáttasemjara bera ekki árangur, er honum rétt að leggja fram miðlunartillögu. til lausnar vinnudeilu.“

Það var dálítil deila um það eða álitamál, hvernig skilja bæri þessi orð: „er honum rétt,“ hvort það væri skylda sem því fylgdi. Í lögum um sáttatilraunir í vinnudeilum, vinnulöggjöfinni, er nákvæmlega sama orðalag nema þar er sagt: „er honum heimilt,“ og það orðalag var tekið upp í breytingum félmn. Ed. Orðalagið er þá óbreytt frá því sem er í vinnulöggjöfinni núna.

Aðrar breytingar, sem félmn. Ed. gerði á frv., eru á 9. gr. þess. Þær varða atkvgr. um miðlunartillögu sáttasemjara, að athenda skyldi sáttasemjara kjörskrá áður en atkvgr. hæfist og að félagsdómur ætti úrskurðarvald í deilum um kjörskrá, enn fremur að sáttasemjara eða fulltrúum hans væri heimilt að vera viðstaddir kjörfundi. Þetta voru nýmæli frá lögunum eins og þau hafa verið., og að tillögu fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar, sem fóru yfir þetta frv., var þetta fellt niður. Þótti ekki ástæða til að taka þessi ákvæði upp í þessi lög, þar sem ekki væri vitað til að neinn ágreiningur hefði yfirleitt verið um framkvæmd atkvgr. um miðlunartill. sáttasemjara af því tagi sem hér er fjallað um. Ef sáttasemjari eða fulltrúar hans hafa áhuga á því að koma á kjörstaði þegar atkvgr. fara fram, þá mundi sjálfsagt enginn verða til þess að meina honum það. Virðist því ástæðulaust að taka þetta inn í lögin. Og á þetta var fallist.

Þetta eru þær breytingar, sem gerðar voru, og svo breyting á 12. gr., síðustu mgr. hennar, sem leiðir af breytingunni á 9. gr.

Félmn. þessarar hv. d. hefur fjallað um þetta frv. og leggur einróma til að frv. verði samþ. óbreytt eins og Ed. gekk frá því.

Ég vil aðeins nota tækifærið og segja örfá orð um þetta mál, en skal ekki taka langan tíma frá störfum d. á þessum síðustu stundum. Ég vil aðeins geta þess, að hér er farið inn á að breyta vinnulöggjöfinni, og það er sjálfsagt öllum hv. dm. kunnugt, að slíkt er ákaflega viðkvæmt mál. Ýmsar tilraunir hafa verið gerðar til þess á þeim 40 árum sem núv, vinnulöggjöf hefur verið í gildi, en svo til engar breytingar verið á henni gerðar. Vitað er að það eru ýmsar till. á lofti frá aðilum vinnumarkaðarins, hvort sem eru samtök atvinnurekenda eða samtök launafólks, en allar slíkar hugmyndir fara yfirleitt algerlega í gagnstæðar áttir og ekki hefur tekist samkomulag um neinar breytingar að heitið getur. Ríkisstjórnir á ýmsum tímum hafa einnig haft löngun til þess að breyta þessum lögum, en reyndin er sú, að þau hafa verið nær algerlega óbreytt allan tímann.

Æðimikið hefur verið rætt um þessi mál á undanförnum árum og þá ekki hvað síst einmitt þann þátt vinnulöggjafarinnar sem komið er inn á með þessu frv., þ. e. a. s. störf sáttasemjara og sáttastörf í vinnudeilum. Það má segja að aðilar hafi eiginlega verið sammála nú um nokkurn tíma um að starf ríkissáttasemjara væri orðið svo viðamikið að það væri naumast leggjandi á einn mann sem gegndi jafnframt öðrum störfum. Og nú hefur verið flutt frv. sem gerir það að verkum, að starf ríkissáttasemjara yrði gert að aðalstarfi og honum fengið starfslið. Ég ætla ekki og þarf ekki að rekja hér, hve starf sáttasemjara hefur aukist gífurlega mikið á síðari árum. Hann hefur fengið meira starfssvið, m. a. með breytingum á lögum um samningsmál opinberra starfsmanna og annað, þannig að í rauninni virðist augljóst að nauðsynlegt sé að gera þetta starf að aðalstarfi. Raunar eru kannske líka allir sammála um að það sé gott, ef til þessa starfs velst hæfur maður sem báðir aðilar vinnumarkaðarins bera traust til, að hann fjalli meira um þessi mál en verið hefur.

Þetta frv. gerir líka ráð fyrir því, að sáttasemjari geti haft meira frumkvæði í afskiptum af vinnudeilum en lög um stéttarfélög og vinnudeilur gera nú ráð fyrir. Öll venja, sem skapast hefur, hefur líka orðið á þann veg, að það er í raun og veru æðimikið undir valdi þeirra komið, sem í deilum eiga hvenær sáttasemjari kemur inn í málið. Með þeim breytingum, sem felast í þessu frv., ekki aðeins þeirri, að starf sáttasemjarans sé gert að aðalstarfi, heldur einnig með öðrum ákvæðum frv. er sáttasemjara nú gert að fylgjast miklu nánar með gangi mála á hverju stigi og hann getur gripið inn í ef hann telur að slíkt gæti orðið málum til framdráttar.

Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þetta. Ég vildi aðeins undirstrika, að þó að menn fallist á að þessi breyting sé gerð á vinnulöggjöfinni, á kaflanum um sáttatilraunir í vinnudeilum, þá er engan veginn þar með sagt að aðilar vinnumarkaðarins séu endilega sáttir við allt sem í þessu er og hefur verið. Þeir vildu kannske gjarnan hafa eitt og annað á annan veg. En um það er ekki að ræða. Það hefur ekki tekist neitt samkomulag annað en það sem kemur fram í þessu frv., og ég held að allir séu sammála um að það út af fyrir sig sé breyting til batnaðar.

Ég vil aðeins taka það fram, að í 9. gr. þessa frv. er sáttasemjara fengið heldur rýmra vald en í núgildandi lögum um tilhögun á atkvgr. um miðlunartill. Þegar um er að ræða fleiri en einn aðila og sama till. getur snert mörg félög eða fleiri en eitt félag, landssamband, landshlutasamtök o. s. frv., þá getur sáttasemjari hagað atkvgr. þannig, að það sé sameiginleg atkvgr. og talið í einu lagi. Heimild til þessa var einnig í núgildandi vinnulöggjöf, en hins vegar má segja að með orðalagi 9. gr. núna, sem svarar til 30. gr. í núverandi vinnulöggjöf, sé þetta kannske nokkru rýmra og sáttasemjari gæti haft heldur rýmri hendur um það, hvaða tilhögun hann hefði á atkvgr. Orðalagið í þessu efni er þó þannig, að þetta skuli gert í samráði við deiluaðila. Og ég undirstrika sérstaklega þann skilning á þessum atriðum, að ekki verði farnar þær leiðir að hafa sameiginlega atkvgr. eða eina allsherjartalningu frá fleiri en einu félagi eða mörgum aðilum nema um það sé samkomulag deiluaðila. Þetta hefur ævinlega verið svo, og ég reikna með því, að svo verði áfram, og legg sérstaka áherslu á að þessi skilningur sé á framkvæmd þessara ákvæða, hann sé réttur eins og ég hef hér túlkað.

Ég endurtek svo að félmn. leggur til að frv. verði samþ. óbreytt.