08.11.1977
Sameinað þing: 14. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 562 í B-deild Alþingistíðinda. (368)
1. mál, fjárlög 1978
Geir Gunnarsson:
Herra forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hæstv. ráðh. fyrir að láta þm. í té þá skýrslu sem ég það um, og sérstaklega að það skuli vilja svo til að það er á morgun sem hann ætlar að gera það og hefur haft það í undirbúningi. En það, sem ég ætlaði að gera að þessu sinni, var aðeins að leiðrétta það sem kom fram hjá hæstv. ráðh. varðandi fjárveitingar í gjaldfærðan stofnkostnað fyrir Fjölbrautaskólann á Suðurnesjum. Hæstv. ráðh. hélt því fram, að Fjölbrautaskólinn á Suðurnesjum gæti átt von á því að fá hluta af framlögum til byggingar grunnskóla og íbúða fyrir skólastjóra, sem er liður nr. 792 hjá menntmrn. Ég hélt að hæstv. ráðh. vissi að Fjölbrautaskólinn á Suðurnesjum heyrir ekki undir grunnskóla, hann er ekki grunnskóli. Aftur á móti er á sérstökum lið undir menntmrn., lið 353, Fjölbrautaskóli Suðurnesja. Þar er framlögum ríkisins skipt í þá þætti sem þar eru tilgreindir: laun, önnur rekstrargjöld, viðhald og gjaldfærður stofnkostnaður, og þar er upphæðin 5 millj. Þessi upphæð er ætluð til þess að greiða tæki sem þegar er búið að kaupa. Ef ætti að koma framlag til þess að verða við óskum Suðurnesjamanna um byggingu ofan á hús iðnskólans, þá yrði þessi tala að hækka. Það er þess vegna alger misskilningur hjá hæstv. ráðh., að það sé um það að ræða að Fjölbrautaskólinn á Suðurnesjum geti átt von á því að fá hluta af framlagi til byggingar grunnskóla, nema hæstv. ráðh ætli að sjá til þess að sá liður verði lækkaður og sú upphæð í staðinn færð yfir á Fjölbrautaskólana, Fjölbrautaskóla Suðurnesja kannske sem aðra.