03.05.1978
Efri deild: 96. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4397 í B-deild Alþingistíðinda. (3699)

170. mál, Þjóðleikhús

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Ég fagna því, að Nd. hefur gert þá breytingu á frv. sem raun ber vitni og er efnislega að mestu shlj. till. sem ég flutti við 2. umr. málsins í þessari d., en var þá felld. Ég tel að vísu að orðalag á greininni, sem um ræðir, hafi ekki breyst til batnaðar í brtt. Eins og ég flutti hana var þetta orðað á þá leið, að heimilt væri að ráða rithöfund, tónskáld eða aðra höfunda til starfa hjá Þjóðleikhúsinu í allt að eitt ár, en í þeirri útgáfu, sem Nd. hefur samþykkt, er orðið „tónskáld“ fellt niður. Ég hef að vísu ekki orðalagið fyrir framan mig, en þetta mun vera orðað þannig: „Þjóðleikhúsinu er heimilt, eftir því sem aðstæður leyfa, að ráða til starfa leikritahöfund eða aðra höfunda allt að einu ári.“ Ég lít svo á, að í orðinu „höfundur“ geti hugtakið tónskáld innifalist, og lít því svo á, að efnislega sé hér um alveg sömu till. að ræða. Það segir sig sjálft, að vel getur komið til greina að höfundur, sem ráðinn yrði að Þjóðleikhúsinu, fengist við að semja meira en ritað orð. Um gæti verið að ræða samningu óperu eða söngleiks. Ég tel að það sé ekki síður ástæða til þess að heimilt sé að ráða mann af því tagi. Orðið „höfundur“ er vissulega víðtækt orð. Vil ég undirstrika það hér, að ég leyfi mér að skilja það orð þessum víðtæka skilningi, að í því geti einnig falist að heimilt sé að ráða tónskáld, enda þótt orðið hafi fallið niður við afgreiðslu Nd. á málinu.

Ég sem sagt vil undirstrika, að ég tel ekki að túlka megi þá breytingu á till. á þann veg, að tónskáld séu útilokuð þegar um það er að ræða að ráða höfunda að Þjóðleikhúsinu. Að öðru leyti lýsi ég eindregnum stuðningi mínum við þessa breytingu.