03.05.1978
Efri deild: 96. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4404 í B-deild Alþingistíðinda. (3722)
202. mál, embættisgengi kennara og skólastjóra
Frsm. (Axel Jónsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér um ræðir, er Nd.-mál og felur í sér ákvæði varðandi skilyrði sem fullnægja þarf til þess að vera settur eða skipaður kennari við skyldunámsskóla, framhaldsskóla, þ. á m. menntaskóla og sérskóla. Hæstv. menntmrh. greindi ítarlega frá efni frv. við 1. umr. í hv. þd. og sé, ég ekki ástæðu til þess að fara frekar í efni frv., enda eru ítarlegar skýringar við greinar þess.
Menntmn. þessarar hv. d. fjallaði um málið og mælir með samþykkt þess, eins og fram kemur í nál á þskj. 834, en flytur brtt. sem er að finna á þskj. 835. Við afgreiðslu málsins í n, var Þorv. Garðar Kristjánsson fjarverandi.
Það er ákvæði til bráðabirgða sem hér um ræðir: Í fyrsta lagi leggjum við til, að orðin „19. gr.“ falli burt. Það virðist aðeins farið að bera á því, að í stjfrv. sé farið að greinanúmera ákvæði til bráðabirgða. Það hefur komið fyrir áður hér í hv. d., að við höfum breytt slíku.
Bráðabirgðaákvæðið felur það í sér, að við gildistöku þessara laga geti þeir, sem hafa starfað sem kennarar um ákveðinn tíma, — það er lagt til í frv. 6 ár eða lengur, en brtt. n, er um að stytta tímann í 4 ár eða lengur, — en fullnægja ekki skilyrðum laganna til að hljóta skipun í stöður, átt kost á að ljúka námi á vegum Kennaraháskóla Íslands og öðlast slík réttindi.
Á undanförnum árum hefur orðið að setja til kennarastarfa allmargt manna sem ekki hafa full kennsluréttindi samkv. gildandi lögum og geta því ekki hlotið skipun í kennarastöður. Í umr. um þessi mál hefur verið bent á, að æskilegasta lausnin á vanda þessara kennara sé að greiða þeim leið til að afla sér fullra réttinda með viðbótarnámi. Í þessu ákvæði til bráðabirgða er gert ráð fyrir sérstöku átaki við gildistöku laganna um embættisgengi kennara á þann veg, að þeim, sem þá hafa starfað sem settir kennarar við skyldunámsskóla samkv. till. n. 4 ár eða lengur, skuli gefinn kostur á að ljúka á vegum Kennaraháskólans réttindanámi er verði sérstaklega skipulagt í því skyni. Gert er ráð fyrir því, að um tilhögun námsins og mat á fyrri menntun og starfsreynslu verði sett nánari ákvæði í reglugerð.
Ég sé svo ekki ástæðu, herra forseti, til þess að orðlengja frekar um frv. og mæli með því, að það verði samþykkt með þeim breytingum sem ég hef tilgreint.