03.05.1978
Efri deild: 96. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4407 í B-deild Alþingistíðinda. (3731)

14. mál, byggingarlög

Frsm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Herra forseti. Hv. Nd. hefur gert nokkrar breytingar á þessu frv. og því kemur það á nýjan leik til okkar. Þessar breytingar eru allnokkrar að vöxtum, aðallega fyrir það að Nd. hefur fellt niður úr frv. fjórar frvgr. sem hv. Ed. setti inn í frv. Það er um að ræða almennar reglur um byggingarmeistara. Nd. hefur fellt þessar reglur niður á þeirri forsendu, að þessar reglur væri að finna í öðrum lögum og reglugerðum og væri því óþarft að hafa þessar frvgr. inni í þessum lögum.

Ég verð að segja, að ég tel að það sé betri lagagerð að hafa þessar frvgr. inni í lögunum, en hins vegar er hér um algert formsatriði að ræða og þess vegna hefur hv. félmn. Ed. fallist á að láta kyrrt liggja og samþykkja þessar breytingar og aðrar breytingar sem hv. Nd. hefur gert á frv., því að þær eru ekki efnisbreytingar, heldur minni háttar formbreytingar eða leiðréttingar á númerum greina, sem leiðir af því að fjórar greinar eru felldar niður. Félmn. mælir því með að frv. verði samþ. óbreytt eins og það liggur nú fyrir.