03.05.1978
Efri deild: 96. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4407 í B-deild Alþingistíðinda. (3733)

255. mál, söluskattur

Frsm. meiri hl. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur athugað og fjallað um frv. til 1. um breyt. á l. nr. 10 1974, um söluskatt. Meiri hl. n. leggur til að frv. verði samþykkt. Albert Guðmundsson skilar séráliti, en fjarverandi afgreiðslu málsins var Ragnar Arnalds.

Hér er um að ræða breytingu á viðurlögum sem falla á ef söluskattur er ekki greiddur á réttum tíma, og einnig er um að ræða hækkun á dráttarvöxtum sem greiða þarf ef um vanskil á söluskatti er að ræða. Þessi breyting er gerð vegna þess að vextir í landinu hafa hækkað mjög að undanförnu og þess vegna orðið verulegt ósamræmi á milli þeirra viðurlaga, sem hér um ræðir, og dráttarvaxta og þeirra vaxtakjara sem gilda á rekstrarfé og skuldum almennt.

N. gerir till. um að það verði gerð breyting á 2. gr. frv. Þar stendur að lög þessi öðlist gildi 25. apríl 1978. Um það er vart að ræða að svo geti orðið, og þess vegna gerir n. þá till., að lögin öðlist gildi 15. maí 1978 verði frv. samþykkt.

Ég vil að lokum aðeins endurtaka að meiri hl. n. leggur til að frv. verði samþykkt.