03.05.1978
Efri deild: 97. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4420 í B-deild Alþingistíðinda. (3757)
282. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. minni hl. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Um þetta mál mætti halda langa ræðu eins og gefur að skilja. En þar sem við deildarþm. erum í nokkurri tímaþröng af ýmsum ástæðum, þá neyðist ég til að hafa mál mitt ekki mjög ítarlegt.
Það hefur gengið á ýmsu í skattamálum þessarar ríkisstj. og við höfum reynt það, að á hverju ári hefur verið lofað umbyltingu skattkerfisins, allt frá því að þessi ríkisstj. komst fyrst til valda. Það var hins vegar ekki fyrr en á s. 1. ári sem skattafrv. sá dagsins ljós á Alþ., en það náði þó ekki fram að ganga þar sem mjög mikill ágreiningur var um málið, ekki aðeins milli ríkisstj. og stjórnarandstæðinga, heldur einnig í hópi stjórnarsinna sjálfra. Þegar loks er komið að því, að afgreiðsla stendur yfir á skattamálum á Alþ., þá er það svo seint á ferðum að vandræðum veldur og menn geta leyft sér, eins og hv. síðasti ræðumaður, að fleygja fram ýmiss konar tölum og útreikningum um áhrif ákveðinna skattbreytinga, m. a. brtt. sem ég hef flutt, án þess að nokkur aðstaða eða tími sé til að sannreyna þá útreikninga eða fá þá staðfesta af aðilum sem til þess eru færir.
Í fljótu bragði sagt er sjálfsagt að viðurkenna að í þessu frv. eru viss atriði til bóta. En eins og ég hef margbent á eru gallarnir miklu fleiri. Ég hef hiklaust talið það einn af kostum þessa frv., að um er að ræða takmarkaða sérsköttun hjóna. Afnám 50% reglunnar varðandi frádrátt frá tekjum giftrar konu mun leiða til hækkunar á sköttum hjóna þar sem konan hefur haft góðar tekjur. Að því leyti hefði verið eðlilegra að stíga þetta spor í nokkrum áföngum, þar sem hætt er við að þetta geti haft umtalsverð áhrif á atvinnuþátttöku giftra kvenna, en stefnan er í sjálfu sér skynsamleg og rétt.
Megingallar frv. eru hins vegar þeir, að allar horfur eru á því, að skattlagning fyrirtækja og rekstraraðila verði áfram smávaxin. Ég hef flutt á Alþ. ár eftir ár till. um breytingar á skattkerfinu og í grg. með till. hefur fylgt ítarleg skrá um fyrirtæki sem ekki greiða tekjuskatt enda þótt þau hafi umtalsverðar tekjur. Þessar upplýsingar ætla ég ekki að endurtaka hér, en vísa til þessarar seinustu tillögugerðar okkar frá því í vetur, þar sem kemur ljóslega fram að um helmingur atvinnurekstrar í landinu borgar lítinn sem engan tekjuskatt, þ. e. a. s. innan við 100 þús. kr., enda þótt um sé að ræða um helminginn af veitu atvinnufyrirtækja á landinu, þ. e. á árinu 1976 um 160 milljarða kr. Er þá einungis átt við fyrirtæki sem rekin eru í félagsformi, en heildarvelta slíkra fyrirtækja mun á árinu 1976 hafa numið um 325 milljörðum kr.
Það frv., sem hér liggur fyrir, er með þeim ágalla gert, að í því eru fjölmargar smugur frá fyrri tíð, uppvakningar frá fyrri lögum, sem ætlað er það hlutverk að lækka tekjuskatta rekstraraðila og jafnvel nokkrum nýjum bætt við.
Ég verð að fara fljótt yfir sögu. En ég minni á að fyrningarhlutföll eru í flestum tilvikum hærri en þau hafa áður verið í fyrri lögum. Þau eru hærri í öllum tilvikum öðrum en hvað snertir skip og skipshluta.
Endurmat eigna, sem nú er tekið upp, hækkar fyrningargrunninn stórkostlega og það á sinn þátt í því að auka fyrningar. Það er hins vegar rétt, sem fram kom í ræðu hv. þm. Halldórs Ásgrímssonar, að ég hef talið til bóta að taka upp endurmat eigna og ég flyt ekki brtt. við það atriði, vegna þess að ég tel að í sjálfu sér sé skynsamlegt að hverfa að því ráði. En það þýðir ekki að loka augunum fyrir því, að sú regla hækkar fyrningargrunninn og fyrningarhlutföllin þyrftu því að vera að sama skapi lægri.
Söluhagnaður eigna verður sjaldnast skattlagður vegna víðtækrar heimildar til viðbótarfyrningar sem fólgin er í 42. gr. frv. Ég tel að þarna sé um allt of víðtæka heimild að ræða, sem ekki nái nokkurri átt að heimila. Ég viðurkenni að vísu að hugsanlegt væri að flytja aðra till. um þetta efni en ég hef gert, sem hlyti þá að verða allmiklu flóknari. Ég legg einfaldlega til að þessi regla, sem þarna er gerð till. um, sé afnumin. Það virðist vera einfaldasta lausnin þegar ekki er neinn tími til að undirbúa till. Ég tel að það sé út af fyrir sig vel viðunandi lausn, en viðurkenni þó að aðrar leiðir hefði hugsanlega verið hægt að fara. Ég bendi hins vegar á, að þarna er um að ræða heimild, sem felur í sér að heimilt er að fyrna sérstakri viðbótarfyrningu skattskyldan hagnað af sölu, og þá er ekki um það að ræða að menn þurfi endilega að flytja þessa viðbótarfyrningu á sams konar hlut sem þeir eru að kaupa í staðinn, heldur vel hugsanlegt að þeir flytji hana yfir á einhverjar aðrar eignir. Og það er einmitt þess vegna sem þessi regla er alveg sérlega óskynsamleg og mun valda því, að í reynd verður skattskyldur söluhagnaður ekki skattlagður nema í hreinum undantekningartilvikum. Menn fá með þessari reglu tækifæri til þess að fleyta á undan sér skattskyldum hagnaði a. m. k. svo langt fram í tímann að verðbólgan hefur séð fyrir því, að þegar þetta loks kemur til sköttunar verður um mjög óverulega sköttun að ræða.
Í fjórða lagi bendi ég á, að skattstigi lögaðila, — það eru fyrst og fremst félög sem átt er við, — er lækkaður í þessu frv. úr 53% í 45%. Þar er um stórkostlega nýja ívilnun að ræða. Ég sé ekki að það séu nokkur rök fyrir þessari breytingu. Að vísu má benda á að við upptöku staðgreiðslukerfis skatta er áætlað að skattleggja hagnað líðandi stundar, en ekki hagnað frá fyrra rekstrarári, og sennilega eru það rökin fyrir því, að hér er um að ræða lækkun á skattstigahlutfalli. Þessi rök eru ákaflega hæpin í raun og veru. Ég sé ekki að í raun og veru sé neitt réttlæti í því, að fyrirtæki hagnist á því að vera að greiða skatt af tekjum liðins árs, þegar krónurnar voru meira virði en þær eru þegar þær komu til gjalda. Ef ekki væri verðbólga í þjóðfélaginu, þá yrðu þessi fyrirtæki að greiða 53% af tekjum, sem væru þá miðaðar við jafngildar kr., og það teldi ég alveg eðlilegt og sjálfsagt. Mér virðist að ákaflega erfitt sé að réttlæta það að lækka prósentuna í skattstiga félaga út á það eitt, að það sé verðbólga í þjóðfélaginu og verið sé að taka upp staðgreiðslukerfi skatta. Það eru í raun og veru engin rök. Það gildir ekki alveg nákvæmlega sama um þetta atriði hjá einstaklingunum þar sem um það er að ræða að launafólkið hefur orðið að taka á sig stórfelldar nýjar skattaálögur í formi aukinna neysluskatta og hækkaðs söluskatts þegar verðbólgan hefur rýrt tekjur ríkissjóðs af tekjuskatti. Það hefur tekið á sig þessa byrði. En ég veit ekki til þess að félögin og lögaðilarnir hafi raunverulega tekið á sig nokkra samsvarandi byrði, því að þeir velta söluskattinum jafnóðum út í verðlagið. Ég er því andvígur því, að um sé að ræða lækkun á skattstiga félaga, og tel það óeðlilega ívilnun.
Þá er hér ákvæði um fenginn arð af hlutabréfum eða hlut í fyrirtæki, að allt að 1/2 millj. kr. hjá hjónum megi vera skattfrjáls. Þetta er regla sem reynt var að smygla inn í skattalög árið 1971 af gömlu viðreisnarstjórninni. Alveg nákvæmlega sama fyrirbærið er hérna á ferðinni. En það var einmitt fyrsta verk okkar Alþb.-manna með aðstoð samstarfsmanna okkar, framsóknarmanna, að nema þetta burt úr skattalögunum í ársbyrjun 1972 þegar skattalögin voru tekin til endurskoðunar. Og ég hefði talið það til meiri heilla, að kunningjar mínir í Framsfl. hefðu staðið áfram fast á því að regla af þessu tagi næði ekki fótfestu í skattalögum.
Þá má minna á ívilnunarregluna, sem snertir andvirði vörubirgða sem kemur til lækkunar á skattskyldum tekjum allt að 30% af reiknuðu matsverði vara, og svo gömlu ívilnunarregluna um að félögum sé heimilt að leggja til hliðar fjórðung af hagnaði áður en skattur er á lagður. Ýmsar fleiri ívilnunarreglur mætti nefna, en samanlögð áhrif af öllum þessum smugum hljóta að verða þau, eins og segir í grg. minni, að verulegur hluti atvinnurekstrar í landinu sleppur með að borga lítinn sem engan tekjuskatt.
Ég ætla nú að gera grein fyrir þeim brtt., sem ég hef flutt við frv. Ég vil fyrst nefna brtt., sem lúta að því, að skattlagning rekstraraðila verði með eðlilegum hætti.
Þar er um að ræða brtt nr. 1.a, um að frádráttur vegna fengins arðs falli niður. Á það hef ég þegar minnst og fært að því rök. Í öðru lagi er till. nr. 2, sem felur í sér lækkuð fyrningarhlutföll. Í þriðja lagi er till. nr. 3, um að viðbótarfyrning af skattskyldum hluta söluhagnaðar falli niður. Og í fjórða lagi er till. nr. 7, að tekjuskattur lögaðila, skattstigi, hækki úr 45% í 53% eins og hann er nú
Ég vísa orðum hv. þm. Halldórs Ásgrímssonar á bug, að með brottfalli viðbótarfyrningar á skattskyldum hluta söluhagnaðar sér verið að stöðva þróun í íslenskum atvinnuvegum. Ég tel að þessi söluhagnaður eigi að koma til skattlagningar og það sé svo sannarlega tími til kominn að hann komi til skattlagningar þegar eignin er seld, og heimildir til þess að fleyta honum eitthvað langt fram í tímann eru einfaldlega heimildir til þess að skjóta þessum hagnaði undan.
Ég vík svo næst að lækkun skatta af lágum tekjum og hækkun af háum tekjum með brattari skattstiga. Þar er um að ræða sams konar till. og fram kom í Nd. um að skattur af lágum tekjum verði lækkaður úr 18% í 15% og úr 26% í 24%, en hækkaður af háum tekjum. Ég tel eðlilegt að persónuafsláttur sé hækkaður, en það leiðir til hækkunar á skattleysismörkum, og að barnabætur séu auknar. Að því lúta till. nr. 5. a og 6.
Ég tel sjálfsagt að undanþiggja nær alla tekjuskatti, sem náð hafa 67 ára aldri, með því að veita þeim tvöfaldan persónuafslátt. Þessir menn greiða rúma 2 milljarða í skatta, þar af rúman 1 milljarð í tekjuskatt, 1 milljarð í útsvar og 200 millj. í sjúkragjald. Ég tel að þetta fólk ætti að vera skattlaust af venjulegum tekjum. Það er hægt að skattleggja hátekjufólkið í þessum hópi, en með því að hækka persónuafsláttinn er verið að gera þetta fólk skattlaust af venjulegum tekjum og það á það sannarlega skilið.
Ég flyt till. um að gera leigu fyrir íbúðarhúsnæði frádráttarbæra frá skatti, allt að 25 þús. kr. fyrir einstakling og 50 þús. kr. fyrir hjón, með þeim rökum að eigin leiga er ekki lengur talin til tekna hjá íbúðaeigendum. Þetta mundi hins vegar stuðla að betra framtali af hálfu íbúðareigenda og er tvímælalaust til bóta að því leyti.
Í ellefta lagi flyt ég till. um að hækkun skattvísitölu fylgi hækkun tekna milli ára og að þetta verði bundið í lögum þannig að menn geti ekki leyft sér samskonar hundakúnstir og hæstv. fjmrh. leyfir sér nú um þessar mundir. Hann hækkar skattvísitöluna með stuðningi Alþ. minna en nam tekjum milli áranna 1976 og 1977 með þeim afleiðingum, að skattabyrði á almenning verður miklu þyngri á n. k. sumri en hún ætti að vera að öllu eðlilegu.
Áður en ég hverf frá þessum brtt. verð ég að fara örfáum orðum um útreikninga hv. frsm. n. sem hann hafði uppi hér áðan. Hann nefndi stórar tölur um hvað till. mínar hefðu í för með sér mikil útgjöld og tekjumissi fyrir ríkissjóð, án þess að nefna nokkuð hvaðan hann hefði þær upplýsingar, hvernig þær væru reiknaðar og hversu áreiðanlegar þær væru. Ég verð nú einfaldlega og ekki síst á þessu stigi málsins að draga upplýsingar hans stórlega í efa. Ég er ekki viss um það og hef ekki verið sannfærður um það, að hér sé um réttar tölur að ræða. Ég nefni bara eitt atriði, sem flýgur í huga minn í þessu sambandi. Er ekki dálítið erfitt að trúa því, ég er ekki að neita því alfarið, ég vil fyrst sjá útreikningana, en ég segi aðeins: er ekki dálítið erfitt að trúa því, að þegar fyrir liggur að tekjuskattur einstaklinga er áætlaður á árinu 1978 12 milljarðar kr., þá hafi lækkun á skattstiga úr 18% í 15% í för með sér að helmingurinn af öllum þessum tekjuskatti detti niður? Þetta þykir mér ótrúleg útkoma, enda þótt ég sé ekki að fullyrða að þetta sé rangt út reiknað. Ég bið hins vegar hv. þm. að fara aftur með forsendurnar, sem hann hefur í höndunum, til hinna reikningsglöggu manna og biðja þá að reikna þetta dæmi út á nýjan leik, því að þessum útreikningi trúi ég ekki fyrr en ég sé hann fyrir framan mig, að helmingurinn af tekjuskatti einstaklinga detti niður við það að prósenta á lægsta skattþrepi lækki úr 18% í 15%. En þetta var stærsta upphæðin, sem hann nefndi. Ég vefengi enga af þessum tölum sem hann kom með, vegna þess að ég hef enga aðstöðu til þess. Hann nefndi ekki einu sinni, hvaðan hann hefði heimildir sínar eða hvernig þær væru reiknaðar út. En ég hefði talið eðlilegra að hv. þm. hefði komið með þessar upplýsingar á nefndarfundi og hefði þá gefið nm. færi á því að sjá, hvernig dæmið væri reiknað. T. d. kom þessi till. um lækkun á skattstiga úr 18% í 15% fram í Nd. fyrir viku og hann hefði vafalaust getað upplýst n. um það, hvaða afleiðingar þessi till. hefði. (HÁ: Það var upplýst í Nd.) Ja, ég á nú ekki sæti í Nd. og fylgdist ekki með umr. þar, en ég hefði talið að þessar reikningskúnstir hefðu gjarnan mátt koma fyrir augu okkar nm. í Ed. úr því að þær eru á annað borð viðhafðar. Og ekki hef ég neitt reikningsapparat á bak við mig til að reikna út slíka hluti. En hefði verið kostur á því, þá hefði verið vel hugsanlegt að nýta sér það. — Ég segi sem sagt það eitt, að mér þykja þessar tölur sumar hverjar ótrúlegar, en vefengi þær ekki á þessu stigi málsins. Mér þykir hins vegar dálítið kynlegt, að hv. þm. skuli bara pilla út eina og eina till., sem ég geri hér, og koma með útreikninga um hvaða afleiðingar þær till. hafi, en hafi ekki uppi neina tilburði að reikna út aðrar till. sem ég hef hér flutt og flestar eru til hækkunar. Hann pillar út þá liði í till. mínum sem honum líst væntanlega best á, þykir líklegast að njóti almannahylli, en hitt, sem horfir til tekjuauka fyrir ríkissjóð, skilur hann eftir. Hann gerir enga tilraun til að reikna það út og hefði þó ekki verið minni ástæða til þess. Ég vil minna á, að þm. hafði stór orð um að 3. brtt. mín hefði stórfelldar afleiðingar og hefði því ekki verið síður ástæða til þess að reikna hana út, gera einhverja áætlun um hana. Ef á annað borð á að reikna út þessa till. nákvæmlega, þá er best að gera það bæði í debetreikning og kreditreikning og sjá hvað út kemur.
Ég er a. m. k. sannfærður um eitt, að till. mínar munu hafa í för með sér stórfelldan tekjuauka fyrir ríkissjóð á þessu ári og hinu næsta, og það veit ég að hv. þm. vefengir ekki. Í till. mínum er gert ráð fyrir því, að breyting verði gerð á núgildandi skattalögunum, sem varða skattálagningu á árunum 1978 og 1979, vegna þess að fyrir liggur að þetta frv., sem hér er verið að ganga frá, á ekki að taka gildi varðandi skattálagningu fyrr en komið er fram á mitt næsta kjörtímabil. — Hér er auðvitað fyrst og fremst um kosningamál að ræða, en ekki að menn séu af fúlustu alvöru að koma sér saman um hvernig skattalögum verði best komið fyrir. Ég efast ekki eitt andartak um að þetta frv., ef að lögum verður, þessi lög, sem hugsanlega verða sett að fáum dögum liðnum, eiga eftir að taka miklum og stórfelldum breytingum áður en kemur til álagningar samkv. þeim. Þau taka sennilega breytingum þegar í haust, og það gerir svo sannarlega ekkert til. Þau eiga ekki að taka gildi fyrr en 1. jan. 1979 og ég tel langlíklegast að þau taki enn frekari breytingum áður en til skattálagningar kemur samkv. þeim.
Eins og kemur fram í nál. mínu, þá er 9. brtt. um afnám nokkurra ívilnunarreglna núgildandi laga og þá fyrst og fremst um verðstuðulsfyrningu, flýtifyrningu og viðbótarfyrningu vegna skattskylds hluta söluhagnaðar. Ég legg til að þessar heimildir verði allar felldar niður. Mér þætti vænt um að hv. þm., sem er svo talnaglöggur sem raun ber vitni, stæði ekki upp til að flytja aðra ræðu fyrr en hann gæti fært okkur upplýsingar um hversu mikið ríkissjóður hagnaðist á þessari breytingu á árinu 1978 og 1979. Ég efast ekki um að hann hefur mikla reiknimaskínu á bak við sig, og mér væri kært að hann yrði með upplýsingar um þessi atriði í pússi sínu næst þegar hann tekur til máls, sem væntanlega verður ekki fyrr en n. k. föstudag, þegar framhaldsumr. verður.
Ég vil svo að lokum segja það eitt, að ég tel að frv. sé meingallað. Það snertir lítt þann meginvanda sem við er að glíma. Ég minni á, að enn er tími til stefnu að breyta þessu frv. og jafnvel hugsanlegt að gera það á n. k. hausti. Ég undirstrika því, að verði till. mínar felldar nú við 2. umr., þá mun ég leggja til við 3. umr. að málinu verði vísað til hæstv. ríkisstj. svo að henni gefist færi á í sumar eða næstu ríkisstj., sem tæki við að loknum kosningum, að endurskoða málið og flytja nýtt skattafrv. á næsta hausti.