03.05.1978
Efri deild: 97. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4429 í B-deild Alþingistíðinda. (3759)
282. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Bragi Sigurjónsson:
Herra forseti. Mér þykir hlýða að gera nokkra grein fyrir afstöðu minni til þessa frv., en skal reyna að vera mjög stuttorður. Ég vil þó fyrst átelja þau vinnubrögð hæstv. ríkisstj. að láta svo mikilsvert og margslungið frv., sem snertir nær alla þegna landsins, þ. e. afkomu þeirra í einni eða annarri mynd, koma svo seint fyrir augu alls þorra þm. og knýja það síðan á fáum dögum gegnum þingið án þess að kostur gefist á að skoða það nógu gaumgæfilega eða hlusta á raddir hinna ýmsu hópa þegnanna um viðhorf þeirra til frv. Þetta finnst mér mjög ólýðræðisleg vinnubrögð og háskaleg fyrir virðingu þings og stjórnar, — vinnubrögð sem eru raunar ekki einsdæmi fyrir þessa ríkisstj. þótt mér finnist hún hafa þessa síðustu þingdaga beitt þeim í ríkari mæli en dæmi munu finnast til. Vinnubrögð þessu lík munu ekki síst undirrót þess, hve afgreiðsla þingmála nýtur takmarkaðrar virðingar.
Það liggur í augum uppi að lagasmið, sem svo mjög snertir afkomu manna sem sköttun tekna og eigna, hlýtur alltaf að vera umdeild. Það, sem sumum finnst rétt og gott, finnst öðrum hróplegt ranglæti. Síðast var skattalögum breytt 1971–1972, og frá þeim tíma hafa oft farið fram ítarlegar og gagnlegar umræður um skattakerfið. Hafa verið bornar fram athyglisverðar till. til breytinga og lagfæringa, sem sumar hafa greinilega haft áhrif á mörkun þess frv. sem hér liggur fyrir. Nefni ég þar fyrst sérsköttun hjóna, ákveðin og hækkandi skattfrelsismörk einstaklinga, skattlagningu launa við eigin atvinnurekstur og skattlagningu söluhagnaðar eigna. En á öll þessi atriði hefur Alþfl. lagt áherslu í tillöguflutningi sínum á Alþ. undanfarin ár. Sömuleiðis bendi ég á nokkra lagfæringu á fyrningarreglum. En á nauðsyn úrbóta þar hefur t. d. hv. 5. þm. Norðurl. v. lagt oft þunga áherslu hér í d. með tillögu- og ræðuflutningi. Og ég tel að frv. hefði þurft að ganga lengra til móts við þær till. Einnig tek ég undir þá gagnrýni hans og fleiri, að frv. þetta, þó að lögum verði, mun ekki hindra að ýmis fyrirtæki og einstaklingar munu eftir sem áður smjúga skattlaust gegnum möskva skattkerfisins; þótt áhorfendum sýnist slíkt ekki geta verið réttlátt miðað við þá eyðslu sem þeir auðsjáanlega veita sér, og geta, þó að þetta frv. gangi í gegn, auðveldlega velt af sér skattbyrði yfir á aðra.
Enda þótt ég telji breytinguna frá samsköttun hjóna til sérsköttunar tvímælalaust réttarbót, leynist mér ekki að sú breyting við niðurfellingu 50%-reglunnar, sem svo er nefnd, hlýtur að koma illa við stóran hóp launþega. Ég harma því, að hv. Nd. sá sér ekki fært að samþykkja till. þm. Alþfl. þar við 68. gr. frv., því að það hefði létt stórum hópi þessa breytingu. Þar sem ég þykist þess hins vegar fullviss, að framgangur þessa frv. sé þegar ráðinn hér í d. án efnislegra breytinga, vil ég ekki tefja tímann með því að endurflytja þessa till., þó í breyttri mynd væri.
Sama er að segja um þá till. Alþfl. í Nd, við 30. gr. frv. að leyfa 12% frádrátt tekna í stað 10% fremur en framtal sundurliðaðra frádráttarliða. Tel ég að hún hefði verið aukin réttarbót fyrir margt láglauna- og miðlaunafólk.
Ég vil taka undir aths. hv. 12. þm. Reykv. varðandi 1. tölul. 4. gr. og benda á, að í núgildandi lögum er forsetinn aðeins tilgreindur, en ekki maki. Þá vil ég og taka undir aths. hans varðandi 4. tölul. sömu greinar, að réttmætt sé að taka þar fram, að gagnkvæmni sé skilyrði.
Þá veit ég að aths. hv. 1. landsk. þm., Jóns Árm. Héðinssonar, við 59. gr. frv. hafa margt til stuðnings sér og mun greinin verða erfið í framkvæmd. Þó tel ég hana ekki mega missa sig nema betra komi í staðinn.
Ég tel augljósan galla á frv., að það þrengir frádráttarkosti námsmanna að loknu námi, en einmitt fyrstu árin eftir námslok reynast ýmsum kostnaðarsöm. Sýnist mér gildandi regla námsmönnum hagfelldari en sú sem frv. gerir ráð fyrir.
En þó að ég telji margt miður í þessu frv., svo sem að skattfrelsismörk launþega séu of lág, fyrningarreglur enn of rúmar og þokukenndar, nokkuð ljóst að margur háfur mun enn smjúga klakklaust um möskva skattálagningar sér til léttis, en öðrum til aukins skattþunga, námsmönnum sé fremur íþyngt en hitt, og fleira mætti upp telja, þá tel ég þó að frv. þetta, ef að lögum verður, sé lagabót í heild skoðað frá gildandi lögum, svo sem sérsköttun hjóna, réttlátari álagningarreglur gagnvart einstæðum foreldrum, að tekin skuli upp skattlagning á söluhagnaði eigna og á launum við eigin atvinnurekstur. Nokkur fleiri atriði gæti ég tínt hér til, en tímans vegna skal því sleppt. Með þessa niðurstöðu í huga, að lagfæringarnar vegi þyngra en ókostirnir, mun ég fylgja frv. þessu, en áskil mér þó að sjálfsögðu rétt til að fylgja brtt. ef mér sýnist svo.