03.05.1978
Efri deild: 98. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4434 í B-deild Alþingistíðinda. (3770)

240. mál, heilbrigðisþjónusta

Ásgeir Bjarnason:

Herra forseti. Eins og þegar hefur komið fram í þessum umr. hafði heilbr.- og trn. ekki mikinn tíma til að athuga þetta frv. Satt best að segja er ekki svo langt um liðið síðan þeirri skipan í læknisþjónustu var komið á sem nú gildir og á að breyta með frv. þessu. Vera má að það sé eitthvað í þessu frv. sem er aðkallandi, um það skal ég ekki dæma.

Ég hafði ritað undir nál. með fyrirvara sem byggist fyrst og fremst á því er varðar það læknishérað sem ég tel mig nokkru máli skipta, Stykkishólmsumdæmi, þar sem í fyrsta lagi á að taka Flateyjarhrepp á Breiðafirði frá þjónustustarfsemi í Stykkishólmi og fela læknishéraðinu á Hólmavík. Nú ætla ég ekki að dæma um það, hvort hægt verður að sinna þeirri læknisþjónustu nægjanlega frá Hólmavík, en mér finnst harla ótrúlegt að aðstaðan verði betri fyrir Flateyjarbúa að fá sína þjónustu þaðan að norðan en úr næsta nágrenni, frá Stykkishólmi.

Í öðru lagi vil ég benda á 3. lið að því er varðar Stykkishólmsumdæmi: Búðardalur H 2 sem er nú starfssvæði allra hreppa Dalasýslu og Austur-Barðastrandarsýslu. Það er gert ráð fyrir því í þessu frv., að austustu hreppar Barðastrandarsýslu, þ. e. Geiradalur, Reykhólasveit, Gufudalssveit og Múlahreppur, tilheyri Hólmavík. Vera má að það sé líka hægt að þjóna þeim hreppum betur frá Hólmavík en frá Búðardal. En margt finnst mér benda til þess, að það fólk, sem þarna býr, fái betri þjónustu frá Búðardal en frá Hólmavík.

En hvað um það, það, sem mér finnst á skorta í frv. þessu er, að þegar haft er í huga að þarna á að skipta umdæmi þessu, sem stendur að heilsugæslustöðinni í Búðardal og hefur tekið á sig vissar byrðar í uppbyggingu þar, þá er hvergi neitt ákvæði um hvaða háttur verður á hafður í fjármálum þegar slík breyting verður gerð, um það hvort Austur-Barðstrendingar eigi að fá endurgreitt þegar þeir flytja til Hólmavíkur og byrja á því að byggja þar upp læknisþjónustu sína ásamt þeim sem þar eru fyrir og hver kaupir þeirra hlut í stofnkostnaði.

Ég leyfi mér líka að benda á að þegar lög um heilsugæslu voru lögfest fyrir 5 árum, þá var það talin lágmarksstærð, að á einu heilsugæslusvæði væru 1500–2000 manns, og þar af leiðandi væru íbúar á þessu heilsugæslusvæði, þ. e. Dalasýslu ásamt Austur-Barðastrandarsýslu alveg á mörkum þess að vera nógu margir. En hvernig verður þá með rekstur heilsugæslustöðvarinnar í Búðardalshéraði einu saman, þegar Austur-Barðstrendingar eru ekki lengur með? Mér finnst þetta vera nokkur spurning, og þetta hlýtur að valda mikilli fjárhagslegri röskun, ekki bara að því er varðar stofnkostnað, heldur einnig og ekki síður að því er varðar rekstrarkostnað, þó maður haldi sig eingöngu við fjárhagshliðar þessa máls en ekki þá heilbrigðisþjónustu sem þarf að veita öllu þessu fólki í framtíðinni. Ákvæði um þessi efni eru öll óviss í frv., bæði að því er varðar skiptingu á stofnkostnaði og rekstrarkostnaði, ef um breytingar verður að ræða í framtíðinni. Ég tel breytingu þessa því óþarfa og ekki til bóta og mun ekki greiða þessu frv. atkv.