05.05.1978
Efri deild: 99. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4465 í B-deild Alþingistíðinda. (3838)
136. mál, veiting ríkisborgararéttar
Frsm. (Ingi Tryggvason):
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hv. 5. þm. Norðurl. e. fyrir þessa mjög svo athyglisverðu ræðu, sem hann flutti hér, og fyrir að hafa svo vakandi auga með íslensku máli sem raun ber vitni, því að vissulega er það rétt, að þetta er ekki vel að orði komist. Ég verð að viðurkenna það, að þessi 2. gr. hefur hlotið fremur fljótfærnislega afgreiðslu í allshn., og ég treysti mér ekki til þess, án þess að athuga það, að fullyrða að þarna sé farið eins að og hefur verið á undanförnum árum. Ég hygg, að þarna hafi verið breytt um og í staðinn fyrir að áður hafi staðið í lögum að menn skuli taka sér íslenskt nafn, þá komi allt í einu inn þetta orð: fornafn.
Nú hef ég þann skilning á orðinu fornafn sem kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni og ætla ekki að útskýra það nánar. Hins vegar finnst mér að e. t. v. gæti verið vafasamt að tala um skírnarnafn, ef menn skyldu alls ekki vera skírðir og alls ekki vilja láta skíra sig. Þess vegna vil ég nú mælast til þess við hv.flm. munnlegrar brtt., að hann dragi brtt. sína til baka til 3. umr. og n. fái tóm til að athuga þetta mjög svo athyglisverða og vandasama mál og gera e. t. v. till. flm. að sinni eða gera aðrar þær breytingar sem n. kynni að hafa áhuga á.