05.05.1978
Efri deild: 99. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4466 í B-deild Alþingistíðinda. (3839)
136. mál, veiting ríkisborgararéttar
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Ég hlýt að biðja hv. síðasta ræðumann, Inga Tryggvason, velvirðingar á því, að mér láðist að gera það sem ég ætlaði þó í fyrri ræðu minni, að taka það fram, að mér væri alveg ljóst að hv. formaður allshn. Ed. stæði mér á engan hátt að baki í mati á orðalagi sem þessu, og mér var það ljóst að honum hefði eflaust yfirsést þarna og þeim nm. Ég er fús til þess að fallast á uppástungu hans um að þarna komi í stað fornafns beinlínis: íslenskt nafn. — Mér er ekki alveg ljóst að aths. hans fenginni, hvort nafnorðið „skírnarnafn“ felur það í sér, að nafnið hafi verið gefið samkv. kristnu eða kirkjulegu ritúali. Þó ætla ég að það kunni að vera, því að ekki minnist ég þess, að orðið komi fyrir í fornum sögum okkar fyrr en eftir kristnitöku. Vildi ég síst verða þess valdandi, að við misnotuðum á þann hátt tæknilegt, trúfræðilegt orð, þar sem ætla má, eins og hv. síðasti ræðumaður sagði, að ýmsir af þessum útlendingum, verðandi Íslendingum, komnir víðs vegar utan úr heimi, þar sem hin ólíkustu trúarbrögð ríkja, víðast hvar langt umfram kristna trú, séu þess fýsandi, hinir eldri þeirra, a. m. k. sumir hverjir, ekki síst þeir sem kunna að hafa verið aldir upp við algerlega guðlausan kommúnisma, en þeir kjósi e. t. v. að velja sér nafn á einhvern látlausari hátt heldur en þann að ganga undir skírn.
En ég vil sem sagt ítreka þetta aftur, að mér láðist strax í upphafi máls um þetta atriði að taka það fram, sem ég veit fullvel, að þarna er ekki um að kenna hæpnum málsmekk hjá hv. þm. Inga Tryggvasyni, formanni allshn. En þau gerast nú mörg málin sem að kalla til afgreiðslu á þessum síðustu dögum og tími lítill til þess að rýna í orðalag og stíl, enda kynni það að koma í ljós seinna, og er þar ekki um hrakspá að ræða af minni hálfu, að brátt verði þörf á því að gera breytingar á ýmsum þeim lögum og þingsályktunum sem samþ. eru nú á þessum síðustu dögum fyrir hvítasunnu.