05.05.1978
Neðri deild: 99. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4510 í B-deild Alþingistíðinda. (3894)
309. mál, almannatryggingar
Frsm. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Heilbr.- og trn. kom saman á örstuttum fundi og leit á tvær brtt., ræddi þær og gerði shlj. samþykkt um að standa að flutningi þeirra. Brtt. liggja nú fyrir á þskj. Hin fyrri þeirra, sem er við 8, gr., er til þess flutt að afmarka betur heimildarákvæði um ferðakostnað sjúklinga sem þarfnast ítrekaðrar læknismeðferðar eða meðferðar í sjúkrahúsi. Síðari brtt., við 10. gr., er nánast leiðrétting, sem leiðir af þeirri samsteypu tveggja frv. sem voru grundvöllurinn að þessu frv. Ég gerði raunar grein fyrir þeirri brtt. í framsögu við 1. umr. málsins og hygg að ekki þurfi fleiri orðum að fara um það. Fleiri brtt. hefur n. ekki lagt til að gerðar verði.