17.10.1977
Sameinað þing: 4. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í B-deild Alþingistíðinda. (39)

Umræður utan dagskrár

Eðvarð Sigurðsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að ræða þessi mál mjög ítarlega eins og þau standa nú. En það eru aðeins örfá atriði sem ég vildi koma inn á og þá alveg sérstaklega það atriði sem varðar endurskoðunarrétt og kröfu BSRB um endurskoðunarrétt á samningnum á samningstímabilinu, ef vissar forsendur eru fyrir hendi.

Ég vil aðeins fyrst segja það, að staða opinberra starfsmanna samningslega hefur verið í stórum dráttum æðilengi ekki sjálfstæð, heldur verið eins konar taglhnýting við aðra varðandi sín kjör. Samningsrétturinn frá 1962 breytti þessu ekki í neinum verulegum atriðum, einmitt vegna þess að verkfallsréttinn skorti. Með lögum frá s.l. ári, þegar verkfallsrétturinn fékkst fram, átti þessu tímabili í samtökum og kjarabaráttu opinberra starfsmanna að vera lokið. Og ég veit að allir þeir, sem eitthvað hafa við félagsmál fengist og ekki hvað síst kjaramál, skilja þessa afstöðu ákaflega vel. Og það er afar mikill misskilningur, ef hæstv. ráðh. og ríkisstj. ætla sér að leggja þungann á það að láta ekki opinbera starfsmenn sitja við sama borð og önnur samtök launamanna í landinu hvað þetta áhrærir. Ég vil fullyrða, að hér er ekki um atriði að ræða sem fyrst og fremst varðar útgjöld. Hér er í rauninni um mannréttindi að ræða.

Ég ætla ekki að fara neitt að ræða hér út af fyrir sig launamál opinberra starfsmanna. Það er mái sem varðar samtök þeirra og viðsemjendur, og á þessu stigi ætla ég ekki að koma inn á þau. En ég held að þetta atriði sé mjög veigamikið þegar um er að ræða sjálfstæðan samningsaðila, og það vil ég undirstrika að opinberir starfsmenn eiga nú að vera orðnir, lögin áttu að skapa þeim þennan rétt.

Það er margt sem sjálfsagt kæmi til álita, ef menn færu að ræða um það hvers vegna þessi staða er nú komin upp, hvers vegna samningar tókust ekki án verkfalls. Ég er í engum efa um það, að þarna kemur áreiðanlega til að verulegu leyti reynsluleysi beggja. Það er ekki nokkur vafi á því, að þetta svokallaða lokatilboð ríkisstj. gerði ákaflega mikið til þess að skella öllum hurðum aftur. En ég vil einnig benda á að lögin sjálf, eins og þau eru og áttu að vera sérstök fyrirmynd og ýmsir höfðu held ég, sterkar vonir um að gætu orðið að fyrirmynd að lögum fyrir hinn almenna vinnumarkað, þessi lög reynast svo meingölluð, að það er kannske á valdi hvorugs aðila að afstýra því, að svona fari eins og nú fór. Með allri uppbyggingu á sáttatilraunum o.s.frv. er allt svigrúm til samninga svo þröngt, að það eru afar miklar líkur til og hlutu að verða miklar líkur til að svo færi eins og nú fór þegar einnig kemur til, að hér er um frumraun að ræða.

Það, sem ég ætlaði fyrst og fremst að leggja áherslu á, endurskoðunarrétturinn. Ég dreg afar mikið í efa að það sé rétt fullyrðing, sem hæstv. forsrh. viðhafði hér áðan, að það sé ekki hægt að semja um þennan endurskoðunarrétt að óbreyttum lögum. En ekki aðeins dreg ég hana í efa, ég álit að það sé röng fullyrðing. Ég skal ekkert um það segja, hvað menn hafa með sjálfum sér hugsað þegar þessi lög voru sett. Það er ekki mitt að dæma um. En lögin sjálf segja þetta ekki, það gera þau ekki. Það, sem hæstv. fjmrh. las hér áðan upp úr blaðinu Ásgarði um afstöðu forustumanna BSRB, snerti atriði ef aðrir fengju launahækkun, þá skyldi þessi endurskoðunarréttur vera fyrir hendi. Það er ekki þetta sem BSRB er að fara fram á. Það vill sjálft með sínum samtökum og með sömu réttindum og aðrir launþegar í landinu hafa þennan möguleika, þ.e.a.s. að tryggja kjör umbjóðenda sinna. Þetta er það sem málið snýst um, en ekki hvort af borði eins eða annars falla einhverjir molar af líkri stærð og fallið hafa til annarra. Það er ekki það sem þeir eru að biðja um. Og í þessu efni vil ég benda á að almennu verkalýðsfélögin hafa í sínum samningum æðilengi haft uppsagnarákvæði, stundum varðandi allan samninginn, stundum varðandi kjaraákvæðin, þ.e.a.s. launaákvæði þeirra, ef tilteknar ráðstafanir yrðu gerðar af hálfu opinberra aðila eða ef tiltekin kjararýrnun ætti sér stað, svo sem vegna gengisfellingar eða annars slíks.

Í þeim samningum, sem gerðir voru í vor, svokölluðum sólstöðusamningum, eru tvær greinar sem fjalla um þessi mál og eru alveg hliðstæðar því sem BSRB gerir kröfu um að komi í samninga þess. Með leyfi hæstv. forseta ætla ég að lesa þessar tvær gr. Það er 10. gr., hún er þannig orðuð:

„Verði á samningstímanum sett lög, sem breyta ákvæðum þessa samnings um afgreiðslu verðlagsuppbóta á laun, er hvorum aðila um sig heimilt að segja upp kaupgjaldsákvæðum samningsins með eins mánaðar fyrirvara.“

Og hin er þannig:

„Verði veruleg breyting á gengi íslenskrar krónu á gildistíma samnings þessa, skal hvorum samningsaðila heimilt að segja upp kaupliðum hans með venjulegum uppsagnarfresti, enda verði gildistími nýs samnings þá hinn sami og þessa samnings.“

Þessar tvær greinar fjalla um endurskoðun ef tilteknar aðgerðir eiga sér stað, í öðru tilvikinu, að veruleg breyting verði á gengi íslensku krónunnar, og í hinu tilvikinu, að sett verði lög sem breyta verðbótaákvæðum samningsins. Það er þetta sem þeir hjá BSRB, opinberir starfsmenn, vilja fá í sína samninga, þ.e.a.s. sama rétt og önnur launþegasamtök í landinu hafa. Það er ekki verið að fara fram á að það fái eitthvað tiltekið í krónum ef eitthvað gerist, heldur réttinn til þess að endurskoða samninginn, sem segja honum upp, kaupgjaldsákvæðum hans, ef löggjafarvaldi er beitt til þess að breyta forsendum samningsins. Og það hefur oft komið til álita, hvort þá væru jafnvel samningar fallnir úr gildi, ef forsendum væri breytt.

Ég sagði áðan að þessi ákvæði eða svipuð þessum hefðu lengi verið í samningum almennu verkalýðsfélaganna. Ég held að það séu afar fá dæmi þess, að þessi ákvæði hafi verið notuð. Samningum hefur að vísu verið stundum sagt upp fyrr en annars hefði orðið, stundum hafa þeir ekki orðið nema nokkurra mánaða gamlir, — ég minni á 1974, þegar þeir samningar áttu að gilda í tvö ár og giltu aðeins í nokkra mánuði í reynd. Það er í rauninni sama, má segja, hvort svona ákvæði eru fyrir hendi eða ekki, ef gerðar eru grófar ráðstafanir til þess að kippa grundvelli undan kjarasamningi. þá verða viðbrögð ævinlega einhver, — og er þá ekki heilbrigðara og betra að menn reyni að semja um fyrir fram hvernig þessi viðbrögð eigi að vera og eftir hvaða leikreglum skuli farið?

Ég legg sem sagt áherslu á að hæstv. ríkisstj. skoði hug sinn vel áður en hún gerir þetta atriði að svo miklu úrslitaatriði eins og mér virðist að það stefni að. Og ég er alveg sannfærður um það, að ef tekið er mannlega á þessum málum muni önnur atriði verða auðleystari, því að hvað sem einhverjum krónum líður, þá setja menn þó vonandi enn sjálf mannréttindin ofar.