05.05.1978
Efri deild: 101. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4515 í B-deild Alþingistíðinda. (3910)

217. mál, tollskrá o.fl.

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Það frv., sem hér er til umr., fjallar einungis um nokkrar tæknilegar breytingar á lögum um tollskrá, en í því felast ekki neinar breytingar á gildandi tolltöxtum. Ég er ekki í neinum vafa um það, að þessar brtt., sem hæstv. ráðh. flytur, eiga fyllsta rétt á sér. Ég hefði hins vegar talið að ástæða hefði verið til að nota þetta tækifæri til nokkurra efnisbreytinga á tollalögum, — breytinga sem miklu varða allan almenning í landinu.

Ég var á bændafundi norður í landi nú fyrir skemmstu og varð þá var við, að eitt af því, sem bændur kvarta hvað mest um, er m. a. það óréttlæti sem þeir eru beittir varðandi tollmeðferð á vörum.og tækjum í landbúnaði. Bóndi í Skagafirði stóð upp og spurði mig hvernig í ósköpunum stæði á því, að ef síldarbræðsla pantaði skilvindu í verksmiðju sína, þá þyrfti hún ekki að borga neinn toll af því verkfæri, en ef mjólkurbú þyrfti á skilvindu að halda, sem væri kannske nákvæmlega eins að allri gerð og samsetningu, kannske nákvæmlega sama verkfærið, bara með öðru heiti, pantað af öðrum aðila, — sennilega eitthvað ofurlítið öðruvísi, því að ég geri ráð fyrir að öðruvísi skilvindur þurfi fyrir mjólk heldur en síldarlýsi eða loðnulýsi, — þá þarf að greiða talsverðan toll. Þetta þykir bændum hér á Íslandi afskaplega einkennilegt. Og síst af öllu skilja þeir það, að þetta misræmi skuli hafa skapast á þeim árum þegar Framsfl. hefur hvað mestu ráðið um meðferð landbúnaðarmála.

Þetta var ekki svona, hlutir af þessu tagi voru í nákvæmlega sama tollnúmeri fyrir nokkrum árum. En vegna þess að iðnaðurinn hefur verið settur í sérstaka kreppu með aðild Íslands að EFTA og viðskiptasamningi við Efnahagsbandalagið, sem haft hefur í för með sér miklu harðari samkeppni af hálfu erlendra aðila, þá hefur verið leitast við að bæta aðstöðu innlendra framleiðenda m. a. með tollalækkunum sem hafa komið út á þann veg, að í dag er orðin mikil mismunun milli atvinnugreina.

Ég tel að hér sé um svo stóralvarlegt mál að ræða, að ekki verði við unað, og ég vil eindregið skora á hv. Ed. og hv. fjh.- og viðskn. d. að taka til athugunar hvort ekki kæmi til greina að gera nokkrar efnisbreytingar á gildandi ákvæðum um tollmeðferð þannig að landbúnaðurinn verði ekki öllu lengur annars flokks atvinnugrein í landinu. Og ég vil sérstaklega skora á hv. þm. Sjálfstfl. að athuga hvort þeir mundu ekki vera reiðubúnir til að taka þátt í breytingum af þessu tagi, því að mér virðist á öllu að hv. þm. Framsfl., sem hafa haft landbúnaðinn á hendi á undanförnum árum, séu ekki sérlega líklegir til þess að standa að slíkum breytingum. (Gripið fram í: Er þetta ástarjátning?) Ég held nú að ástarjátningar eigi einhvers staðar annars staðar við en í umr. um tollamál, jafnkaldranaleg sem þau eru. Ég hef ekki sagt þessi orð að ástæðulausu. Ég áfellist Framsfl., sem hefur haft með landbúnaðarmál að gera nú um margra ára skeið, fyrir að láta þessa þróun yfir sig ganga. Ég undrast það. Ég er hins vegar minna hissa á því, að þeir sjálfstæðismenn skuli ekki hafa rekið augun í þetta því að þeir hafa ekki haft með málin að gera. En ég leita eftir samstöðu með Sjálfstfl.-mönnum um það að knýja Framsfl. til að gera breytingar á þessu atriði.

Margt fleira þyrfti að breytast í tollalögum heldur en ákvæði um mjólkurskilvindur. Ég minni á heyblásara sem einnig bera toll. Þar er um að ræða verkfæri sem er mjög nauðsynlegt í landbúnaði og alveg ástæðulaust að um sé að ræða álögur á landbúnaðinn með því að tollur sé lagður á þetta nauðsynlega tæki sem aðeins er til þess fallið að gera landbúnaðarvörur dýrari og þar með minnka neyslu þeirra og eiga þátt í þeim vanda sem skapast hefur í landbúnaðarmálum. Nefna mætti önnur mjög nauðsynleg verkfæri, eins og plóga eða vélar til sáningar og plöntunar eða vélar til að dreifa mykju og áburði. Auðvitað ættu þessar vélar allar að vera tollfrjálsar, að ég nefni ekki t. d. herfi eða sláttuvélar, og ég tek það fram, að ég teldi fullkomlega eðlilegt að greiddur væri tollur af garðsláttuvélum sem alls ekki eru notaðar í atvinnurekstrarskyni, heldur til heimilisnota, og væri því vel hugsanlegt að skilja þær eftir með einhverjum tolli, en afnema tollinn af sláttuvélunum sjálfum. Sama gildir um upptökuvélar fyrir kartöflur og aðra garðávexti og hvers konar mjólkurvinnsluvélar. Þessar vélar eiga að vera tollfrjálsar með sama hætti og vélar notaðar til iðnaðar. Og það er alveg sérstök ástæða til þess að gera breytingar af þessu tagi þegar hafður er í huga sá vandi sem við blasir í landbúnaðarmálum.

Ef við lagfærum þessa hluti fyrir landbúnaðinn, eins og gert hefur verið fyrir iðnaðinn, þá er auðvitað ekki síður ástæða til þess að aflétta með öllu tollum af tækjum og vélum til fiskiðnaðarins. En því miður er það svo, að enn eru ýmis tæki í fiskiðnaði sem bera toll, en ættu að vera tollfrjáls. Ég nefni sérstaklega liðina sem eru hér 84.10.31 fiskidælur og 84.17.21 vélar til fiskiðnaðar og hvalvinnslu. Eins mætti nefna hér liðinn í tollskrá 84.22.11 kraftblokkir til fiskiskipa og vindur til dráttarbrauta, 84.22.12 akkeris- og skipavindur og aðrar tegundir af vindum, og margt fleira mætti nefna á þessu sviði, t. d. þann stóra og mikla lið sem er 84.30.15 flökunarvélar, flatningsvélar, síldarsöltunarvélar, roðflettingarvélar, slægingarvélar og hausskurðarvélar til vinnslu á fiski. Allt eru þetta vélar sem ættu engan toll að bera.

Varðandi útgerðina, sem væntanlega mundi þá fylgja með, ætti einnig að afnema tolla af mikilvægustu vélum til skipa, og vil ég sérstaklega nefna þar stýrisvélar, skipsskrúfur og önnur tæki sem skrúfubúnað snerta.

Þetta tel ég vera brýnast í þessum efnum, tel vera langbrýnast að létta tollum af vörum til landbúnaðarins og fiskiðnaðarins eins og gert hefur verið varðandi iðnaðinn. Og ég tek það fram, að ég held að þetta mundi ekki vera stórfelldur kostnaðarauki fyrir ríkissjóð. Ég held að hér sé um að ræða tiltölulega afmarkaða vöruflokka, breytingu sem ekki þyrfti að kosta ríkissjóð ýkjamikið. Ég vil hins vegar taka það fram, að ég tel að ýmsu fleiru mætti breyta í tollskránni, og þar á ég auðvitað sérstaklega við ýmislegt sem allur almenningur notar til heimilishalds. Það er t. d. mjög eðlilegt að tollur á búsáhöldum verði verulega lækkaður eða tollar á hreinlætistækjum, vöskum, handlaugum og salernisskálum eða tollur á borðbúnaði og öðrum vörum sem eru notaðar í húshaldi eða til hreinlætis. Þarna er ég með liðinn 69.11.00. í huga, þó ég skilji ekki allt sem þar stendur: borðbúnaður og aðrar vörur almennt notaðar í húshaldi eða til hreinlætis úr postulíni (þar með talið bisquit og parian). Það munu aðrir vera fróðari en ég um hvaða hlutir þetta eru. (Gripið fram í.) En bisquit mun vera kex á frönsku að því er upplýst er.

Ég vildi einnig nefna hvað búsáhöld snertir þá tolla sem eru á skeiðum, göfflum og öðrum búsáhöldum. Þetta eru allt liðir sem væri eðlilegt að lækka. Ég held að þetta væri líka tiltölulega lítilfjörlegt fyrir ríkiskassann og væri vel hægt að ganga að þessu.

Svo komum við aftur að vöruflokki sem er töluvert stór í sniðum, og ég verð að játa að þar yrði að vísu um að ræða nokkurn tekjumissi fyrir ríkissjóð, en mér finnst koma vel til álita að þar yrði samt um verulegar breytingar að ræða. Ég veit að menn þekkja það að heimilisvél, eins og t. d. lítil eldavél kostar í Bretlandi í búð um það bil 1/4 af því sem hún kostar hér á landi. Ég t. d. sannreyndi þetta sjálfur í fyrra, að tæki, sem ætluð eru til snögghitunar á mat með geislabúnaði, — infrageislaofnar held ég að þeir séu kallaðir, ofnar af þessu tagi kostuðu í Bretlandi um það bil 4500 kr. á s. l. sumri, en nákvæmlega sams konar ofnar kostuðu um 16 þús. kr. hér á Íslandi nákvæmlega sömu tegundir frá nákvæmlega sama fyrirtækinu. Meginástæðan fyrir þessum gífurlega mun eru tollarnir. Við erum enn með tæki af þessu tagi í mjög háum tollflokki. Og þetta gildir um kæliskápa, frystikistur, þvottavélar, eldavélar, ryksugur, hrærivélar og hvers konar aðrar vélar til heimilisnota. Ég held að það sé ekki forsvaranlegt öllu lengur að halda þessum vörum í svo háum tollflokkum, og að það sé t. d. 400% dýrara að kaupa tæki af þessu tagi á Íslandi heldur en í nálægum löndum er auðvitað algerlega óforsvaranlegt. Nú er það að vísu svo, að skýringin á þessu er ekki sú ein að vörurnar séu í háum tollflokki. Skýringin er líka sú að á útsöluverð vörunnar leggst söluskattur og einnig leggst síðan álagning ofan á þessa íslensku skattlagningu.(Gripið fram í: Ekki ofan á söluskattinn.) Nei, ekki ofan á söluskattinn, aftur á móti leggst söluskatturinn ofan á álagninguna þannig að hér er um margföldunaráhrif að ræða sem að nokkru skýra þennan gífurlega mun. En tollurinn er lagður á í innflutningi. Tollurinn er eitt af þeim atriðum sem skapar grunnverð vörunnar áður en aðrir liðir leggjast á, og ég þykist vita að með verulegri lækkun tolls væri um að ræða stórfellda vörulækkun, þannig að munurinn yrði þá kannske ekki miklu meira en svona 1:2 og er það þó nógu mikill munur.

Herra forseti. Ég hef nokkuð fjölyrt hér um æskilegar breytingar á tollskrá. Ég sætti mig ekki við að að engar efnisbreytingar verði gerðar á tollskránni. Ég tel, að það sé tími til kominn, og ég er sannfærður um það, að menn úr öllum stjórnmálaflokkum gera sér grein fyrir þeim mismun sem hér er á, t. d. mismuninum gagnvart landbúnaðinum, og ég þykist vita að þó að Framsfl. hafi mistekist að hafa þá forustu um leiðréttingu í þágu landbúnaðarins sem ætlast hefði mátt til af honum, þá eru áreiðanlega hér í deildinni ágætir þm. Framsfl. sem eru reiðubúnir að leggja gjörva hönd á breytingu í þessa átt.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða meira um þetta mál við 1. umr. málsins þar sem tvær umr. eru eftir, en boða flutning brtt. þegar n. skilar áliti.