05.05.1978
Efri deild: 101. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4522 í B-deild Alþingistíðinda. (3914)
217. mál, tollskrá o.fl.
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð vegna þessara háværu ræðumanna sem hér töluðu áðan. Það kom mér satt að segja ekkert á óvart að þeir skyldu taka svo illá í till. mínar sem raun ber vitni. En ég verð nú að vonast til þess, að það hafi bara verið fyrstu viðbrögð sem réðu gerðum þeirra. Mér finnst að þegar fluttar eru hugmyndir um verulegar lagfæringar í þágu íslensks landbúnaðar ættu einmitt þessir tveir ágætu þm. að taka slíkum hugmyndum fagnandi og aðstoða mig og aðra, sem slíkar hugmyndir bera fram, að koma þeim í gegn. Og ég er satt að segja undrandi að þessir tveir ágætu þm. skuli bregðast svo hart og illa við till., sem ég er hér með um lækkun á tollum landbúnaðarvara. En staðreyndin er sú, að þetta er nú ekki í fyrsta skiptið sem þessir tveir ágætu þm. koma nokkuð á óvart. Það mun fleirum en mér hafa fundist einkennilegt að sjá þessa ágætu framámenn Framsfl. greiða atkv. gegn aðalkröfu Stéttarsambands bænda um afnám söluskatts af landbúnaðarvörum, enda þótt sumir þeirra hafi verið í hópi þeirra Stéttarsambandsfulltrúa sem þessa kröfu settu á oddinn. Það er nú önnur saga, og ég held að það sé alveg ástæðulaust að vera að fjölyrða neitt frekar um þetta. Ég er sannfærður um að þessir tveir ágætu þm., sem hér töluðu áðan, munu taka afstöðu sína til endurskoðunar og verða viðræðubetri um þessi mál, þegar málið kemur til umr. í hv. fjh.- og viðskn. deildarinnar.
En varðandi það atriði, að ég hafi greinilega ekki áttað mig á hver væri tollur á hinum ýmsu landbúnaðartækjum, þá vil ég segja það eitt og get alveg fúslega viðurkennt það, að það er ekkert langt síðan ég gerði mér fyllilega grein fyrir því, af því að ég er ekki með nefið ofan í þessari tollskrá og hverjum einstökum lið hennar og ég hef ekki haft þann tíma, þegar tollskráin hefur verið hér til meðferðar, að ég gæti framkvæmt þar stórfelldan samanburð, en mér kom satt að segja á óvart þegar ég uppgötvaði hvað íslenskur landbúnaður býr við mikla mismunun í þessum efnum. Og ég trúi ekki öðru en að hv. þm. Framsfl. hér í d. muni vera reiðubúnir, þegar til kastanna kemur, að aflétta þessum mismun.
Ég hjó eftir því sem hv. þm. Jón Helgason sagði áðan, að tollar á landbúnaðartækjum hefðu nokkuð lækkað á seinustu árum. Vissulega er það alveg rétt hjá þessum ágæta þm., auðvitað hafa tollar á tækjum lækkað eins og á mörgu öðru. Þeir hafa lækkað á flestum innfluttum vörutegundum meira eða minna, eins og við vitum. En ekki var eitt einasta orð sem hann færði hér fram til afsönnunar mínu máli. Það kom berlega fram í máli hans áðan, að það eru tollar enn á þessum tækjum, og mér finnst að við ættum að vera sammála um það, að hér sé um að ræða þess háttar framleiðslutæki sem eigi að vera tollfrjáls eins og samsvarandi tæki sem flutt eru inn í þágu iðnaðar.