05.05.1978
Sameinað þing: 75. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4534 í B-deild Alþingistíðinda. (3924)

58. mál, íslensk stafsetning

Frsm. minni hl. (Magnús T. Ólafsson):

Herra forseti. Það mál, sem nú kemur til umr. hér í Sþ., er ekki nýtt af nálinni. Þetta er gamall kunningi, bæði í Sþ. og í deildinni, og kemur nú fram í nýrri mynd og nýrri líkamningu. En eðlið er þó óbreytt frá fyrri málflutningi, sem þó verður ekki mjög vikið að hér að sinni.

Eins og frsm. meiri hl. allshn. tók fram klofnaði n. um málið. Við í minni hl., ásamt mér hv. þm. Jón Helgason og Jón Skaftason, leggjum til að till. verði afgreidd með rökstuddri dagskrá á þessa leið:

„Þar sem fyrir Alþingi liggur á þskj. 3 frv. menntmrh. um setningu reglna um íslenska stafsetningu, þar sem fjallað er um undirbúning stafsetningarreglna í heild og hlutdeild Alþingis í setningu þeirra, telur Sþ. ekki ástæðu til að taka eina stafsetningarreglu af mörgum út úr og láta hana sérstaklega til sín taka með þeim hætti, sem till. gerir ráð fyrir, og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.“

Eins og frsm. meiri hl. tók fram, bárust allshn. tvær umsagnir um till. á þskj. 64. Hún er, eins og ég gat um áðan, að efni til mjög skyld frv. sem flutt var á sínum tíma í Nd. Alþingis, en þó breytt að sumu leyti. Þegar það frv. var til umr. bar mjög á góma hversu lítið vit væri í því að okkar dómi margra að Alþ. settist á laggirnar við stafsetningarsmíð, gerði stafsetningarreglur í einstökum atriðum og afgreiddi þær frá sér í lagaformi. Nú hafa hv. talsmenn z hér á Alþ. gert á nokkra bragarbót. Þeir leggja ekki lengur til að sett verði lög um stafsetningaratriði, en flytja sama efni í mynd þáltill., og er það nokkur framför, því að eins og allir þm. vita hafa þingsályktanir og lög mjög ólíkt gildi. En það er enn sami bragur á málflutningnum að því leyti, að mjög hefur tekist óhöndulega við stafsetningarreglusmíðina.

Þegar frv. var gert á sínum tíma, sem menn muna, þá var á það bent í meðförum þess, að þar eru alvarlegir meinbugir á og svo virtist sem mjög hefði skort á þekkingu hjá ýmsum þeim sem um fjölluðu, og skal ég ekki rifja það upp. Þar voru a. m. k. í tveim greinum leidd rök að því, að í frvgr. væru meinlokur sem ekki gætu staðist. Nú bregður svo við, þegar z-an og upprisa hennar er færð í þál.-form, þá kemur hið sama á daginn. Í fjölda atriða hafa orðið svo mikil missmíði á þeim málatilbúnaði sem uppi er hafður að umsagnaraðilinn, sem þó er í grundvallaratriðum hliðhollur málstað tillögumanna, hefur farið um till. þeirra slíkum höndum, að sé umsögnin frá Íslenskri málnefnd lesin niður í kjölinn, þá hljóta menn að komast að þeirri niðurstöðu, að í því atriði, sem er aðalatriðið og þungamiðja till. um z-una og z-reglurnar, standi ekki steinn yfir steini. Og ég ítreka það, að að þessari umsögn, að þessum dómi um stafsetningarreglusmíði tillögumanna standa engir fjandmenn z-unnar, öðru nær. Undir þetta rita þeir sem sæti eiga í íslenskri málnefnd um þessar mundir. Af þeim eru tveir, þeir Bjarni Vilhjálmsson þjóðskjalavörður og Þórhallur Vilmundarson prófessor, úr hópi hundraðmenninganna frægu sem sendu hæstv. menntmrh. á sínum tíma áskorun um að vekja z-na frá dauðum, og þriðji maðurinn í Íslenskri málnefnd, Baldur Jónsson lektor, varð einna fyrstur til þess að mótmæla setningu þeirrar stafsetningarreglu sem kvað á um brottnám z úr skyldunámi í skólum. En þessir menn úr hópi þeirra, sem verið hafa ákveðnastir talsmenn z-stafsetningar, sýna fram á það í rækilegri og ítarlegri umsögn, að tillgr. á þskj. 64 fær með engu móti staðist, jafnvel þótt menn séu samþykkir þeirri forsendu sem þar er sett fram, sem sé að það sé þýðingarmikið atriði að skrifa z í íslensku, enda þótt fyrir liggi að allt frá því að Ísland var byggt og raunar á löngum tíma áður í málssögu norrænna þjóða hefur aldrei verið til sérstakt hljóð í málinu sem þessi bókstafur getur táknað.

Ég tel nauðsynlegt, vegna þess að þeir, sem hlynntir eru þáltill. í allshn. hafa reynt að varpa út bjarghring til tillögumanna með því að flytja brtt. á þá leið, að Íslensk málnefnd skuli sett til að leiðrétta vitleysurnar sem hún er búin að sýna fram á, því tel ég nauðsynlegt að sýna fram á allrækilega hversu veigamiklar op margvíslegar aths. Íslenskrar málnefndar eru við till. sem hér liggur fyrir.

Þar er í fyrsta lagi strax á 1. bls. gerð mjög mikilvæg og þungvæg aths. við eina af forsendunum fyrir tillöguflutningi þeirra sem nú vilja taka upp z á ný. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Í inngangsgrein 1. mgr. er ályktað, að miða skuli við auglýsingu um íslenska stafsetningu frá 1929 með þeim frávikum, sem síðan eru talin. Málnefndin telur hinsvegar heppilegra, að frávik til málamiðlunar séu miðuð við „Auglýsingu um íslenska stafsetningu“ nr. 132 frá 1974 með breytingu þeirri sem gerð var 28. júní 1977, m. ö. o. að miðað verði við gildandi stafsetningu. „Hér gengur Íslensk málnefnd þvert gegn einni aðalforsendu tillögumanna sem standa að till. á þskj. 64. Þeir leggja það til að slegið verði með öllu stríki yfir stafsetningarreglurnar frá 1974 með þeirri breytingu sem gerð var 1977. Og Íslensk málnefnd heldur áfram og leiðir rök að þessari afstöðu sinni, þó í stuttu máli sé, með leyfi hæstv. forseta:

„Hafa ber í huga, að auglýsingin frá 1974 er miklu fyllri en auglýsingin frá 1929. Í hinni síðarnefndu eru t. d. engin skýr ákvæði um y, ý og ey.“

Hér er ekki mikið sagt af öllu því sem segja mætti um þetta eina atriði í till. á þskj. 64, en þó nóg til þess, að það kemur skýrt fram að Íslensk málnefnd hafnar gersamlega þeirri forsendu sem liggur að baki tillöguflutningnum á þskj. 64, að slá stríki yfir stafsetningarreglurnar frá 1974, vegna þess að þeir málfróðu menn, sem í Íslenskri málnefnd sitja, hvert álit sem þeir annars hafa á z, viðurkenna það auðvitað samkv. eðli málsins, að ekki nær nokkurri átt, þó menn vilji breyta einu atriði í þessum stafsetningarreglum, að hrinda þeim að öllu leyti, ónýta öll ákvæði þeirra, hvort sem ágreiningur er um þau eða ekki. Og það er Íslensk málnefnd sem bendir rækilega á þetta. En hún bendir að sjálfsögðu ekki á það, sem ég vil hins vegar leggja höfuðáherslu á, að þetta atriði eitt út af fyrir sig hrindir algerlega þeim látalátum tillögumanna, að till. þeirra sé einhver sáttaleið eða málamiðlunarleið í þessu máli. Þvert á móti, með því að gera það að undirstöðu og forsendu till. sinnar að stafsetningarreglurnar frá 1974 skuli ógiltar í hverju og einu atriði, jafnt í þeim tugum atriða, sem enginn ágreiningur er um, og í því eina atriði, sem tillögu mennirnir gera um ágreining, hvort z-an skuli rituð í málinu eða ekki, þá sýna þeir sjálfir fram á að þeir eru ekki að leita eftir málamiðlun, þeir eru ekki að leita eftir sáttum. Með því að leggja málið svona fyrir, með því að krefjast þess að allt, sem gert var í stafsetningarmálunum 1974, sé ónýtt, þá sýna þeir sjálfir fram á með þessum málatilbúnaði sínum að það er ekki málamiðlun sem fyrir þeim vakir. Í huga þeirra ríkir heift. Þar sem þeir vilja vinna það til að ónýta allar stafsetningarreglur frá 1974, hvort sem þeir eru þeim í sjálfu sér samþykkir eða ekki, þá sýna þeir að þeir hyggjast vinna þarna heiftarverk, svo að ég segi ekki fólskuverk, til þess að ná sér niðri á þeim sem stóðu að setningu stafsetningarreglnanna frá 1974. Til þess að sýna fram á, hvað hér er um að ræða, er nauðsynlegt að líta á þessar stafsetningarreglur nokkru nánar.

Þær eru, eins og ég sagði, hinar ítarlegustu sem gerðar hafa verið frá því fyrst var farið að gefa út af opinberri hálfu stafsetningarreglur á árinu 1918. Í þessum reglum er byggt á fenginni reynslu. Þessar reglur eru í öllum meginatriðum samhljóða reglunum frá 1929, það sem þær ná, nema hvað z snertir. Stafsetningarreglurnar frá 1929 gerðu z-stafsetninguna að skyldu í skólum og ritum sem kostuð eru af opinberum aðilum. Reglurnar frá 1974 námu þetta ákvæði úr gildi. En að öllu öðru leyti er byggt á reglunum frá 1929 og þeirri reynslu sem síðan hafði fengist, einkum við skólakennslu, eins og sýnt er fram á í álitsgerð stafsetningarnefndarinnar sem þá starfaði. En stafsetningarreglurnar frá 1929 komust fyrir í einum tvöföldum dálk í Lögbirtingablaði. Þetta ljósrit sýnir, hvert umfang þeirra er, og þær eru þar í fjórum töluliðum. Af því geta menn séð, að þar er aðeins gripið á einstökum afmörkuðum atriðum, en ekki settar eða samdar allsherjar stafsetningarreglur. Ein aðalástæðan til, að stafsetningarnefndin, sem gekk frá reglunum frá 1974, var skipuð, var að það var krafa uppi um það og hafði lengi verið hjá kennurum, að það væri löngu tími til kominn að fylla út í þessar reglur að gera þær ítarlegri um ákvæði sem ekki hafði verið á tekið 1929, og sömuleiðis var það mjög útbreidd skoðun hjá kennurum og er enn að reynslan hefði sýnt — (GÞG: Hvenær kom þessi krafa fram í menntmrn.? Var krafan lengi uppi af hálfu kennara?) Já, sú krafa hafði verið lengi uppi af hálfu kennara. (Gripið fram í.) Kennarar geta tjáð sig, þó að þeir tjái sig ekki við rn. En þessi skoðun, sem var útbreidd í kennarastéttinni, byggðist á því, að það hafði næstum frá upphafi verið föst regla, staðfest af menntmrh. eftir menntmrh., að z var ekki kennd í því sem kallað var barnaskólanám, á barnaskólastigi. Hún var ekki kennd fyrr en komið var á unglingastig eða gagnfræðastig sem áður var kallað í skólunum.

En ég var að bera saman auglýsingarnar um íslenska stafsetningu frá 1929 og 1974 aðeins til að sýna hv. þm. fram á hversu nákvæmar er farið í sakirnar í þeim reglum sem settar voru 1974 og tillögumenn, sem standa að till. á þskj. 64, vilja kollvarpa frá upphafi til enda, aðeins í þeim tilgangi, að því er virðist, að ná sér niðri á þeim sem að því stóðu að nema z brott úr skólastafsetningunni. Það skal kosta það, að niður séu felldar stafsetningarreglur byggðar á mikilli reynslu og mikilli vinnu um fjölda annarra atriða. Þessar stafsetningarreglur eru frá 1974. Þær eru ekki aðeins í fjórum töluliðum, eins og þær frá 1929. Þær eru hvorki meira né minna en í 14 köflum og 42 greinum, svo að allt sé talið. Þar er fjallað um atriði sem ekki er vikið að í auglýsingu um íslenska stafsetningu frá 1929. Þar eru reglur um stóran staf og lítinn staf. Þetta er ekki að finna í reglunum frá 1929. Þar eru reglur um yfsilon, eins og vikið er að í umsögn íslenskrar málnefndar. Þær eru ekki í reglunum frá 1929. Þar eru sömuleiðis reglur um hvar rita skuli eitt orð eða tvö. Þær er ekki að finna í reglunum frá 1929. Síðan eru ýmis önnur stafsetningaratriði sem ekki fylla heila kafla, og er þar þó um ýmis þýðingarmikil atriði að ræða, svo sem hvenær eignarfalls-s falli brott í samsetningum. Þar er sömuleiðis fjallað um greinamerkjasetningu, og henni voru gerð skil í sérstakri auglýsingu í 21. grein, sem varð samferða auglýsingunni um íslenska stafsetningu frá 1974.

Allt þetta vilja tillögumenn, sem standa að till. á þskj. 64, nema úr gildi. Öllu þessu vilja þeir kollvarpa, eingöngu vegna þess að þetta birtist í sömu auglýsingu og nam z-una úr skólastafsetningunni. Og ég læt hv. alþm. eftir að dæma um hvað þeir telja það heppilegt að lúta í stafsetningarmálum forsögn manna sem fara fram af slíku offorsi og slíkum tilefnislausum þjösnaskap gagnvart jafnvandmeðförnu málefni og þarna á sér stað, þegar þeir vilja afnema allar reglur, sem settar voru 1974, aðeins vegna þess að ein reglan af mörgum er þeim ekki að skapi. Þarna hefði verið skynsamlegra og á allan hátt málefninu samboðnara að fara með meiri gát, stillingu og hófsemi. Þá hefði kannske verið hægt að gefa þessari till. það yfirskin að hún væri sáttatill. og málamiðlunarleið. En úr því að svona er farið að hlutunum, lagt til að hvert pút og plagg, sem kom frá stafsetningarnefndinni sem starfaði 1973 og 1974, skuli ónýtt, þar með er verið að sýna að það er síður en svo sættir eða málamiðlun sem fyrir tillögumönnum vakir.

Hér er um að ræða ábendingu og aðfinnslur strax í upphafi á umsögn íslenskrar málanefndar um till. á þskj. 64. En það er ýmislegt fleira sem málnefndarmenn, sem eins og ég sagði áðan eru í sjálfu sér a. m. k. tveir sama sinnis um z-stafsetningu og tillögumenn, telja sig þurfa að gera aths. við í afstöðu skoðanabræðra sinna og merkisbera z-málstaðarins hér á þingi. Þar segir svo í upphafi þeirrar ítarlegu yfirferðar sem málnefndarmenn fara yfir till. og efni hennar, með leyfi hæstv. forseta:

„Þau stafsetningarákvæði þáltill., sem síðan eru talin upp í 6 tölusettum liðum, eiga ýmislegt sameiginlegt með stafsetningunni frá 1929 („gömlu stafsetningunni“) og stafsetningunni frá 1974 („ nýju stafsetningunni“), annarri hvorri eða hvorri tveggja. En hér eru ýmsir agnúar á.“ Og síðar segir í sömu umsögn, með leyfi hæstv. forseta: „Aðalgalli till. er sá, að málfræðilegum meginreglum er ekki nógu dyggilega fylgt frá upphafi til enda og ekki fyllilega ljóst í öllum atriðum, hvernig stafsetja skuli.“ Nefndarmenn eru þarna mjög hófsamir í orðavali, sem auðvitað enginn skyldi lá þeim, bæði stöðu þeirra vegna og vegna þess að þeir eru að ræða um mál sem skoðanabræður þeirra í z-málinu hafa borið fram á þingi. En það, sem í þessum orðum felst, er hreinlega það, að till. á þskj. 64 stenst ekki í grundvallaratriðum, hún byggir ekki á málfræðilegum meginreglum til neinnar hlítar og hún gerir ekki ljóst í öllum atriðum hvernig stafsetja skuli. En síðan segja málnefndarmenn í viðbót: „Eigi að síður má lesa út úr þessum ákvæðum nokkrar meginreglur,“ — með leyfi hæstv. forseta vitna ég í þetta, — „sem eru vel þess virði, að þeim sé gaumur gefinn sem málamiðlunarhugmyndum.“

Síðan taka málnefndarmenn sig til og setja fram þær reglur sem þeir telja að felist í efni tillgr. á þskj. 64 víkja að þeim hverri um sig, og segja t. d. um það, sem þeir kalla fyrstu meginreglu í 1. a, sem sé þá, að í stofni á mótum rótar og afleiðsluviðskeytis (orðmyndunarviðskeytis) í hvaða orðflokki sem er skuli rita z fyrir s-hljóð, um þetta segja þeir síðan í sinni grg.:

„Fyrsta meginreglan, sem fram kemur í 1. tölul. þál. till., er gamalkunn. En þó að hún eigi sér áratugahefð, eru auðvitað álitamál um ritun stöku orða.“

Ekki einu sinni þessi regla, grundvallarreglan um zuna sjálfa, er sett þannig fram í till. á þskj. 64 að einhlítt sé að dómi þeirra sem sitja í íslenskri málnefnd. Og þeir bæta við, með leyfi hæstv. forseta:

„Áhöld geta verið um ýmis önnur orð að þessu leyti, og verður þá að taka af skarið með eins konar salómonsdómi, svo sem algengt er í allri stafsetningu.“

Síðan segja þeir um annað afbrigði af þessari reglu, sem þeir kalla 1. c, með leyfi hæstv. forseta:

„Þessi regla — svo langt sem hún nær — er í samræmi við gömlu stafsetninguna. Svo vill til, að reglan nær ekki til sambandsins ð +s nema í einni sögn, þ. e. bregða, þar sem hið stofnlæga ð er ekki borið fram á undan -st.“

Þarna er sem sagt regla sem nær aðeins til einnar af þeim sögnum þar sem ð og s fara saman. Síðan er vikið að reglu sem íslenskir málnefndarmenn kalla 1. d, sem þeir orða svo, með leyfi hæstv. forseta: „í sagnbót miðmyndar, ef sagnstofninn endar á tannhljóði og næst á undan fer samhljóð, sem er hvorki s né t (henzt (af hendast , virzt (af virðast), birzt (af birtast)).“ Og um þetta segja þeir í nánari útlistun á þeim reglum, sem þeir hafa unnið úr tillgr., með leyfi hæstv. forseta: „Þessi regla um sagnbót miðmyndar kemur hvergi berlega fram í till., en leynist þar þó.“

Þarna hefur tillögumönnum svei mér tekist upp. Án þess að setja fram reglu hafa þeir falið hana í tillgr. en það þarf jafnsnjalla menn og skipa Íslenska málnefnd til þess að draga hana fram í dagsljósið.

Og þeir segja síðan um 6. töluliðinn í till. á þskj. 64: „Í 6. tölul. er veitt heimild til að rita z í orðum, sem eru erlend að uppruna. Slík heimild er umdeilanleg og kæmi ekki síður til álita að binda hana við sérnöfn á sama hátt og gert er í „Auglýsingu um íslenska stafsetningu“ nr. 132 frá 1974.“

Þarna kemur enn fram í umsögn Íslenskrar málnefndar hvaða vansmíð hafa orðið á tillögugerð þeirra manna sem standa að till. á þskj. 64, vegna þess hverja fæð þeir leggja á stafsetningarreglurnar frá 1974 og þá menn sem að þeim stóðu. Þeir kosta alls kapps um að koma með eitthvað frábrugðið þeim, og meira að segja menn tillögunni hliðhollir, eins og þeir sem skipa Íslenska málnefnd, telja það frekar til óþurftar sem lagt er til aðeins til þess að skera sig úr frá stafsetningarreglunum frá 1974. Og íslenskir málnefndarmenn segja enn fremur, með leyfi hæstv. forseta, um þessi erlendu tökuorð:

„Sumir telja ástæðulaust að rita t. d. tökuorðin bensín og nasisti með z, þótt það hafi stundum verið gert. Á ferli þessara orða í íslensku hafa þau aldrei haft tannhljóð, sem fallið hefur brott á undan s-i. Með sömu rökum mætti segja, að aldrei hafi verið tilefni til að skrifa orðin gasella, sebrahestur ellegar bókstafsheitið seta með z, þótt einhverjar aðrar þjóðir hafi þann hátt á.“

Síðan koma íslenskir málnefndarmenn að þeim atriðum í till. á þskj. 64 þar sem vikið er verulega frá efni stafsetningarreglnanna frá 1929. Þeir segja um síðustu meginregluna, sem þeir merkja með tölustafnum 3 og hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta: „að láta tannhljóðstaf sagnbótarviðskeytis (ð eða t ) falla bótalaust, nema hann sé greinilega borinn fram (náðst) eða unnt sé að bera hann fram til að taka af tvímæli, þ. e. þar sem sagnstofninn endar á s-i (læstst, hresstst).“

Um þessa reglu segja þeir síðan í umsögn sinni, með leyfi hæstv. forseta:

„Síðasta meginreglan lýtur að stafsetningu sagnbótar í miðmynd, sem líklega hefur reynst torveldasta og jafnframt umdeildasta atriði íslenskrar stafsetningar. Telja má, að viðskeyti sagnbótar séu -að, -ið, -ð og -t (miðað við samtímalega greiningu) en vandinn er, hvernig með þau skuli fara, þegar miðmyndarendingunni -st er skeytt við. Tannhljóð sagnbótarviðskeytisins er sjaldan borið fram á undan henni.

Í stafsetningunni frá 1929 var sá kostur valinn að skrifa sagnbótartannhljóðið, þegar það var greinilega borið fram (náðst) og þegar s fór næst á undan því (kysstst), og láta það að öðrum kosti aldrei falla bótalaust, heldur skrifa z í stað þess og s-ins, sem á eftir fór (farizt, glaðzt, breytzt).

„Í stafsetningunni frá 1974,“ segja íslenskir málnefndarmenn enn fremur, „var blaðinu snúið við. Þar er meginreglan sú að láta tannhljóð sagnbótar ávallt falla óbætt, nema það sé borið fram (náðst). Og gengið var enn lengra: Ef sagnstofn endar á -t, -tt eða -d og sagnbótarviðskeytið ætti samkv. sagnbeygingunni að vera -t, falla einnig stofnlægu stafirnir bótalaust í sagnbót miðmyndar. Sama gildir um ð aftast í stofni, ef r fer næst á undan.“

Síðan fara hér allmörg dæmi hjá íslenskum málnefndarmönnum og til að stytta mál mitt nokkuð sleppi ég þeim, en tek svo aftur til, með leyfi hæstv. forseta, þar sem þeir tala frá eigin brjósti og hætta að rekja dæmin:

„Óhætt mun að segja, að margir hafi átt einna erfiðast með að sætta sig við þessi síðastnefndu atriði nýju stafsetningarinnar, þótt þeim væri að öðru leyti lítil eftirsjá að z.“

Og síðan segja íslenskir málnefndarmenn:

„Í þáltill. er fylgt sömu meginreglu og 1974, að láta ð og t sagnbótar falla óbætt á undan -st. Hér er einnig gerð sama undantekning og 1974, að skrifa ð, þar sem það er borið fram (náðst).“

Af þessu er ljóst að í þessu atriði, sem íslenskir málnefndarmenn telja einna umdeildast af því sem gert hafði verið með stafsetningunni frá 1974, þar hafa tillögumenn þó farið í það far að fylgja fordæminu sem var gefið í stafsetningarreglunum sem þá voru settar. Með þessa vitneskju í huga, að þetta atriði, sem íslenskir málnefndarmenn segja að margir hafi átt einna erfiðast með að sætta sig við í stafsetningunni frá 1974, það skuli tekið upp í z-reglurnar í till. á þskj. 64 — með þessa vitneskju í huga verður gersamlega óskiljanlegt, hvers vegna tillögumenn leggja til að allar aðrar stafsetningarreglur í auglýsingunni frá 1974 séu ógiltar, úr því að þeir hafa ekkert út á þær að setja efnislega og hafa aldrei haft, en fara síðan í smiðju til þeirra, sem sömdu reglurnar frá 1974, og taka hluta af þeim og þann hlutann, sem íslenskir málnefndarmenn telja að mest hafi farið fyrir brjóstið á þeim sem hlynntir eru z-stafsetningu, og gera hann að sinni eigin tillögu.

Ég hef fengið tilmæli frá hæstv. forseta um að stytta mál mitt. Mikið er eftir af aths. í þeirri umsögn sem íslensk málnefnd gaf um þá till. sem hér er verið að ræða. Ekki er hægt að láta það allt liggja á milli hluta, en að þessu sinni mun ég fara þar mjög fljótt yfir sögu, því að ég mun sem aðrir frsm. hafa rétt til að taka þrisvar til máls við þessa umr., svo að ég get væntanlega komið að atriðum, sem út undan verða að þessu sinni, í síðari ræðum sem ég held hér. Ég verð sem sagt við þeim tilmælum hæstv. forseta að sleppa hér löngum kafla í umsögn íslenskrar málnefndar. En hins vegar get ég með engu móti gengið með öllu fram hjá umsögn hins umsagnaraðilans, sem lét allshn. í té álit sitt, þ. e. a. s. Samtaka móðurmálskennara, enda er hægt að gera þeirri umsögn skil í mun skemmra máli heldur en þeirri sem ég var nú áður að rekja, því að Samtök móðurmálskennara setja sitt álit fram í mjög stuttu og ákveðnu máli, sem ég vil leyfa mér að vitna hér í, með leyfi hæstv. forseta. Þar segir svo í meginmáli:

„Ofannefnd þáltill.“ — þ. e. þáltill. á þskj. 64 — „er meingölluð að áliti okkar nm., bæði þeirra, sem vilja z aftur inn í ritmálið, og hinna, sem vilja ekki hverfa frá breytingunni 1973–1974. Rök okkar eru einkum þessi:

Reglur þær, sem till. gerir ráð fyrir, eru flóknar og til þess fallnar að stórauka á glundroða í stafsetningu.“ Þetta er sem sagt niðurstaða Samtaka móðurmálskennara.

„b. Innbyrðis misræmi er í reglunum þar sem ætlast er til að stafsett sé „ég leit, þú leizt,“ en hins vegar: „ég batt, þú battst; getur sést, getur settst; nyrzt, innst.“ Venjulegum nemendum er vart ætlandi slík aðgreining, auk þess sem stafsetning með ttst hefur aldrei fest rætur í íslensku.

c. Af kennslufræðilegum ástæðum er brýn þörf að ein og sama stafsetning sé kennd á öllum skólastigum, en reyndin var sú að z var ekki kennd fyrr en á gagnfræðastigi. (Oft var hinum lakari nemendum alveg sleppt við þennan staf). Var þessari venju fylgt lengst af frá 1929 til 1973, en til þess horfs vill þáltill. nú færa stafsetninguna.

d. Með afnámi reglnanna frá 1974 mundu og falla úr gildi öll fyrirmæli um að rita skuli y, ý og ey í íslensku ritmáli, greina sundur hv og kv, hvenær rita skal stóran staf og hvenær lítinn, hvenær eitt orð og hvenær tvö o. s. frv., en um mörg slík atriði voru engar reglur formlega í gildi af hálfu hins opinbera fyrr en reglugerðin frá 3. maí 1974 öðlaðist gildi. Til þess tíma var aðeins stuðst við venjur sem hætt er við að grundvellinum þætti undan kippt ef einu reglurnar um þær yrðu afnumdar.

e. Af þessum sökum er ljóst að samþykkt og framkvæmd þáltill. legði móðurmálskennurum nær óframkvæmanlega og mjög óljúfa skyldu á herðar og yrði því til að valda verulegum glundroða í stafsetningarmálum.

Við lítum svo á að eðlilegt sé að Alþ. ákveði hvernig staðið skuli að breytingum á löggiltri stafsetningu og hverjir skuli um slíkt fjalla, á sama hátt og það ákveður hvaða aðilar skuli ákveða gerð skólahúss eftir að það hefur ákveðið byggingu þess. Hins vegar teljum við óeðlilegt að Alþ. ákveði um einstök atriði stafsetningar, hvaða lestrarkennsluaðferð skuli notuð í barnaskólum eða hvaða málfræðistefna skuli ríkja í móðurmálskennslu, á sama hátt og það er óeðlilegt að Alþ. ákveði veggjaþykkt og burðarþol skólahúsa.“

Þetta er meginefnið í umsögn Samtaka móðurmálskennara um till. til þál. um íslenska stafsetningu á þskj. 64. Í bréfi frá formanni Samtakanna er vikið að erindi sem grunnskólakennarar í Reykjavík, 225 talsins, sendu Alþ. fyrir rétt rúmu ári, 21. apríl 1977. Þar er Alþ. send ályktun um íslenska stafsetningu. „En hana hafa“ — segir í meðfylgjandi bréfi, með leyfi hæstv. forseta — „undirritað grunnskólakennarar í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Seltjarnarnesi. Fór söfnun undirskrifta fram dagana 13.–15. apn7 s. l. Svo sem upphafsorð ályktunarinnar bera með sér, höfðu um hana forgöngu móðurmálskennarar í 7. og 9. bekk. Hafa og nær allir kennarar, er hér um ræðir og til náðist, undirritað ályktunina eða alls 100. Reyndin varð hins vegar sú, að miklu fleiri kennarar óskuðu eindregið eftir að ljá þessu máli lið, og fór svo í sumum skólum að flestir kennarar rituðu nöfn sín undir ályktun þessa. Eru undirskriftirnar því alls 225. Virðist okkur þessar undirtektir sýna svo að ekki verður um villst að meðal grunnskólakennara er samstaða um þetta efni svo sem vænta má um allt það er til bóta horfir í móðurmálskennslu.“ Ég vek athygli á því, að þessi undirskriftasöfnun stóð aðeins í þrjá daga og er því ekki hægt að segja að þar hafi verið leitað með logandi ljósi að mönnum til að undirskrifa þessa ályktun. En ályktunin sjálf er á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Við undirritaðir móðurmálskennarar í 7. og 9. bekk grunnskóla í Reykjavík og nágrenni förum þess á leit við hæstv. menntmrh. og virðulega alþm. að þeir líti af skilningi á eftirfarandi aths. okkar um íslenska stafsetningu:

1. Við styðjum frv. það sem hæstv. menntmrh. lagði fram á síðasta löggjafarþingi þar sem kveðið er á um hvernig standa skuli að breytingum á stafsetningarreglum í framtíðinni. Jafnframt hvetjum við til þess að málnefnd sé efld á allan hátt, svo að hún reynist þess umkomin að sinna því margþætta hlutverki að rækta og fága íslenska tungu.

2. Við vörum eindregið við því, að hrapað verði að breytingum á núgildandi stafsetningarreglum, sem eru að festast í sessi. Einkum teljum við fráleitt að hrófla við reglum um afnám z. Virðist okkur einsýnt að viðurkenna brottfall tannhljóðs á undan s. Sýnist markleysa ein að slíkt horfi til málskemmda. Íslensk tunga á nú í vök að verjast vegna stórfelldra breytinga á samfélaginu. Er starf móðurmálskennara í veigamiklum atriðum breytt frá því sem áður var. Hann verður í æ ríkara mæli að sinna kennslu í málinu sjálfu. Teljum við að tvímælalaust hafi orðið léttir að því að þurfa ekki að sinna þeirri formdýrkun sem hinar gömlu z-reglur útheimta.

3. Við teljum nú meginatriði að friður og eining haldist um núgildandi stafsetningu. Síðar, þegar nokkur reynsla hefur fengist, mætti e. t. v. hnika til nokkrum atriðum, t. d. í reglum um stóran staf og lítinn.

4. Margan vanda er við að glíma í stafsetningarkennslu. Eitt brýnasta verkefni á því sviði teljum við að sé orðtíðnirannsókn sem væri góður grundvöllur í kennslunni. Einnig yrði ótvíræður fengur að tilraunum sem beindust að því að kanna aðferðir við stafsetningarkennsluna og notagildi þeirra.“

Þennan boðskap sendu sem sagt 225 móðurmálskennarar í skólum í Reykjavík og nágrenni til Alþ. fyrir rúmu ári. Ég tel að tilvera þessarar ályktunar og nafnafjöldinn undir henni sýni svo að ekki verði um villst það, sem gerð var aths. við utan úr sal áðan, er ég sagði að vilji hefði verið hjá kennurum til að gera breytingar á stafsetningunni og þær breytingar, sem gerðar voru 1974, hefðu fallið í góðan jarðveg hjá móðurmálskennurum í landinu. Það eru móðurmálskennararnir sem bera hitann og þungann af því að annast málþjálfun og málmenntun þjóðarinnar, eins og nú er komið þegar uppvaxandi kynslóð er að miklu leyti á uppvaxtarárum í langtum minni tengslum við daglegt líf og starf foreldra sinna og annarra fullorðinna heldur en var fram á dag þeirrar kynslóðar sem ég tilheyri.

Það er meginatriði í þessum stafsetningarmálum eins og öllu öðru sem varðar íslenska málkennslu og íslenska málrækt, að kennararnir, sem þetta þýðingarmikla starf annast, hafi sem besta þjálfun og þeim séu búin sem best skilyrði til að vinna verk sitt eins og ég veit að vilji þeirra stendur til. Það er best gert með því að búa svo úr garði stafsetningarreglur, að þær verði ekki að formdýrkun, eins og kennararnir komust að orði í sinni ályktun, að þar sé ekki verið að eltast við innantóm formsatriði, sem hvorki varða hljóðkerfi málsins né beygingarkerfi og því siður merkingarkerfið, heldur að þessir höfuðþættir málsins geti skipað þann heiðurssess og þann aðalsess í móðurmálskennslunni í skólunum sem vera þarf ef móðurmálskennslan á að bera tilætlaðan árangur.