05.05.1978
Sameinað þing: 75. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4547 í B-deild Alþingistíðinda. (3927)

328. mál, Kröfluvirkjun

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég hlustaði með ánægju á það er hæstv. iðnrh., maður með langa reynslu í stjórnmálum og hér á þingi, flutti sína málefnalegu grg. um skýrsluna um Kröflu. Ekki er það nú alveg rétt, að ég hafi líkt hæstv. iðnrh, við geðbilaðan óbótamann hér í sölum Alþingis. Hann var í gamni að ræða um gamlan rómverskan stjórnmálamann, sem hefði haft mikinn áhuga á því, að Karaþó væri lögð í eyði. Ég leyfði mér þá aðeins að benda mönnum á, að annar kunnur rómverskur stjórnmálamaður væri til í sögunni sem hefði orðið frægur fyrir að leika á fiðlu meðan borgin brann. Ekki dettur mér í hug að halda að hæstv. iðnrh. hafi setið úti í Kaupmannahöfn og leikið á fiðlu. Sjálfsagt hefur hæstv. ráðh. verið að hlusta á grösin spretta.

En hitt er rétt ábending hjá hæstv. ráðh., að hér er um að ræða skýrslu hans til Alþingis. Það eru liðnir núna 6 mánuðir og 10 dagar frá því að um hana var beðið. Nú er síðasti fundardagur Sþ. upp runninn. Ef hæstv. iðnrh. hefði ekki verið við, þá hefði enginn verið til þess að flytja Alþ. þá skýrslu sem hann svo réttilega sagði að hann einn væri ábyrgur fyrir. Og það gekk ekki andskotalaust að fá það fram að hæstv. iðnrh., mætti hér til þess að mæla fyrir þessari skýrslu.

Ég vil aðeins taka það fram, að ef athugaðar væru mætingar þm. á s.l. vori, þá held ég að mætti staðfesta að ég var við þingstörf fram á þann dag að þingi var slitið. Ég vil fara þess eindregið á leit við hæstv. iðnrh., að hann kynni sér þetta sjálfur, og ef hann skyldi koma upp hingað aftur til þess að ræða skýrsluna um Kröflu, þá tilkynni hann þingheimi hvaða niðurstaða hefur orðið af þeirri athugun, vegna þess að hún mun staðfesta að ég sat hér á þingi á s.l. vori einnig þann dag er þinglausnir fóru fram og fór ekki á s. l. vori út fyrir hússins dyr, allténd ekki út fyrir landsteinana fyrr en töluvert eftir að þingi var lokið. Ég held að það væri réttara hjá hæstv. iðnrh., þegar hann ræðir um mig, að hafa þá öllu réttari upplýsingar heldur en komnar eru í skýrslu hæstv. ráðh. um Kröflu.

Við erum búnir að bíða í 6 mánuði og 10 daga eftir því að fá þessa skýrslu hæstv. ráðh. Vegna þess að um hana var beðið hefur hér í þingsölum orðið minni umr. um Kröflumálið en ella mundi verið hafa. Þó að það sé langt liðið á þingtímann nú og aðeins nóttin til stefnu, þá held ég þó að rétt væri að fara nokkuð ítarlega út í þessa sálma þó ekki væri til annars en að staðfesta í þingsögunni, hver viðhorf okkar, a. m. k. mín, eru til þess máls sem hæstv. iðnrh. hefur rakið hér.

Í fyrsta lagi er þá rétt að víkja að því, hver þörfin var fyrir raforku á Norðurlandi þegar sú ákvörðun var tekin að virkja Kröflu. Þar hefur mönnum — þar undanskil ég ekki hæstv. iðnrh. — hætt til að rugla ýmsum fræðiheitum saman. Annars hafa menn bæði hér á Alþ. og í blaðaskrifum ruglað mjög saman afli og orku. Það var ljóst á árinu 1974, að ástandið í raforkumálum Norðurlandi var þannig, að eftirspurn eftir raforku á svæðinu var að sjálfsögðu mest á vetrum þegar framleiðslugetan var minnst í vatnsorkuverunum. Það tímabundna ástand hafði því skapast, að um hríð yfir hörðustu vetrarmánuðina skorti afl á Norðurlandi. Úr því var bætt með keyrslu á dísilvélum. Samanlagt afl dísilvéla á Norðurlandi 1974 var 10 mw. Seld orka á því ári nam 20 gwst. eða 25% af orkuvinnslugetu dísilvélanna. 75% af árinu voru dísilstöðvarnar sem sé ókeyrðar. Rafmagnsskorturinn á Norðurlandi var því fyrst og fremst tímabundinn aflskortur. Þetta kemur mjög rækilega fram. Ég get t. d. vitnað í umsagnir Jónasar Elíassonar prófessors, sem er að finna í 21. hefti þingtíðinda 1975–1976, dálki 3196. Einnig get ég vísað þessu til staðfestingar í skýrslu Framkvæmdastofnunar ríkisins um Norðurlandsvirkjun, sem unnin var fyrir samstarfsnefnd í orkumálum Norðlendinga. Á bls. 30 í þeirri skýrslu segir m. a, að á fyrirhuguðu samtengdu svæði Norðurlandsvirkjunar hafi orkuvinnslugetan árið 1975 verið 201 gwst. og af þessari vinnslu hafi 19.9 gwst. verið framleiddar í dísilvélum, en það var einmitt það sem ég var að lýsa hér áðan. Skömmu síðar — á bls. 33 — segir að samanlagður raforkumarkaður fyrir Norðurlands- og Austfjarðasvæðið sé árið 1973 230 gwst., 1980 298–320 gwst. og 1985 438–478 gwst. Það kemur einnig fram í þessari skýrslu, að orkuvinnslugeta Kröfluvirkjunar einnar var metin á 380 gwst. án varaafls, en 590 gwst. með varaafli. Niðurstaðan af þessum tilvitnunum er sú, að rafmagnsskorturinn á Norðurlandi, ef má nefna það svo, var á þessum árum tímabundið ástand, aðallega hörðustu vetrarmánuðina, aflskortur en ekki orkuskortur. Þessu tvennu hefur hins vegar verið ruglað mjög oft saman. Eitt átakanlegasta dæmið í því sambandi er grein eftir einn Kröflunefndarmanninn, Ragnar Arnalds, í Þjóðviljanum 10. febr. 1977. Þar birtir hann á bls. 9 línurit sem hann gefur yfirskriftina: „Sannleikurinn um orkumarkað Kröflu.“ Þeir, sem línuritið bjuggu til, settu hins vegar sjálfir efst á línuritið um hvað það væri: „Almenn notkun, aflþörf.“ Það er verið að bera saman annars vegar aflþörf og hins vegar aflgetu. Þessu ruglar Kröflunefndarmaðurinn saman með því að setja í fyrirsögn með þessu línuriti: „Sannleikurinn um orkumarkað Kröflu“ — og er þetta eitt dæmið af mörgum þar sem þeir Kröflunefndarmenn virðast ruglast á mjög einföldum staðreyndum og fræðiheitum.

Næsta spurning í þessu máli, svo að farið sé mjög fljótt yfir sögu, er því að sjálfsögðu: Var á þessum tíma þörf fyrir grunnafl á Norðurlandi sem réttlætti 60–70 mw. virkjun við Kröflu, hvað þá heldur slíka virkjun að viðbættri byggðalínu með 50 mw. flutningsgetu? Slíkt er að sjálfsögðu fráleitt. Samanlagt dísilafl á þessu svæði var 10 mw. á þessum tíma. Hvaða þörf hafði svæðið fyrir ellefufalt afl í stað dísilvélanna sem keyrðar höfðu verið? Það hefur verið reynt að réttlæta þetta með landsþörfinni. En þá kemur í ljós, svo að enn sé farið fljótt yfir sögu, að í spá Landsvirkjunar er tekið fram að ekki sé þörf fyrir afl frá Kröflu fyrr en eftir árið 1981, og í hugum sérfræðinga hefur alltaf verið út frá því gengið, að um það leyti stæði valið raunverulega á milli Hrauneyjafoss eða Kröfluvirkjunar. Með því að Hrauneyjafoss hafi verið valinn, hefði raunar átt að slá Kröfluvirkjun á frest, sem ekki skipti neinu máli í orkumarkaði landsmanna, eins og glögglega kemur fram nú þegar Kröfluvirkjun framleiðir svo til enga raforku, en það virðist engu máli skipta fyrir raforkumarkaðinn, hvorki á Norðurlandi né á landinu í heild.

Niðurstaðan er sem sé þessi: Það var rafmagnsskortur á Norðurlandi. Það var ekki um að ræða orkuskort, heldur tímabundinn aflsskort, sem bætt var úr með keyrslu dísilvéla. Að sjálfsögðu varð annað að koma til. Hugmyndin hafði verið stækkun virkjunar í Laxá. Sú hugmynd náði ekki fram að ganga, en það er algerlega fráleitt að halda því fram, að í staðinn fyrir keyrslu dísilvéla með samanlögðu 10 mw. afli hafi þurft að koma Kröfluvirkjun plús byggðalina, enda var það aldrei tilgangur þeirra sem um málið fjölluðu.

Eins og ég sagði áðan var hugmyndin upprunalega sú, að Laxárvirkjun yrði stækkuð og þannig leyst orkuvandamál Norðlendinga. Allir þekkja þá sögu, hvernig til tókst með þá framkvæmd. Henni var slegið á frest. Þáv. orkuráðh., Magnús Kjartansson, hafði mikinn áhuga á því að samtengja orkuveitusvæðin í landinu. Hann lét m. a. gera sérstakar kannanir á lagningu orkuflutningslinu yfir hálendið. Hugmyndir hans voru þær, að með þeim hætti bæri að leysa orkuvandamál Norðurlandssvæðisins, þ. e. a. s. með byggingu línu er flytti raforku frá landsvirkjunarsvæðinu og norður. Athuganir þær, sem gerðar voru á línustæðum yfir miðhálendið, leiddu hins vegar fljótt í ljós að þetta væri mjög miklum erfiðleikum bundið. Og menn hljóta að muna þær gegndarlausu skammir og hæðni sem dundu á þáv. orkuráðh., Magnúsi Kjartanssyni, m. a. frá flokki hæstv. núv. orkuráðh., vegna hugmynda Magnúsar um hvernig leysa ætti úr rafmagnsskorti Norðlendinga, þ. e. a. s. með byggðalínu. Hver man ekki allt tal þeirra sjálfstæðismanna um „hundinn að sunnan“, um „sunnlenska orku fyrir norðlenska notendur“ o. s. frv., o. s. frv.

Þeir erfiðleikar, sem komu í ljós við athugun á línulögn yfir miðhálendið, urðu hins vegar til þess, að frá þeirri hugmynd var horfið, a. m. k. um sinn, þó að enn sé hún ekki kistulögð með öllu. En þá kom upp sú hugmynd með svonefnda byggðalínu, þ. e. a. s. línu er fylgdi byggðum og yrði til þess að svara raforkumarkaði Norðlendinga. Þann 5. mars árið 1974 skipaði þáv. iðnrh., Magnús Kjartansson nefnd til þess að sjá um byggingu þessarar byggðalínu. Í nefndinni voru skipaðir með bréfi rn., dags. 3/5 1974, þeir Egill Skúli Ingibergsson, formaður, og aðrir nm. Guðjón Guðmundsson skrifstofustjóri, Tryggvi Sigurbjarnarson stöðvarstjóri, Kristmundur Halldórsson fulltrúi. Nefndin tók til starfa og hélt sinn fyrsta fund strax laugardaginn 9, mars. Nefndin fjallaði m. a. um val línustæðisins, og náðist samkomulag við alla hlutaðeigandi aðila um val línustæðis. Nefndin lauk einnig við að gera till. og ganga frá álitsgerðum um álagsforsendur og styrkleikakröfur til línunnar. Nefndin hafði samband við orkuframleiðendur og náði samkomulagi við þá. Nefndin lét frá 1. maí 1974 hefjast handa um byggingartæknilega hönnun á línunni. Því verkefni var einnig lokið. Nefndin lauk við gerð útboðsgagna yfir allt línuefnið, og sumarið 1974 voru keyptir 1325 staurar til verksins, þannig að hægt var að hefja framkvæmdir strax í sept. eða okt. árið 1974. Þessir 1325 staurar komu til landsins um mánaðamótin ágúst-september. Nefndin lét ljúka raftæknilegri hönnun á byggðalínunni og fjallaði einnig um samþykkt við RARIK. Staða verksins, þegar hæstv. núv. iðnrh. leysti nefnd þessa upp, var þannig:

Kaflinn Andakíll-Varmahlíð 150 km. Mælingu og teiknun langhliða er lokið. Staurasetningu er lokið. Eftirhælun er lokið með eftirtöldum undantekningum:

a. Ef öll línan verður byggð á tréstaurum. Eftir er 24.7 km kafli á Holtavörðuheiði með 221 staurastæði.

b. Ef hluti línunnar verður byggður á stálturnum. Eftir eru 10.9 km á Holtavörðuheiði með 71 staurastæði fyrir tréstaura fyrir og 5.7 km,í Vatnsskarði með 27 staurasleðum stálturna.

Endanlegir útreikningar og stauralistar eru tilbúnir fyrir Borgarfjörð að Holtavörðuheiði. Verið er að vinna við kaflann norðan Holtavörðuheiðar og er áætlað að því verki verði lokið fyrir áramót.

Þannig var sem sé staðan í byggðalínumálunum þegar hæstv. núv. orkuráðh. leysti byggingarnefnd byggðalínu upp, lagði hana niður og frestaði lagningu byggðalínunnar. Hæstv. fyrrv. orkuráðh., Magnús Kjartansson, hefur tjáð mér, að um mánaðamótin ágúst-sept., þegar staurarnir komu til landsins, hafi hann verið búinn að fá vilyrði hæstv. þáv. fjmrh., Halldórs E. Sigurðssonar, um að útvega fé til þess að leysa staurana út svo að línulögnin gæti hafist þá þegar um haustið. Það var hins vegar pólitísk ákvörðun hæstv. núv. iðnrh. að gera þetta ekki.

Það leynir sér ekki ef maður les Alþingistíðindin frá þessum árum þegar Krafla er fyrst tekin til umr. hér á Alþ., hver er vilji ráðh. Ég ætla ekki að lesa tilvitnanirnar í ræðu ráðh., en læt mér nægja að benda á 13, hefti Alþingistíðinda 1974–1975, bis. 2251, þar sem kemur glögglega fram hjá ráðh. hvernig hann hefur hugsað sér að leysa raforkuvandamál Norðlendinga, þ. e. a. s. í fyrsta lagi með byggðalínu, í öðru lagi með virkjun norðanlands. Er raunar furðulegt í þessu ljósi hve sumir Alþb.-menn vilja leggja sig fram um að varpa sök Kröflumistakanna á herðar Magnúsar Kjartanssonar. Það mátti saka Magnús Kjartansson um margt í orkuráðherratíð hans, vera má að rekja megi málið allt til Laxárvirkjunar, sem hann beitti sér fyrir að niður yrði lögð, en þetta verður hæstv. fyrrv. orkuráðh., Magnúsi Kjartanssyni, ekki gefið að sök, að hafa á sama tíma ætlað sér að leggja byggðalinu og reisa Kröfluvirkjun, því að það kemur mjög glöggt fram í þingtíðindum að sú var alls ekki ætlun hans. Hins vegar tekur nýr orkuráðh. við stjórnartaumum eftir stjórnarskiptin. Hann leysir upp bygginganefnd byggðalínu og lætur fresta öllum framkvæmdum við línugerðina. Hann óskar eftir till, frá stjórn Laxárvirkjunar um hvernig leysa beri orkuvandkvæði Norðlendinga. Hann fær till., sem eru þess eðlis sem hér skal lýsa.

Í fyrsta lagi leggur stjórn Laxárvirkjunar til að tekið verði upp málið gamla um stækkun Laxárvirkjunar. Í annan stað leggur Laxárvirkjunarstjórnin til, að ef það væri ekki gert, þá yrði reist lítil bráðabirgðavirkjun í Bjarnarflagi eða við Kröflu. Í þriðja lagi leggur stjórn Laxárvirkjunar til að unnið verði annaðhvort að byggðalinu eða Kröfluvirkjun.

Hæstv. iðnrh., sem við hafði tekið, Gunnar Thoroddsen tók við undirbúnu verki af hæstv. fyrrv. orkuráðh. Hæstv. fyrrv. orkuráðh. hafði valið byggðalínu, látið hanna þá línu og aflað til hennar efnis þannig að hægt var að hefja framkvæmdir við línuna haustið 1974. Hæstv. núv. iðnrh. gerði þann undirbúning að engu og valdi Kröfluvirkjun. Hann vildi ekki „hundinn að sunnan“. Hann vildi „norðlenska orku fyrir Norðlendinga“, eins og þeir væntanlega njóta nú í ríkum mæli.

Ég vil aðeins geta þess, að í 13. hefti Alþingistíðinda 1974–1975 kemur þetta viðhorf mjög glöggt fram hjá einum af stjórnarþm. Hann mælir þar fyrir fsp., sem hann flytur um byggingu byggðalínu norður, og kemst að þeirri niðurstöðu, að furðulegur og undarlegur dráttur hafi orðið á því verki. Hv. þm. Heimir Hannesson, sem sat þá á þingi, mælti fyrir fsp. frá hv. þm. Stefáni Valgeirssyni um byggðalínu og vitnar m. a. í orð hæstv. fyrrv. iðnrh., Magnúsar Kjartanssonar, á Akureyri í árslok 1973, þar sem hæstv. fyrrv. orkumálaráðh. lýsir því yfir, að unnt sé að taka byggðalínuna í gagnið fyrri hluta árs 1975. „Ég álít“ — segir hæstv. fyrrv. iðnrh. — „að það sé ekki neitt raunsæi í öðru en að Norðlendingar, iðnrn. og Orkustofnun vinni saman um það að reyna að hrinda þessari framkvæmd af stað“. Og orkumálastjóri, Jakob Björnsson, sagði á sama fundi um margumrædda byggðalínu: „Þessari línulögn sýnist okkur mega ljúka árið 1975, eins og nú horfir“.

Heimir Hannesson stjórnarþm. segir síðan í lok sinnar ræðu:

„Nú er þegar farið að líða töluvert á árið 1975 og menn hafa séð harla lítið af framkvæmdum og eru orðnir býsna þreyttir í þessu sérstaka máli . . . Ég vil ítreka það einnig að í þessu máli hefur orðið alveg mjög óhæfilegur seinagangur og óhæfilegur dráttur og ég vonast til þess að hraðari gangur komist á þessi mál sem önnur í þessu sérstaka, mikilvæga máli.“

Það fer ekkert á milli mála 1 þessari tilvitnun, að alþm. standa á þessum árum í þeirri trú, að hægt hefði verið að vinna það verk, sem hér um ræðir, árið 1975. Og það fer ekki heldur á milli mála, eftir að hafa lesið þessa tilvitnun og fleiri, að það var stefna þáv. orkumálaráðh., að byggðalínan skyldi verða lögð sumarið 1975. Það var ekki fyrr en í svari hæstv. iðnrh. við þessari fsp. um byggðalínuna frá hv. þm. Heimi Hannessyni sem Alþ. fékk fyrst um það að vita, að líklegt væri að bæði byggðalína og Krafla kæmust í gagnið á sama ári.

Það er oft sagt að sök Kröflumistakanna sé Alþingis, Alþingi hafi afgreitt lögin um heimild fyrir ríkisstj. til að virkja Kröflu m. a. án þess að nauðsynlegum undirbúningi væri lokið. Í skýrslu hæstv. iðnrh. til Alþ. er þetta hvað eftir annað notað sem rökstuðningur fyrir því, hversu mikla áherslu Kröflunefnd hafi lagt á framkvæmdahraðann, Alþingi hafi heimtað að að framkvæmdum yrði staðið með þeim hætti vegna þess að Alþ. hefði afgreitt heimildarlög um Kröfluvirkjun áður en rannsókn væri lokið. Það er hrein firra að halda því fram, að í slíkri afgreiðslu Alþingis felist hvatning um sérstakan framkvæmdahraða. Þvert á móti er mjög algengt að Alþ. afgreiði heimildarlög um ákveðnar virkjanir áður en rannsóknum er lokið og jafnvel áður en í ljós hefur komið, hvort um fýsilegan virkjunarkost sé að ræða eða ekki. Dæmi um þetta eru heimildarlögin sem Alþ. samþykkti í sínum tíma um virkjun Suður-Fossár á Rauðasandi. Þá kom í ljós þegar ríkisstj. hafði fengið þá heimild og virkjunarmálin þar höfðu verið könnuð nokkru rækilegar að þetta var ekki fýsilegur virkjunarkostur. Þess vegna var hætt við hann. Fjölmörg önnur dæmi mætti nefna, t. d. heimildarlög um virkjun Hrauneyjafoss.

Það er regla, en ekki undantekning, að Alþ. afgreiði heimildarlög til ríkisstj. um virkjun áður en endanlegum rannsóknum er lokið. Þó að það hafi verið gert varðandi Kröfluvirkjunina, þá er alls ekki hægt að nota það sem rökstuðning fyrir því, að Alþ. hafi heimtað þann framkvæmdahraða sem á varð. Þvert á móti þegar málið er lagt fram á Alþ., þá er um að ræða frv. til l. um jarðgufuvirkjun við Kröflu eða við Námafjall í Suður-Þingeyjarsýslu. Rannsóknum var ekki lengra komið á veg en það, að ekki var enn búið að skera úr um það hvort væri hagkvæmari virkjunarkostur, Krafla eða Námafjall. Í grg. með frv. er sérstaklega tekið fram, að ef af virkjuninni verði verði hún byggð í tveimur áföngum, þannig að hægt verði að haga byggingunni eftir markaðsþörf og eins sé rekstraröryggi að því, að stöðin sé rekin í tveimur rekstrareiningum o. s. frv. Í þriðja lagi lágu við þetta tækifæri fyrir áætlanir frá Orkustofnun frá árinu 1973 um 8, 12, 16 og 55 mw. virkjun við Kröflu. Í fjórða lagi gátu þeir alþm., sem áhuga höfðu á, vitnað í þessu sambandi til áætlunar um rannsókn háhitasvæða sem Orkustofnun hafði gert, að mig minnir árið 1969, og gerði ráð fyrir ákveðnu framkvæmdaskipulagi um virkjun háhitasvæða, sem gerði að verkum að algerlega útilokað var að ganga út frá því að virkjun við Kröflu gæti tekið til starfa fyrr en í fyrsta lagi 1980–1981, eins og t. d. orkuspá Landsvirkjunar gerir ráð fyrir að gert sé.

Ég get enn lesið fjölmargar tilvitnanir úr Alþt. þessu til staðfestingar. Ég get lesið tilvitnanir úr ræðu hæstv. þáv. iðnrh., Magnúsar Kjartanssonar, þar sem hann leggur áherslu á þá framkvæmdaröð sem ég lýsti hér áðan. Ég get lesið tilvitnanir úr ræðu hæstv. þáv. orkumálaráðh. þar sem hann leggur áherslu á að Krafla verði byggð í tveimur áfön um þannig að tekið sé tillit til markaðssjónarmiða. Ég get lesið fjölmargar tilvitnanir, sem ég hef hér í Alþt., og mun lesa ef óskað verður eftir, t. d. í ræðu hv. þm. Steingríms Hermannssonar, sem var formaður þeirrar n. er um málið fjallaði í Ed. og lýsti því sérstaklega yfir, að fráleitt væri að búast við því að fyrri vélasamstæðan í Kröflu gæti tekið til starfa fyrr en í fyrsta lagi árið 1979 og virkjunin í heild alls ekki fyrr en 1981. Þetta margítrekaði hv. þm. Steingrímur Hermannsson í ræðu sinni.

En það voru tveir hv. þm., sem ekki voru ánægðir með þessa niðurstöðu. Það vildi svo til, að þeir tveir þm. voru báðir úr flokki hæstv. núv. iðnrh. Það voru þeir hv. þm. Halldór Blöndal og hv. þm. Jón Sólnes. Þeir voru ekki sammála hæstv. orkumálaráðh. né heldur hv. þm. Steingrími Hermannssyni um að svo langan tíma tæki að byggja virkjunina. Hv. þm. Halldór Blöndal fór mörgum hæðilegum orðum um þá hugmynd þáv. hæstv. iðnrh. að leysa úr raforkuvandkvæðum Norðlendinga með byggðalínu, með „hundinum að sunnan“. Og það vill svo vel til, að þegar ég var að kynna mér umr. í Alþt. frá þessum árum, þá rakst ég á mjög skemmtilega tilvitnun í mál hv. þm. Jóns Sólness. Ég ætla að lesa þessa tilvitnun þm. til athugunar. Hún er í 21, hefti Alþt. 1973–1974, dálki 3168. Þar segir hv. þm. Jón Sólnes, sem síðar verður formaður Kröflunefndar og stjórnar framkvæmdum:

„En a. m. k. vildi ég leggja áherslu á eitt, sem er aðalatriðið í þessu máli, en það er að nú þegar sé hafist handa að koma pöntun á vélum í væntanlega gufuvirkjun í svokallaða afgreiðsluröð með pöntun á nauðsynlegum vélakosti.“

Ég bið menn að athuga að þetta er á þeim tíma sem frv. um heimild til virkjunar við Kröflu eða Námafjall er til umr. á Alþ. Og þá segir þm. Jón Sólnes, sem síðan verður formaður Kröflunefndar, að það sé aðalatriðið í því máli að þá strax verði vélarnar pantaðar. Og hann bætir við: „...það er engin áhætta tekin, þó að þeirri framkvæmd verði komið á að koma okkur í svokallaða afgreiðsluröð.“

Þetta er orðrétt tilvitnun í ræðu hv. þm. Jóns Sólness á Alþ. 1973–1974 þegar heimildarlögin um virkjun annaðhvort við Kröflu eða við Námafjall voru til umr. Þá telur hv. þm. að engin áhætta sé tekin með því þó að þá þegar verði hafist handa um að panta vélar.

Það er mjög athyglisvert, hvernig frá þessu er sagt í þessari hvítu bók hæstv. iðnrh. Það er mjög athyglisvert hvernig höfundur þessarar skýrslu, sem auðsjáanlega gerir ekki ráð fyrir að þm. kynni sér umr. frá þessum árum, segir frá því sem þarna gerðist. Skýrsluhöfundur segir svo á bls. 40 í skýrslunni, með leyfi forseta:

„Það virðist alger samstaða um að styðja frv.,“ — hann er að segja frá umr. 1973–1974 — „en aðaláhyggjuefni þm. er greinilega það, að virkjunin taki of langan tíma. Er jafnvel vikið að því, að nauðsynlegt sé að panta aflvélar þegar haustið 1974, til þess að komast í afgreiðsluröð, svo sem fram kemur hér á eftir. T. d. má vísa til þingræðu Steingríms Hermannssonar, en þar segir m. a. svo.“

Það var og. Steingrímur Hermannson er talinn segja að nauðsynlegt sé að panta aflvélar til þess að komast í afgreiðsluröð og engin áhætta sé tekin. Það var ekki hv. þm. Steingrímur Hermannsson sem sagði þetta. Það var hv. þm. Jón Sólnes. Hv. þm. Steingrímur Hermannsson sagði hins vegar að ástæða væri til að ætla að ekki væri unnt að taka fyrri vélasamstæðu Kröfluvirkjunar í notkun fyrr en í fyrsta lagi átið 1979 og virkjunina í heild ekki í notkun fyrr en í fyrsta lagi árið 1981. En það virðist vera að þeir, sem sömdu skýrsluna um Kröfluvirkjun, hafi gengið út frá því, — ja, við skulum segja, að þm. hefðu svo mikið að gera að þeir gæfu sér ekki einu sinni tíma til þess að kynna sér þessar umr.

En einni spurningu er þá enn ósvarað; hvers vegna hæstv. þáv. orkuráðh., Magnús Kjartansson, leggur til á þinginu 1973–1974 að á Norðurlandi verði reist raforkuver, sem hann veit að skapar umframframboð á raforku, hvort heldur um er að ræða þarfir Norðurlands eða landsins í heild. Auðvitað var hæstv. fyrrv. orkuráðh., Magnúsi Kjartanssyni, ljóst að við eðlilegar markaðsaðstæður væri ekki þörf fyrir Kröfluvirkjun, ekki einu sinni á árinu 1979. Hvernig stendur þá á því, að hæstv. iðnrh. leggur fram frv. þessa efnis?

Ég fann einnig skýringu á því, sem er athyglisverð fyrir margra hluta sakir. Á bls. 1876 í 13. hefti Alþingistíðinda 1973–1974 er tilvitnun, sem mig langar til þess að lesa, í ræðu hæstv. þáv. orkuráðh. Ég vil biðja menn að muna eftir því, að um þessar mundir stendur hæstv. þáv. iðnrh., Magnús Kjartansson, í samningum við erlent stórfyrirtæki, Union Carbide, um stóriðju á Suðvesturlandi. Þegar gengið er á hæstv. iðnrh. út af Kröfluvirkjun segir hann, með leyfi forseta:

„Hv. þm.“ — þar á hann við hv. þm. Halldór Blöndal —„minntist á, hvort það væri stefna ríkisstj., að ekki skyldi rísa stóriðnaður á Norðurlandi, ekki orkufrekur iðnaður. Því fer mjög fjarri. Ég tel það vera ákaflega mikilvægt atriði, að meiri háttar fyrirtæki af slíku tagi rísi ekki aðeins hér á Suðvesturlandi, heldur einnig á Norðurlandi og Austfjörðum þar sem aðstæður eru hentugar til þess. Og þær aðstæður eru vissulega hentugar bæði á Norðurlandi og Austfjörðum.“

Ég held að það leyni sér ekki, ef menn athuga þessa tilvitnun, hvað býr að baki þeirrar fyrirætlunar hæstv. þáv. iðnrh. að flytja á Alþ. 1973–1974 frv. um virkjun Kröflu, sem hann vissi að ekki var þörf fyrir. Hann, eins og ýmsir aðrir, hafði áhuga á því, að stóriðnaður risi á Norðurlandi eða á Austfjörðum, eins og fram kemur í þessari tilvitnun, og hann var að sjá þeim stóriðnaði fyrir orku, enda er það eina skýringin sem sérfræðingar hafa fundið á því, hvernig á því stendur að Kröfluvirkjun var á annað borð byggð án þess að jafnframt væri tekin ákvörðun um að hefjast ekki handa við Hrauneyjafoss. Eina haldbæra skýringin er sú, að í ráði hafi verið að útvega orku til stóriðju á Norðurlandi eða Austurlandi, eins og fram kemur í þessum tilvitnuðu orðum hæstv. þáv. iðnrh., Magnúsar Kjartanssonar. Og það er athyglisvert fyrir flokksbræður hans, sem ekki hafa haldið þessari tilvitnun mjög á lofti, að hugleiða hvað hún þýðir.

Ég hef reynt að sýna fram á það með þessum tilvitnunum mínum, í hvaða trú Alþ. stendur þegar það afgreiðir lögin um Kröfluvirkjun. Alþ. vissi að hafist var handa um gerð byggðalínu og að líkur bentu til að byggðalínubyggingunni yrði að verulegu leyti lokið sumarið 1975. Alþ. vissi um áætlanir Orkustofnunar um virkjun háhitasvæða frá árinu 1969 sem gengu út frá slíku vinnuskipulagi. Og ef ætti að styðjast við þær áætlanir var út af fyrir sig útilokað að ljúka Kröfluvirkjun á styttri tíma en þeim, að unnt væri að taka hana að hluta til í notkun árið 1979 og að fullu árið 1981. Alþ. var ljóst að það var jafnvel eftir að rannsaka hvort væri fýsilegur virkjunarkostur þar nyrðra, hvort ætti á annað borð að byggja þar jarðgufuvirkjun, og ef svo væri, hvort ætti þá að byggja jarðgufuvirkjunina við Kröflu eða við Námafjall. Og það er mesti misskilningur, sem haldið er fram, m. a. í blöðum, að Alþ. hafi látið þar við sitja. Ég get sýnt fram á það með tilvitnunum í Alþt. að í hvert einasta skipti sem Alþ. fær upplýsingar um hvernig að framkvæmdum er staðið, og yfirleitt fá alþm. upplýsingarnar síðastir manna, þá eru gerðar hér á Alþ. tilraunir til þess ýmist að upplýsa um vandamál, sem reynt var að þegja í hel, eða leggja fram till. um eðlilega málsmeðferð.

Lengi vel standa menn í þeirri trú, að verið sé að vinna að lagningu byggðalínu. Þannig flytur hv. þm. Ingi Tryggvason þá þáltill. á Alþ. 1974, á þskj. 165, að lagningu byggðalínu verði hraðað svo að víst sé að hún verði komin í gagnið fyrir árslok 1975. Hann vissi þá ekki, þessi hv. þm. að hæstv. orkumálaráðh. hefði tekið þá ákvörðun að leysa byggingarnefnd byggðalínu upp. Ég hef vitni að því, orð Heimis Hannessonar, hv. þm., þegar hann mælti á þingi árið 1974 fyrir fsp. frá hv. þm. Stefáni Valgeirssyni til hæstv. iðnrh. um hvernig gengi bygging línunnar og undraðist mjög hversu miklar seinkanir höfðu á orðið. Ég get bent á að þá fyrst kemur það fram frá hæstv. orkuráðh., að líkur séu á að byggðalinan og Krafla komi í gagnið nokkurn veginn jafnsnemma. Ég get bent á það, að í útvarpsumr. árið 1975, þá um haustið, ræddi þáv. formaður Alþfl., núv. formaður þingflokks Alþfl., Gylfi Þ. Gíslason, sérstaklega um Kröfluvirkjun og lýsti því þá yfir, að við þær upplýsingar, sem þá lágu fyrir, bentu allar líkur til þess, að Kröfluvirkjun yrði eitthvert mesta fjárhagsævintýri sem þjóðin hefði þurft að taka á sig.

Ég get bent á það hvernig Bragi Sigurjónsson flytur á þinginu árið 1975 margar fsp. um Kröfluvirkjun og spyr m. a. um, hversu stór sú virkjun eigi að verða, og lætur í ljós mikinn ugg um hvernig að framkvæmdunum er staðið.

Ég get nefnt það, hvernig hér á Alþ. var brugðið við 1. apríl 1976, eftir að Þorleifur Einarsson jarðfræðingur skrifaði grein í Þjóðviljann þar sem í fyrsta sinn var frá því sagt, að ýmislegt varðandi undirbúning og rannsóknir á Kröflusvæðinu væri með mjög óeðlilegum hætti. Þá fyrst komu fram till. frá jarðfræðingnum um að fresta frekari framkvæmdum við Kröfluvirkjun um tíma. Við þm. Alþfl. tókum þá till. upp hér. Hún fékk enga áheyrn. Hins vegar drógu Kröflunefndarmenn, t. d. hv. þm. Ragnar Arnalds, mjög í efa þekkingu Þorleifs Einarssonar á jarðfræðilegum efnum, eins og fram kemur á bls. 2941 í Alþt. 1976.

Ég get vitnað til umr. sem urðu hér 7. apríl 1976 er hæstv. iðnrh. flutti Alþ. skýrslu sína um Kröflu. Hv. þm. Ragnar Arnalds réðst þá á okkur Alþfl.-menn, sem hann sagði að stunduðu æsifréttamennsku út af Kröfluumræðum og blaðamennska okkar um Kröflu væri pólitísk. Gosið væri merkileg tilviljun sem hefði komið upp, uppákoma sem aldrei mundi endurtaka sig. Það hefði að vísu komið hik á menn svona fyrst í stað, en síðan væru menn staðráðnir í að halda áfram af krafti. Hins vegar ætlaði Alþfl. að nota málið til að hefja sig upp úr pólitísku díki. Hv. þm. Ingvar Gíslason, annar Kröflunefndarmaður, sagði við það tækifæri, að hér væri um að ræða skipulagða áróðursherferð Alþfl. sem mótaðist af pólitísku ofstæki. Þm. sagði orðrétt: „Ég mótmæli öllu ráðslagi um frestun af öðrum ástæðum, eins og fjárhagsástæðum.“ Hv. þm. Stefán Jónsson talaði um eymdarvæl Alþfl.-manna og sagðist vel geta fyrirgefið hv. þm. Jóni Sólnes þó að hann hefði gert 25% skyssur. Það var nú öll alvaran á bak við umr. þá. Þá var rætt um að e. t. v. hefði Jón Sólnes gert 25% skyssur, og honum var það svo sem vel fyrirgefanlegt.

Í fyrsta sinn komu þá fram upplýsingar um lánskjör vegna Kröfluvirkjunar, um greiðslubyrði Kröfluvirkjunar og um rekstrarvandamál Kröfluvirkjunar. Þær upplýsingar komu fram í ræðu sem ég flutti þá, á bls. 3197 í 21. hefti Alþt. árið 1975. Þá lagði ég einnig fram hér á Alþ. till. eða beiðni til hæstv. iðnrh. um að hann beitti sér fyrir því, að athugað yrði hvort ekki væri hægt að hægja á framkvæmdum við Kröfluvirkjun, m. a. að fresta vélakaupum og fresta frekari framkvæmdum í ljósi þess að ég hafði látið valinkunnan prófessor í lögum við Háskóla Íslands gefa mér umsögn um hvort ákvæði í samningum, almennum verksamningum og kaupsamningum, væru ekki þess eðlis að unnt væri fyrir Íslendinga að fara þess a. m. k. á leit við verksalana við Kröflu og þá, sem seldu Kröfluvirkjun vélar, að afhendingu og afgreiðslu yrði frestað vegna eldgossins sem þá átti sér stað. Ég óskaði þess eindregið, að hæstv. iðnrh. tæki þetta mál til sérstakrar athugunar og beitti sér fyrir því, að framkvæmdum við Kröfluvirkjun yrði frestað með þessum hætti. Það var ekki gert. Hins vegar hefur Jónas Elíasson prófessor lýst því með mjög glöggum hætti í blaðagrein árið 1976, að frestun framkvæmdanna hefði verið eina bjargráðið sem hefði getað komið í veg fyrir þá alvarlegu atburði, sem gerst hafa við Kröflu, og getað tryggt það eða von væri til þess, að Kröfluvirkjun væri rekin án stórra fjárhagsáfalla. Ég get einnig nefnt það, að 3. des. 1976 óskaði ég eftir því hér í þingi, að hæstv. iðnrh. gæfi Alþ. skýrslu um Kröfluvirkjun, svipaða þeirri sem hér hefur verið lögð fram. Umr. var þá frestað um málið án þess að henni væri lokið, og allan þann vetur var umr. ekki tekin á dagskrá.

Ég held að ég sé búinn að fara allrækilega í forsögu þessa máls. Ég er reiðubúinn til þess að styðja það sem ég hef sagt, með tilvitnunum, ef þess verður óskað. Áður en ég vík að skýrslunni sjálfri ætla ég þó að víkja örfáum orðum að því, hvernig hún er til orðin.

S. l. haust beitti ég mér fyrir því, að 10 þm. notuðu heimild 31. gr. þingskapa til að krefjast skýrslu frá ráðh. Beiðnin var lögð fram 7. nóv: 1977. M. a. var óskað eftir því, að skýrslan um Kröflu tæki til ákveðinna atriða, og einnig óskað eftir því, að umr. um skýrsluna gætu orðið áður en fjárlög og lánsfjáráætlun fyrir árið 1978 væru afgreidd, þ. e. a. s. fyrir jólaleyfi þm. Mér var kunnugt um að Júlíus Sólnes prófessor tók að sér það verk að ritstýra skýrslu þessari. Ég veit það, hvað sem hæstv. iðnrh. segir, að Júlíus Sólnes lauk því verki að mestu fyrir jól. M. a. get ég minnt hæstv. ráðh. og hv. þm. Jón Sólnes, formann Kröflunefndar, á það, að þeir sögðu mér það sjálfir áður en þing fór í jólaleyfi, að skýrslan væri eiginlega fullbúin og ég mætti eiga von á því að fá hana til aflestrar í jólaleyfi þm. Hæstv. iðnrh. sagði m. a., að ég mundi fá hana sem sérstaka jólabók frá sér. Það er því misskilningur og ekki rétt, að meginefni skýrslunnar hafi ekki legið fyrir af hálfu ritstjóra skýrslunnar þegar um s. l. áramót. Mér er líka kunnugt um að í janúarmánuði s. l. lagði höfundur skýrslunnar, Júlíus Sólnes, síðustu hönd á sitt verk, m. a. í samráði við Orkustofnun. Þá ræddi skýrsluhöfundurinn við Orkustofnun í síðasta sinn, og engar umræður milli hans og Orkustofnunar hafa síðan farið fram. Af þessu dró ég þá ályktun, að hæstv. iðnrh. væri búinn að fá þessa skýrslu í hendur fyrir allnokkru. Að vísu er það rétt, sem hann segir, að þetta er ekki skýrsla Júlíusar Sólness til Alþ., þetta er ekki skýrsla Orkustofnunar til Alþ., ekki skýrsla Kröflunefndar til Alþ., heldur skýrsla iðnrh. til Alþ., þannig að hann getur haldið því fram, að samningu skýrslunnar hafi ekki verið lokið fyrr en hann var búinn að strika út síðustu klausuna sem hann ákvað að fella niður. En hitt er rétt, að hæstv. iðnrh. fékk þessa skýrslu frá ritstjóra hennar í hendur fyrir allnokkru og er nú búinn að hafa hana til meðferðar, að ég fullyrði, vikum saman. Og ég vil minna hæstv. ráðh. á það, að hann hefur oftar en einu sinni og oftar en tvisvar sagt mér í vetur að skýrslan væri alveg að koma, prentsmiðjuvinna væri hafin o. s. frv., o. s. frv.

Það var hins vegar ekki fyrr en mánudaginn 24. f. m. sem 70 eintök af þessari skýrslu voru send hingað í Alþ. Það voru eintök á hvern þm. og hvern varaþm. og ekkert þar fram yfir. Blöðin fengu ekkert eintak, Ríkisútvarpið, þ. e. a. s. sjónvarp og hljóðvarp fékk ekkert eintak. Þær stofnanir, sem fjallað er um í þessari skýrslu, fengu ekkert eintak. Klippt og skorin 70 eintök voru send hingað niður í þing og borin á borð þm. Þeim var ekki útbýtt, heldur var skýrslan borin á borð þm. Ég frétti síðan að taka ætti skýrsluna til umr. þegar daginn eftir, þriðjudaginn 2,5. þ. m., það ætti sem sé að taka skýrsluna til umr. án þess að þeim sérfræðingum, sem um er fjallað í skýrslunni, gæfist nokkurt tækifæri til þess að lesa hana eða kynna sér efni hennar og án þess að alþm., mér og fleirum, gæfist kostur á að athuga skýrsluna nema í hæsta lagi 24 klst., og var þá um að ræða tíma þegar Alþ. sat á kvöld- og næturfundum og haldnir voru fundir alla morgna í nefndum.

Þegar mér var þetta ljóst kom ég að máli við hæstv. forseta Sþ. Ég vakti athygli hæstv. forseta á því, að skýrslunni væri í fyrsta lagi ranglega dreift. Hér væri um að ræða svar við beiðni um skýrslu, sem útbýtt hefði verið sem sérstöku þskj. og svarinu ætti tvímælalaust að útbýta úr forsetastól sem þskj. og gefa því þskj.-númer, en ekki að dreifa til þm. utan fundar líkt og um leyniplagg væri að ræða sem ekki væri ætlunin að gera opinbert. Ég fór einnig fram á það, að hæstv. forseti notaði fyrsta tækifæri sem gæfist til þess að útbýta skýrslunni með formlegum hætti, en það yrði gert þriðjudaginn 25. f. m. Ég benti hæstv. forseta á, að það væri ekki í samræmi við þingvenjur að taka þskj. til umr. á sama fundi og því væri dreift og ég teldi óeðlilegt, eins og að þessum málum væri staðið, að samþykkja afbrigði frá venjum um hvernig það yrði rætt.

Hæstv. forseti féllst á þessa skoðun mína. Hann lét dreifa skýrslunni formlega og tilkynnti það úr forsetastól þriðjudaginn 25. f.m. Hann gaf skýrslunni þskj.-númer við það sama tækifæri. Hæstv. forseti Sþ. heimilaði ekki umr. um hana við það tækifæri. Hins vegar óskaði hæstv. iðnrh. eftir því að þó að svo færi, þá væri honum heimilað að mæla fyrir skýrslunni með nokkrum orðum vegna þess að daginn eftir hygðist hann fara til útlanda, að lokinni framsöguræðu hans væri síðan hægt að fresta umr. þar til síðar. Hæstv. forseta fannst þessi ósk einnig óeðlileg. Í ljós kom hins vegar síðar, að þegar hæstv. iðnrh. bar þessa ósk upp við hæstv. forseta Sþ., þá hafði hann ákveðið að koma ekki til landsins aftur fyrr en að þinghaldi loknu. Óskin var því um það, að hafin yrði umr. um skýrslu iðnrh. til Alþ. um Kröfluvirkjun með því að hæstv. iðnrh. yrði gefið orðið þriðjudaginn 25. f.m. til að mæla fyrir skýrslunni, að lokinni framsöguræðu hans yrði síðan umr. frestað, ráðh. héldi af landi brott og kæmi ekki aftur það sem eftir liði þingtímans.

Þriðjudaginn 2. maí s. l. hafði ég síðan tal af forseta Sþ., þá um morguninn, og spurði hann hvenær dags skýrslan um Kröfluvirkjun kæmi á dagskrá. Hæstv. forseti tjáði mér þá, að hann hefði þá um morguninn haft þær spurnir af fyrirætlunum iðnrh., sem hafði verið erlendis síðan á miðvikudaginn næsta áður, að hæstv. ráðh. ætlaði ekki að koma heim fyrr en líkur væru til að þinghald væri búið. Ég fullyrði að forseta Sþ. var ekki kunnugt um þessa fyrirætlun ráðh. fyrr. Ég fullyrði að engum alþm. var um það kunnugt, þegar hæstv. iðnrh. hélt af landi brott þriðjudaginn 26. apríl, að hann hygðist ekki koma til landsins aftur fyrr en þingi væri lokið. Í því sambandi leyfi ég mér að vitna til svars hæstv. forsrh., sem hann gaf mér þriðjudaginn 2. maí, er ég spurðist fyrir um ferðir hæstv. iðnrh. utan dagskrár, en þá sagði hæstv. forsrh. að þá um morguninn, 2. maí, hefði sér borist vitneskja um að hæstv. iðnrh. hefði breytt fyrirætlunum sínum og ætlaði ekki að koma til landsins fyrr en 9. maí, nokkru eftir að Alþ. hefði lokið störfum.

Allt var gert til þess að fresta því að skýrslan yrði lögð fram. Henni var ekki útbýtt með eðlilegum hætti, eins og upphaflega var ráðgert, og virtist vera að skýrslan ætti ekki að verða opinbert plagg eins og þskj. eru. Séð var svo til, að eintök væru svo fá að fjölmiðlar ættu erfitt með að kynna sér efni skýrslunnar. Í þriðja lagi átti að hespa umr. af 24 klst. eftir að þm. höfðu skýrsluna augum litið. Í fjórða lagi var sú áætlun lögð, þegar þær fyrirætlanir náðu ekki fram að ganga, að hæstv. iðnrh. fengi heimild til að fylgja skýrslunni úr hlaði 24 klst. eftir að hún var borin til þm., síðan yrði umr. strax frestað meðan ráðh. brygði sér bæjarleið, sem seinna kæmi í ljós að stæði yfir þar til þingslit hefðu farið fram. Þegar einnig sú áætlun fór út um þúfur hélt ráðh. utan, hafði svo samband heim nokkrum dögum síðar og tilkynnti að hann væri ekki væntanlegur til þings fyrr en eftir kosningar. Enginn var því til að flytja Alþ. umrædda skýrslu og ef af umr. yrði engu að síður, þá yrðu þær að ráðh. fjarstöddum.

Þessi málsmeðferð er gleggsta dæmið um það, hvaða álit hæstv. iðnrh. sjálfur hefur á þessari Kröfluskýrslu sinni. Hversu erfiðlega hefur gengið að fá hæstv. ráðh. til að ræða skýrslu þessa er gleggsta dæmið um að honum skýst ekki, enda skýr maður og veit að í skýrslu þessari er illt mál að verja sem væri best fyrir hann og hans menn ef hann gæti forðast sem allra mest að þurfa að eyða orðum að. Og þá loksins — herra forseti — er ég kominn að efni skýrslunnar.

Eins og fram er tekið í formála að þessari skýrslu er hún þannig samin, að Júlíus Sólnes prófessor er fenginn til þess að annast skýrslugerðina eða öllu heldur til þess að annast ritstjórn hennar. Hann mun hafa unnið það verk þannig að safna gögnum og álitsgerðum frá ýmsum aðilum og vinna síðan á grundvelli þeirrar gagnasöfnunar skýrsluna sjálfa, m. a. með þeim hætti, eins og raunar er að vikið í henni, að fella niður ýmis atriði úr álitsgerðum sérfræðinga og stofnana sem ritstjóra skýrslunnar þóttu minna virði. En það hefur verið gert meira en það, hvort sem það er verk ritstjórans eða þess manns sem skýrsluna leggur hér fram, hæstv. iðnrh. Sá, sem um hefur fjallað, hefur bókstaflega breytt skýrslu þessari í mjög veigamiklum atriðum. Þetta ber að hafa í huga þegar skýrslan er lesin. Þar sem t. d. er sagt frá áliti Orkustofnunar í þessari skýrslu, er í raun réttri verið að fjalla um niðurstöður stofnunarinnar, eins og ritstjóra skýrslunnar eða hæstv. iðnrh. hefur þótt hlýða að setja það álit fram. Í því sambandi er rétt að hafa eftirfarandi atriði í huga:

Júlíus Sólnes er sjálfur beinlínis tengdur við Kröflumálið og þá sérstaklega við einn aðila af þeim sem um málið hafa fjallað. Með þeim orðum á ég alls ekki við tengsl Júlíusar Sólness við formann Kröflunefndar, heldur hitt, að Júlíus Sólnes hefur starfað á vegum nefndarinnar og m. a. gegnt starfi yfirverkfræðings Kröflunefndar í forföllum Einars Tjörva Elíassonar og væntanlega þar með ekki aðeins þegið laun frá Kröflunefnd, heldur hlýtur einnig að vera beinlínis ábyrgur fyrir sumum aðgerðum og ákvörðunum Kröflunefndar. Hann er því langt í frá að vera óhlutdrægur aðili í málinu, enda þótt ég dragi síður en svo í efa þekkingu og hæfni Júlíusar Sólness í fræðigrein sinni.

Í annan stað leyfi ég mér að benda á, að fyrir u.þ.b. 11/2 ári ritaði varaformaður Kröflunefndar, hv. þm. Ingvar Gíslason, blaðagrein, þar sem hann m.a. lét í ljós þá skoðun í fyrsta sinn opinberlega, að ekki væri við Kröflunefnd að sakast hvernig farið hefði, heldur væri það Orkustofnun og sérfræðingar hennar sem bæru sökina. Orkustofnun og sérfræðingar hennar hefðu ekki reynst vandanum vaxnir, ekki gefið réttar ráðleggingar og ekki reynst þess umkomnir að ráða við verkefni af því tagi sem Kröfluvirkjun er. Þarna er um að ræða einhliða yfirlýsingu frá varaformanni Kröflunefndar um að mistökin við Kröflu séu Orkustofnun og vísindamönnunum að kenna, en að Kröflunefnd hefði allt sitt á hreinu. Og ég leyfi mér að benda á, að engum dylst, sem skýrsluna les, að þetta er einmitt niðurstaða þess sem skýrsluna samdi. Þá var Júlíus Sólnes starfsmaður Kröflunefndar, en er þrátt fyrir það falið það mikla trúnaðarstarf að semja óhlutdræga skýrslu um málið. Hann telur ótvírætt að mistökin við Kröflu beri að skrifa á reikning orkustofnunar, hún hafi reynst vanbúin því að gegna sínu ráðgjafar- og gufuöflunarhlutverki. Hins vegar er aftur og aftur í skýrslunni borið sérstakt lof á Kröflunefnd og verk hennar.

Í sjálfu sér er ekkert við því að segja, að þetta sé skoðun Júlíusar Sólness. Spurningin er aðeins sú, hvort hann eða einhver sá, sem hefur um skýrsluna fjallað, e. t. v. hæstv. iðnrh. sjálfur, hafi beitt aðstöðu sinni sem höfundur skýrslunnar að einhverju leyti til að staðfesta þessa skoðun með ósanngjörnum hætti í garð Orkustofnunar og vísindamanna hennar. Og ég held að ótvírætt sé, að það sé skoðun Orkustofnunar sjálfrar að svo sé.

Ég vil skýra frá því, að í gær var hæstv. orkumálaráðh. afhent bréf frá stjórn Orkustofnunar. Bréf þetta er mjög ítarlegt, mun vera um 18 bls. eða svo, og í því er að finna mjög harðorðar aths. og gagnrýni á það sem sagt er vera álit Orkustofnunar í þessari skýrslu. Ég óskaði eftir því í dag að fá þetta bréf frá orkumálastjóra. Orkumálastjóri sagði að þetta bréf hefði verið sent hæstv. iðnrh. persónulega og hann gæti ekki leyft mér að sjá afrit af þessu bréfi nema með leyfi iðnrn. Lengi dags reyndi ég að ná sambandi við ráðuneytisstjórann í iðnrn. Það gekk ekki vel. Hann var ávallt sagður ekki við á skrifstofu sinni. Hins vegar varð ég þess áþreifanlega var, að hann átti símasamtöl við aðra alþm. frá þeirri skrifstofu sem hann var ekki sagður vera á. Ég náði þó undir lokin símasambandi við ráðneytisstjórann í iðnrn. og spurði hann, hvort ég gæti fengið heimild frá honum til þess að fá að sjá þetta umrædda bréf. Ráðuneytisstjórinn sagðist aðeins hafa fengið eitt eintak, hann hefði sjálfur ekki lesið bréfið og hefði því miður ekkert ljósrit í höndunum, því að frumritið hafði hann sent hæstv. iðnrh., og því gæti hann ekki sinnt beiðni minni. Ég spurði þá ráðuneytisstjórann, hvort ég hefði leyfi hans til þess að fá ljósrit af afriti bréfsins hjá Orkustofnun. Ráðuneytisstjórinn sagðist því miður ekki geta leyft það, hann hefði ekki séð bréfið, þetta væri mál ráðh. Ég fór til hæstv. iðnrh., Gunnars Thoroddsens, og óskaði eftir því við hann, að hann veitti mér heimild til þess að sjá þetta 18 bls. bréf með aths. Orkustofnunar sem honum barst í gær. Hæstv. iðnrh. tjáði mér að hann gæti því miður ekki orðið við þeirri bón minni, því að honum hefði ekki unnist tími enn þá til að kynna sér efni bréfsins.

Það liggur því fyrir, að talinn var nægur tími fyrir alþm. til þess að kynna sér efni þessarar skýrslu, sem alþm. hafa haft núna um nokkurra daga skeið, og taka hana til umr. með 24 klst. fyrirvara. Það liggur fyrir, að Orkustofnun er þeirrar skoðunar að í skýrslunni sé mjög hallað réttu máli í hennar garð. Stjórn Orkustofnunar hefur sent hæstv. iðnrh. bréf með mótmælum. Það er ekki nokkur lífsins leið fyrir alþm. að fá að sjá þessa umsögn Orkustofnunar. Hæstv. iðnrh. virðist þurfa mun meiri tíma til að kynna sér bréf stjórnar Orkustofnunar heldur en hann ætlaði okkur alþm. til að kynnast efni skýrslunnar allrar. Því ætla ég að beina þeim eindregnu tilmælum til hæstv. iðnrh., að þegar hann telur að hann hafi kynnt sér efni umsagnar Orkustofnunar nægilega vel, sem væntanlega verður við fyrsta tækifæri, þá birti hann opinberlega þær aths. sem Orkustofnun hefur gert.

Ég ætla að ítreka þessi tilmæli mín til hæstv. iðnrh., svo að ekki fari á milli mála: Ég óska eftir því, að hæstv. iðnrh. birti opinberlega, með sama hætti og þessi

Kröfluskýrsla hefur verið birt, aths. þær sem hann fékk frá stjórn Orkustofnunar í gær með bréfi, og ég óska eftir að það verði gert eins fljótt og við verður komið, svo að fólk geti fengið að sjá hvar það er sem stjórn Orkustofnunar telur á sig hallað í þessari skýrslu. Þar til það bréf liggur fyrir er að sjálfsögðu ekki um annað að ræða fyrir mig en gefa þm. nokkra hugmynd um hvað í þessu bréfi stendur. Það er þá best að gera það.

Ég er með í höndum gögn varðandi Kröfluvirkjun sem Orkustofnun afhenti Júlíusi Sólnes þegar hann vann að samningu skýrslunnar. Þessi gögn tók Orkustofnun saman og þau eru nýlega komin í mínar hendur. Ég ætla að bera þessi gögn, sem Orkustofnun afhenti, saman við þann þátt sem sagður er álit Orkustofnunar í þessari skýrslu. Ég held að það sé ekki mikið sem kemur fram í þeim samanburði sem sé ótalið í bréfi því sem hæstv. orkuráðh. hefur fengið.

Á bls. 118 í skýrslunni um Kröfluvirkjun er rætt um boranir 1975, í kafla sem sagður er vera álit Orkustofnunar. Þar segir m. a., fyrir neðan miðja bls. 118:

„Nú virðist sem tiltækt fé til borana á sumri komandi verði 150 millj. kr. Eins og sjá má á ofangreindri áætlun nægir það ekki til að ljúka einni holu vegna þess, að af upphæðinni hafa þegar verið keypt fóðurrör og fleira í 5 holur.“ Segir síðan næst í skýrslu Orkustofnunar, en hefur verið fellt niður af höfundi Kröfluskýrslunnar:

„Í þessu sambandi vill Orkustofnun leyfa sér að vísa til bréfs til hins háa rn., dags. 14.3.75, þar sem rædd var sú áhætta, sem því óhjákvæmilega fylgir að hefja byggingu orkuvers og annarra vinnslumannvirkja áður en reynsluborunum er lokið og nægilegt gufumagn fengið upp á yfirborðið. Eins og þar kemur fram er vinnsluborunin í raun og veru of seint á ferðinni, miðað við tímaáætlun Kröflunefndar, miðað við það sem eðlilegt og æskilegt getur talist. Því hefur Orkustofnun áhyggjur af því, ef nú verður dregið úr vinnsluborunum frá því sem ráðgert var, sem getur leitt til þess að þessi áhætta verði meiri en áður.“

Hér er um að ræða viðvaranir frá Orkustofnun sem fram koma í því handriti sem hún sendi þeim sem þessa skýrslu samdi. Þessar viðvaranir Orkustofnunar hefur skýrsluhöfundur fellt niður.

Á bls. 128, á miðri síðu, er enn fremur vikið að árangri borana 1976. Þar er sagt, eftir að fjallað er um tæknilega framkvæmd borana, að hiti þess. þ. e. a. s. neðra kerfisins, sé hærri en fundist hafi áður á jarðhitasvæði hérlendis og með þeim hæsta sem fundist hafi í heiminum. Síðan segir í skýrslu Orkustofnunar: „Í því er mikið magn af óþjappanlegum gastegundum, sem fylgja gufunni inn á vélar virkjunarinnar og draga úr nýtni stöðvarinnar.“ — Þetta álit Orkustofnunar er fellt niður úr skýrslunni.

Á bls. 133 er enn einn kaflinn. Þar er sagt, efst á bls. á eftir lið 3:

„Um þetta leyti“ 7 þ. e. a. s. 7. febr. 1977 7 „var það ljóst orðið, að jarðhitasvæðið við Kröflu var mun flóknara að uppbyggingu en áður hafði verið reiknað með. Nánari lýsingu á því er að finna í holubréfi nr. 7. Til undirbúnings tillögum að borunum 1977 gekkst Orkustofnun fyrir fundi sem haldinn var að Nesjavöllum í Grafningi dagana 15.–16. febrúar 1977. Á þessum fundi voru fulltrúar Orkustofnunar, Kröflunefndar, verkfræðistofunnar Virkis og VST auk sérstakra ráðgjafa Orkustofnunar. Voru gufuöflunarmálin rædd þar á mjög breiðum grundvelli til að reyna að fá fram sem flest sjónarmið þar að lútandi. Að loknum Nesjavallafundi samdi Orkustofnun grg. um stöðu mála og till. um boranir á árinu 1977.“ Allt, er varðar þennan fund, er niður fellt úr þessari skýrslu, e.t.v. til að reyna að koma í veg fyrir að mönnum verði ljóst að Orkustofnun hafði á þessum tíma samráð við Kröflunefnd og verkfræðistofurnar um borunarmál.

Á bls. 148 í þessari skýrslu er mjög athyglisverð breyting, sem gerð hefur verið á handriti Orkustofnunar. Hér er um það að ræða að sá, sem semur þessa skýrslu, hvort sem það er Júlíus Sólnes prófessor eða hæstv. iðnrh. sem um fjallar, fellir mjög verulega niður og jafnvel breytir handriti því, sem hann fær hjá Orkustofnun, á þann veg, að hlutur Orkustofnunar verður allur verri. En á bis. 148 er mjög athyglisverð breyting, sem sumir, er taka mundu stórt upp í sig, mundu jafnvel orða við hálfgerða fölsun. Þar segir í handriti Orkustofnunar, sem skýrsluhöfundi er látið í té, efst á bls. 148: „Rn. tók hins vegar ekki afstöðu á því stigi málsins til tillögu um borun við Námafjall.“ — Þessu orðalagi breytir höfundur skýrslunnar í þessa veru: „Rn. féllst hins vegar ekki á tillögu um borun við Námafjall.“ Breytt er orðalagi, þar sem segir að rn. hafi ekki tekið afstöðu til till., þannig, að rn. hafi ekki fallist á till. Hvers vegna skyldi nú skýrsluhöfundur hafa breytt þessu, þegar fyrir liggur bréf frá iðnrn., dags. 26. maí 1977, þar sem segir orðrétt: „Rn. tekur á þessu stigi málsins ekki afstöðu til borunar þar?“ M. ö. o.: hér er um það að ræða, að höfundur handrits Orkustofnunar tekur orðrétt upp tilvitnanir rn. er hann semur sína skýrslu. Sá, sem síðar fjallar um, breytir þessari tilvitnun, gerir þar með öllu verri hlut Orkustofnunar, en öllu betri hlut rn.

Það er fjölmargt annað, sem ég ætla að benda á og gera aths. við. Á bls. 18 í skýrslu þessari um Kröfluvirkjun er t. d. gerð sú breyting, að neðst á bls. 51, svo vitnað sé í árslok 1974, er felld niður svo hljóðandi klausa úr áliti Orkustofnunar um vitneskju í árslok 1974:

„Á þessum tíma höfðu engar vinnsluholur verið boraðar og lágu því ekki fyrir upplýsingar um afl vinnsluhola á Kröflusvæði. Ekki lágu heldur fyrir upplýsingar um þrýsting, streymisgerð og streymisviðnám í jarðhitakerfinu. “

Þetta segir Orkustofnun að hafi verið vitneskja í árslok 1974 þegar enn átti eftir að vinna mjög verulega við virkjunina við Kröflu. Þetta fellir höfundur skýrslunnar niður.

Á bls. 21 er enn breyting gerð. Þar segir m.a. í kafla um álit Orkustofnunar, sem felldur er niður í skýrslunni, bréf dags. 22. maí 1975 til iðnrn.:

„Stofnuninni virðist auðsætt, að ef skera verður niður fé til Kröfluframkvæmda frá því sem ráðgert var sé óhjákvæmilegt að endurskoða alla tímaáætlun þeirra framkvæmda, bæði varðandi gufuöflunina og aðra hluta þeirra. Í þeirri endurskoðun þarf að samræma endurskoðunina öðrum framkvæmdaþáttum út frá þeirri staðreynd, að gufan er það, sem allt mannvirkið byggist á, og þarf því öflun hennar að njóta það mikils forgangs að ekki sé verið að taka óþarfa áhættu.“

Þetta er bréf frá Orkustofnun til iðnrn., dags. 22. maí 1975, sem er í handriti Orkustofnunar með þessari skýrslu og lýsir viðvörunum Orkustofnunar til iðnrn. Það fellir höfundur skýrslunnar niður. Þá fellir hann þarna einnig niður eftirfarandi kafla:

„Álit Orkustofnunar var þannig það, að niðurstöður rannsóknarborananna gæfu tilefni til að hefjast handa um borun vinnsluhola.“

Þetta er fellt niður og er fullyrt í skýrslunni, að niðurstöður Orkustofnunar hafi orðið þær, að rannsóknarboranirnar hafi gefið tilefni til að hefjast handa, ekki um borun vinnsluhola, heldur um gerð virkjunarinnar. Síðan segir einnig, sem höfundur skýrslunnar eða hæstv. iðnrh. fellir niður:

„Hins vegar taldi Orkustofnun, að áhætta væri tekin með því að hefja byggingu stöðvarinnar áður en upplýsingar lágu fyrir um borun vinnsluhola.“

Þetta er talsvert mikið atriði í málinu, sem þarna er bent á að lá fyrir 22. maí 1975 í bréfi. Einnig þetta er fellt niður. Einnig er fellt niður að geta þess, að þegar umr. hófust um gerð aflvéla hafi Orkustofnun óskað að fulltrúar hennar tækju þátt í þeim umr. Hins vegar segir að vísu í skýrslu Kröflunefndar, á bls. 20, að fulltrúi Orkustofnunar hafi tekið þátt í viðræðum sem fram fóru á vegum Kröflunefndar um gerð verk- og tímaáætlunar fyrir virkjunina. Ég fullyrði það eftir samtölum sem ég hef átt við rannsóknarmenn Orkustofnunar, að þeir höfðu ekki hugmynd um að gerð verk- og tímaáætlunar stæði yfir. Verkefnastjóri rannsóknanna á Kröflusvæðinu hafði ekki hugmynd um að það stæðu yfir viðræðufundir um gerð verk- og tímaáætlunar fyrir Kröfluvirkjun, og yfirmaður rannsókna Orkustofnunar á háhitasvæðum, Stefán Arnórsson, hafði ekki heldur minnstu hugmynd um þetta. Það var ekki fyrr en á fundi í iðnrn. 3. mars árið 1975 sem þessir rannsóknarmenn fengu pata af því, að hafin væri gerð verk- og tímaáætlunar um virkjunina áður en lægi fyrir niðurstaða af gufuöfluninni. Á þeim fundi gagnrýndu þeir þær fyrirætlanir mjög harðlega og taka raunar þannig til orða, að þar hefði allt sprungið í loft upp. Í framhaldi af því skrifaði stjórn Orkustofnunar bréf það, sem dags. er 14. mars 1975 og felur í sér fyrstu viðvaranir stofnunarinnar til iðnrn. og Kröfluvirkjunar, þó að stjórn Orkustofnunar hafi í þessu bréfi mjög dregið úr viðvörunum sérfræðinganna. En Orkustofnun er ekki búin að bíta úr nálinni með þá afstöðu enn, vegna þess að þá afstöðu stjórnar Orkustofnunar virðist nú eiga að nota til þess að kenna rannsóknarmönnum stofnunarinnar mjög verulega um þau mistök sem þarna voru gerð.

En það er fleira athyglisvert í sambandi við þessa skýrslu — miklu fleira. Á bls. 28 í Kröfluskýrslu er svo hljóðandi kafli birtur sem álit sérfræðinga Kröflunefndar, — með leyfi forseta vil ég lesa hann orðrétt, — þetta er birt í skýrslunni sem álit sérfræðinga Kröflunefndar:

„Sú vitneskja, sem þarf til þess að finna bestu lausn á legu stöðvarhúss, inntaksþrýstingi á vélar og gerð gufuveitu byggir að talsverðu leyti á vinnslueiginleikum borhola (rennsli við mismunandi mótþrýsting, gufuhluta í rennsli við mismunandi mótþrýsting og útfellingar- og tæringarhættu). Litlar upplýsingar af þessu tagi lágu fyrir, er ákvörðun um aflvélarnar var tekin, að öðru leyti en því, að talin var viss hætta á kísilútfellingum, ef hitastig í vatnsæðum, færi yfir um 300° C.“

Þetta er sagt álit sérfræðinga Kröflunefndar. Sá sem þennan kafla samdi var hins vegar ekki sérfræðingur Kröflunefndar, heldur Stefán Arnórsson jarðfræðingur hjá Orkustofnun: Í handriti Orkustofnunar, sem afhent var þeim er skýrslu þessa samdi, er þetta á bls. 13 sem niðurstaða Stefáns Arnórssonar sérfræðings Orkustofnunar. Það, sem höfundur skýrslu þessarar hefur gert, er að hann hefur tekið það, sem Orkustofnun lætur frá sér fara, sem álit síns sérfræðings, breytt orðalagi eilítið, flutt það yfir sem álit sérfræðinga Kröflunefndar og birt það í þessari skýrslu. Til samanburðar, svo að menn átti sig á hvað hér er um að ræða, ætla ég — með leyfi forseta — að lesa orð Stefáns Arnórssonar í áliti Orkustofnunar á bls. 13, en þau hljóða svo:

„Sú vitneskja, sem þarf til að finna legu stöðvarhúss, inntaksþrýsting á vélar og gerð gufuveitu, lá ekki fyrir, þegar ákvörðun var tekin um tímasetningu framkvæmda og val á vélabúnaði. Hún byggir að talsverðu leyti á staðsetningu borhola og vinnslueiginleikum þeirra, rennsli við mismunandi mótþrýsting, gufuhluta í rennsli við mismunandi mótþrýsting og útfellingar- og tæringarhættu. Engar upplýsingar af þessu tagi lágu fyrir er nefnd ákvörðun var tekin að öðru leyti en því, að talin var hætta á kísilútfellingum, ef hitastig í vatnsæðum færi yfir 300°C.“

Þetta er orðrétt álit Stefáns Arnórssonar, sérfræðings Orkustofnunar, sem höfundur þessarar skýrslu tekur, breytir eilítið orðalagi á og birtir síðan í skýrslunni sem álit sérfræðinga Kröflunefndar.

Svo að ég fari fljótt yfir sögu, þá er næst á bis. 149 að mjög verulegar breytingar eru gerðar á efni þessarar skýrslu. Þar segir m. a. svo:

„Það er hugsanlegt“ — segir í Kröfluskýrslu — „að aðgerðirnar í 2. lið, þ.e. á borholum frá í fyrra“ — það er verið að vísa þarna til bréfs Orkustofnunar frá 18. júlí — „hafi það jafnframt í för með sér að afköst holanna aukist, a. m. k. um tíma.“

Síðan er felldur niður kafli er hljóðar svo:

„Á það ber hins vegar að leggja áherslu, að með öllu er óvíst að svo verði eða hve varanleg hugsanleg afkastaukning verður, ef hún verður einhver. En hvort heldur um slíka aukningu verður að ræða eða ekki getur niðurstaðan samt verið mikilvægar vísbendingar um orsakir hins lélega borárangurs 1976. Sú vitneskja getur komið að góðum notum síðar.“

Þetta álit sérfræðinga Orkustofnunar fellir höfundur skýrslunnar burt. Á bls. 154 í skýrslunni er mjög athyglisverð breyting hjá ritstjóra skýrslunnar frá áliti Orkustofnunar, þar sem hann snýr meiningu Orkustofnunar gersamlega við. Umrædd tilvitnun hljóðar svo, á bls. 154 í Kröfluskýrslu:

„Aðgerðir sumarsins 1977 leiddu til verulegrar aukningar gufumagns og urðu til þess að hægt var að hefja prófanir og tilraunaframleiðslu.“

Í skýrslu Orkustofnunar, handritinu sem skýrsluhöfundurinn fær til umráða, stendur hins vegar þveröfugt. Þar stendur:

„Þótt aðgerðir sumarsins hafi þannig ekki leitt til verulegrar aukningar gufurennslis úr borholunum, hafa þær gefið verðmætar upplýsingar um útfellingarnar í holunum“ o. s. frv. — Hér er um það að ræða, að höfundur skýrslunnar snýr áliti sérfræðinga Orkustofnunar algerlega við.

Það fer að sjálfsögðu ekki á milli mála, hver tilgangur skýrsluhöfundar eða þess, sem um málið hefur fjallað, hafi það verið annar en höfundur skýrslunnar, er með þessum breytingum, niðurfellingum og öðru því um líku. Hér er um það að ræða að breyta handriti Orkustofnunar á þann veg, að mjög er hallað á hlut stofnunarinnar og allur þáttur hennar í málinu gerður mun verri en efni standa til. Í þessu sambandi er ekki hikað við að beita vinnubrögðum sem ég efa að séu sæmandi hæstv. iðnrh. eða aðilum sem hafa fengið það verk í hendur af hans hálfu að taka saman skýrslu sem þessa. Á bls. 156 í Kröfluskýrslunni segir svo, með leyfi forseta:

„Þessum pistli um bormál Kröfluvirkjunar mætti ljúka með því að birta bréf sem Einar Tjörvi Elíasson yfirverkfræðingur Kröflunefndar hefur skrifað iðnrn. varðandi gufuöflun fyrir Kröfluvirkjun 1978. Bréfið, sem er dags. 21. nóv. 1977, hljóðar svo.“

Ég ætla ekki að lesa þetta bréf frá orði til orðs, þm. hafa það í Kröfluskýrslu fyrir framan sig. Ég vil aðeins geta þess, að bréf þetta er mjög hörð gagnrýni yfirverkfræðings Kröflunefndar á framkvæmdir Orkustofnunar. Þegar Orkustofnun fékk til athugunar handrit af skýrslu Júlíusar Sólness í janúarmánuði s. l. var þetta bréf, sem ég hef nú vitnað til, í handritinu. Hinn 13. 12. 1977 hafði Orkustofnun sent iðnrn. svarbréf við þessu bréfi Einars Tjörva, þar sem Orkustofnun bar, ef svo mætti segja, hönd fyrir höfuð sér. Þeir Orkustofnunarmenn spurðu þá höfund skýrslunnar, hvort ætlunin væri að birta árásarbréf Einars Tjörva á hendur Orkustofnun í skýrslunni, en ekki svarbréf Orkustofnunar. Höfundur skýrslunnar sagði þá þeim Orkustofnunarmönnum að hér væri um mistök að ræða, bréf þetta frá Einari Tjörva ætti alls ekki að vera með þessum plöggum og væri ekki ætlað til birtingar. Orkustofnunarmenn létu það gott heita, en sögðu að ef ætti að birta þetta bréf Einars Tjörva, þá óskuðu þeir eftir því að fá að birta svarbréf sitt þar við hliðina. Síðan segir ekki af þessum málum fyrr en stjórn Orkustofnunar fær hvítu skýrsluna í hendur. Í henni er birt bréf Einars Tjörva Elíassonar til iðnrn. með hörðum árásum á hendur Orkustofnun og starfsmönnum hennar og sagt að þyki hlýða að ljúka þessum pistil um bormál með þessu árásarbréfi, en ekki orð um bréf það sem Orkustofnun sendi sem svar við þessu árásarbréfi Einars Tjörva. Ég er hins vegar með þetta bréf í höndunum. Þar segir m. a. svo, með leyfi forseta:

„3. Einar Tjörvi Elíasson leggur til að frekari yfirborðskannanir verði gerðar strax og mögulegt er til nákvæmari staðsetningar á uppstreymisæðum jarðhitasvæðisins. Þessi tillaga er yfirborðskennd og verður ekki séð, hvaða forsendur liggja hér að baki. Tillögur af þessu tagi heyrast oft nú til dags og virðast menn álíta að þar með sé allur vandi gufuöflunarinnar leystur. Raunhæfar tillögur um yfirborðsrannsóknir eiga að byggjast á mati á þeim aðferðum sem til greina koma. Sumar þeirra eru þrautreyndar í könnun jarðhitasvæða, aðrar eru einungis hugmyndir, sem eftir er að prófa. Mat á því, hvaða aðferðir skuli nota, á að byggjast á þekkingu og reynslu færustu manna á þessu sviði. Ekki er hægt að líta svo á að Einar Tjörvi Elíasson sé einn þeirra.

4. Einar Tjörvi Elíasson fullyrðir að úrvinnsla gagna, sem fást meðan á borun stendur, hafi til þessa aðallega verið notuð í sögulegum tilgangi. Þessi fullyrðing er ekki einungis röng, heldur felur hún í sér algerlega ómaklegar og órökstuddar aðdróttanir að starfsfólki Orkustofnunar sem hér á hlut að máli. Orkustofnun mótmælir þessum aðdróttunum harðlega.

5. Einar Tjörvi Elíasson ræðir um nauðsyn þess að koma á betri þjálfun borliðs og þess tækniliðs sem sé til ráðgjafar. Orkustofnun er vel ljós þörfin á sífelldum endurbótum í bortæknilegum efnum, enda er að þeim unnið eftir ýmsum leiðum. Hér verður þó að muna að umfang jarðborunarstarfseminnar hefur vaxið gífurlega á allra síðustu árum og að það tekur tíma að koma upp vel þjálfuðu borliði. Hins vegar er ekki með réttu unnt að kenna þessu atriði um að ekki hefur fengist meiri gufa við Kröflu en raun ber vitni.

Iðnrn. hefur margsinnis lýst því yfir opinberlega, að það styðjist við ráðleggingar Orkustofnunar varðandi þann hluta Kröfluframkvæmda sem henni hefur verið falin. Stofnunin metur mikils þetta traust rn. og hefur ávallt kappkostað að vanda ráðleggingar sínar í þessu efni. Auk þess hefur stofnunin og rn. kvatt sér til ráðuneytis aðra ráðunauta með mikla þekkingu á jarðhitamálum, eins og dr. Gunnar Böðvarsson. En svo virðist sem ýmsir, jafnvel ótilkvaddir, vilji ólmir gefa rn. margvísleg „góð ráð“ varðandi gufuöflun handa Kröfluvirkjun án þess að séð verði að þeir hafi til þess neinar sérstakar forsendur. Með hliðsjón af ofangreindu hlutverki sínu telur Orkustofnun það skyldu sína að benda á að ráðleggingar gefnar án nauðsynlegrar hæfni geta haft afdrifaríkar afleiðingar sé eftir þeim farið.

Allravirðingarfyllst.

Jakob Björnsson. Guðmundur Pálmason.“

Hér er um það að ræða, að þættinum um borunarmál Orkustofnunar lýkur með því að skýrsluhöfundur birtir bréf yfirverkfræðings Kröflunefndar til iðnrn. með harkalegum árásum á vísindamenn Orkustofnunar. Orkustofnunarmönnum er tjáð að þetta bréf verði ekki birt í Kröfluskýrslunni nema svarbréf þeirra fái að fylgja með. Við það fyrirheit er ekki staðið, þannig að skýrsluhöfundur lýkur umfjöllun sinni um þátt Orkustofnunar í málinu með því að birta harðort árásarbréf yfirverkfræðings Kröflunefndar á starfsmenn Orkustofnunar án þess að gefa stjórn Orkustofnunar kost á að bera hönd fyrir höfuð sér. (Gripið fram í: Er Orkustofnun hafin yfir gagnrýni?) Orkustofnun er ekki hafin yfir gagnrýni. Með þessu er ég aðeins að benda á að í þessari skýrslu er ekki gætt eðlilegs jafnræðis, að á Orkustofnun og vísindamenn hennar er ráðist, að því er þeir Orkustofnunarmenn telja með ómaklegum hætti, og skýrslan er þannig samin að aðeins árásin á vísindamenn Orkustofnunar er birt, en ekki hirt um að birta andsvar Orkustofnunar. (Gripið fram í.) Annars held ég að það dyljist engum, sem þessa skýrslu les, að hún er þannig samin að reynt er af fremsta megni að gera það sem varaformaður Kröflunefndar, hv. þm. Ingvar Gíslason, gerði í blaðagrein fyrir 11/2 ári, að kenna sérfræðingunum og vísindamönnunum á Orkustofnun um það sem miður hefur farið, en reyna að rétta hlut annarra í því máli. Og þegar það er gert með þeim hætti, sem ég hef hér lýst, með því að fara beinlínis rangt með það sem viðkomandi aðilar, þ. e. a. s. Orkustofnun, hafa látið frá sér fara, með því beinlínis að falsa ummæli sem sérfræðingar Orkustofnunar hafa viðhaft og afhent þeim sem samdi þessa skýrslu, með því beinlínis að fella niður ýmis atriði úr grg. Orkustofnunar sem sýna fram á að hún hafði varað við þróuninni, með því að taka umsagnir sérfræðinga Orkustofnunar, breyta þeim eilítið og gera það að umsögnum sérfræðinga Kröflunefndar, með slíkum hætti tel ég að verið sé að halla réttu máli á kostnað þessarar stofnunar og starfsmanna hennar til þess eins að reyna með einhverjum ráðum að færa rök að því að þarna sé sökudólgana að finna.

Mér er fyllilega ljóst að Orkustofnun eða öllu heldur stjórn Orkustofnunar ber hér talsverða sök. Einhver úr þeim hópi sendi Kröflunefnd þessa skýrslu, ég veit ekki hver það var, en einhver úr þeirra hópi, úr æðstu stjórn Orkustofnunar. Ég stórefa að sá aðili hafi búið yfir þeirri vísindalegu þekkingu sem ég vil kalla rannsóknarmenn Orkustofnunar, búa yfir. Og það er athyglisvert, að þessir rannsóknarmenn, m. a. yfirmaður rannsókna háhitasvæða og yfirmaður rannsókna á Kröflusvæðinu, eru m. a. leyndir þeim mikilvægu upplýsingum, að verið sé að ganga frá tímaáætlun, verkáætlun og pöntun aflvéla, þeir hafa ekki hugmynd um að það sé verið að gera þetta þegar þeir semja skýrslur sínar. Þegar þeir vita af því rjúka þeir til við fyrsta tækifæri og mótmæla og vara iðnrn. við, en stjórn Orkustofnunar skrifar fljótlega í kjölfarið bréf til þess að draga heldur úr þeim viðvörunum. Það er sök stjórnar Orkustofnunar að hafa gert það, hafa ekki treyst sérfræðingum sínum betur en hún gerði, en sú sök ætlar að reynast stjórn Orkustofnunar dýrkeypt, vegna þess að það atriði ætla menn auðsjáanlega að nota til þess að kenna ekki aðeins stjórn stofnunarinnar, heldur stofnuninni allri og sérfræðingum hennar um hvernig komið er. (Iðnrh.: Við hverja á þm. með stjórn Orkustofnunar?) T. d. þá Orkustofnunarmenn sem hafa skrifað iðnrn. þau bréf sem notuð voru í þessari skýrslu sem rökstuðningur fyrir því, að Orkustofnun hefði aldrei talið mjög verulega áhættu tekna með framkvæmdunum í Kröflu, sem ekki sáu ástæðu til þess að vara við með sama hætti og ég veit að sérfræðingar Orkustofnunar, rannsóknarmennirnir við Kröflu, vildu að gert væri. Og það var einnig athyglisvert að sjá — (Iðnrh: En veit hv. þm. ekki, hvað hann á við? Það er nú þannig, að það er engin sérstök stjórn við Orkustofnun. Hvað á hv. þm. við?) Ég var að enda við að svara því, að það væru þeir Orkustofnunarmenn sem hefðu undirritað bréfið til hæstv. ráðh. sem þeir notuðu m. a. til þess að draga úr því, að Orkustofnunin hafði varað iðnrn. og Kröflunefnd við ef áfram yrði haldið með þeim hætti sem hafður var á. Ég trúi því nú vart, að hæstv. iðnrh. lesi ekki bréf sem honum eru send.

Ég ætla svo aðeins, — nú er ég búinn með þátt Orkustofnunar, að mestu leyti, — að víkja að þætti Kröflunefndar. Á bls. 44 í þessari ágætu skýrslu er birt skipunarbréf Kröflunefndar. Þar segir m. a. svo, með leyfi forseta, að Kröflunefnd skuli láta gera fullnaðaráætlun byggða á þeirri hönnun, sem um getur í fyrsta lið, um stofnkostnað, rekstrarkostnað og orkuvinnslugetu stöðvarinnar. Þetta hefur aldrei verið gert. Það hefur aldrei verið gerð áætlun af Kröflunefndar hálfu um rekstrarkostnað Kröfluvirkjunar, eins og Kröflunefnd var falið að gera í skipunarbréfi nefndarinnar. Kröflunefnd gerði aðeins þær frumkostnaðaráætlanir sem vaninn er að gera við samanburð á virkjunarkostum til að komast að raun um hvaða virkjunarkostur af tveimur eða fleiri er talinn hagkvæmastur. Þeir útreikningar hafa bókstaflega ekkert með rekstrarkostnaðaráætlanir að gera. Til frekari stuðnings þessu vil ég leyfa mér að vitna í grein sem prófessor Jónas Elíasson skrifaði, að ég held í Dagblaðið á árinu 1976. Þar segir hann, með leyfi forseta:

„Ekki er nægilegt að byggja ákvarðanatöku í virkjunarmálum á frumáætlunum. Frumáætlanagerð hefur töluvert verið stunduð undanfarin ár, svo að nú liggja fyrir margir orkuöflunarvalkostir með svipaðri hagkvæmni. Þessir orkuöflunarvalkostir eru dreifðir um flest orkuveitusvæði landsins. Frumáætlanir eru fyrsti hlekkurinn í keðju athugana, sem gera þarf áður en fjárfestingar í raforkuiðnaði verða ákveðnar. Þær duga einungis til þess að ákveða, hvaða valkostir skulu teknir til nánari athugunar. Þessar nánari athuganir þurfa að innihalda atriði eins og útreikninga á afkastavöxtum, fjármögnunaráætlanir og rekstraráætlanir, en að öðru leyti er ekki við því að búast að hægt sé að fylgja ákveðinni forskrift.“

Þessar nánari athuganir, sem prófessorinn talar hér um, útreikninga á afkastavöxtum, fjármögnunaráætlanir og rekstraráætlanir, hefur Kröflunefnd aldrei gert, þó að henni sé beinlínis falið að gera það í skipunarbréfinu. Fyrsta og eina áætlunin, sem út hefur komið um rekstur Kröfluvirkjunar, er í áætlun þeirri sem ég minntist á hér áðan: „Norðurlandsvirkjun. Skýrsla um ástand og framtíðarhorfur unnin fyrir samstarfsnefnd í orkumálum Norðlendinga. Júlí 1976.“ Að vísu er þar ekki um að ræða áætlun fyrir Kröfluvirkjun, heldur áætlun fyrir Norðurlandsvirkjun í heild. Þar kemur m. a. fram, að miðað við Norðurlandsmarkaðinn og ef lánin til Kröflu eru til 14 eða 15 ára með 8–9.5% vöxtum, þá þurfa að fást fyrir hverja kwst. 6.20–.25 kr., ef á að standa undir greiðslubyrði annarra en Landsvirkjunar, ellegar þurfa að fást á bilinu frá 4–6.80 kr. fyrir hverja kwst. Á þessum tíma þurfti að fást undir 2 kr. fyrir hverja kwst. til þess að orkan væri samkeppnisfær við svartolíu þá sem notuð var til kyndingar á gufukötlum á Akureyri, sem oft var um talað. (Gripið fram í.) Ég held að það hljóti að vera, að hv. þm. Ingvar Gíslason geti fengið að tala hér á eftir. Það hlýtur að hafa nóg af nóttinni enn til þess að hv. þm. geti rætt málið. En þetta er sú eina áætlun, sem ég hef séð með upplýsingum um rekstrarkostnað Kröfluvirkjunar með tilliti til markaðsaðstæðna. Að vísu ná þessar tölur, eins og ég sagði áðan, ekki til Kröfluvirkjunar. Þetta er um Norðurlandsvirkjun í heild, ekki um Kröfluvirkjun eina. Þá hefði þurft að fá mun hærra verð fyrir hverja selda kwst. Ég gæti trúað því, að það hefði verið á bilinu 15–20 kr.

Ég vil enn fremur vísa til þess, að í grein, sem prófessor Jónas Elíasson birti í Dagblaðinu árið 1976, reiknaði hann út þrjá möguleika á rekstrarafkomu Kröfluvirkjunar. Fyrsti möguleikinn var núverandi orkumarkaður virkjunarinnar. Hann gaf sér að rekstrarlán væru fáanleg með 12% vöxtum. Kostnaður þá var 6676 millj. kr., árlegur rekstrarkostnaður áætlaður 135 millj. kr., lán til 25 ára. Miðað við þessar forsendur var líklegt samkv. útreikningum prófessors Jónasar, að á árunum 1977–1985 miðað við orkuspá, sem á árinu 1977 var 270 gwst. upp í 490 árið 1985, yrði rekstrarafkoma Kröfluvirkjunar sem hér segir:

Rekstrarlán, sem virkjunin þyrfti að taka á tímabilinu til þess að greiða kostnað, mundu verða við árslok 1985 5572 millj. kr. Vaxtagjöld þá 667 millj. Gjöld alls 1654 millj. Rekstrarárangurinn neikvæður upp á 673 millj. kr. M. ö. o.: miðað við núverandi orkumarkað og fyrirsjáanlegan orkumarkað á Norðurlandssvæðinu yrði rekstrarhalli á Kröfluvirkjun árið 1985 orðinn tæplega 700 millj. kr. á ári.

Síðan sagði prófessor Jónas, að rekstrarlán, sem tekin eru til að greiða hallann, skapa skuldabyrði sem smám saman verður fyrirtækinu ofviða. Árið 1985 eru gjöldin komin nokkurn veginn upp í það sem tekjurnar geta orðið mestar. Eftir það er útilokað að greiða rekstrarlánin niður.

Þetta eru einu upplýsingarnar, sem hér er að fá, sem fram hafa komið um mögulegar rekstraráætlanir Kröfluvirkjunar. Þessar upplýsingar hafa ekki verið vefengdar nema með almennum orðum. Kröflunefnd átti að gera þessa áætlun samkv. skipunarbréfi sínu. Þá áætlun hefur hún aldrei gert. Við þm. Alþfl. höfum hvað eftir annað lýst eftir því hér úr ræðustól á Alþ. undanfarin fjögur ár, hvar þessi rekstraráætlun fyrir Kröfluvirkjun væri, og óskað eftir því að fá að sjá þá rekstraráætlun sem Kröflunefnd átti samkv. skipunarbréfi sínu að gera. Þá áætlun höfum við aldrei fengið að sjá og enginn, sem ég veit til, fyrir utan þær frumáætlanir sem ég ræddi um hér áðan.

Prófessor Jónas setti upp annað dæmi. Hann gerði ráð fyrir því, að reynt yrði að auka orkumarkað Kröfluvirkjunar með því að tekin yrði upp orkusala, 20 mw., til stóriðju. Gerði hann ráð fyrir að sú orkusala gæfi um 256 millj. kr. á ári í tekjuaukningu. Á árabilinu 1977–1985 gerði prófessor Jónas þannig ráð fyrir að orkumarkaðurinn á Kröflusvæðinu ykist sem þessu næmi: orkusölu til stóriðju. Tekjurnar í millj. kr. á ári yrðu við upphaf tímabilsins 556 millj., lok tímabilsins 1236 millj. kr. Rekstrarlán árið 1985 væru orðin 2423 millj. kr. samanborið við 5572 millj. kr. rekstrarlán miðað við óbreyttan orkumarkað, vextir 291 millj., gjöld alls 1275 millj. og rekstrarhalli á ári 40 millj. kr. 1985. Rekstrarhalli hafði lækkað úr 419 millj. kr. árið 1977 niður í 40 millj. kr. árið 1985. Síðan segir prófessor Jónas:

„Þetta lítur miklu betur út. Rekstrarhalli er nærri búinn árið 1985, en þá er nýtingartíminn kominn yfir 8 þús. stundir á ári svo að vafasamt er hvort virkjunin getur nokkuð aukið tekjur sínar og borgað niður rekstrarlánin.“

Þó að orkumarkaður Kröfluvirkjunar sé stækkaður með tilkomu stóriðju, er þurfi 20 mw. afl frá Kröflu, er mjög óvíst að virkjunin geti staðið undir sér, að áliti prófessors Jónasar Elíassonar, vafasamt hvort virkjunin geti aukið tekjur sínar þannig að unnt verði að borga niður rekstrarlánin.

Þriðji möguleikinn, sem Jónas Elíasson gefur sér í þessum rekstrarkostnaðaráætlunum sínum, sem eru einu áætlanir þessa efnis sem almenningur hefur séð, er sá sem fólst í till. minni hér á Alþ. árið 1976, einmitt þegar þessar rekstrarkostnaðaráætlanir eru gerðar, þ. e. a. s. að fresta ákveðnum virkjunarframkvæmdum, t. d. kaupum á annarri aflvélinni. Þá fær prófessor Jónas það út úr rekstraráætlunum sínum, að árið 1985 verði orkusalan orðin 1764 millj. kr. á ári, rekstrarlánin komin niður í 160 millj., vaxtagjöld 19 millj., gjöld alls 1004 millj., rekstrarafgangur, þ. e. a. s. tekjur virkjunarinnar, 260 millj. á ári. Það er fyrst og fremst seinkunin á fjárfestingunni sem gerir þetta mögulegt, segir Jónas Elíasson. Hún sparar rekstrarlántökur sem nema um 2000 millj. kr. Síðan segir hann áfram, með leyfi forseta:

„Dæmið með Kröflu sýnir, hvernig virkjun safnar óviðráðanlegum rekstrarskuldum á örfáum árum, ef markaður er ekki fyrir hendi. Stóriðjumarkaður, sem nemur tvöfaldri orkuframleiðslu á fyrstu árum, nægir ekki heldur. Hækkun raforkuverðs um 20%, sem öll er látin koma hinni nýju virkjun til góða, nægir heldur ekki nema að 1/3 af fjárfestingunni sé frestað um a. m. k. 5 ár. Athygli skal vakin á að ef tekst að selja 20 mw. til stóriðju munu 1977 fást tekjur sem virðast gera að ekki þarf að fresta framkvæmdum. Ef slík stórnotkun kemur ekki, verður að álykta að seinni vélin sé rangt tímasett og tapið á því nemi allt að 2000 millj. kr.“

Þetta er álit prófessors Jónasar Elíassonar árið 1976, þegar við Alþfl.-menn vörpum fram þeirri hugmynd hér á Alþ., sérstaklega til iðnrh., að hann beiti sér fyrir því, að gosið, sem varð seint á árinu 1975, verði notað sem átylla til þess að fá viðsemjendur Kröfluvirkjunar til þess að fresta afhendingu og frekari verkum. Og prófessor Jónas leiðir í þessum útreikningum sínum rök að því, að þessi frestun sé eina aðgerðin sem geti gert mögulegt að Kröfluvirkjun standi undir sér.

Þá kemur einnig fram í erindisbréfi Kröflunefndar, að henni sé ætlað að vinna að útboðum. Það má um það segja, að flest stærstu verkefnin, sem Kröflunefnd tók að sér, voru ekki unnin samkv. útboðum, eins og lög þó mæla fyrir um. Það er ósköp auðskilið af hverju. Vegna þess að formaður nefndarinnar, hv. þm. Jón Sólnes, er tvímælalaust duglegur framkvæmdamaður. Hans vandi var ekki sá að byggja virkjun, sem tæki til starfa við raforkuframleiðslu á einhverju tilteknu ári. Hann leit á sinn vanda fyrst og fremst þannig að byggja hús og kaupa vélar. Því fyrr sem hægt var að reisa húsið og því fyrr sem hægt var að fá vélarnar, þeim mun betra, þeim mun betur taldi hann að sér gengi. Hvort húsið væri á réttum stað fyrir gufuöflunina, hvort vélarnar hentuðu þeirri gufu sem unnin var, hvort bókstaflega væri einhver gufa til að snúa aflvélum Kröfluvirkjunar þegar þar að kæmi var ekki hans mál. Hann leit á það sem allsendis óviðkomandi sér og sinni nefnd. Það var, eins og hv. þm. hefur margoft tekið fram, verkefni Orkustofnunar. Hans verkefni var aðeins að byggja stöðvarhúsið og kaupa vélarnar og því fyrr sem húsið yrði byggt og því fyrr sem vélarnar kæmu, þeim mun betur gengi hans verk. Þetta var tvímælalaust skoðun hv. þm. Jón Sólness. Og það er fjarri mér að halda því fram að dugnaður og ósérplægni þessa ágæta þm. hafi ekki vissulega skilað árangri að þessu leytinu til. Nefndin leit á það sem hlutverk sitt, eins og hv. þm. Jón Sólnes tók fram á Alþ. 1974, að hraða verkinu eins og framast væri unnt og að engin áhætta væri tekin þó að vélar væru pantaðar áður en niðurstöður af vinnsluborunum lægju fyrir. Hv. þm. Steingrímur Hermannsson var á annarri skoðun. Hann taldi útilokað að virkjunin gæti komist í gagnið fyrr en í fyrsta lagi 1979–1981. En hv. þm. Jón Sólnes, sem síðar varð formaður Kröflunefndar, taldi enga áhættu tekna þó að vélar væru pantaðar og hús byggð áður en nokkur gufa væri komin, og hann taldi það hlutverk sitt að sjá til þess að byggja þetta hús og kaupa þessar vélar og því fyrr sem það gæti orðið, þeim mun betur taldi hann og hans menn að þeir stæðu sig. Ef hægt var að stytta sér leið að þessu marki, t. d. með því að láta ekki útboð fara fram, þá töldu þeir Kröflunefndarmenn sjálfsagt að láta af því verða. Einasti óvinur þeirra var tíminn.

Nefndin leit á það sem hlutverk sitt að vinna hratt að verkefnum sínum og það tókst henni framar vonum, ekki síst að þakka dugnaði formanns nefndarinnar, hv. þm. Jóns Sólness. Svo eiga nm. að sjálfsögðu ákaflega erfitt með að skilja, hvers vegna þeir, sem voru svo duglegir að byggja og kaupa vélar, eru svo allt í einu farnir að sæta gagnrýni fyrir þátt sinn í þessu máli.

Eins og ég tók fram, þá töldu þeir sér ekkert koma við, hvort gufa væri til eða ekki, fyrr en byggingarnar voru risnar og vélar komnar niður. Slíkt var ekkert aðalatriði í þeirra augum, enda ekki þeirra viðfangsefni. Þetta var viðfangsefni Orkustofnunar og þeim fannst, hv. Kröflunefndarmönnum, að viðfangsefni annarra aðila kæmu þeim bókstaflega ekkert við. Þannig gera þeir sér t.d. lítið fyrir eftir árið 1974 og henda til hliðar þeim áætlunum, sem Orkustofnun byggði starf sitt á, áætlun um rannsókn á háhitasvæðum frá árinu 1969. Eftir árið 1974 er bókstaflega ekki höfð nokkur hliðsjón af þessari áætlun um rannsóknir á háhitasvæðum, þar sem Orkustofnun setur fram í mjög ljósu og skýru máli, m. a. í myndmáli, hvernig eigi að vinna að undirbúningi jarðgufuvirkjunar.

Þá kemur einnig mjög víða fram í þessari skýrslu hvernig Kröflunefnd starfar, t. d. á bls. 55 í skýrslunni þar sem sagt er frá því hvernig tímaáætlun er gerð og hugsuð á tímabilinu frá 1. febr. 1975 til 1. mars 1978. Þar er framkvæmdum raðað í tímaröð, ákveðið hvenær skýrsla Orkustofnunar skuli liggja frammi, hvenær útboðsgögn skuli liggja frammi, hvenær nokkur tilboð skuli fara fram, hvenær pöntun aðalvéla skuli fara fram o. s. frv., o. s. frv. En í þessari tímaáætlun er engin áætlun um borframkvæmdir. Þar er ekki stafur um það, hvað menn ráðgera að taki langan tíma að bora til gufunnar, að afla gufunnar. Kröflunefnd telur að það komi henni ekkert við, það sé ekki hennar mál. Hún telur að hún eigi að setja upp áætlun um byggingu húss og kaup á vélum, eins og hún gerir, og það skipti hana engu máli hvar í veröldinni Orkustofnun er stödd í sínu viðfangsefni.

Á bls. 58 kemur einnig fram hvernig Kröflunefnd styttir sér leið. Á bls. 55 gerir hún áætlun um tilboð í aðalvélar í júlí 1975, pöntun aðalvéla í sept. 1975, afhendingu véla í sept. 1977 0. s. frv. Síðan gerist það, að nokkru síðar, 15. nóv. á hún fund með fulltrúum japansks fyrirtækis Toshiba, og þá kemur allt í einu fram hjá þessu ágæta fyrirtæki að hægt er að lofa afhendingu véla og tækjabúnaðar til virkjunar seint á árinu 1976, og það er eins og Kröflunefnd hafi himin höndum tekið. Það má segja að þessar óvæntu upplýsingar hafi valdið algerum þáttaskilum í undirbúningi jarðgufuaflstöðvarinnar. Sú staðreynd blasti nú skyndilega við, að hægt var að stefna að uppsetningu véla og rafbúnaðar í jarðgufuaflstöðinni fyrir árslok 1976 og þar með að rafmagnsframleiðslu þegar á árinu 1977. Fulltrúar japansks fyrirtækis komu að máli við Kröflunefnd, sögðu henni: Við erum tilbúnir að láta ykkur hafa vélar einu ári fyrr en ella. — Kröflunefnd þykist hafa himin höndum tekið og kemst að þeirri niðurstöðu, að sjálfsagt sé að taka þessu ágæta boði Japananna því að þar með sé hægt að hefja raforkuframleiðslu í stöðinni þegar á árinu 1977. Þeir leiða ekki einu sinni hugann að því, hvort líklegt sé að gufa verði til þegar búið verði að setja vélarnar niður. Það var ekki heldur þeirra mál, það var mál Orkustofnunar. Þarna verður möguleiki á því að setja niður vélar heilu ári áður en áætlunin, sem sagt er frá hér tveimur bls. framar, gerir ráð fyrir, og er sjálfsagt að taka þann kost. Og ég er viss um að þeir Kröflunefndarmenn hafa þóst menn að meiri, þegar þeir voru búnir að flýta virkjuninni með þessum hætti um eitt ár. Og það segir einnig í skýrslunni, að mjög álitlegt virðist að taka þessu tilboði Toshiba án þess að nokkur útboð hafi farið fram þar sem byggingartími virkjunarinnar yrði mun styttri. Það skiptir meginmáli hjá Kröflunefnd að reka áfram byggingu stöðvarhússins og kaupin á vélum. Hitt er ekki þeirra handleggur, hvort nokkur gufa er til.

Það hafa vaknað ýmsar spurningar um það, hvers vegna japanska stórfyrirtækið Mitsubishi, sem kemur inn í þetta mál skyndilega og óvænt skömmu eftir að fulltrúar Toshiba hafa tilkynnt Kröflunefnd að þeir séu reiðubúnir til afhendingar á vélum, — hvernig stóð á því, að það kom svo fljótt til leiks, að það var reiðubúið til afhendingar á vélum með svo stuttum fyrirvara. Ekki veit ég, hver ástæðan er. En hitt veit ég, að um svipað leyti og þetta átti sér stað var tekin sú ákvörðun á Filipseyjum að fresta stórri jarðgufuvirkjun sem undirbúningur hafði verið hafinn að. Einhver frændi Marcosar á Filipseyjum mun hafa staðið fyrir þeirri framkvæmd og hún vakið talsvert hneyksli á eyjum þar, og er þó víst ekki margt sem vekur hneyksli á Filipseyjum. En allténd varð niðurstaðan sú, að ákveðið var að slá nú þessari framkvæmd á frest. Skyndilega virtist því vera að japanska stórfyrirtækið Mitsubishi stæði uppi með vélar sem það átti dálítið erfitt með að losna við. Hvort þær vélar eru sömu vélarnar og Kröflunefnd fékk með svo góðum kjörum og stuttum afgreiðslufresti skal ég ekki um segja. Ég vil ekkert um það fullyrða. En hitt er víst, að frændi Marcosar forseta á Filipseyjum losnaði víst undan þeim samningi sem hann var búinn að gera í nafni ættlands síns við fyrirtækið Mitsubishi.

Þá vil ég enn frekar vekja athygli á hversu flýtirinn á framkvæmdunum virðist vera mikill hjá Kröflunefnd og mikil áhersla á það lögð að vera fljótur að byggja og kaupa. T.d. segir á bls. 27, að Kröflunefnd hafi verið afhent uppkast að skýrslu Orkustofnunar um rannsóknarboranir 1074 í janúar 1975, strax á eftir hafi farið fram viðræður um tæknilega gerð aflvélanna við báða japönsku framleiðendurna og síðan verið gengið endanlega frá vali framleiðenda aflvélanna 7. febr. 1975. Nú er það svo, að í þessari skýrslu Orkustofnunar um rannsóknarboranir, sem afhent var Kröflunefnd, eru ýmsar teikningar sem lá svo mikið á að vinna að verkfræðingar og sérfræðingar, sem unnu við Orkustofnun, voru fengnir til þess að handteikna þessar teikningar sjálfir og síðan var tekið ljósrit af þeim, — svo mikið lá við að skilin yrðu á réttum tíma. Í þessari Kröfluskýrslu segir, að skýrsla Orkustofnunar hafi verið afhent í jan. 1975 en síðustu teikningar í febr. Varla má búast við því, að Kröflunefnd fái í jan. í hendur skýrslu sem hefur inni að fela teikningar sem dags. eru 6. febr. Þar er ég ansi hræddur um að eitthvað fari á milli mála. A. m. k. eru það undarlegar aðfarir, ef ætti að vera kleift að Kröflunefnd fengi í hendur teikningar heilli viku áður en þær eru dagsettar. Og undarlega stuttan tíma þarf Kröflunefnd til umhugsunar miðað við að hún hafði fengið skýrslu Orkustofnunar um rannsóknarboranir afbentar sama dag og síðasta teikningin í skýrslunum er dagsett, þ. e. a. s. 6. febr., undarlega stuttan tíma þarf þá Kröflunefnd til að kynna sér málið áður en hún velur framleiðanda aflvélanna 7. febr. Hún þarf þá öllu skemmri tíma til þess að kynna sér álit sérfræðinga Orkustofnunar og tillögur þeirra en hæstv. iðnrh. þarf til þess að kynna sér efni bréfs þess frá stjórn Orkustofnunar sem ég minntist á í upphafi máls míns. Og það væri athyglisvert að vita, hvar þessir japönsku framleiðendur hafi verið staddir fyrstu vikuna í febrúarmánuði árið 1975, hvort þeir hafi við það tækifæri verið staddir á Íslandi eða ekki. Og enn fremur væri athyglisvert að kanna, að svonefnt „letter of intent“ eða kauploforðsbréf er útgefið og dagsett af hálfu

Kröflunefndar 7. febr. 1975, en það er hins vegar ekki fyrr en 10. apríl, held ég, ég þarf að fletta upp í skýrslunni til að gá að því, ég held að það sé 10. apríl sem ríkisstj. gefur leyfi til þess, að frá samningum um kaup sé endanlega gengið. Ríkisstj. hefur málið í sínum höndum í rúma tvo mánuði frá því að Kröflunefnd undirritar kauploforðsbréf og þangað til frá málinu er gengið. Það skyldi nú ekki vera að ýmislegt hafi gengið á í ríkisstj. áður en hún féllst á að heimila að staðið væri við það kauploforðsbréf sem undirritað var 7. febr. 1975. A. m. k. vildi ég gjarnan spyrja hæstv. fjmrh. að því, ef hann væri hér staddur, hvort hann hafi verið alls kostar ánægður með að Kröflunefnd undirritaði kauploforðsbréfið án frekara samráðs við ríkisstj. heldur en haft var 7. febr. 1975.

En það líður ekki á löngu áður en afleiðingarnar koma fram af þessum óskapaflýti við vélakaupin. Á bls. 69 í Kröfluskýrslu er t. d. frá því sagt, hvernig staðið var að verkútboðum. Þar segir m. a., með leyfi forseta:

„Þyrfti byggingu stöðvarhússins m. a. að verða nær lokið um mitt ár 1976, eða fyrir afhendingu aðalaflvélanna. Til þess að þetta mætti takast var ljóst að eigi gæfist tími til þess að bjóða þessi verk út á venjulegan hátt.“

Það var sem sé búið að taka ákvörðun um að kaupa aflvélar frá japanska framleiðandanum Mitsubishi sem með einhverjum undarlegum hætti gat afgreitt sínar vélar með mjög stuttum afgreiðslufresti. Síðan kemst Kröflunefnd að raun um það, að ef eigi að vera hægt að veita þessum aflvélum viðtöku á tilsettum tíma, þá sé það ekki unnt öðruvísi en þannig að brjóta öll þau fyrirmæli um útboð sem nefndin fékk í erindisbréfum sínum, og það sínum gerir hún svikalaust. Það er mjög athyglisvert í þessari skýrslu, að ýmsir þeir stærstu aðilar, sem valdir eru til framkvæmda á vegum Kröflunefndar, eru valdir án þess að fram fari útboð eins og lög gera ráð fyrir að eigi að vera um opinberar framkvæmdir og eins og fyrir Kröflunefnd var lagt í skipunarbréfi nefndarinnar sem ég vitnaði til áðan. Það mundi taka marga mánuði, segir í skýrslunni, ef verkútboð ætti að fara fram og yrði þá ekki hægt að hefja byggingarframkvæmdir fyrr en vorið 1976. Þar með var fallin burt ein af forsendunum fyrir því, að aflvélarnar gætu komið til landsins um mitt ár 1976. Þannig elur ein vitleysan aðra af sér.

Nú er það orðið meginatriðið að taka formlega á móti vélunum sem koma eiga til landsins einu ári áður en ráðgert hafi verið. Það er ekki hægt að gera nema með því að slaufa öllum fyrirmælum um útboð. En engum dettur í hug að leiða hugann að því, hvort Orkustofnun sé tilbúin með gufuna fyrir sitt leyti þegar vélarnar hefja framleiðslu. Síðan gerist það að sjálfsögðu, að það fyrirtæki, sem valið er til framkvæmda, Miðfell, er komið á staðinn þegar um miðjan vetur, byrjar framkvæmdir þar. Samið hefur verið við Miðfell um að reisa byggingarskála og annast slíkt út í reikning. Miðfell er komið með vélar sínar á staðinn og sinn mannskap. Kröflunefnd kemst síðan að raun um að ekki sé verjandi að ganga til útboðs. Miklu betra væri að semja við þetta fyrirtæki, sem þegar var komið, að það annaðist verkið. Síðan er fram tekið í skýrslunni: „Óskað var eftir því að fá skriflega yfirlýsingu fulltrúa Þingeyinga um, hvaða verktaka þeir teldu líklegan til góðs samstarfs.“ — Þetta er útboðið. Útboðið er það, að Þingeyingar eru vinsamlegast beðnir um að gefa vottorð um hvaða verktaka í landinu þeir vildu helst vinna með. Og svo kastar tólfunum þegar sagt er talsvert aftar í skýrslunni um þessi útboðsmál,— ég þarf endilega að finna þá tilvitnun, því að hún er alveg stórkostleg. „Byggingarvinna er ekki boðin út. Rétt þótti að hafa þann hátt á, enda væri vinnufriður þar með tryggður.“ Það var talið eðlilegt að hafa ekki útboð eins og lög mæla fyrir um: í fyrsta lagi til þess að hægt væri að koma vélunum fyrir þegar þær kæmu einu ári undan áætlun og í öðru lagi til að tryggja vinnufrið. — Þetta er alveg stórkostleg aths. út af fyrir sig og þeim til mikils sóma sem leggur slíka skýrslu fram á Alþingi Íslendinga.

Og það er mjög athyglisvert, þar sem um útboð er að ræða, hvernig að heim er staðið. Þar kemur t. d. fram að gerður er samningur við fyrirtækið Rafafl á grundvelli útboða. Rafafl býður 30.4 millj. kr. í verk og fær það vegna þess að það gerir lægsta tilboðið. Hins vegar eru Rafafli greiddar, þegar upp er staðið, ekki 30.4 millj. kr., heldur 106.6 millj. kr. og þar af 50 millj. kr. röskar fyrir aukaverk. Aukaverkin eru þannig þegar upp er staðið, allverulega meiri en tilboðsverkið.

En þetta var ekki versta dæmið af öllum þessum útboðsmálum Kröflunefndar. Í skýrslunni kemur fram að Slippstöðin hf. fær ákveðið verk, sem hún býður í, fyrir 85.9 millj. kr. Hins vegar eru Slippstöðinni greiddar 234.4. millj. kr., þar af 148.8 millj. kr. fyrir aukaverk. Slippstöðin fær útboðsverk upp á 85.9 millj. og fær síðan greitt fyrir aukaverk 148.8 millj. kr. Ég er ansi hræddur um að sú ágæta Kröflunefnd hafi hér haft hausavíxl á því hvað eru aðalverk og hvað eru aukaverk. A. m. k. er það sjálfsagt ekki verra fyrir verktaka að komast í aukavinnu hjá Kröflunefnd.

Þá kemur það í ljós af lestri þessarar skýrslu, að af verkum, sem unnin eru á vegum Kröflunefndar, eru 25 verk unnin án útboðs, gegn fyrirmælum laga um opinberar framkvæmdir og gegn fyrirmælum þeim sem Kröflunefnd fékk í erindisbréfi sínu. Aðeins 12 verk eru unnin samkv. útboði og 2 eftir reikningi: 25 án útboðs, 12 með útboði, 2 eftir reikningi. Þó eru í gildi í landinu lagafyrirmæli um að opinberar framkvæmdir skuli að öllu jöfnu unnar samkv. útboði. Og í erindisbréfi Kröflunefndar er sérstaklega tekið fram, að nefndin skuli annast útboð. Og það er ákaflega gaman að lesa ýmsa kafla í þessari skýrslu, þar sem þessi óskaplega hraði á verkum Kröflunefndar kemur fram. Það mætti halda að þeir Kröflunefndarmenn væru það sem Ameríkanar kalla „þotufólkið“, því að þeim liggur svo lifandi reiðinnar býsnin á og þeir eru tilbúnir til þess að taka að sér öll hugsanleg verk annarra aðila til þess að tryggja sem allra mestan flýti. T. d. er hér birt fréttatilkynning frá Kröflunefnd, dags. 26. febr. 1975. Þar segir:

„Það var ljóst,“ segir Kröflunefnd 20. febr. 1975, „að öflun vélabúnaðar og þá sérstaklega aflvéla til væntanlegs orkuvers mundi taka lengstan tíma.“

Það er enn þá eitt og það sama, að byggingin, þ. e. húsið og vélarnar, tekur lengstan tíma. Hitt kemur þeim ekki við, gufan og gufuöflunin. Kröflunefnd hefur því lagt sérstaka áherslu á að flýta þessum hluta undirbúningsins, alveg eins og fram var tekið áðan. En Kröflunefnd hefur einnig bent yfirvöldum á nauðsyn þess að hraða lagningu línu frá Kröflu til Akureyrar. Er nú Kröflunefnd farin að hafa svolítil afskipti af verkefnum Rafmagnsveitna ríkisins. Svo segir í fréttatilkynningunni: „Þá hefur Kröflunefnd unnið að athugun á bráðabirgðavirkjun við Kröflu sem hugsanlega væri hægt að taka í notkun á þessu ári. Kemur helst til greina að setja upp lokaðar gufuaflvélar á svæðinu, 5–10 mw., ef slíkar vélar væru fáanlegar. Kröflunefnd barst vitneskja um tvær lokaðar 5 mw. gufuaflvélar í Kaupmannahöfn, sem Rafmagnsveita Kaupmannahafnar vildi selja. Því miður fékkst hins vegar ekki leyfi borgaryfirvalda til sölunnar.“

20. febr. árið 1976 lýsir Kröflunefnd því yfir í fréttatilkynningu, að hún sé reiðubúin til þess að vinna að athugun á bráðabirgðavirkjun við Kröflu og hún sé þegar búin að afla sér upplýsinga um að vélar séu tiltækar í Kaupmannahöfn. Það liggur aldeilis á! Hvað skyldi nú hafa verið mikil gufa til ráðstöfunar 20. febr. 1975, þegar Kröflunefnd, auk þeirra verka sem henni voru falin, var farin að ýta mjög á eftir því að línan frá Kröflu til Akureyrar yrði lögð? Af hverju að leita þess úti í Kaupmannahöfn að fá bráðabirgðavélar?

Því er haldið fram á bls. 220 í skýrslunni og mun víðar, að enginn beinn kostnaðarauki hafi orðið vegna hins mikla framkvæmdahraða, en sérstaklega var um það spurt í beiðninni um Kröfluskýrslu. Þetta er að sjálfsögðu algerlega fráleit staðhæfing. Mér er kunnugt um það, að a. m. k. sum verk, sem unnin voru samkv. reikningi, voru greidd með 50% vetrarálagi. Menn voru látnir hamast af móð miklum norður við Kröflu, m. a. við að leggja gufuleiðslur og veitu að stöðvarhúsi frá borholum sem enga gufu gáfu. Slík Bakkabræðravinnubrögð, sem helguðust af því, hve reiðinnar ósköp lá á, voru greidd m. a. með 50% vetrarálagi. Og þegar gert er tilboð í verk taka aðilar að sjálfsögðu tillit til þess vinnuhraða, sem á verkinu á að vera, og taka því mið af því við gerð tilboða sinna. Að þessi mikli framkvæmdahraði hafi ekki orðið til neins kostnaðarauka er að sjálfsögðu algerlega út í hött.

Það hefur oft verið spurt um hvort þeir Kröflunefndarmenn hafi vitað um áhættuna sem þeir tóku. Já, þeir vissu um hana. Á fundinum í iðnrn. 3. mars 1975 voru þeir varaðir við. Þá höfðu þeir ekki gengið frá endanlegum kaupsamningi á vélum. Þeim var margbent á að þeir hefðu vinnuáætlun Orkustofnunar frá 1969 — áætlun um virkjun háhitasvæða — að engu í sambandi við skipulagningu á framkvæmdum sínum, og þeir tóku aldrei neitt tillit til boráætlana, eins og ég hef margsinnis bent á í ræðu minni hér að framan. Spurt hefur verið um það, hvort Kröflunefnd hafi vitað um goshættuna í Leirhnjúk eða hættu á náttúruhamförum í Mývatnssveit. Ég tel svo vera. Í ágúst árið 1975 var fjölgað jarðskjálftamælum í Mývatnssveit vegna þess að menn höfðu grun um að eitthvað væri þar í aðsigi. Um þetta leyti var hreppsnefnd gert aðvart, almannavarnanefnd sett á fót í Mývatnssveit og áætlanir gerðar um almannavarnir. Ég tel algerlega útilokað að Kröflunefnd hafi verið eini aðilinn á þessu svæði sem ekkert vissi um þetta. Ég vil aðeins benda á að mér hefur verið tjáð að svo áberandi hafi það orðið, hvað þarna var að gerast, að m. a. s. hafi klettur sprungið rétt við vinnubúðir starfsmanna Kröflunefndar. Þannig er algerlega útilokað, að Kröflunefnd hafi verið eini aðilinn sem ekkert vissi um yfirvofandi hættu á náttúruhamförum.

Hinn 19. janúar 1976, skömmu eftir eldgosið í Leirhnjúk, skrifuðu 5 jarðfræðingar Orkustofnunar bréf þar sem þeir vöruðu við eldsumbrotum og lögðu til að ekki yrði að svo stöddu unnið frekar að framkvæmdum við Kröflu. Í framhaldi af því lýsti hæstv. iðnrh. því yfir, að fullt tillit yrði tekið til þessara sjónarmiða og hann hefði þegar gefið þau fyrirmæli, að aðeins yrði unnið að styrkingu mannvirkja. Daginn eftir, 20. jan. 1976, lýsti hins vegar einn Kröflunefndarmaður því yfir í viðtali við Alþýðublaðið, að enginn stans yrði á framkvæmdum við Kröflu, og þremur dögum síðar kom Kröflunefnd saman til fundar, 22. jan. 1976, og samþykkti þá og tjáði iðnrh. að hún hefði tekið þá ákvörðun að halda framkvæmdum við Kröfluvirkjun áfram af fullum krafti þar sem engin ástæða væri til að óttast frekari náttúruhamfarir á Kröflusvæðinu. Mér er ekki kunnugt um að iðnrh. hafi gert nokkrar aths. við þessa ákvörðun Kröflunefndar, sem tekin er þremur dögum eftir viðvaranir jarðfræðinga Orkustofnunar og tveimur dögum eftir að hæstv. iðnrh. lýsti því yfir í útvarpi að farið yrði að tillögum sérfræðinga þessara. Það var sem sé ekkert tillit tekið til þeirrar vitneskju sem fyrir lá. Áfram var keyrt á fullu undir því mottói, að markmiðið að byggja hús og kaupa vélar væri aðalatriði. Hvort unnt væri að taka þessi mannvirki í notkun væri aukaatriði, enda skipti það ekki máli, það væri viðfangsefni annarra aðila en Kröflunefndar. En það er ekki án gamans sem maður les á bls. III í þessari skýrslu svo hljóðandi tilvitnun: „Í Fréttabréfi Verkfræðingafélags Íslands er nýlega vikið að þessu,“ — þ. e. a. s. Kröfluframkvæmdum. Sá sem þar vék að Kröfluframkvæmdum var Júlíus Sólnes, höfundur skýrslunnar. Það er að vísu ekki tekið fram, heldur bara sagt að í Fréttabréfi Verkfræðingafélags Íslands hafi nýlega verið vikið að Kröfluframkvæmdum. — „Þar er bent á, að virkjunin við Kröflu sé öðrum þræði tilraun í marktækri stærð sem nauðsynleg sé til öflunar þeirrar þekkingar er forsenda sé fyrir nýtingu orku háhitasvæðanna. Hluta kostnaðar Kröfluvirkjunar ætti í raun og veru að afskrifa strax sem kostnað við öflun þekkingar.“ — 70 mw. virkjun, sem á verðlagi í apríl 1978 kostar 17 milljarða kr., er í Kröfluskýrslu talin öðrum þræði tilraun í marktækri stærð. Slík niðurstaða er blátt áfram borsleg. Það er hlægilegt að kalla virkjun af þessu tagi, af þessari stærð, með þessum kostnaði tilraun í marktækri stærð.

Ég fer nú senn hvað líður að ljúka máli mínu, enda held ég að flestum þyki orðið harla nóg. En ég vildi aðeins í lokin vekja athygli á ýmsum kostnaðarliðum, upplýsingum og fleira af því taginu sem ég held að hvergi hafi komið fram. Fyrst vil ég þó víkja að því, hvað mér finnst hafa verið gert rangt í meginatriðum.

Fyrsta ranga ákvörðunin er að sjálfsögðu sú að fela mörgum og ólíkum aðilum að hafa stjórn á mörgum, ólíkum verkþáttum, en ekki einhverjum einum aðila, t. d. þeim aðila sem ætti að taka við rekstri virkjunarinnar, að sjá um hönnun mannvirkisins og byggingu. Það lá fyrir þegar frv. um Kröfluvirkjun var samþykkt, að stjórn Laxárvirkjunar var fyrir sitt leyti reiðubúin til þess að gerast sá aðili. Þeirri ósk var hins vegar hafnað. En athyglisvert er og kemur raunar fram í þessari skýrslu, hvers konar reiðileysi er á stjórnun þessarar miklu og dýru framkvæmdar. Þar er hver silkihúfan ofan á annarri og enginn einn aðili sem hefur yfirumsjón eða yfirráð, nema ef vera skyldi hæstv. iðnrh. Þannig er verkinu, sem raunar er eitt verkefni, skipt í þrennt: byggingu húss og kaupum á vélum er ráðstafað til Kröflunefndar, rannsóknir og gufuöflun eru í höndum Orkustofnunar og bygging línunnar frá Kröflu til Akureyrar í höndum Rafmagnsveitna ríkisins. En svo bætast silkihúfur ofan á þessar. Það kemur fram á bls. 46. Þar er Þóroddur Th. Sigurðsson skipaður ráðunautur iðnrh. í orkumálum og á í umboði hans að fylgjast með framvindu mála við Kröfluvirkjun. Þar er fjórði aðilinn kominn inn í dæmið. Í lok des. 1975 skipar rn. síðan samstarfsnefnd Kröfluvirkjunar. Verkefni nefndarinnar skyldi vera að samræma allar framkvæmdir hinna. Það er fimmti stjórnunaraðilinn. Í maí 1976 fær iðnrh. síðan Guðmund Einarsson verkfræðing til að vera iðnrn. til aðstoðar varðandi fyrirhugaðar boranir 1976 og vera tengiliður iðnrn. við Orkustofnun. Þetta er sjötta silkihúfan. Síðan segir: „Störf Guðmundar leiddu til afskipta hans af framkvæmdinni í heild fyrir hönd rn.“ — Var það þá fyrir hönd rn. sem sú margfræga frú með svarta kassann kom hingað á vegum Guðmundar, sem virðist hafa verið sjöunda silkihúfan? Af þeirri silkihúfu hefur nú harla lítið frést, þó að lögð hafi verið fram fsp. hér á Alþ. um hvaða niðurstaða hafi orðið af komu hennar hingað. Síðan segir: „Guðmundur leitaðist einkum við að hafa áhrif á framgang þeirra verkþátta, sem virtust vera að dragast aftur úr, og stuðla að gerð endurskoðaðrar verkáætlunar.“ Og til þess naut Guðmundur þeirra ráðlegginga sem alþjóð er kunnugt. Þá kemur sjöunda silkihúfan. Haustið 1976 skipar iðnrn. öryggisnefnd til þess að hafa umsjón með öryggisráðstöfunum á Kröflusvæðinu vegna eldgosahættunnar og Guðmundur skipaður formaður nefndarinnar. Síðan kemur áttunda silkihúfan: skipun þriggja manna nefndar iðnrn. til þess að samræma aðgerðir og taka ákvörðun um meiri háttar framkvæmdir við Kröflu. Þarna eru komnir fyrir utan hæstv. iðnrh. sjálfan, 8 stjórnunaraðilar við þessa framkvæmd: hinir þrír upprunalegu: Orkustofnun, Kröflunefnd, Rafmagnsveitur ríkisins með iðnrh. sem oddamann væntanlega, og svo hvorki meira né minna en fimm aðrir stjórnunaraðilar fyrir utan kerlinguna með svarta kassann. Virðist vera að verkefni séu meira eða minna blandað í höndum þessara stjórnunaraðila, og ekki verður séð af skýrslunni að neinn, nema þá kannske hæstv. iðnrh. sjálfur, hafi átt að annast samræmingarstarfið.

Ég vil að lokum gefa nokkrar frekari upplýsingar en gefnar eru í þessari skýrslu um kostnaðaratriði. Ég hef talsverðan áhuga á að reyna að fara rétt með tölur, sem ekki er gert í þessari Kröfluskýrslu, við hvern svo sem þar er að sakast, en ég vil gefa nokkrar upplýsingar til þess að reyna að bæta úr.

Á bls. 213 er tafla 1: Heildarbyggingarkostnaður í millj. kr., án fjármagnskostnaðar. Þar eru gefnar upp tölur um byggingarkostnað við Kröfluvirkjun skipt á Kröflunefnd og Orkustofnun á árunum 1974, 1975, 1976, 1977, samtals til ársloka 1977, áætlaður viðbótarkostnaður á verðlagi 1977 og áætlaður heildarkostnaður á verðlagi 1971. Ég vil fyrst taka það fram, að þetta er í fyrsta sinn sem ég sé tölur um áætlaðan viðbótarkostnað af völdum Kröfluvirkjunar, annars vegar 780 millj. kr. frá Kröflunefnd, hins vegar 2791 millj. kr. frá Orkustofnun. Ég á þó sæti í fjvn. Alþ. og þar er okkur tjáð, að enginn kostnaður sé ógreiddur, svo að ég veit ekki fyrir hvað þessar tölur standa. En það sem rangt er gert, og er raunar furðulegt að maður með þekkingu og menntun Júlíusar Sólness skuli ganga þannig frá málum, er þegar sagt er frá áætluðum heildarkostnaði á verðlagi 1977 í aftasta dálki töflunnar. Þessi áætlaði heildarkostnaður á verðlagi 1977 er einfaldlega fenginn þannig, að greiddur kostnaður á verðlagi hvers árs um sig: 1974, 1975, 1976 og 1977, er lagður saman án þess að umreikna til sambærilegs verðlags, áætluðum viðbótarkostnaði bætt við og útkoman sögð vera áætlaður heildarkostnaður á árinu 1977. Ég vona að hér sé um mistök að ræða hjá verkfræðingnum, en ekki af ráðnum hug gert, því að hér er að sjálfsögðu um barnaleg mistök að ræða. Raunar getur verið um að ræða það sem verra er. Þannig er fengið út að áætlaður heildarkostnaður fyrir utan fjármagnskostnað verði 11 milljarðar 223.7 millj, kr.

Ég hef látið reikna þetta út eins og það ætti að vera í þessari skýrslu samanborið við þær fyrirsagnir sem gefnar eru við hvern dálk. Fjármagnskostnaður, sem ekki er gefinn upp í þessari skýrslu, er árið 1975 24.1 millj., árið 1976 215.4 millj., árið 1977 469.7 millj. Samtals til ársloka 1977 709.2 millj. Það eru engar upplýsingar fengnar í þessari skýrslu um fjármagnskostnað vegna Kröflu. Um það hefur verið spurt, m. a. í leiðara eins dagblaðsins í dag, og mér er mikil ánægja að geta upplýst þetta.

Á verðlagi 1977, miðað við byggingarvísitölu, sem vantar inn í þessa áætlun enda þótt sagt sé að reiknað sé þannig, eru kostnaðartölur hvers árs sem hér segir: 1974 90.4 millj. kr., 1975 1372.5 millj. kr., 1976 6107 millj. kr., 1977 2702.1 millj. kr. Samtals til ársloka 1977 10 milljarðar 272 millj. kr. Ég get ekki áætlað viðbótarkostnað, en hann er áætlaður í þessari skýrslu 3571 millj. kr. Ég geri enga breytingu á því, þar sem ég veit ekki fyrir hvað þessar tölur standa. Samtals er áætlaður heildarkostnaður á verðlagi 1977 við Kröfluvirkjun þannig 13 milljarðar 843 millj. kr. Að viðbættum gengismun á lánum upp á 1758.9 millj. kr. er kostnaður vegna Kröfluvirkjunar á verðlagi 1977 samtals 15 milljarðar 601.9 millj. kr., en ekki 11 milljarðar 223.7 millj. kr., eins og ranglega er sagt í þessari skýrslu. Á verðlagi í apríl 1978, í öllum tilvikum miðað við vísitölu byggingarkostnaðar, er kostnaður við Kröfluvirkjun 17 milljarðar og 6 millj. kr. sléttar.

Ég nefndi hér tölur um fjármagnskostnað upp á 709.2 millj. kr. miðað við stöðuna 31.12.1977. Nákvæmlega er fjármagnskostnaðurinn 709 millj. 184 þús. kr. Miðað við bráðbirgðayfirlit 31.l2.1977 er gengismunur lána 1 milljarður 758 millj. 827 þús. kr. sléttar. Engar af þessum upplýsingum er að finna í skýrslunni.

Þá get ég einnig getið þess, að lán til Kröfluvirkjunar hafa verið tekin sem hér segir: Eftirstöðvar 31.12.1977: Endurlán af spariskírteinafé að nafnverði 1 milljarður 27 millj. 377 þús. 167 kr. Endurlán af erlendu fé 5 milljarðar 594 millj. 160 þús. 168 kr. Bein erlend lán frá 1976: Lán frá fyrirtækinu Mitsubishi umreiknað í íslenskar krónur 1 milljarður 420 millj. 144 þús. 709 kr. Eftirstöðvar lána 31.12.1977 vegna Kröfluvirkjunar, þ. e. a. s. vegna framkvæmda Kröflunefndar einnar fyrir utan Orkustofnun, sem ég veit ekki hvað er, eru samtals 8 milljarðar 41 millj. 682 þús. 44 kr. Þetta tel ég nauðsynlegt að fram komi við þessar umr. þar sem um þetta er spurt í fsp. okkar 10 þm., en svör ekki gefin.

Ég veit ekki hversu langt ég á að rekja þetta meira. Það er athyglisvert hvaðan við erum farin að taka þau erlendu lán sem við notum nú til þess að greiða fyrir bæði eyðslu og fjárfestingu á Íslandi. Og það er mjög athyglisvert að hugleiða hversu hár hluti af samanlögðum virkjunarkostnaði þessar lántökur eru. Hér á árum áður var farið eftir þeirri reglu að taka ekki erlend lán nema sem samsvaraði erlendum kostnaði, en nú, eins og af þessum tölum má sjá sem ég var að lesa áðan, er farið að taka erlend lán ekki aðeins til að standa undir erlendum kostnaði, heldur einnig til að standa undir innlendum kostnaði.

Herra forseti. Fjölmennari þjóðir en við Íslendingar erum hafa vissulega efni á mistökum eins og þeim sem gerð hafa verið við Kröflu. En fyrir jafnfámenna þjóð og okkar er það mjög alvarlegt efnahagsáfall þegar slík fjármálamistök eru gerð. Óhemjumiklu fé hefur verið varið norður við Kröflu að þarflausu, eins og ég benti á í upphafi máls míns, og því miður höfum við með því móti ekki aðeins varið fé að þarflausu, nánast kastað fé út um gluggann, heldur höfum við varið fé í framkvæmd sem ekki er fyrirsjáanlegt annað mörg ár fram í tímann en við þurfum að verja mjög miklu fé úr sameiginlegum sjóðum þjóðarinnar til að standa undir rekstri á. Þessi framkvæmd er að sjálfsögðu ekki á ábyrgð Kröflunefndar, ekki á ábyrgð Orkustofnunar, ekki á ábyrgð Rafmagns­ veitna ríkisins. Þetta er framkvæmd sem hæstv. ríkisstj. var falin af Alþ. í ljósi ákveðinnar vitneskju, sem lá fyrir þegar ákvörðunin um virkjunina var tekin, og í ljósi ákveðinna ákvarðana, sem þá var búið að taka, en var síðan breytt. Mistökin við Kröflu eru því á ábyrgð hæstv. iðnrh. og ríkisstj. Það eru þeir pólitísku aðilar sem þarna hafa ráðið ferðinni.

Og þá að lokum: Hvað er rétt að gera við þær aðstæður sem nú blasa við? Ég er enginn sérfræðingur í þessum málum, en að sjálfsögðu er augljóst að nú þegar höfum við bundið svo mikið fé í Kröfluvirkjun að við bókstaflega verðum að gera það sem skynsamlegast og eðlilegast getur talist til þess að koma þessum fjármunum í gagnið. Við verðum að gera það nú sem átti að gera í upphafi, og gera okkur grein fyrir því, að vandamál Kröflu er ekki aðeins fólgið í gufuöflun og rannsóknum, heldur er einnig um rekstrarfræðilegan vanda að ræða. Við þurfum einnig að taka til gaumgæfilegrar athugunar hvað við getum gert og hvernig við eigum að starfa til þess að létta af okkur sem mest fyrirsjáanlega miklum rekstrarhalla af þessari virkjun, án tillits til þess, hvort hún kemst í gagnið fyrr eða síðar. Við þurfum nú þegar að gera okkur ljóst, að harla litlar líkur eru á því, að Kröfluvirkjun geti tekið til starfa að nokkru ráði í náinni framtíð. Við þurfum að sætta okkur við þessa staðreynd sem er óumflýjanleg. Og við þurfum að hefjast handa núna, eins og hefði verið betra að við hefðum gert í upphafi, standa að rannsóknum á Kröflusvæðinu með tilliti til gufuleitar með eðlilegum hætti innan eðlilegra tímamarka og með trausti á þá sérfræðinga og rannsóknarmenn sem mesta reynslu hafa fengið af slíku og besta þekkingu. Við verðum síðan að gera athuganir á því, hvernig við getum stýrt þessum framkvæmdum þannig að sem minnst rekstrarkostnaðarleg byrði verði á fyrirtækinu, og í þriðja, en alls ekki síðasta lagi, verðum við að fá einhvern aðila til þess að gerast ábyrgur fyrir þessari framkvæmd, sem ekki er fyrst og fremst pólitískt handbendi eins eða neins; ekki er fyrst og fremst til þess valinn að taka á sig ákveðna, afmarkaða þætti framkvæmdarinnar, heldur er sá aðili sem vænta má að eigi að reka þessa virkjun í náinni framtíð og hafi því talsverða ábyrgð að bera sem endist lengur en þangað til hæstv. iðnrh., hver sem það svo verður, heldur formlega norður til Kröflu til þess að ýta á hnappinn.