05.05.1978
Sameinað þing: 75. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4595 í B-deild Alþingistíðinda. (3931)

328. mál, Kröfluvirkjun

Ingvar Gíslason:

Herra forseti. Það er orðið býsna áliðið nætur, og raunar var það ekki endilega meining mín að taka til máls í kvöld. En hinu er ekki að leyna, að eftir þá löngu dómadagsræðu sem hv. þm. Sighvatur Björgvinsson flutti, þá vaknar eitt og annað upp í huga manns. En ég vil taka það fram, að það er alveg útilokað að ég fari að rekja hér alla sögu Kröflumáls. Hitt kann að vera, að ég skjóti inn svolitlum þætti í sambandi við forsöguna eða upphaf Kröflumálsins, vegna þess að það skiptir ákaflega miklu máli hvernig að því var staðið. Sannleikurinn er sá, að þetta Kröflutal er búið að vera móðursýkismál í blöðum og öðrum fjölmiðlum um nokkurra ára skeið og virðist lítið úr því draga og væri út af fyrir sig ástæða til að rekja það, hvernig þetta mál hefur sífellt verið að taka ýmsum myndbreytingum. Ég held að margir, sem hafa fylgst með þessu máli, muni, hvert var hið fyrsta stig Kröflusýkinnar, hvað skeði, við skulum segja vorið 1975, þegar byrjað var að skrifa um þetta mál í blaðsnepil Alþýðuflokksins norður á Akureyri, — blaðsnepil sem ég veit varla hvort kemur út lengur og var á þeim tíma, satt að segja, ekki lesinn nema af örfáum mönnum, og lengi vel fengu þeir kratar á Akureyri lítinn hljómgrunn fyrir það þrugl sem þeir þá skrifuðu um aðgerðir Kröflunefndar. En þá var það, að ritstjóri þessa blaðs dreif sig í útvarpið og talaði í 20 mínútur um daginn og veginn flutti þann fyrirlestur, sem nokkuð var eftir tekið. Ég minnist lengi þessarar ræðu og hef stundum verið að bera það saman, sem hann hafði þá að segja um Kröflumálið, við það sem síðar varð í því máli. Mergurinn málsins í þessum skrifum og þessari ræðu var að koma því orði á Kröflunefnd, að hún ynni hlutdrægt að útboðum og vall verktaka og að hún hundsaði þá sem henni sýndist, en tæki þá fram yfir sem henni stæðu að einhverju leyti næst. Og raunar var þá þegar farið að búa til þá sögu, að Kröfluvirkjun væri einkafyrirtæki Jóns Sólness og fjölskyldu hans.

Þessi mynd Kröflumálsins, Kröflumóðursýkinnar, stóð um nokkurra vikna skeið, nokkurra mánaða skeið kannske, og stóð hátt í júlímánuði þetta sumar, 1975, þegar Alþýðuflokksmenn á Norðurlandi héldu frægt þing sitt þar nyrðra og ákváðu þar að gera Kröfluvirkjun að pólitísku máli. En síðan fór þetta mál smám saman að taka breytingum, og eftir að Leirhnúkur gaus, sællar minningar, í des. 1975, þá held ég að þetta mál hafi tekið á sig þá mynd sem hefur einna lífseigust orðið, þ. e. a. s. að Kröflunefnd, sem samkv. áróðurskenningunni hafði sjálf búið til þetta viðfangsefni og ákveðið að virkja þarna og vann, að því er virtist, á eigin ábyrgð og að eigin frumkvæði, hafi anað út í þessar framkvæmdir gegn viðvörun Orkustofnunar sem bæði átti að hafa séð fyrir að það mundi aldrei finnast gufa á þessu svæði og jafnframt að það væri nokkuð klárt, að Leirhnúkur eða nágrannafjöllin mundu gjósa fljótlega yfir öll mannvirki Kröflunefndar sem hún var að reisa þar fyrir eigin reikning og að eigin frumkvæði, að því er virtist, og sér til gamans.

Þetta er sú mynd Kröflumóðursýkinnar sem hefur orðið einna lífseigust og hefur orðið helsta ánægjuefni margra fjölmiðla og eins pólitísks flokks sem á fulltrúa hér á Alþingi. Einn hv. alþm. þessa flokks hefur nú haldið sitt strik og ætlar að enda þetta kjörtímabil með því að minna enn á þá afstöðu sem þeir félagar hafa til þessa máls.

En allt er nú þetta á ansi miklum misskilningi byggt, eins og glögglega kemur fram í þeirri skýrslu sem hér hefur verið lögð fram og ég tel að sé greinargóð lýsing á því, hvað gerst hefur og ég sé enga ástæðu til að rekja. Hún talar sjálf máli sínu.

En vegna þess að það er mikið talað um forsögu málsins, þá langar mig til þess að bæta dálitlu við og horfa lengra aftur í tímann og minna á skjöl, sem er gott að hafa í huga þegar við erum að ræða forsögu þessa máls og sanna það, hversu fráleitt er að halda því fram, að Kröflunefnd hafi anað áfram án vilja og vitundar vísindamanna og þá sérstaklega Orkustofnunar.

Ég er hérna með fyrir framan mig fundargerð sem ég hygg að sé í fárra manna höndum, en af einhverri slysni hefur fylgt mér frá því í nóvemberlok 1973. Þá var haldinn fundur á Akureyri um orkumál á Norðurlandi á vegum Fjórðungssambands Norðlendinga, og þetta var mjög langur og ítarlegur fundur. Það voru haldin mörg framsöguerindi, og framsöguerindin fluttu m. a. þáv. iðnrh., orkumálastjóri og Sveinbjörn Björnsson, sem þá er kallaður forstöðumaður jarðhitadeildar Orkustofnunar. Þetta þykja mér allmerkileg plögg sem hér liggja fyrir, og ég vil biðja menn að athuga það, að þessi plögg eru frá því í nóv. 1973, áður en frv. var lagt fram um Kröfluvirkjun eða um jarðgufuvirkjun við Námafjall eða Kröflu og áður en eiginlega nokkur maður í landinu var almennilega kunnugur þessu máli eða þeim hugmyndum sem uppi væru um möguleika á virkjun jarðgufu í svo stórum stíl sem þarna er nú gert ráð fyrir. Ég segi fyrir mig, að þetta var í fyrsta skipti sem ég heyrði þessa kunnáttumenn í þessum fræðum flytja mál sitt um þetta efni. Og fyrstur reið á vaðið þáv. iðnrh., Magnús Kjartansson, og flutti býsna langa ræðu um orkumáli og þá sérstaklega um orkumál á Norðurlandi, og einn kafli ræðu hans fjallar einmitt um þessa virkjun og virkjunarmöguleika á jarðhitasvæðinu í Mývatnssveit. Og þar segir, með leyfi hæstv. forseta, í þessari ræðu iðnrh. Magnúsar Kjartanssonar 30. nóv. 1973 á Akureyri:

„Á Norðurlandi eru sem kunnugt er margir virkjunarmöguleikar. Mér virðist því vera nærtækast og álitlegast að ráðast í jarðgufuvirkjun á Kröflusvæðinu. Þar hafa sem kunnugt er farið fram rannsóknir á ýmsum valkostum. Það hefur verið könnuð hagkvæmni 8, 6, 12 og 16 mw. virkjana, og það hefur komið í ljós, að þessar virkjanir verða þeim mun hagkvæmari sem þær eru stærri, og nú nýlega hefur verið skilað áætlun um 55 mw. virkjun með einni vélasamstæðu, og samkv. þessari athugun á orkuverð þarna aðeins að vera 39 aurar á kwst. Mér finnst þetta að vísu vera ótrúlega lág tala,“ segir ráðh. „Ég geri ráð fyrir því, að hún eigi eftir að hækka nokkuð. Engu að síður bera þessar áætlanir með sér, að slík gufuaflsstöð yrði ákaflega hagkvæm, og ég held að það sé óhætt að gera ráð fyrir því, að orka frá henni eigi ekki að þurfa að vera dýrari en frá þrefalt stærri vatnsaflsstöð. Þarna er miðað við eina vélasamstæðu, eins og ég sagði áðan. Ég held það öruggara að hafa samstæðurnar tvær, m. a. af öryggisástæðum, einnig vegna þess að þarna er verið að ráðast í framkvæmdir, sem við höfum sjálfir ekki ýkjamikla reynslu af, en einnig af þeim ástæðum væri mjög mikilvægt að geta ráðist í slíka jarðgufuvirkjun.

Við vitum að jarðhitinn er langstærsta orkulindin á Íslandi, og við þurfum að tryggja okkur nægilega reynslu til að geta ráðist í nýtingu þessarar orku með sem mestum hraða. Nú þarf að framkvæma frekari rannsóknir á Kröflusvæðinu áður en hægt er að taka endanlegar ákvarðanir um virkjun þar. Vitað er að það er einnig hægt að ráðast í slíka virkjun í Námaskarði, og það liggur ekki alveg ljóst fyrir, hvort botnhiti á Kröflusvæðinu er jafnhár og í Námaskarði, þannig að segja má að þessir kostir geti verið opnir enn sem komið er. Hins vegar er rétt að minna á það, að Náttúruverndarráð hallast frekar að virkjun á Kröflusvæðinu af umhverfisástæðum.

Þessi niðurstaða um hagkvæmni jarðgufuvirkjunar er fyrir Íslendinga almennt séð athyglisverð. Okkar vandi er sá, að við erum með tiltölulega lítinn raforkumarkað á Íslandi og ef við verðum að ráðast í mjög stórar virkjanir hverju sinni, t. d. 150 mw. eins og Sigölduvirkjun verður, þá verðum við að auka orkuna svo mikið að markaðurinn tekur ekki við henni á eðlilegan hátt og við nýtum þessa orku varla með því að koma upp orkufrekum iðnaði í sambandi við hana. Það getur verið hagkvæmara að virkja í smærri áföngum heldur en að þurfa að taka svona stór stökk hverju sinni. Og verði reynslan góð af rekstri jarðgufuvirkjana hygg ég þá að það verði farið meira inn á þá braut.

Um framkvæmdahraða í sambandi við slíka jarðgufuvirkjun er erfitt að segja. Mér skilst að afgreiðsla véla muni taka a. m. k. 3 ár,“ segir ráðh. „Eftir er að framkvæma vissar rannsóknir, eins og ég gat um, en ef hámarkshraði verður hafður á þessu, þá ætti slík stöð að geta tekið til starfa á árinu 1978 eða jafnvel fyrr, þ. e. á árinu 1977, ef lögð verður á þetta mikil áhersla.

Unnið er að því í iðnrn. í samvinnu við Orkustofnun að ganga frá frv. um heimild til slíkrar virkjunar, og ég held að það sé skynsamlegt að fá slíka heimild nú þegar vegna þess að hún gerir okkur kleift að ráðast í þann undirbúning sem þarna þarf að ráðast í. Ef Alþ. lýsir yfir jákvæðum vilja, þá höfum við möguleika á að hraða öllum undirbúningsframkvæmdum eins og unnt er.

Þarna kemur einnig að öðru máli, um það, hverjir skuli eiga þessar stöðvar, sem ég hef talað um, þ. e. a. s. varaaflsstöðina hér á Akureyri og jarðgufuvirkjun til að mynda á Kröflusvæðinu. Ég er þeirrar skoðunar, að þessar stöðvar eigi að vera í eigu orkuöflunarstofnunar Norðlendinga. Ég hygg að þið þekkið allir till. sem ég lagði fram á þingi á sínum tíma um skipulag raforkumála.“

Ég ætla nú ekki að lesa meira úr þessari ræðu þáv. iðnrh. sem hann flutti í nóv. 1973 áður en hann kynnti þetta mál hér á Alþ., en mér finnst að þessi kafli, sem ég las, sýni glögglega hversu mikla trú ráðh. hafði þá á þessu máli.

Mig langar aðeins til þess að drepa á nokkur orð sem Jakob Björnsson orkumálastjóri flutti á sömu ráðstefnu og sama dag. Þar segir orkumálastjóri m. a., með leyfi hæstv. forseta:

„Ef við höldum vestur eftir er næst Námafjall og Krafla, sem mjög hefur verið rætt um upp á síðkastið, og eftir að þetta er skrifað er komin út áætlun um þessa virkjun, að vísu frumáætlun, en eins og ráðh. sagði hér áðan, þá verka þær tölur, sem þar eru birtar, býsna lágt og það er rétt, þær eru það, og það er með svona áætlunartölur, að þær eru alltaf dálítið varasamar. Þessi áætlun er t, d. ekki sambærileg að gæðum eða undirstöðubyggingu skulum við segja við áætlanir við Sigöldu eða Hrauneyjafoss þar sem hafa farið fram miklu meiri rannsóknir. Við vitum miklu meira um aðstæður þar en við vitum um Kröflu, þannig að það má t. d. ekki taka þessar tölur og bera þær saman við tölur við Sigöldu eða Hrauneyjafoss. Það eru ekki sambærilegar tölur vegna þess að þær eru ekki byggðar á sambærilegum forsendum. Þetta er hins vegar það lágt að okkur finnst allt benda til þess, að þarna sé um mjög álitlega hluti að ræða. Þessir 39 aurar munu örugglega hækka við frekari áætlanir, en þrátt fyrir það er allt sem bendir til að þarna sé um mjög álitlega virkjunarvalkosti að ræða. Einnig þar er við viss umhverfisvandamál að etja, sem hafa verið talsvert mikið rædd í þessari samstarfsnefnd á öðrum fundi eftir að þetta var samið.“

Ég sleppi svo hér úr nokkrum línum, — og þó. Ég held ég haldi nú áfram lestrinum:

„Ég get skýrt frá því, að við hjá Orkustofnun erum með í gangi sérstaka athugun á þessum umhverfisvanda og sumar af þessum rannsóknum, sem þarna er lagt til í ályktun Náttúruverndarráðs, eru í gangi hjá okkur og við höfum góðar vonir um að þetta þurfi ekki að verða til árekstra. Hins vegar er það svo, að við þekkjum Kröflu miklu verr heldur en Námafjall, m. a. þekkjum við ekki botnhitann þar. Það er hugsanleg.sú útkoma út úr borun, og þessi botnhiti verður ekki kannaður nema með borun, að hann reynist til muna lægri heldur en við Námafjall. Ég vil ekki segja að það sé líklegt, en það er ekki hægt að útiloka það, og botnhitinn hefur ákaflega víðtæk áhrif á hagkvæmni svona jarðgufuvirkjunar. Tiltölulega lítil lækkun á hitastigi hefur mikil áhrif á afkomu svona virkjunar. Þá er hugsanlegur sá möguleiki, að rannsóknir mundu sýna að Námafjall væri tæknilega séð heppilegri staður og við höfum einnig rætt þann möguleika í samstarfsnefndinni. Eins og sést í þessari grg. og í samþykkt Náttúruverndarráðs, þá leggja þeir til að það verði frekar lögð áhersla á Kröflu í þessu sambandi, en við höfum rætt hinn möguleikann einnig, og að því er varðar mengunarhættu, þá held ég að menn séu sammála um að það sé nokkuð sama hvor staðurinn er valinn.“

En svo segir orkumálstjóri síðan, með leyfi hæstv. forseta:

„Það er það athyglisverða við niðurstöður af þessari áætlun um jarðgufuvirkjun, eins og bent hefur verið á, að þarna virðist mega fá svipað orkuverð frá 55 mw. stöð eins og hægt er að fá frá vatnsaflsstöð sem er stærri.“

Og fleira mun nú sagt hér í þessari löngu ræðu orkumálastjóra m. a. þetta, með leyfi hæstv. forseta:

„Þó að samtenging sé gerð suður verða viðhorfin talsvert önnur miðað við sömu stærð, vegna þess að þá er jarðhitaorkuverið minni hluti af heildinni, en ef við hugsum okkur að byrja á 55 mw. stöð og halda áfram með önnur 55 mw. næst þar á eftir og síðan e. t. v. þá þriðju, þá er einnig þar um að ræða talsverðan hluta af heildinni. Svipuð sjónarmið gætu þá farið að koma inn, þannig að frá varfærnissjónarmiði má segja að eðlilegast er að hugsa sér að byrja þarna á 55 mw. stöð, næsta stöð þar á eftir væri vatnsaflsstöð og síðan gæti komið til athugunar viðbót í Kröflu.“

En það, sem ég held þó að sé hvað skemmtilegasti lesturinn í þessu öllu og hafi ekki síst orðið til þess að kveikja miklar vonir hjá þeim sem hlýddu á orkuyfirvöldin á þessari tíð, er ræða Sveinbjörns Björnssonar forstöðumanns jarðhitadeildar Orkustofnunar, sem hann flutti á þessum tiltekna fundi. Sú ræða er ekki ákaflega löng, og mig langar til þess að lesa upp úr henni nokkur orð:

„Ég vildi byrja á því að fara nokkrum orðum um Kröfluvirkjun sem margir ræðumenn hafa vikið að. Reyndar gerðu ráðh. og orkumálastjóri ágæta grein fyrir stöðu þessa máls. Það voru örfá atriði sem ég vildi drepa á.

Rannsóknir hófust á þessu svæði sumarið 1969 og hafa verið stundaðar síðan. Þetta voru jarðfræðirannsóknir, jarðeðlisfræðimælingar, jarðefnafræðilegar, og það má segja, að því, sem við köllum frumrannsókn hafi lokið sumarið 1971. Þá var búið að gera allt sem okkur þótti fært að gera.

Næsti áfangi, sem við viljum standa fyrir, er svonefnd djúprannsókn. Þá verða boraðar rannsóknarholur. Við óskuðum eftir fjárveitingu til þess að bora árið 1972 tvær rannsóknarholur. Við óskuðum þess enn varðandi fjárlög 1974. Þetta er ekki í því fjárlagafrv. sem lagt var fyrir í þingbyrjun. Hins vegar eru vonir um að fé fáist til að bora þarna eina rannsóknarholu. Eins og ráðh. lýsti er það mjög mikilvægt að gera þarna rannsóknarholu til þess að staðfesta þær rannsóknir sem á yfirborði hafa leitt líkur til að þarna sé nægur botnhiti til þess að fara út í jarðgufuvirkjun, sem ætti helst ekki að vera lægri en 260 stig. Til samanburðar er hitinn í Námafjalli 260–290 stig. Það veltur sem sagt ákaflega mikið á því, að hann reynist þetta hár.

Í þeirri áætlun, sem gefin var út í júlí 1972, var frumáætlun um virkjun Kröflu. Þar voru nefndar stærðirnar 4, 8, 12 og 16 mw. Þá var talið af þeim, sem að áætluninni unnu, að það mundi taka 43 mánuði frá því að ákvörðun yrði tekin um virkjunina þar til hún mundi geta tekið til starfa. Meginhluti þessa tíma virtist vera afhendingarfrestur á túrbínu og tíminn við að koma henni upp og prófa hana. Ef ég man rétt er talið að 22 mánuðir væru líklegur afhendingarfrestur, en síðan eitt ár að koma henni til landsins og setja hana upp. Það kann að vera að hægt sé að fá þessa túrbínu með skemmri fresti. Þetta mál þarf að kanna betur. Það gæti verið að þar kæmi beinlínis heppni til greina eftir því hvaða túrbínustærð verður valin.

Ég vildi taka undir með öðrum sem hér hafa talað, að það er hæpið að menn legðu út í það þarna að virkja með einni 55 mw. vél. Það yrði stærsta vél á landinu, og með tilliti til þess, að þarna er um fyrstu alvörugufuaflsstöðina að ræða, má segja, að hæpið sé að menn leggi út í það að hafa aðeins eina vél. Hins vegar mætti hugsa sér tvær vélar eða þrjár, eftir því hver afhendingarfrestur væri og eftir því í hve mörgum þrepum menn vildu byggja þetta upp.“

Og áfram heldur Sveinbjörn Björnsson ræðu sinni þarna og talar um verðið:

„Verð frá þessari rafstöð mundi hækka eitthvað frá þeirri áætlun sem hér var nefnd um 55 mw. vél, því að það er heldur dýrara ef túrbínurnar eru fleiri. Hins vegar gætu aðrir hlutar virkjunarinnar verið eins. Verðið hækkar eitthvað enn miðað við að stærðin færi aldrei upp fyrir 16 mw. stærðina sem þið hafið í þessari skýrslu.“

Í þessum ræðum er að finna þá bjartsýni sem ríkti hjá Orkustofnun alla tíð frá því að fyrst var farið að kynna þetta mál og leggja það fyrir Alþ. og kynna það alþm. Og þessi bjartsýni var mjög áberandi í þeim þskj., sem lögð voru fram, og í þeim ræðum, sem t. d. iðnrh. þá flutti fyrir sínu máli. Og það er alveg ljóst, að ef einhver er höfundur að Kröfluvirkjun og hefur lagt þar á ráðin, þá er það vitanlega Orkustofnun. Það er Orkustofnun sem gaf mönnum hugmyndina um þessa möguleika og hefur alla tíð og frá fyrstu tíð lagt á ráðin í þessu sambandi. Og þau mistök, sem síðan hafa orðið, hljótum við að skrifa að langmestu leyti á reikning Orkustofnunar.

Sannleikurinn er sá, að okkur, sem fylgdumst með þessum málum eftir að kom til framkvæmdanna, fórum þá að fylgjast með þessum málum, varð fljótlega ljóst að Orkustofnun réð ekki að öllu leyti við það verkefni sem henni hafði verið falið. Það kom í ljós mjög fljótlega, því miður, að sú bjartsýni, sem var í öllum frumskýrslum er fyrir lágu þegar ráðist var í þessa framkvæmd, var að ýmsu leyti á veikum stoðum reist. Það kom í ljós, að Orkustofnun vissi minna en menn héldu að hún vissi. Og því miður verður það líka að segjast, að jafnframt því sem hún vissi kannske miklu minna um raunverulegt ástand svæðisins, þá kom líka í ljós að Orkustofnun var vankunnandi í mörgum praktískum efnum, og þá á ég fyrst og fremst við það sem varðar bortækni. Þetta eru hlutir sem smám saman voru að renna upp fyrir manni því meira sem maður fylgdist með því sem var að gerast á virkjunarsvæðinu. Og ef það er eitthvað sem ég get ásakað mig fyrir í sambandi við Kröflumálið, þá er það að hafa treyst í blindni á þær skýrslur sem lágu fyrir frá Orkustofnun í upphafi þessa máls. En það gerði ég og það gerðum við flestir.

Það hefur satt að segja fallið mér mjög illa, hvernig fjölmiðlarnir hafa reynt að halda á loft því sem ég hef leyft mér að kalla „viðvörunarpólitík“ Orkustofnunar gagnvart einhvers konar flumbruhætti okkar hjá Kröflunefnd. Sannleikurinn er sá, að þessi viðvörunarpólitík Orkustofnunar er mestan part uppspuni fjölmiðla, og það hygg ég að sú skýrsla sýni sem hér liggur fyrir frá hæstv. iðnrh., og það sýna þau plögg sem fyrir liggja, bæði fyrr og síðar, bæði hinar opinberu skýrslur sem gefnar hafa verið allt frá 1969 og fram til ársins 1975, og ræður og yfirlýsingar, blaðaviðtöl, sem komið hafa fram frá Orkustofnun. Þetta þykir mér rétt að nefna, og ég ætla að segja það hér aðeins í einni setningu, að ég álit að Orkustofnun sé ekki hafin yfir gagnrýni, en eftir þeirri löngu ræðu, sem hv. þm. Sighvatur Björgvinsson flutti hér í kvöld, virðist að svo sé, því að hann gerðist fyrst og fremst árásarmaður, eins og fyrr, að okkur Kröflunefndarmenn og á iðnrh., en reyndi að bera í bætifláka fyrir Orkustofnun á þann hátt að ósæmilegt er. Það er enginn hafinn yfir gagnrýni, engin stofnun í þessu þjóðfélagi og enginn einstaklingur sem fer með opinbert vald. Mér er það ákaflega óljúft að þurfa að standa í illindum við stofnun af því tagi sem Orkustofnun er og ég veit, að er vel mönnuð — að ýmsu leyti mjög vel mönnuð, það er mér ljóst og það veit ég. En hins vegar hefur mér sviðið það, hvernig áróðurinn hefur orðið til þess að blekkja fólk varðandi ýmsar staðreyndir í sambandi við Kröflumálið.

Ég skal játa það, að þessi ræða mín er kannske nokkuð „konsentreruð“ á eitt atriði og sjálfsagt hefði verið eðlilegra að nota ræðutíma sinn til þess að tala vítt og breitt um þetta mál og nefna fleiri atriði. En þetta er mér efst í huga núna vegna þeirrar ræðu, sem hv. þm. Sighvatur Björgvinsson flutti hér í kvöld, vegna þess að hún var slík dómadagsræða, einhliða og þó í sama anda og við höfum heyrt frá honum og sálufélögum hans í Alþfl. og hjá skandalapressunni í landinu.

Ég skal ekki hafa um þetta fleiri orð, herra forseti, þó að af mörgu sé að taka. Ég get fúslega kannast við það, að við hjá Kröflunefnd höfum auðvitað gert margs konar mistök og mætti fyrr vera. En ég vil ekki að okkur sé kennt um mistök annarra.